Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2009, Page 28
Miðvikudagur 10. júní 200928 norðurland
Guðmundur Jón Guðmundsson í Holtseli við Eyjafjörð varð fyrstur bænda til þess að framleiða ís heima
á býli með öllum tilskildum leyfum. Hann segir eftirspurn eftir heimaframleiddum afurðum fara vaxandi
en landbúnaðarkerfið hér sé ekki fyllilega reiðubúið undir þessa vinnslu. Ísinn frá Holtsseli er seldur vítt
og breitt um landið og á völdum veitingastöðum.
Síðastliðin þrjú ár hefur Guð-mundur Jón Guðmundsson, bóndi í Holtseli við Eyjafjörð, framleitt ís heima á býlinu
sem markaðssettur er innanlands.
„Við erum fyrsta býlið sem fór út í
heimaframleiðslu á mjólkurafurð-
um með öllum tilskildum leyfum.
Þess vegna má segja að við höfum
slípað kerfið á meðan kerfið slíp-
aði okkur,“ segir Guðmundur. Hann
og fjölskylda hans framleiða allt að
200 lítra af ís á hverjum sólarhring
auk þess sem þau reka kaffihús yfir
sumartímann, þar sem ferðalangar
geta fengið sér sopa og gætt sér á
splunkunýjum ís.
Núna nýverið hóf fjöskyldan
framleiðslu á jógúrt heima á bæn-
um, sem notuð er við ísframleiðsl-
una. „Við gerum ekki frekar ráð fyrir
því að markaðssetja jógúrtina sér-
staklega, þótt í raun sé ekkert því til
fyrirstöðu,“ segir Guðmundur.
IllskIljanlegt kerfI
Í Holtseli er kvóti fyrir 240 þúsund
lítrum af mjólk. Heildarframleiðslan
er þó nær því að vera þrjú hundruð
þúsund lítrar. „Samlögin hafa keypt
allt sem þau hafa fengið fram að
þessu. Á meðan svo er ætti í raun-
inni ekkert að vera því til fyrirstöðu
að þessi framleiðsla standi undir sér
eins og hver annar rekstur,“ segur
Guðmundur.
Ísinn sem framleiddur er á
bænum er ekki niðurgreiddur eins
og hefðbundnar mjólkurafurð-
ir. Guðmundur bendir þó á að ef
hann myndi nota mjólk sem skil-
greind er innan mjólkurkvótans
væri ísinn auðvitað niðurgreidd-
ur. „Auðvitað er þetta harla illskilj-
anlegt kerfi eins og það er. Hins
vegar veit ég til þess að bændur
í Svíþjóð þurftu að koma sér upp
sérstökum svæðisskrifstofum til
þess að eiga við evrópska styrkja-
kerfið eftir inngönguna í Evrópu-
sambandið.“
BeInt frá BýlI
Ísinn frá Holtselsbúinu er nú seldur
í flestum Samkaupsverslunum frá
Húsavík og vestur um til Njarðvík-
ur. „Hann Þorgrímur Guðbjartsson á
Erpsstöðum í Dölum er um það bil að
hefja ísframleiðslu hjá sér. Við erum
að vona að hann geti tekið að sér að
selja á Vestfirðina því flutningskostn-
aðurinn héðan úr Eyjafirði og vestur
á firði hefur reynst okkur vægast sagt
erfiður,“ segir Guðmundur.
Hann bætir við að vissulega sé
til þekking á matvælaframleiðslu
meðal bænda um land allt. „Áhug-
inn á vörum sem framleiddar eru
á býlinu er alltaf að aukast. Menn
þurfa hins vegar að koma sér upp
aðstöðu og verða sér úti um tilskilin
leyfi til þess að geta farið út í mark-
aðssetningu.“
gott að fara hægt
Hann segir að enn sem komið er
sé ekki hægt að binda vonir við að
fjölskyldan hafi í sig og á með því
að framleiða ís og jógúrt. „Þetta er
of lítill markaður og framleiðsluget-
an er of lítil, þannig að þetta verður
sjálfsagt ekki annað en skemmti-
leg aukabúgrein. Við þyrftum í öllu
falli að verðleggja vöruna allt öðru-
vísi til þess að lifa af þessu.“
Guðmundur segir að sér hafi
reynst vel að fara rólega af stað. Ef
varan sé góð þá aukist henni orð-
spor hægt og bítandi og líkurn-
ar á mistökum séu töluvert minni.
„Þetta hefur þróast hægt og bítandi.
Sífellt fleiri veitingastaðir kaupa af
okkur ísinn. Friðrik V. hefur verið
með ísinn okkar alveg frá upphafi
ásamt Hótel Eddu á Akureyri. Nú
eru nokkrir fleiri að bætast í þennan
hóp. Sígandi lukka er best.“
fyrstur
með mjólkur-
vörur frá býli
„Ég veit til þess að
bændur í Svíþjóð
þurftu að koma sér
upp svæðisskrifstofum
til þess að eiga við evr-
ópska styrkjakerfið.“
Blómlegar sveitir Holtsel er í
Eyjafirðinum, skammt frá Hrafnagili.
Tvö hundruð lítrar
Ísframleiðslan er um tvö
hundruð lítrar á sólarhring.
Holtsels-hnoss Vöruþróun og
markaðsstarf verður hlutskipti
bóndans þegar selt er beint frá býli.
Sigurður B. Sigurðsson er einn af stofnendum Keilufélagsins á Akureyri.
Hrein nauðsyn að fá keilusalinn
„Ég held að það hafi verið hrein nauðsyn að
fá keilusalinn í bæinn, “ segr Sigurður B. Sig-
urðsson, einn af stofnendum Keilufélagsins á
Akureyri, en fyrir rúmu ári var opnaður keilu-
salur í fyrsta sinn í bænum samhliða veitinga-
staðnum Kaffi Jónssyni. Sigurður er einn af
fastagestum staðarins. Hann mætir þrisvar
til fjórum sinnum í viku í keilu í dag en við-
urkennir að keilan hafi ekki alltaf verið svona
stór hluti af lífi hans.
„Þegar maður kom til Reykjavíkur æxlað-
ist það oft þannig að maður endaði í keilu en
ég var þó ekkert að pæla í þessu dagsdaglega.
Mér þótti alltaf gaman í keilu og mér finnst
þetta frábært framtak hjá Þorgeiri og Dagnýju
að þora að fara út í þennan rekstur,“ segir Sig-
urður.
Hann segir nokkurs konar keiluæði hafa
gripið bæjarbúa er staðurinn var opnaður en
að það hafi þó jafnast út í dag. „Ég byrjaði að
fara reglulega í keilu og fljótlega fór ég að velta
því fyrir mér hvort ég þyrfti ekki að kaupa mér
kúlu og skó,“ útskýrir Sigurður.
Einn daginn tóku félagarnir sig saman og
stofnuðu keilufélag. Síðan þá hafa þeir unn-
ið hörðum höndum við að kynna sportið
fyrir Akureyringum. Í félaginu, sem er ekki
nema nokkurra mánaða gamalt, eru nú þeg-
ar 40 meðlimir og segir Sigurður áhugann
vera mikinn í mönnum. Hann viðurkennir að
hann reyni að smita áhuganum út frá sér eins
og hann geti.
„Ég fékk tengdapabba til þess að spila og
hann er orðinn alveg sjúkur í keilu. Ég held
að hann spili meira en ég,“ segir Sigurður og
hlær.
Meðlimir Keilufélagsins stefna á að vera
með lið á Íslandsmótinu næsta vetur eða
veturinn þar á eftir og vinna þeir nú að því
að finna réttu búningana fyrir liðið. Að-
spurður segist Sigurður þó vera býsna langt
frá því að vera góður. „En þetta er eins og
hver önnur íþrótt, maður þarf að æfa sig til
þess að verða góður. Munurinn á keilu og
fótbolta er sá að allir geta eitthvað í keilu til
að byrja með.“
Sigurður æfir sig nokkrum sinnum í viku
og segir það ekki fara fyrir brjóstið á eigin-
konu sinni. „Ég er gamall handboltamaður.
Hún er vön að hafa mig ekki heima á æf-
ingartíma,“ segir hann brosandi. Í staðinn
tekur hann bara eiginkonu og barn með í
keilusalinn á Akureyri – og allir hafa gam-
an af.
Æfir mörgum sinnum í viku Sigurður B. Sigurðs-
son æfir keilu stíft og smitar áhuganum út frá sér.
mynd SiGTryGGur Ari