Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2009, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2009, Blaðsíða 24
Miðvikudagur 10. júní 200924 norðurland hið sívinsæla krem „Ætlum ekki að láta hlÆja að okkur“ Draupnir er nýtt lið á Akureyri sem skráði sig til leiks í 3. deild karla og 1. deild kvenna. Liðið veitir knatt- spyrnumönnum og -konum, sem hafa ekki komist að hjá stórliðum bæjarins eða hafa ekki tíma til þess að leika með þeim, tækifæri til að spila alvöru knattspyrnu. Liðið, sem rekið er með lágmarkskostnaði, nýtur mikillar velvildar í bæjarfélaginu. Draupnir heitir nýjasta knattspyrnuliðið á Akur-eyri sem skráði lið til leiks, bæði í karla- og kvenna- flokki. Hugmyndin með félaginu er sú sama og hjá öðrum varaliðum stórliða á höfuðborgarsvæðinu, að gefa knattspyrnufólki sem hefur ekki komist að hjá stórliðum bæjarins, Þór eða KA, tækifæri til að spila eitt- hvað meira en almennan bumbu- bolta á sunnudögum með félögun- um. Liðið æfir tvisvar í viku og leikur þess á milli í norður- og austurriðli 3. deildar. „Það vantar ekki framboð á góð- um fótboltamönnum á Akureyri, svo mikið er víst,“ segir Jón Stefán Jóns- son, framkvæmdastjóri og leikmað- ur liðsins. „Það er náttúrulega hell- ingur af strákum og stelpum sem langar að spila knattspyrnu en hafa ekki tök á því að æfa 5-6 sinnum í viku. Það er samt alvara í þessu hjá okkur og við erum ekki í þessu til að láta hlæja að okkur,“ segir Jón en lið- ið réð til starfa fyrrverandi atvinnu- og landsliðsmanninn Hlyn Birgis- son. „Það eitt finnst mér sýna að það sé alvara í þessu,“ segir Jón Stefán. VelVild í bÆnum Draupnisliðið æfir í knattspyrnu- húsi Akureyrar, Boganum, en erfið- lega hefur gengið að fá æfingatíma á völlum Þórs og KA. „Menn vilja okk- ur vel en aðstæðurnar eru gífurlega erfiðar. Mikið álag er á æfingasvæð- um liðanna og svo er landsmót UMFÍ á Þórssvæðinu í sumar. Krakkarnir fá varla að æfa þar þannig að það er svo- lítið erfitt fyrir okkur að vera með ein- hverjar kröfur sem bumbufótbolta- menn,“ segir Jón Stefán og hlær en bæði liðin, Þór og KA, hafa hjálpað til við kostnað og eiga hagsmuna að gæta ef rétt er staðið að hlutunum. „Strákar sem komast ekki strax í KA eða Þór geta komið til okkar og fengið þar reynslu. Farið síðan aft- ur til baka. Við erum til dæmis með mjög efnilegan markvörð úr KA sem er fæddur 1992, alveg svakalegur markvörður sem kemst ekki að hjá KA því þar er fyrir rosalega góður markvörður. Við erum búnir að spila einn heimaleik og þar voru stjórnar- menn, bæði frá KA og Þór, að horfa,“ segir Jón Stefán. kostnaður í lágmarki Liðið tók sér ekki nafn frá öðru fé- lagi sem hafði verið innan KSÍ og hætt eins og algengt hefur verið. „Við bjuggum liðið til frá grunni. Þegar við hittumst fyrst og rædd- um nafnið átti það að vera Mjöln- ir en það var of tengt Þór. Þá fórum við yfir goðafræðina og fundum Draupni sem var hringur á hendi Óðins,“ segir Jón Stefán aðspurður um uppruna nafns liðsins. Eins og gefur að skilja syndir nýja félagið ekki í seðlum en rekur sig sjálft á æfingagjöldum leikmanna. „Liðið er rekið með lágmarkstil- kostnaði. Menn greiða æfingagjöld sem eru lygilega lág. Ég held að það séu um tuttugu þúsund sem menn greiða og það dekkar ferðirnar út á land. Menn fara á einkabílum en fá greitt bensín. Æfingagjöldin eru að- allega til að dekka laun þjálfarans,“ segir Jón Stefán Jónsson, fram- kvæmdastjóri og leikmaður nýj- asta knattspyrnuliðsins á Akureyri, Draupnis. tomas@dv.is „Liðið er rekið með lágmarkstilkostnaði. Menn greiða æfingagjöld sem eru lygilega lág.“ Jón Stefán Jónsson Er fram- kvæmdastjóri og leikmaður Draupnis á Akureyri. MYND FÓTBOLTI.NET Hlynur Birgisson Fyrrverandi atvinnu- og landsliðsmaður þjálfar Draupni. MYND KRISTJÁN KRISTJÁNSSON

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.