Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2009, Síða 46
miðvikudagur 10. júní 200946 Fólkið
Enn meira af Þjóðhátíð. Popp-
stjarna allra Íslendinga, Páll Ósk-
ar Hjálmtýsson, mun koma fram
á Þjóðhátíð í Eyjum þetta árið.
Páll Óskar kom fram á Þjóðhá-
tíð í fyrra og aðdáendur kappans
stofnuðu Facebook-grúppu fyrir
ekki svo löngu þar sem Þjóðhá-
tíðarnefnd var hvött til þess að fá
söngvarann aftur í ár. Páll Óskar
mun koma fram á föstudags-
kvöldinu samkvæmt vefsíðunni
eyjar.net og mun kappinn koma
fram á kvöldvökunni og aftur
eftir klukkan tvö um nóttina.
Páll mun einnig spila á hinu víð-
fræga Húkkaraballi á fimmtu-
dagskvöldinu.
„þjóðhátíð
betri án bubba“
„Ég ætla ekki að skerða skegg mitt
fyrr en búið er að lækka stýrivextina
í svona fimm eða sex prósent,“ seg-
ir matreiðslumeistarinn, Úlfar Ey-
steinsson, sem rekur veitingastað-
inn Þrjá frakka á Baldursgötunni.
„Ég fékk þessa hugmynd fyrir svona
þremur vikum og ég ætla að fram-
kvæma hana,“ segir Úlfar kátur en
hann hefur þurft að láta hefðbund-
in búsáhaldamótmæli vera vegna
anna.
„Ég hef ekkert getað komist í það
að berja potta og pönnur. Ekki nema
þá í eldhúsinu. Ég vinn náttúrlega
við að berja þetta alla daga. En það
hefur bara verið svo mikið að gera.
Mér finnst þetta notalegasta aðferð-
in líka. Nú get ég unnið áfram en ver-
ið sýnilegur,“ segir Úlfar sem hefur
ekki áhyggjur af því að skeggið fari
að blandast við matinn. „Þetta er nú
ekki orðin nein skósídd ennþá. En
maður notar bara hárnet. Ekki þarf
ég það á kollinn allavega,“ segir Úlfar
og hlær en hann er nauðasköllóttur.
Helst vill Úlfar sjá fleiri taka und-
ir með sér. „Það væri sniðugt ef Þorri
karlmanna færi að mótmæla með
því að safna skeggi. Það myndi alla-
vega sjást víða. Eins og fjármálaráð-
herrann. Hann er nú með einhverja
skeggdruslu á sér og hann er sýnileg-
ur,“ segir Úlfar Eysteinsson léttur.
tomas@dv.is
Skerðir ekki Skeggið
Páll óSkar
í eyjum
MatreiðsluMeistari MótMælir:
Ný grúppa á Facebook:
Sigurganga Jóhönnu Guðrún-
ar Jónsdóttur heldur áfram en í
fyrradag voru útvarpsverðlaun
Eurovision-stöðvarinnar gerð
kunn í fjórða sinn. Hlustendur
stöðvarinnar kusu uppáhalds-
tónlistarmenn í Eurovsion þetta
árið. Hinn norski Alexander
Rybak hreppti tvenn verðlaun,
fyrir besta lagið og sem besti
söngvari keppninnar. Jóhanna
Guðrún, Eurovision-stjarna
okkar Íslendinga, hreppti einnig
tvenn verðlaun hjá hlustendum.
Hún var valin besta söngkonan
og á heiðurinn af öðru besta lagi
keppninnar. Aysel & Arash sem
hrepptu þriðja sætið í Eurovision
voru valin besta grúppan.
enn Sigrar
jóhanna
Rúmlega sjö hundruð manns hafa
skráð sig í hóp á Facebook og fara
fram á að Bubbi Morthens semji ekki
þjóðhátíðarlagið í ár. Ennfremur vilja
Eyjamenn ekki að Bubbi spili á Þjóð-
hátíð því þeir séu þreyttir á skoðun-
um hans og framkomu. Tryggvi Már
Sæmundsson, meðlimur þjóðhátíð-
arnefndar, segir Bubba órjúfanlegan
hluta af hátíðinni.
„Nei, ekki áhuga á því að fá Bubba.
Við eigum að halda í hefðina og fá
Eyjamann til að semja þjóðhátíðar-
lög, annað er bara ekki hægt. Gleði-
lega þjóðhátíð án Bubba.“ Svona
hljóðar ein af mörgum athugasemd-
um á vegg hópsins „Vinalegi klúbb-
urinn sem langar ekki að sjá Bubba
á Þjóðhátíð“ sem stofnaður hefur
verið á Facebook. Meðlimir hópsins,
sem eru rúmlega sjö hundruð, mót-
mæla þeirri ákvörðun þjóðhátíðar-
nefndar að ráða Bubba Morthens til
að spila á Þjóðhátíð og semja þjóð-
hátíðarlagið.
Þeir Eyjamenn sem DV talaði
við virðast vera komnir með nóg af
Bubba og þá sérstaklega eftir báts-
ferðina frægu í fyrra. Bubbi skemmti
á Þjóðhátíð en komst ekki með flugi
vegna veðurskilyrða. Því var brugðið
á það ráð að ferja hann með gúmmí-
bát út til Vestmannaeyja. Í nokkrum
athugasemdum á Facebook-síðunni
er Bubbi gagnrýndur vegna þessa at-
burðar.
„Jahh segi það bara aftur Þjóðhá-
tíð er hátíð sem er í Vestmannaeyj-
um og haldin af Vestmannaeyingum
og þeir eiga líka að semja lögin. Ekki
frystihúsakappinn sem er of vatns-
hræddur til að fara í bát og blotna,“
skrifar Elvar Þór Elvarsson á síðuna.
Heimamenn viðra skoðanir sínar á
Bubba rækilega á Facebook-síðunni
og eru ekki nógu sáttir við hann.
„Ég skil ekkert í þjóðhátíðarnefnd.
Illa valið. Já og eftir árið í fyrra fauk
gersamlega allt mitt álit á honum út í
veður og vind, hræsnari,“ skrifar Ás-
geir Guðmundsson.
„Væri í lagi ef hann kæmi bara
til að syngja sín bestu lög og vera í
stuði, ég nenni bara ekki að hlusta
á vælið í honum og hans skoðanir á
stjórnmálamönnum landsins. Ég fer
á Þjóðhátíð til að skemmta mér og
gleyma öllu svona bulli svona eins
og eina helgi,“ skrifar annar á síðuna
og Sveinn Friðriksson einfaldar mál-
ið og skrifar: „Ef hann kemur aftur...
þá fer hann aftur að grenja.“
Þá virðist það enn fremur fara fyr-
ir brjóstið á Eyjamönnum að Bubbi
eigi að semja þjóðhátíðarlagið.
Heimamenn hefðu kosið að það væri
boðið út til heimamanna þar sem
hin sanna Eyjastemning með sínum
hvítu tjöldum og Heimakletti verði
að skína í gegn. Nokkrir heimamenn
tjá sig einnig um þetta á Facebook-
síðunni: „Bubbatímabilið er búið.
Maður sem hefur samið auglýsinga-
stef fyrir Hagkaup er ekki trúverðug-
ur. Þjóðhátíðin væri betri án Bubba,“
segir Guðbjörn Ármannsson.
Tryggvi Már Sæmundsson sit-
ur í þjóðhátíðarnefnd og segir Fac-
ebook-hópinn engin áhrif hafa á
störf nefndarinnar. „Við erum bún-
ir að ganga frá dagskránni og það er
hálfur mánuður síðan við lokuðum
fyrir hana. Við látum þetta ekki
hafa áhrif á okkur. Bubbi er
umdeildur en það breytir
því ekki að hann kem-
ur til okkar í ár,“ segir
Tryggvi.
„Bubbi hef-
ur aldrei legið á
skoðunum sín-
um. Ég trúi því
ekki að Vest-
mannaeyingj-
ar séu sárir út af
því. Hann taldi
sig hafa lent í
sjávarháska
í fyrra og
hann lenti í
einhverjum
háska. Það
er ljóst,“ seg-
ir Tryggvi og
sér ekkert at-
hugavert við
það að Bubbi
semji þjóðhá-
tíðarlagið í ár.
„Það hefur ver-
ið allur gangur á því
hvort heimamenn
semja lagið eða ekki.
Við höfum leitað til
manna sem við höf-
um treyst í þetta og það
hefur reynst ágætlega.
Bubbi er orðinn órjúfan-
legur hluti af hátíðinni og
fastagestur undanfarin ár.
Það var mikill heiður að hann
var til í að semja lagið.“
liljakatrin@dv.s
Bubbi Morthens Bubbi
hefur heiðrað hátíðina með
nærveru sinni síðustu ár og á
því verður engin breyting í ár.
Nóg komið af Bubba
Einhverjir Eyjamenn vilja hvorki
fá Bubba á þjóðhátíð í ár né að
hann semji þjóðhátíðarlagið.
Safnar skeggi til að
mótmæla úlfar Ey-
steinsson skerðir ekki
skegg sitt fyrr en
stýrivextir
lækka.