Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2009, Side 30

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2009, Side 30
fimmtudagur 12. febrúar 200930 Fólkið Ívari Guðmundssyni var nýlega rænt úr Hagkaupum í Smára- lind. Eða öllu heldur pappaút- gáfu af Ívari sem var notuð við að kynna próteindrykkinn Há- mark. Visir.is greindi frá þessu í gær en pappaspjald með Arn- ari Grant var látið vera óhreyft. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem pappírsspjöldum af þessu tagi er rænt úr Hagkaupum. Pappírs- spjaldi með stjörnukokkinum Sigga Hall var rænt á sínum tíma en Siggi dúkkaði seinna upp í myndbandi með hljómsveitinni Á móti sól. Þá var pappírsspjaldi með Páli Óskari einnig rænt en myndband af ráninu var sett á vefinn youtube.com. Fékk bréF Frá Woody Húðflúr Ásbjargar Ísabellu Magn- úsdóttur, gítarleikara í Elektru eða Ísabellu eins og hún er oftast kölluð, hafa vakið mikla athygli en á vinstri upphandleggnum er hún með tígrisdýramynstur og þeim hægri með úlfaloppufar auk fjölda annarra húðflúra víðs vegar um líkamann. „Ég fékk mér þessi tattú sem minningu um tímann sem ég vann í skýli fyrir villt dýr í Banda- ríkjunum. Ég flutti þangað þegar ég var nítján ára með fyrrverandi eiginmanni mínum sem var að læra flugvirkjann í Bandaríkjun- um. Ég kynntist stelpu sem hafði erft þetta skýli frá pabba sínum og við tókum að okkur villt dýr sem fólk hafði fengið sér sem gæludýr en gat svo ekki séð um,“ útskýrir Ísabella. Í dýragarðinum voru hin ýmsu dýr að sögn Ísabellu sem hugsaði um þau eins og hver önnur gælu- dýr. „Þarna voru allar tegundir af stórum köttum, tígrisdýrum og svoleiðis og svo voru þarna tveir bjarnarhúnar, timburúlfur, strút- ur, skunkur, slöngur, geitur og alls kyns önnur dýr sem við vorum að hugsa um.“ Þrátt fyrir mikinn dýraáhuga setur Ísabella stefnuna þó annað hvað varðar framtíðarstarfið. „Ég stefni að því að fara í Lögreglu- skólann. Ég ætla í inntökupróf- in núna í haust svo ég er byrjuð að æfa á fullu til að vera í góðu formi. Mig langar mest að vinna í sifjadeild rannsóknarlögreglunn- ar sem rannsakar nauðganir og misnotkun. Ég held að það veiti ekkert af góðu fólki með heilann í lagi í lögregluliðið okkar,“ segir þessi ákveðna og hressa stúlka að lokum. krista@dv.is Í villtri vi u Jóhannes Benediktsson: Katrín Júlíusdóttir, þingkona Samfylkingarinnar, hefur aldrei verið í sambúð. Þetta kemur fram í nýjasta eintaki Vikunn- ar þar sem nokkrir misþekktir einstaklingar eru spurðir spurn- inga sem tengjast kynnum af hinu kyninu. Katrín hefur heldur aldrei náð heilu ári í sambandi að eigin sögn og hlær því þegar hún er spurð af Vikunni hvernig maður haldi í aðila þegar búið er að krækja í hann. Þess má geta að Katrín á tæplega tíu ára gamlan son, Júlíus Flosason, sem hún á með Flosa Eiríkssyni, bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar í Kópavogi. Í framhjáhlaupi má einnig geta þess að Egill „Gillz“ Einarsson svarar sömu spurn- ingu á afar hreinskiptinn hátt: „Ef þú getur tekið standandi 69 er hún þín að eilífu.“ reynslulÍtil þingkona Ívari rænt „Woody Allen sendi okkur bréf. Hann var voða kurteis, og bréfið í hans stíl. Hann sagði nákvæmlega það sem skipti máli og notaði skemmtileg orð,“ segir Jóhannes Benediktsson sem heldur úti heimasíðunni wood- yallen.com ásamt félaga sínum Ell- erti Guðjónssyni. Jóhannes býr nú í Berlín og vinnur að gerð heimasíð- unnar radioninja.com. „Hann var ánægður með okk- ur og hvatti okkur til þess að halda þessu áfram,“ segir Jóhannes sem keypti lénið fyrir tæpum níu árum. „Ég er mikill aðdándi Woodys eins og gefur að skilja og rak augun í það að síðan var til sölu þarna um árið,“ segir Jóhannes. Skömmu áður en Jó- hannes og vinur hans eignuðust lé- nið kom í ljós að allir þeir sem heim- sóttu síðuna voru sjálfkrafa færðir yfir á klámsíðu. „Eigandi lénsins átti erfitt með að græða á þessari síðu og þetta var hans eini sjéns. Hann var í raun algjör svindlari.“ Strákarnir uppfærðu síðuna og gerðu hana að sinni án nokkurra vandræða þangað til fyrir ári síðan. „Þá poppaði svindlarinn aftur upp og sagði okkur hafa stolið síðunni því hann sá að hann hafði misst spón úr aski sínum og var með ein- tóm leiðindi,“ útskýrir Jóhannes en segir svindlarann kláran. „Eins mikið fífl og þessi svindl- ari er keypti hann lénið að öllum seleb-nöfnum. Held að hann eigi til dæmis nöfnin Bill Clinton og Li- onel Richie. Hann var einn af þess- um fyrstu til þess að fatta þetta og græddi óhemjumikið á því að selja lénin seinna meir. Hann sagði við okkur á sínum tíma að hann sæi ekki mikið verðgildi í Woody Allen,“ segir Jóhannes og hlær. Hann tekur þó fram að Woody hafi ekki tekið það til sín að tveir ungir strákar frá Íslandi ættu lénið með nafni hans. „Það var þá sem hann sendi okkur bréfið. Hann sá að ásetningur okkar var honum í hag.“ Jóhannes segir um eitt þúsund manns heimsækja síðuna á hverjum degi og margir hverjir trúa því að að þetta sé opinber síða hins virta leik- stjóra. „Okkur berst ógrynni af aðdá- endabréfum. Fyrstu mánuðina var ég samviskusamur og svaraði þeim spurningum sem ég vissi svarið við, en ég hætti að vera samviskusamur fyrir mörgum árum,“ segir Jóhann- es og bætir við: „Ég fæ um fimm bréf á dag og ef eitthvað þá hefur þetta aukist yfir árin.“ Aðspurður hvað sé það undarlegasta sem hann hefur fengið í póstinum, svarar Jóhannes hrein- skilnislega: „Okkur var boðið á fegurðarsam- keppni heyrnar- lausra í Tékklandi. Ég vissi ekki einu sinni að sú keppni væri til, en brandarans vegna hefði ferðin ver- ið réttlætan- leg.“ Jóhann- es segir það einn- ig al- gengt að fólki skrifi honum póst og vilji fá gleraugu Woodys Allen. „Þeir vilja vita hvaða módel gleraugu hans eru eða vilja að við send- um þeim eintak.“ Þrátt fyr- ir að vera mikill að- dáandi leik- stjórans frá New York viðurkenn- ir Jóhannes að hann hafi ekki sinnt síðunni nógu vel síðastliðin ár. „Við höfum tal- að um það að selja lénið. Leiðinlegt að eiga svona ágætt nafn og vera ekki að sinna því,“ segir Jóhannes og er opinn fyrir öllum tilboð- um. Jóhannes Benediktsson keypti lénið woodyallen.com fyrir tæpum níu árum. Lénið var eitt sinn í eigu svindlara sem græddi á því að flytja tenginguna sjálfkrafa yfir á klámsíð- ur. Jóhannes og félagi hans hafa sett inn á síðuna alls kyns upplýsingar um leikstjórann fræga frá New York. Woody sjálfur var hæstánægður með síð- una og hvatti þá áfram með skemmtilegu bréfi. Meistari Woody Allen Jóhannes held- ur úti heimasíðunni woodyallen.com. Jóhannes Benediktsson Keypti lénið woodyallen.com fyrir mörgum árum og fær um eitt þúsund heimsóknir á dag. GítarLeikariNN ísabeLLa í eLektru starfaði með viLLtum dýrum í baNdaríkJuNum: Rokkuð á leið í lögguna Ísabella, gítarleikari elektru, setur stefnuna á lögguna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.