Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2009, Page 24

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2009, Page 24
fimmtudagur 12. febrúar 200924 Ættfræði Örnólfur Thorsson bókmenntafræðingur og forsetaritari Örnólfur Thorsson forsetaritari hef- ur verið í DV-fréttum vegna viðtals tímaritsins Condé Nast Portfolio við forsetahjónin. Starfsferill Örnólfur fæddist í Reykjavík 8.6. 1954 og ólst upp í Vogahverfinu. Hann lauk stúdentsprófi frá MT 1974, BA-prófi í íslensku og almennri bókmenntafræði frá HÍ 1979, cand. mag.-prófi í íslenskum bókmennt- um frá HÍ 1993 og dvaldi við nám í Danmörku, Englandi og Þýskalandi 1980-82. Örnólfur var kennari við Fjöl- brautaskóla Suðurlands 1982, Flens- borgarskóla í Hafnarfirði 1982-84, VÍ 1984-86, KHÍ 1988-94, við Uni- versity of Leeds 1996-97 og stunda- kennari við HÍ 1994-2000. Auk þess kenndi hann við MHÍ og Vogaskóla skamman tíma, var starfsmaður Orðabókar Háskólans 1976-83, við Stofnun Árna Magnússonar 1982, Bókmenntafræðistofnun Háskól- ans í tvö sumur og við Bókaútgáfu Leifs Eiríkssonar 1997-99. Hann var sérfræðingur á Skrifstofu forseta Ís- lands 1999-2003, skrifstofustjóri frá 2003 og er nú forsetaritari. Örnólfur sat í stjórn Máls og menningar frá 1985, í framkvæmda- stjórn Bókmenntahátíðar í Reykja- vík frá 1985, í stjórn Bókmennta- kynningarsjóðs 1986-94, var ritari Félags íslenskra fræða 1989-95, for- maður stjórnarnefndar Þjóðskjala- safns Íslands 1990-94, formaður stjórnar Forlagsins hf. 1990-98, sat í skólaráði KHÍ 1990-94, í stjórn Hag- þenkis 1993-2000 og varaformaður þar 1998-2000, fulltrúi borgarstjór- ans í Reykjavík í Leikhúsráði Borg- arleikhúss 1994-2001, sat í menn- ingarmálanefnd Reykjavíkurborgar 1999-2002, í stjórn Menningarborg- asjóðs frá 2003, í stjórn Eddu – út- gáfu hf. 2000-2003 og var formaður samstarfsnefndar Reykjavíkurborg- ar og Leikfélags Reykjavíkur um skeið frá 2001. Örnólfur er höfundur greina í uppsláttarritinu Hugtök og heiti í bókmenntafræði útg. 1983 og greina um íslenskar miðaldabókmenntir í safnritum og tímaritum, greina um orðaforða Íslendinga sagna og ann- arra miðaldarita auk greina um bók- menntakennslu, samdi formála að útgáfum íslenskra bókmennta frá miðöldum, sinnti ritstjórn hjá Svörtu og hvítu 1977-80, var ritstjóri Skáld- skaparmála, tímarits um íslenskar bókmenntir fyrri alda, ásamt Gísla Sigurðssyni og Gunnari Á. Harðar- syni, 1990-2000, ritstjóri Orðabókar um slangur, slettur, bannorð og ann- að utangarðsmál, ásamt Merði Árna- syni og Svavari Sigmundssyni, útg. 1982, meðritstjóri Íslendinga sagna og þátta I-II, 1985-1986, endurskoð- uð útg. 1987, og Sígildra sagna 1-2, 1986-1987, vann að Orðstöðulykli Ís- lendingasagna ásamt öðrum sem og fjölda annarra útgáfa, íslenskra sem erlendra, er lúta að íslenskum forn- ritum. Þá hefur hann fengist við gerð útvarps- og sjónvarpsþátta frá 1976, ýmist einn eða ásamt öðrum. Fjölskylda Eiginkona Örnólfs er Margrét Þóra Gunnarsdóttir, f. 22.9. 1954, tónlist- arkennari. Hún er dóttir Gunnars Dyrset, f. 30.11. 1935, tannlæknis, og Eddu Óskarsdóttur, f. 18.1. 1938, myndlistarmanns. Börn Örnólfs og Margrétar Þóru eru Margrét Edda, f. 21.10. 1987; Þór- gunnur Anna, f. 16.1. 1990; Gunnar Thor f. 2.5. 1994. Bróðir Örnólfs er Guðmundur Andri Thorsson, f. 31.12. 1957, rit- höfundur, ritstjóri og fjölmiðlam- aður, en kona hans er Ingibjörg Ey- þórsdóttir myndlistarmaður og eiga þau tvær dætur. Foreldrar Örnólfs eru Thor Vil- hjálmsson, f. 12.8. 1925 í Edinborg í Skotlandi, rithöfundur og ritstjóri, og Margrét Indriðadóttir, f. 28.10. 1923 á Akureyri, fyrrv. fréttastjóri RÚV. Ætt Thor er sonur Guðmundar, fram- kvæmdastjóra Eimskipafélagsins Vilhjálmssonar, b. á Undirvegg í Kelduhverfi, bróður Páls, afa Stef- áns Jónssonar, alþm. og rithöfund- ar, föður Kára, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar. Annar bróðir Vil- hjálms var Hallgrímur, langafi Her- dísar, móður Hallmars Sigurðs- sonar, fyrrv. leikhússtjóra. Systir Vilhjálms var Valgerður, amma Val- týs Péturssonar listmálara. Vilhjálm- ur var sonur Guðmundar, b. á Brett- ingsstöðum Jónatanssonar. Móðir Guðmundar var Karítas Pálsdóttir, timburmanns Sigurðssonar, bróður Valgerðar, móður Þuríðar, formóð- ur Reykjahlíðarættar. Móðir Guð- mundar var Helga, systir Sigurbjarg- ar, ömmu Stefáns Jónssonar. Helga var dóttir Ísaks, b. á Auðbjargarstöð- um í Kelduhverfi Sigurðssonar, b. í Brekkukoti Guðbrandssonar, b. í Sultum Pálssonar, bróður Þórarins, afa Ólafar, langömmu Bjarna Bene- diktssonar forsætisráðherra og lang- ömmu Guðmundar Benediktssonar ráðuneytisstjóra. Systir Guðbrands var Ingunn, langamma Sveins, for- föður Hallbjarnarstaðaættar, afa Kristjáns Fjallaskálds. Móðir Thors var Kristín, syst- ir Ólafs Thors forsætisráðherra og Thors Thors sendiherra. Kristín er dóttir Thors Jensen, kaupmanns og útgerðarmanns í Reykjavík, og Mar- grétar Kristjánsdóttur, systur Stein- unnar, móður Kristjáns Alberts- sonar rithöfundar. Móðir Margrétar var Steinunn Jónsdóttur, b. í Bergs- holti Sveinssona, og Þorbjargar Guðmundsdóttur, prófasts á Staða- stað Jónssonar. Móðir Þorbjargar var Margrét Pálsdóttir, systir Gríms, langafa Ásgeirs Ásgeirssonar for- seta. Margrét er dóttir Indriða, raf- virkjameistara á Akureyri, bróður Gísla, föður Indriða, fyrrv. íslensku- prófessors við KHÍ, föður Ernu, blaðafulltrúa Alcoa. Indriði var sonur Helga, b. í Skógargerði Ind- riðasonar, hreppstjóra í Seljateigi Ásmundssonar. Móðir Indriða var Ólöf, systir Gísla, föður Benedikts í Hofteigi, og systir Hallgríms, lang- afa Agnars Hallgrímssonar íslensku- fræðings. Ólöf var dóttir Helga, b. á Geirúlfsstöðum, bróður Guðrún- ar, ömmu Gunnars Gunnarssonar rithöfundar. Helgi var sonur Hall- gríms, skálds á Stóra-Sandfelli Ás- mundssonar, bróður Indriða, föður Ólafs, prófasts og skálds á Kolfreyju- stað, föður skáldanna Páls alþm. og Jóns ritstjóra sem orti Íslendinga- brag. Móðir Margrétar var Laufey Jóhannsdóttir. Steingrímur Steinþórsson for- sætisráðherra fæddist í Álfta- gerði við Mývatn, sonur Steinþórs Björnsson, bónda þar, og Sigrún- ar Jónsdóttur húsfreyju. Sigrún var dóttir Jóns Sigurðsson, alþm. á Gautlöndum, og Sigríðar Jónsdótt- ur. Sigrún var því hálfsystir ráð- herranna Kristjáns og Péturs Jóns- sona, og Rebekku, móður Haralds Guðmundssonar, ráðherra og for- manns Alþýðuflokksins sem var föðurbróðir Jóns Sigurðssonar, fyrrv. viðskiptaráðherra, seðla- bankastjóra og nú nýverið stjórn- arformanns Fjármálaeftirlitsins. Steingrímur lauk búfræðiprófi frá Bændaskólanum að Hvann- eyri 1915 og prófi frá Búnaðarhá- skólanum í Kaupmannahöfn 1924. Hann var kennari við Bændaskól- ann að Hvanneyri 1924-28, skóla- stjóri Bændaskólans á Hólum 1928-35 og búnaðarmálastjóri 1935-62 að undanskildum ráð- herraárum sínum. Þá var hann ný- býlastjóri 1936-41. Trúnaðarbrestur milli for- manns Sjálfstæðisflokks og Fram- sóknarflokks, þeirra Ólafs Thors og Hermanns Jónassonar, gerði það að verkum að þeim var illa við að sitja saman í ríkisstjórn. Það var meginástæða þess að framsóknar- menn fengu Steingrím til að gegna forsætisráðherraembættinu í ríkis- stjórn Framsóknar og sjálfstæðis- manna 1950-53. Þá var hann land- búnaðar- og félagsmálaráðherra í ríkisstjórn sömu flokka 1953-56. Eðli málsins samkvæmt var Steingrímur engin tímamótafor- sætisráðherra. En hann var engu að síður fremur vel þokkaður stjórnmálamaður, hress í bragði og mikill hrókur alls fagnaðar í góðra vina hópi. Hann skrifaði endurminningar sínar sem eru um margt forvitnilegar um hrossa- kaup stjórnmálanna í lok hafta- tímans. Steingrímur Steinþórsson f. 12. febrúar 1893, d. 14. nóvember 1966 „Ég er búinn að vera að nýta vel þessa síðustu daga áður en ég verð þrítug- ur,“ segir afmælisbarn dagsins, Snorri Bjarnvin Jónsson, og þylur upp hin margvíslegu uppátæki síðustu daga: „Ég fór á svartfuglsskytterí á bát, svo fór ég til London að keppa í körfu- bolta og djammaði með strákunum, svo sá ég fljúgandi furðuhlut. Í und- irgöngum við Mjóddina í Reykjavík hitti ég svo tvær mellur sem buðu mér blíðu sína en furðulostinn sagði ég nei takk. Svo reyndi ég að labba upp á Mósgarðshnjúka með snjóbretti, á mánudaginn fór ég í listflug með Birni Thoroddsen, á þriðjudaginn fór ég á mótordreka, ég ætlaði í þyrluflug eft- ir mótordrekaflugið en af því að ég er að gera flugþætti fyrir ÍNN þurfti ég að nota vídeókameru í þyrlufluginu en hún fraus í mótordrekafluginu, svo þyrluflugið frestast aðeins. Síðasta daginn minn sem tuttugu og eitthvað ára gamall labbaði ég upp á Botnssúl- ur og renndi mér niður á snjóbretti.“ Nú þegar þrítugsafmælið er geng- ið í garð er dagskráin hjá Snorra hins vegar síður en svo á enda. „Í kvöld ætla ég að halda boð fyrir fjölskyld- una og fer svo á morgun til Köben að fagna afmælinu með vinum mínum þar.“ Snorri segist reyndar síður en svo vera mikill veislukarl enda hafi hann ekki verið að fagna þrítugsafmælinu síðustu daga heldur hafi hann verið að nýta vel síðustu daga æskunnar. „Nei, ég er ekki mikill veislukarl og af því að það er kreppa og maður hef- ur ekkert efni á að vera að halda stór- veislur fannst mér tilvalið að halda afmælispartí með vinunum í Dan- mörku. Við fengum miðana á góðu verði og ákváðum að skella okkur út,“ segir Snorri að lokum. krista@dv.is Merkir Íslendingar Snorri Bjarnvin Jónsson er þrítugur í dag: nýtti síðustu daga æskunnar Fólk Í FréttuM Afmælisbarn dagsins Snorri bjarnvin hefur nýtt síðustu daga sem maður á þrítugsaldri heldur betur vel. 30 ára n Haukur Ingvarsson Hagamel 45, Reykjavík n Willem Johannes Van Biljon Freyjugötu 42, Reykjavík n Kristján Kristjánsson Langholti 18, Akureyri n Benjamín Örn Davíðsson Sólvöllum 15a, Egilsstaðir n Snorri Bjarnvin Jónsson Hallakri 3, Garðabær n Snorri Gunnarsson Lækjargötu 30, Hafnarfjörður n Guðmundur Þór Brynjarsson Mosdal 1, Njarðvík n Ragnhildur Einarsdóttir Eyrargötu 3, Ísafjörður n Jósep Geir Guðvarðsson Hverfisgötu 98a, Reykjavík n Guðmundur Bragason Eggertsgötu 6, Reykjavík n Kristján Þór Magnússon Laugarbrekku 15, Húsavík n Grétar Örn Bragason Þrastanesi 18, Garðabær 40 ára n Wieslawa Kujoth Hjallabraut 4, Þorlákshöfn n Ellert Finnbogason Laufásvegi 63, Reykjavík n Valdimar Steinar Einarsson Suðurgötu 60, Hafnarfjörður n Unnsteinn Þráinsson Norðurbraut 9, Höfn n Steinar Gunnarsson Miðstræti 18, Neskaupstaður n Páll Vignir Þorbergsson Silfurgötu 43, Styk- kishólmur n Garðar Þór Jónsson Skessugili 15, Akureyri n Hafdís Huld Steingrímsdóttir Grundarhvarfi 21, Kópavogur n Valur Björn Önnuson Lindartúni 9, Garður n Pálína S Eggertsdóttir Mánalind 1, Kópavogur n Finnbjörn R Finnbjörnsson Efstasundi 10, Reykjavík n Steinunn Þorsteinsdóttir Hlíðarbraut 7, Hafnarfjörður n Ingimar Sigurðsson Ásbraut 5, Kópavogur n Halldór Snorrason Ólafsgeisla 107, Reykjavík n Rúnar Sigurður Guðjónsson Asparhvarfi 19c, Kópavogur n Kristín Snorradóttir Merkjateigi 1, Mosfellsbær 50 ára n Sigrún Erla Þorsteinsdóttir Gerðhömrum 26, Reykjavík n Guðjón Ágúst Sigurðsson Klausturhvammi 17, Hafnarfjörður n Sighvatur Karlsson Ketilsbraut 20, Húsavík n Guðjóna Vilmundardóttir Þórðarsveig 32, Reykjavík n Jón Hrafn Guðjónsson Gnoðarvogi 66, Reykjavík n Sverrir Einarsson Flesjakór 4, Kópavogur n Grétar Kristinn Gunnarsson Logafold 114, Reykjavík 60 ára n Dariusz Remigiusz Grabowski Baugholti 25, Reykjanesbær n Sigurður Bjarni Jóhannsson Lækjarvöllum 4, Grenivík n Sigurður Knútsson Ásabraut 8, Grindavík n Stefán Eiríksson Ásbúð 65, Garðabær n Stefán Björnsson Markarvegi 8, Reykjavík n Sigrún Árnadóttir Smárahvammi 2, Egilsstaðir n Jón Arnarr Einarsson Smáratúni 6, Selfoss n Ólafur Ólafsson Kjarrvegi 5, Reykjavík n Lovísa María Erlendsdóttir Undirhlíð 17, Selfoss 70 ára n Fanney Eysteinsdóttir Broddanesi 3b, Hólmavík n Þorbjörg Hannesdóttir Huldulandi 34, Reykjavík 75 ára n Sjöfn Bachmann Bessadóttir Hjallabraut 33, Hafnarfjörður n Erla Engilbertsdóttir Naustahlein 2, Garðabær n Hrafnkell Alexandersson Höfðagötu 15, Styk- kishólmur n Halldóra Edda Jóhannsdóttir Skólatúni 5, Álftanes n Ólöf Valdimarsdóttir Álfaskeiði 84, Hafnarfjörður n Svava Snorradóttir Furugerði 11, Reykjavík n Stefán Jóhannsson Fífumóa 6, Selfoss n Guðbjörn Axelsson Sóltúni 7, Reykjavík 80 ára n Jóhanna Bjarnadóttir Mýrarbraut 33, Blönduós n Jóhanna Arnljót Friðriksdóttir Grænutungu 5, Kópavogur n Lilja Kristjánsdóttir Rauðalæk 36, Reykjavík 85 ára n Guðjón Eymundsson Skúlagötu 20, Reykjavík 90 ára n Valgerður Guðmundsdóttir Hraunvangi 7, Hafnarfjörður til haMingju Með aFMælið!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.