Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2009, Síða 10
miðvikudagur 10. júní 200910 Neytendur
Gerðu verð-
samanburð
Nú er sá tími sem garðyrkjan
heltekur marga og fólk fer að
huga að því að leggja túnþök-
ur. Mikilvægt er að kanna verð
á túnþökum áður en farið er í
að fjárfesta í slíkum. Hægt er að
spara sér dágóðan skilding með
því að hringja nokkur símtöl. Til
dæmis kosta túnþökur sem eru
⅔ úr fermetra að stærð 270 krón-
ur í Blómaval. Hálfur fermetri af
túnþökum kostar hins vegar 365
krónur í Garðheimum. Hvorugt
fyrirtækjanna býður upp á heim-
sendingu en það gera hins vegar
hinir ýmsu einkaaðilar. Túnþök-
ur eru líka oft aðeins ódýrari hjá
einkaaðilum. Vert að athuga!
Öðruvísi
sumarfrísupp-
lifun
Í kynningarbæklingnum „Upp í
sveit“ sem Ferðaþjónusta bænda
gefur út er hægt að kynna sér
bóndabæi sem almenningur
getur heimsótt. Bændur taka
vægt gjald fyrir þessar heimsókn-
ir en í staðinn fá gestir fróðleik
um landbúnað og fá að kynna
sér þau störf sem unnin eru í
sveitum landsins. Viðkomandi
bær flaggar sínu merki svo fólk á
að geta áttað sig á því þegar það
keyrir um þjóðveginn og sveitirn-
ar. Mismunandi er eftir bæjum
hvert fyrirkomulag heimsóknar-
innar er og því mikilvægt að hafa
samband við bæina fyrirfram.
DV mælir með þessu til að gera
sumarfríið í ár aðeins öðruvísi og
fræðandi. Hægt er að skoða bæk-
linginn á vefsíðunni uppisveit.is.
n Hingað hringdi eldri
kona sem finnst afar
leiðinlegt hve
óliðlegar afgreiðslu-
stúlkurnar á kass-
anum í Zöru í Smára-
lind eru. Konan verslar
oft í Zöru og að hennar sögn eru
stúlkurnar ávallt fýldar og
virðast ekki hafa neinn áhuga á
að gleðja viðskiptavini
versl-
unarinn-
ar.
n Starfsfólk N1 í Borgartúni fær mikið
lof frá ungri stúlku. Hún þurfti
nauðsynlega að hringja í gsm-
síma og var búin að fara í
nokkrar sjoppur þar sem
henni var sagt að hún gæti
ekki hringt þar sem lokað væri
fyrir gsm-númer. Starfsfólk N1
leyfði henni að hringja
með bros á vör.
SEndið LOF Eða LaST Á nEYTEndur@dv.iS
Dísilolía
algengt verð verð á lítra 168,8 kr. verð á lítra 171,6 kr.
algengt verð verð á lítra 167,3 kr. verð á lítra 170,3 kr.
algengt verð verð á lítra 168,8 kr. verð á lítra 171,7 kr.
bensín
Hveragerði verð á lítra 167,2 kr. verð á lítra 170,1 kr.
bæjarlind verð á lítra 167,3 kr. verð á lítra 168,1 kr.
fellsmúli verð á lítra 160,6 kr. verð á lítra 163,4 kr.
umSjón: LiLja kaTrín gunnarSdóTTir, liljakatrin@dv.is / neytendur@dv.is
el
d
sn
ey
t
i
VERTU HEIMA
Í SUMAR Lítil 33 sentílítra kókdós kostar bara um 130 krónur á Íslandi en í Köben þarf að reiða fram fjögur hundruð krónum fyrir drykkinn.
Áætla má að lágmarksuppihald, ásamt
flugi og gistingu, fyrir fjögurra manna
fjölskyldu í aðeins eina viku í Kaup-
mannahöfn kosti rúmlega fjögur
hundruð þúsund krónur. Verð á ýmiss
konar matvælum í þessari höfuðborg
Danaveldis er orðið svívirðilega hátt
vegna gengis krónunnar og kostar til
dæmis lítil 33 senilítra kókdós fjögur
hundruð krónur út úr búð. Ef fjögurra
manna fjölskylda drekkur eina dós á
dag hver í sjö daga þá er kostnaður við
kókneyslu fjölskyldunnar rúmar ellefu
þúsund krónur fyrir eina viku. Ham-
borgari með frönskum og gosi fyrir alla
fjölskylduna kostar sex þúsund krónur
og ef miðað er við að fjölskyldan fái sér
slíkt tilboð á hverjum degi í sjö daga þá
er upphæðin 42 þúsund krónur.
Ef gert er ráð fyrir því að foreldr-
arnir fái sér hvort sinn bjórinn á dag í
viku þá kostar það alls rúmlega tuttugu
þúsund krónur.
Rándýr strætóferð
Nú eru ekki taldar með samgöng-
ur og skemmtun af ýmsu tagi sem
líka kostar skildinginn. Áætla má
að strætóferð aðra leið fyrir fjögurra
manna fjölskyldu í Kaupmannahöfn
kosti fimmtán hundruð krónur. Að-
gangur í Tívolíið fyrir fjölskylduna
um helgi kostar átta þúsund krónur.
Þá er ekki með talið verð í hin ýmsu
leiktæki sem þar er að finna né mat-
ur og drykkur sem er afar dýr innan
veggja skemmtigarðsins. Því er ekki
óvitlaust að spara sér nokkrar krón-
ur og taka með nesti í staðinn fyrir að
borga fúlgur fjár fyrir tívolíveitingar.
Fáránlegt verð á kókdós
Talsvert ódýrara er að halda sér uppi
á sólarströnd í Albufeira á Portúgal.
Þar er meðalverð á bjór átta hundruð
krónur og því kostar það aðeins rúm-
lega ellefu þúsund krónur fyrir for-
eldrana að drekka sitt hvorn bjórinn á
dag í viku, eða helmingi ódýrara en í
Kaupmannahöfn.
Í Albufeira er hægt að fá hamborg-
aratilboð á átta hundruð krónur sem
er jafnvel ódýrara en á sumum stöð-
um á Íslandi. Kókdósin er hins vegar
rándýr út í búð og kostar heilar sex
hundruð krónur. Ein kókdós á dag
fyrir alla fjölskyldumeðlimi myndi því
kosta tæplega sautján þúsund krón-
ur sem er meira en það sem flug aðra
leiðina til Kaupmannahafnar kostar.
Vertu heima!
Íslendingar geta sparað sér geysi-
lega háar fjárhæðir með því að halda
sig heima í sumar og kynnast landi
og þjóð. Áætla má að sá sem keyri
hringinn í kringum landið keyri um
sextán hundruð kílómetra. Því kostar
akstur kringum landið fyrir bíl sem
eyðir fimmtán lítrum á hundraði
um fjörutíu þúsund. Tjaldgisting fyr-
ir fimm manna fjölskyldu kostar að
meðaltali 17.500 krónur fyrir viku.
Allt uppihald á Íslandi er í flest-
um tilfellum jafndýrt eða ódýrara en
í Kaupmannahöfn. Lítil 33 sentílítra
kókdós kostar bara um 130 krónur
á Íslandi en í Kaupmannahöfn þarf
að reiða fram fjögur hundruð krónur
fyrir drykkinn. Bjórinn er helmingi
ódýrari en meðalverð á ís með dýfu
er hins vegar hærra á Íslandi.
Þegar allt kemur til alls ætti
ákvörðunin um sumarfrísstað ekki
að vera erfið. Sumarfrí í útlöndum
getur hæglega slagað upp í millj-
ón fyrir fjögurra manna fjölskyldu á
meðan svipað frí á Íslandi þarf ekki
að kosta meira en nokkur hundruð
þúsund. Vertu því heima í sumar.
lilja KatRín gunnaRsdóttiR
blaðamaður skrifar liljakatrin@dv.is
sumaRFRí FjöguRRa
manna FjölsKyldu í Kaup-
mannahöFn:
Flug: um 55.000 kr.
gisting á þriggja stjörnu hóteli:
236.000 kr.
Fjölskyldupítsa með 2 áleggjum:
3000 kr.
stór bjór á strikinu: 1500 kr.
hamborgari, franskar og gos:
1500 kr.
lítill ís með sósu: 300 kr.
33 cl kókdós: 400 kr.
sumaRFRí FjöguRRa
manna FjölsKyldu í
albuFeiRa í poRtúgal:
Flug og gisting: um 350.000 kr.
Fjölskyldupítsa með 2 áleggjum:
1800 kr.
stór bjór: 800 kr.
hamborgari, franskar og gos:
800 kr.
lítill ís með sósu: 350 kr.
33 cl kókdós: 600 kr.
sumaRFRí FjöguRRa
manna FjölsKyldu á
íslandi
bensín í kringum landið: 40.000 kr.
tjaldsvæði í viku: 17.500 kr.
Fjölskyldupítsa með 2 áleggjum:
2000 kr.
stór bjór: 700 kr.
hamborgari, franskar og gos:
1500 kr.
lítill ís með dýfu: 350 kr.
33 cl kókdós: 130 kr.
„Við getum ekki hækkað verðið
núna því þá vitum við að eftirspurn-
in minnkar og við töpum á því. Við
erum ekki í neinni aðstöðu til að
hækka einhliða. Þess vegna tökum
við á okkur höggið yfir sumarmán-
uðina og töpum vissulega á þessu,“
segir Þorsteinn Guðjónsson, forstjóri
Úrvals-Útsýnar.
Verðið á utanlandsferðunum í
sumar hækkar ekki fyrr en eftir sum-
arið en hækkun á utanlandsferð-
um hefur nú þegar orðið í Bretlandi.
Mesta álagning á utanlandsferð-
ir í Bretlandi hefur verið til Íslands
og Sikileyjar með ferðaskrifstofunni
Cox & Kings Travel. Fjögurra manna
fjölskylda þarf að borga 600 evrum
meira fyrir ferð sem átti að kosta
6000 evrur eða 73.200 krónur. Sterk-
ara gengi evrunnar en pundsins ger-
ir það að verkum að það er 17 pró-
sent dýrara að leigja bíl eða að fara
út að borða í þeim löndum sem hafa
evru fyrir gjaldmiðil. Þetta kemur
fram á fréttavef Daily Mail. Fyrirtæki
geta hækkað upprunalegt gjald um
tíu prósent.
Tapa á sumarferðum
Þorsteinn bendir á að flugið sé
borgað í dollurum og gistingin í evr-
um. „Kostnaðurinn á bak við sumar-
ferðirnar hefur hækkað en við erum
búin að semja við hótelin og flugfé-
lögin úti hvað mörg sæti og gisting-
ar við ætlum að kaupa, og við get-
um ekki breytt verðinu á ferðunum
núna.“
Eldsneytisverð 40 prósent af
heildarverði
Þorsteinn Guðjónsson reiknar
með því að ferðirnar hafi hækkað
um 40 prósent síðastliðið ár vegna
hækkandi eldsneytisverðs. „Það má
reikna með því að fyrir hverja krónu
sem olían hækkar hækkar heildar-
kostnaðurinn á fluginu um 0,4 pró-
sent,“ segir Þorsteinn. Hann bætir
við að áður hafi eldsneytið verið um
20 prósent af heildarverðinu. Spurð-
ur um horfur fyrir næsta sumar segir
Þorsteinn að hann geti ekkert sagt
fyrir um hvernig það verður. „Það
væri eins ég ætti að spá fyrir um
hvernig veðrið yrði næsta sum-
ar. Ég get frekar svarað því í
október, núna erum við
að horfa á veturinn
og við stöndum
frammi fyrir
krónunni
og elds-
neytis-
verðinu
eins og
það er. Ég
sé fram á
hækkan-
ir í vetur
og þess-
ir tveir
áhrifavaldar munu hafa áhrif á verð-
ið í vetur,“ segir Þorsteinn.
Hækkandi olíuverð hækkar
fargjöld
Björgólfur Jóhanns-
son, forstjóri Icelandair
Group, segir að ef olíu-
verðið heldur áfram
að hækka leiði það til
hækkandi verðs á far-
gjöldum. „Ef olíuverð-
ið heldur áfram að vera
í þessum hæðum eru
engir hagræð-
ingarmögu-
leikar innan
félaganna
til að takast
á við það,
þannig
að ég
sé ekki
ann-
að en
að far-
miðar hækki til jafns við olíuverð-
ið. Það er auðvitað verið að vinna á
fullu til að sporna við þessu en þetta
eru það miklar hækkanir að fargjöld-
in koma til með að hækka. En ég get
ekkert sagt um hvernig þetta verður
næsta sumar.“
Olíugjald ófrávíkjanlegt
Icelandair setti olíugjald ofan á
flugfargjald í apríl og hækkaði þá
hvert flugfar um 3-5 evrur. Björgólf-
ur segir að olíugjaldið muni hækka
seinni hlutann í ágúst. „Olíugjaldið
sem slíkt er að verða eðlilegur hluti
af fargjaldinu,“ segir Björgólfur. „Það
hefur mikil áhrif á fargjaldið ef þú
ferð frá Evrópu til Bandaríkjanna. Þá
ertu jafnvel að borga 88 evrur í olíu-
gjald og 35 evrur frá Íslandi til Lond-
on. Flest flugfélög eru með varnir
á olíu og búin að festa verðið fyrir
sumarið. Fyrir okkur er það ljóst að
það verða töluvert miklar hækkanir
og ég kalla miklar hækkanir ef þarf
að hækka gjaldið um tíu prósent.“
ásTrún friðbjrönsdóTTir
blaðamaður skrifar astrun@dv.is
fyrir ódýra utanlandsferð
SíðaSti SénS
Olía „Farmiðar
hækka til jafns
við olíuverðið.“
ströndin á góðu verði „Kostnaðurinn á bak við sumarferð-
irnar hefur hækkað en við erum búin að semja við hótelin og
flugfélögin úti hvað mörg sæti og gistingar við ætlum að
kaupa, og við getum ekki breytt verðinu á ferðunum núna.“
Ódýrar sÓlarlandaferðir
Plúsferðir bjóða upp á gott tilboð á flugsætum til Alicante
fram í júlí sé bókað á Netinu. Flugvallarskattar innifaldir.
Verð frá 9.900 kr. aðra leið
Sólarlottó Plúsferða er ódýr kostur. Áfangastaðirnir eru Krít,
Marmaris, Costa del Sol og Mallorca. Ferðalangurinn velur
áfangastaðinn og ferðadaga, en tekur þátt í lottóinu varðandi
gistingu.
Verð frá 39.900 kr.
Fyrir þá sem vilja sól með haustinu getur ferð Úrval-Útsýn til
Albir reynst ódýr kostur. Verð miðast við þriggja manna
fjölskyldu í hálfu fæði og gistingu á fjögurra stjörnu hóteli í
viku frá 28. ágúst.
Verð á mann: 48.040 kr.
Heimsferðir bjóða „stökktu tilboð“ á sólarlandaferð til
Mallorca 25. júní eða 9. júlí í tvær vikur. Ferðalangar bóka flug
og gistingu og fá að vita um gististaðinn með fjögurra daga
fyrirvara. Verð miðast við 4 manna fjölskyldu í íbúð.
Verð á mann: 49.990 kr.
þriðjudAgur 17. jÚNí 200810
Fréttir DV
Varaði fólk við í d 17. júní í
fyrra var fólk upplýst um að þá
væri síðasti séns til að fara í ódýra
sólarlandaferð.
Lítil kókdós kostar heilar sex hundruð krónur á sumarleyfisstaðnum Albufeira í
Portúgal. Í Kaupmannahöfn kostar stór bjór á Strikinu fimmtán hundruð krónur.
Það er því ekki allur kostnaður sumarfrísins fólginn í fluginu út. Sumarfrí erlendis
fyrir fjögurra manna fjölskyldu getur slagað upp í milljón krónur á meðan sumafrí
á Íslandi er talsvert ódýrara.
aðeins ódýrara ódýrara er að
snæða og drekka í albufeira en
í kaupmannahöfn.