Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2009, Side 30
Miðvikudagur 10. júní 200930 norðurland
Hitaveitan var komin í öll hús á Ólafsfirði árið 1944:
Fyrsti hitaveitubærinn á landinu
Við vorum fyrstir með hitaveitu í öll hús í heilu
bæjarfélagi. Þetta er klárlega mikið frum-
kvöðlastarf og mikil elja að koma þessu svo
snemma í öll hús,“ segir Einar Þórarinsson hjá
hitaveitunni á Ólafsfirði.
Upphaf framkvæmdanna má rekja aftur til
1939 þegar vatni var veitt í tjörn innan við bæ-
inn en þá mun fólk ekki hafa haft mikla trú á að
hægt væri að hita húsin á staðnum með þessu
vatni. En af stórhug réðust bæjarbúar í heita-
vatnslögn í bæinn og 1944 var komin asbest-
lögn einangruð með reiðingi og tjörupappa.
Maður var gerður út til Englands til að skoða
heppilega ofna fyrir fólk og datt hann niður á
hina massífu pottofna sem enst hafa síðan og
þykja það besta sem gert hefur verið í þessum
efnum. Heita vatnið gerði Ólafsfirðingum kleift
að koma sér upp sundlaug mjög snemma, 1945
var tekin í notkun ný sundlaug sem var með því
besta sem þekktist á þeim tíma, stór og vönd-
uð laug. Í seinni tíð hefur heita vatnið hjálpað
fleiri íþróttagreinum því fótboltavöllurinn er
upphitaður ásamt fleiri svæðum í bænum.
„Eftir að búið var að tengja fyrsta húsið við
veituna komu bæjarbúar til að skoða og þukla
ofnana til að fullvissa sig um að þetta virkaði.
Svo var ákveðið að allir þeir sem tækju hita-
veitu inn til sín fyrir árslok 1944 fengju frí inn-
tök. Það leiddi til þess að öll hús voru orðin
tengd í desember það ár og telst 15. desember
1944 vera stofndagur veitunnar. Við þetta varð
Ólafsfjörður sjálfum sér nægur um orku, hér
hafði verið komið upp tveimur virkjunum sem
framleiddu rafmagn fyrir byggðina í firðinum,
þannig að þetta hafa verið miklir frumkvöðl-
ar hérna og eru svo sem ennþá margir,“ segir
Einar sem séð hefur Ólafsfirðingum fyrir yl um
langt árabil. GS
Hvanndalsbræður kvöddu um helgina
Rögnvald gáfaða. Ástæðan fyrir því að
Rögnvaldur hætti mun vera drykkjuskapur
hans en hinir saklausu sveitapiltar í hljóm-
sveitinni höfðu flækst í óregluna. Um síð-
ustu helgi hélt hljómsveitin kveðjutónleika
Rögnvaldar gáfaða sem mun héðan í frá
gegna hlutverki hirðskálds. Auk þess mun
hann passa upp að hljómsveitin breytist
ekki í boy-band.
FLÆKTUST
í drykkjuskap
Rögnvaldar
Norðlenska hljómsveit-in Hvanndalsbræður stendur á miklum tíma-mótum. Um síðastliðna
helgi hélt sveitin tvenna tónleika á
Græna hattinum á Akureyri í tilefni
þess að einn meðlima hljómsveit-
arinnar, Rögnvaldur gáfaði, hef-
ur ákveðið að yfirgefa félaga sína.
Ástæðan er drykkjuskapur Rögn-
valdar gáfaða, sem hefur átt litla
samleið með hinum prúðu sveita-
piltum sem skipa hljómsveitina.
Óregla pönkarans Rögnvaldar var
farin að hafa sín áhrif á aðra með-
limi sem höfðu flækst í hið vafa-
sama líferni með honum.
Sumarliði Hvanndal útskýrir við-
skilnaðinn. „Þetta var bara búið og
það varð að gera einhverjar breyt-
ingar. Menn koma hver frá sínum
stað í lífinu. Það var gríðarleg óregla
á hljómsveitinni sem við flæktumst
í og, nei, við gátum ekki lifað svona
eins og hann,“ segir Sumarliði og
bætir við: „Honum fannst við líka
vera heldur púkó fyrir hann.“
PaSSar að við breyTUmST
eKKi í boy-band
Með brotthvarfi Rögnvaldar er við-
búið að einhverjar breytingar verði
á stefnu Hvanndalsbræðra. „Já, það
má gera ráð fyrir því. Við höfum
verið að semja saman, ég og Röggi.
Það hefur verið blanda af pönki og
skemmtilegum línum,“ segir hann.
Rögnvaldur mun þó ekki alveg
segja skilið við Hvanndalsbræð-
ur. „Ég reikna nú með því að Röggi
semji eitthvað áfram með okkur.
Hann verður eins konar hirðskáld
og ráðgjafi. Hann passar að við
breytumst ekki í boy-band. Hann
vill það ekki.“
En hvernig ætlar Rögnvaldur gáf-
aði að tryggja að Hvanndalsbræður
breytist ekki í boy-band?„Hann fer
yfir lögin og passar að við förum
ekki yfir strikið. Við vorum að senda
frá okkur fyrsta lagið án hans. Það er
svona reggískotið lag og hann rétt
samþykkti það. Lagið er hins vegar
búið að fá gríðarlega góðan stuðn-
ing á fyrstu dögunum.“
Sverrir STormSKer
myndi roðna
En jafnvel þó eftirstarfandi Hvann-
dalsbræður hafi fjarlægst óbeislað
líferni Rögnvaldar er þeim enn vel
til vina. „Það er gríðarlega góður vin-
skapur á milli okkar. Við ætlum að
fara að hittast oftar og borða sam-
an. Síðan er ég með gæluverkefni
sem mig langar að fara út í. Það er
að Rögnvaldur gefi út sólóplötu. Það
verður einhvers konar tímamóta-
plata þar sem allt verður látið flakka.
Þeir sem hafa heyrt textana hans og
finnst þeir grófir, vita að þá höfum
við verið að tempra hann. Textarnir
á sólóplötunni yrðu þannig að Sverr-
ir Stormsker myndi roðna við hliðina
á honum.“
Sumarliði boðar aðgengilegri
Hvanndalsbræður með brotthvarfi
Rögnvaldar. „Við verðum líklega örlít-
ið aðgengilegri, en við erum ekki að
fara að gerast dansiballahljómsveit.
Mottóið er að vera hressir og gera
sing-a-long-lög sem eru fín í útileg-
una. Samt ekki eins og Greifarnir.“
„Textarnir á sólóplötunni yrðu þannig að Sverr-
ir Stormsker myndi roðna við hliðina á honum.“
Málin útkljáð Öll spjót beinast nú að Rögnvaldi sem gert hefur verið að yfirgefa
sveitina. Valdimar heldur ró sinni og ræður súdókú-þrautir úr gömlum dagblöð-
um.
Á Grænum hatti Frá kveðju-
tónleikum Hvanndalsbræðra á
Græna hattinum á Akureyri um
helgina. Rögnvaldur gáfaði slær
gígjuna af miklum móð.
Einar Þórarinsson hitaveitustjóri Við skilti sem komið hefur verið upp um hina
merku sögu Hitaveitu Ólafsfjarðar sem fyrst allra hitaveitna hitaði heilt bæjarfélag.