Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2009, Síða 22
Miðvikudagur 10. júní 200922 norðurland
Flugvals
í hægum takti
Arngrímur Jóhannsson flugstjóri dansaði á dög-
unum vals á svifflugu yfir Pollinum á Akureyri við
tónverk eftir Jón Hlöðver Áskelsson. Flutning-
urinn var hluti af alþjóðlegri tónlistarhátíð sem
haldin var nyrðra í liðinni viku. Arngrímur segir að
beinast hafi legið við að dansa á svifflugunni, hún
sé hægfleyg og tignarleg. Arngrímur býr nú á Ak-
ureyri, enda fæddur þar og uppalinn. Hann segir
mikilvægast að geta verið innan um vinina.
Ég hefði auðvitað getað dansað þennan dans á list-flugvélinni, en ákvað að nota sviffluguna þar sem
hún er svo hæg og tignarleg á lofti,“
segir Arngrímur Jóhannsson flug-
stjóri, sem sýndi dans á svifflugu
við tónverk Jóns Hlöðvers Áskels-
sonar, fimmtudaginn síðasta. Tón-
verk Jóns var flutt í Útvarpi Norð-
urlands og bæði Arngrímur og
áhorfendur á jörðu niðri hlýddu á
verkið á meðan dansinn dunaði.
„Inni í svifflugunni er auðvitað
nánast þögn, þannig að ég gat not-
ið tónlistarinnar til hins ýtrasta og
þannig haldið mér í taktinum upp
að einhverju marki,“ bætir Arn-
grímur við.
Dansinn og tónverkið voru hluti
af dagskrá alþjóðlegrar tónlistarhá-
tíðar á Akureyri sem fram fór í síð-
ustu viku og markaði flutningurinn
lok hátíðarinnar.
Fyrir hljómsveit og
Flugvél
„Þetta koma þannig til að fyrir um
þremur árum síðan ræddum við
saman við Jón Hlöðver og þá kom
til tals að hann gerði tónverk fyr-
ir hljómsveit og flugvél. Svo bara
samdi hann verkið, flugvalsinn var
tilbúinn og ekkert annað að gera
en að hrinda þessu í framkvæmd.“
Sjálfur valsinn er í hægum takti og
segir Arngrímur að sér hafi fljót-
lega verið ljóst að svifflugan væri
einmitt tækið til þess að dansa í. „Í
listflugvélinni hefði ég líka átt bágt
með að hlusta á tónlistina sökum
hávaða í mótornum.“
Arngrímur hóf dansinn í þrjú
þúsund feta hæð, nokkrum mínút-
um fyrir kvöldfréttir útvarps. Tals-
verður fjöldi fólks hafði þá komið
sér fyrir við Höepfnersbryggju og
fylgdist með úr bílum og hlustaði á
útvarpið í leiðinni.
„Í sviffluginu er maður alltaf að
versla með hæð og hraða. Til þess
að halda hraðanum þarf maður
að greiða fyrir með hæðinni,“ seg-
ir Arngrímur og bætir við að hann
tapi ekki svo mikilli hæð á því að
fljúga í hringi og velta flugunni á
hvolf, eins og hann gerði ítrekað í
dansinum. „Ætli ég hafi ekki náð
svona fimm mínútum á lofti.“
Fæddur á akureyri
Arngrímur flutti til Akureyrar fyrir
fjórum árum og kom sér þægilega
fyrir í íbúð við Ráðhústorgið. „Ég
er fæddur og uppalinn hér á Akur-
eyri. Reyndar var pabbi úr Svarfað-
ardal og þar var ég iðulega í sveit
hér í gamla daga.“ Hann segir að
það hafi haldist í hendur að flytja
aftur norður þegar hann dró sig út
úr rekstri flugfélagsins Atlanta sem
hann stofnaði ásamt þáverandi
eiginkonu, Þóru Guðmundsdótt-
ur. „Ég var hættur að fljúga stóru
þotunum og það var kominn tími
til þess að koma sér í rólegra um-
hverfi.“
Arngrímur kveðst eyða eins
miklum tíma á Akureyri og hann
mögulega geti. „Ég er stjórnarfor-
maður í Flugsafni Íslands sem er
starfrækt hér á Akureyrarflugvelli.
Safnið tekur mikinn hluta af mínum
tíma.“ Á safninu hefur verið kom-
ið fyrir mörgum af merkustu flug-
vélum og minjagripum íslenskrar
flugsögu. Nýjasti sýningargripur-
inn er Fokker-flugvél Landhelgis-
gæslunnar, TF-SYN, sem nú hefur
lokið sínum ferli í eltingaleikjum
við smyglskútur og eftirlitsferðum
um landið og miðin.
Þar hefur einnig verið kom-
ið fyrir TF-SIF, gæsluþyrlunni sem
endaði í sjónum við Straumsvík í
hitteðfyrra.
vinirnir mikilvægastir
„Aðalatriðið er nú samt að hér á
ég mikið af góðum vinum. Þetta
er þéttur og góður hópur sem mér
þykir vænt um að fá að umgangast,“
heldur Arngrímur áfram. Helstu
hættuna telur hann vera að Akur-
eyringar verði kannski leiðir á hon-
um. „Ég er alltaf að gera eitthvað og
hef stundum vakið athygli með ein-
hverju bralli. En hér heyrist reyndar
ekki hnjóð, eins og segir í laginu.“
Þegar hér var komið sögu gat
Arngrímur ekki staldrað lengur
við. Flugvirkjar frá Bandaríkjunum
voru mættir í flugskýlið til þess að
gera skoðun á sjóflugvélinni góðu,
sem er eitt af leikföngunum sem
flugstjórinn hefur sankað að sér á
löngum ferli í fluginu.
„Aðalatriðið er að hér
á ég mikið af góðum
vinum. Þetta er þéttur
og góður hópur sem
mér þykir vænt um að
fá að umgangast.“
Listdans á svifflugu Arngrímur semur um
hæð og hraða við almættið í flugvalsi við
tónverk Jóns Hlöðvers.
Í skýlinu Flugvirkjar voru í miðju kafi að yfirfara sjóflugvél
Arngríms þegar hann var heimsóttur í flugskýlið.
Tekið á móti gestum Arngrímur sýnir
gestum gripina í Flugsafninu. Hér er hann
við eina af sínum eigin flugvélum.
TF-SIF Þyrla Landhelgisgæslunnar,
TF-SIF, tilheyrir nú Flugsafni Íslands,
meðal annars fyrir atbeina Arngríms.
TF-SYN Nýjasti safngripurinn á
Flugsafninu er TF-SYN, gæsluflug-
vélin sem nú er búið að leggja.