Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2009, Blaðsíða 2
Íslendingum sem fara í sólarlandaferðir hefur fækk-
að mikið frá því í fyrra. Þorsteinn Guðjónsson hjá Úrvali Útsýn
segir ferðavenjur Íslendinga hafa breyst eftir efnahagshrunið og
nú tekur fólk jafnvel nesti með sér til útlanda.
hitt málið
Þetta helst
- þessar fréttir bar hæst í vikunni
eigendur kaupþings
skulduðumest
Samkvæmt lánabók Kaup-
þings frá sumrinu 2006
voru fimm af fjórtán stærstu
skuldurum Kaupþings eig-
endur bankans og fjárhags-
lega tengdir aðilar. Baug-
ur var stærsti einstaki skuldari
bankans með tæplega 48 milljarða
skuld. Lýður og Ágúst Guðmundssynir
voru meirihlutaeigendur í fjórum fé-
lögum af fimm. Meira en 120 milljarð-
ar fóru til Bakkavararbræðra. „Besta
leiðin til að ræna banka er að eiga
hann,“ segir Vilhjálmur Bjarnason,
formaður Félags fjárfesta, um gjörn-
inginn.
bókhald bjarna ben úti í bæ
Stuðningsmannafélag
Bjarna Benediktssonar
er til húsa á Einimel 18 í
Reykjavík. Tilvist félagsins
hefur Bjarni ekki gefið
upp í skrá Alþingis yfir
hagsmunatengsl alþingis-
manna. Einar Örn Ólafsson, forstjóri
Skeljungs, er búsettur á Einimel 18.
Dæmi eru þess að stuðningsmanna-
félög séu vistuð hjá fjárhaldsmönn-
um eða flokkssystkinum og séu ekki
tilgreind á vef Alþingis. Bjarni, sem er
fyrrverandi stjórnarformaður N1, gef-
ur aðeins upp setu í skipulagsnefnd
Garðabæjar á vefsíðu Alþingis um
hagsmunatengsl sín.
1 dv.isF r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ðþriðjUdagUr 7. júlí 2009 dagblaðið vísir 97. tbl. – 99. árg. – verð kr. 347
davíð varði icesave
Ný Ásdís
rÁN fædd í
BúlgaríU
fréttir
EigEndur Kaupþings stórtækir í að lána sjálfum sér:
BAKKA-
BRÆÐUR
SKULDA
MEST
hjóNvökNUðU í svörtUm reyk
,,Besta leiðiN til að ræNa BaNka er að eiga haNN“
kúlUlÁNafólk kaUpþiNgs líka með fasteigNalÁN
símiNN, vís og exista með stærstU skUldUrUm
BaUgUr skUldar mest fyrirtækja
tveir vilja eNdUrgreiða kúlUarðiNN
lánabók 2006
fréttir
fólk
slUppU með skrekkiNN þegar kvikNaði í sUmarBústaðNUm
2 föstudagur 10. júlí 2009 fréttir
Nethyl 2, sími 587-0600, www.tomstundahusid.is
Fjarstýrðir bensínbílar
í miklu úrvali.
Fiskibollur í
Ferðatöskunni
Íslendingar eru svo gott sem hættir
að fara í mikla verslunarleiðangra á
meðan þeir dvelja á erlendri grundu.
Nú er fólk frekar í hefðbundnum
túristagír, baðar sig í sjónum og ger-
ir einfalda hluti sem kosta ekki of
mikið. Íslenskir ferðamenn taka til
dæmis allajafna ekki lengur leigu-
bíl fyrir þrjú þúsund krónur í næsta
bæ til að kaupa sér skó og buxur á
himinháu verði sem er vægast sagt
óstöðugt vegna óstöðugs gengis
krónunnar.
Sumir hafa jafnvel gengið svo
langt að pakka ofan í ferðatöskuna
núðlusúpum, Ora fiskibollum og
harðfiski, til þess að lækka matar-
kostnaðinn. Í dag er ekkert óvenju-
legt að rekast á hóp Íslendinga bíða
í strætóskýli í Tyrklandi, með vasa-
reikni í annarri og handfjatlandi evr-
ópskt klink í hinni, „í hverju stendur
evran núna?“ heyrist gjarnan.
Reyna að ná fram
hagstæðari samningum
„Á þessum tímum er lykillinn að stíga
varlega til jarðar,“ segir Þorsteinn
Guðjónsson, forstjóri Úrvals Útsýn-
ar, í samtali við DV. Hann segir að
breytingar hafi orðið á ferðavenjum
Íslendinga sem kaupa nú í auknum
mæli svokallaðar pakkaferðir þar sem
flug, hótel og fæði er innifalið. Eins er
nokkuð vinsælt að panta íbúð þannig
að fólk geti sjálft séð um eldamennsku
og innkaup. Þannig reynir fólk að
verja sig gegn gegndarlausum gengis-
breytingum íslensku krónunnar.
Aðspurður segir Þorsteinn að vetr-
armarkaðurinn, þar sem mest fer fyr-
ir eldri borgurum, hafi dregist saman
um 50 prósent á meðan sumarmarkað-
urinn, þar sem meira er um yngri við-
skiptavini á aldrinum 30 til 55 ára, hefur
dregist saman um heil 70 prósent.
„Við höfum gert eins og hægt er til
að ná fram hagstæðari samningum, til
þess að vega eitthvað upp á móti þeim
aukna kostnaði sem við verðum fyrir
þegar krónan er jafnveik og raun ber
vitni,“ segir Þorsteinn.
Sólin er langbest
Vinsælustu sólarlandaferðirnar eru til
Spánar, Portúgals, Kanaríeyja og Tyrk-
lands. Fólk pantar seinna nú en áður
og stundum á síðustu stundu þannig
að ekki er öll von úti um að fleiri Ís-
lendingar leggi land undir fót og skelli
sér í sólina ef hún lætur ekki sjá sig
fljótlega hér heima.
Íslendingar vilja eftir sem áður
komast í þá hlýju og afslöppun sem
fylgir ferðum á sólarstrendur og eldri
borgarar sækja enn í miklum mæli til
sólarlanda. „Eldri viðskiptavinahópur-
inn hefur haldið betur velli en sá yngri
og skýringin liggur þá eflaust í því að
sá yngri hefur orðið verr úti í fjármála-
hruninu,“ segir Þorsteinn að lokum.
María Elínardóttir
Íslendingar eru svo gott sem hættir að
fara í mikla verslunarleiðangra á með-
an þeir dvelja á erlendri grundu.
Sól og sæla Þeir eru heppnir
sem sjá sér fært að skreppa til
Spánar í sumar.
Nauthólsvík vinsæl Landsmenn
nýta sér ströndina hér heima
frekar en að fara til útlanda.
2
4 miðvikudagur 8. júlí 2009 fréttir
Bókhald Bjarna
Ben útI í Bæ
Átta ára fangelsi fyrir hrottalegt ofbeldi gegn sambýliskonu:
Myndaði ofbeldið
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í
gær karlmann í átta ára fangelsi fyr-
ir mjög grófar líkamsársir og fjölda
alvarlegra kynferðisbrota gagnvart
fyrrverandi sambýliskonu sinni.
Maðurinn neyddi sambýliskonuna
til samræðis við 11 aðra karlmenn
og beitti hana ítrekað mjög grófu of-
beldi. Myndir og myndbönd sem
sýna áverka konunnar voru notuð
sem sönnunargögn. Ofbeldismað-
urinn var einnig dæmdur fyrir að
hafa ráðist á föður sinn og hótað
að myrða hann. Brot mannsins eru
sögð eiga sér ekkert fordæmi hér á
landi.
Ofbeldi árásarmannsins gegn
konunni stóð yfir í tvö ár og segir í
dómsorði að maðurinn hafi mark-
visst brotið niður mótstöðuafl kon-
unnar og gert hana sér undirgefna.
Hún hafi óttast barsmíðar og því
tekið þátt í kynferðisathöfnum með
fjölda ókunnugra manna. Sjálfur tók
maðurinn athafnirnar upp á mynd-
band.
Á síðasta ári hafnaði Hæstirétt-
ur Íslands því að nálgunarbann yfir
manninum yrði framlengt, en hann
hafði áður setið í gæsluvarðhaldi
vegna málsins og verið úrskurðaður
í hálfs árs nálgunarbann.
Maðurinn var einnig dæmdur
fyrir líkamsárás gegn föður sínum
og hótanir í hans garð. Í dómnum
segir að konan glími nú við mjög al-
varlegar afleiðingar brotanna. Hún
hafi hlotið gífurlegt andlegt tjón og
líkamlega áverka og maðurinn eigi
sér engar málsbætur. Honum var
gert að greiða konunni 3,8 milljónir
í miskabætur.
„Einar Örn var sá sem bauð
Gísla Marteini Baldurssyni,
borgarfulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins, í laxveiðiferð á veg-
um Glitnis“
Stuðningsmannafélag Bjarna Bene-
diktssonar, þingmanns og formanns
Sjálfstæðisflokksins, er til húsa á
Einimel 18 í Reykjavík. Tilvist félags-
ins hefur Bjarni ekki gefið upp í skrá
Alþingis yfir hagsmunatengsl alþing-
ismanna, en sjálfur býr hann í Garða-
bæ.
Aðeins tveir íbúar eru gefnir upp
á Einimel 18, Einar Örn Ólafsson, nú-
verandi forstjóri Skeljungs, og Áslaug
Einarsdóttir, eiginkona hans. Einar
Örn var áður framkvæmdastjóri fyrir-
tækjasviðs Íslandsbanka. Hann hætti
snögglega í bankanum í lok apríl og
tók við forstjórastöðu hjá Skeljungi
26. maí síðastliðinn. Einar Örn sat í
stjórn Sambands ungra sjálfstæðis-
manna (SUS) árin 1999 til 2001 þeg-
ar Sigurður Kári Kristjánsson var for-
maður sambandsins. Einar Örn var
sá sem bauð Gísla Marteini Baldurs-
syni, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks-
ins, í laxveiðiferð á vegum Glitnis til
Kolaskaga í Rússlandi eins og DV hef-
ur greint frá. Þess má geta að Íslands-
banki lætur nú óháðan aðila rannsaka
sölu Einars Arnar á hlut Íslandsbanka
í Skeljungi.
Athygli vekur að á Einimel 13 er til
húsa félagið „Stuðningsmenn Sigurð-
ar Kára“. Sigurður Kári Kristjánsson,
fyrrverandi þingmaður Sjálfstæð-
isflokksins og núverandi aðstoðar-
maður Bjarna, á hins vegar heima
á Melhaga í Reykjavík. Arnar Þór
Ragnarsson, hagfræðingur og lög-
giltur verðbréfamiðlari, er til heimil-
is á Einimel 13. Hann var í stjórn SUS
1997 til 1999 í Reykjavíkurkjördæmi
ásamt Sigurði Kára og því má ætla að
þeir þekkist vel.
Þingmenn geri grein fyrir
hagsmunatengslum
Á vef Alþingis um hagsmunatengsl
þingmanna er ekkert að finna um fé-
lagið „Stuðningsmenn Bjarna Bene-
diktssonar“ sem þó hefur bæði heim-
ilisfang og kennitöluna 420309 1120.
Í raun er ekkert sagt um hagsmuna-
tengsl og trúnaðarstörf Bjarna ann-
að en að hann sitji í skipulagsnefnd
Garðabæjar.
Samkvæmt reglum Alþingis, sem
samþykktar voru í mars síðastliðnum,
skulu þingmenn meðal annars gera
grein fyrir fjárframlögum eða öðrum
fjárhagslegum stuðningi frá innlend-
um og erlendum fyrirtækjum eða
einstaklingum. Þetta á einnig við um
afslætti, gjafir, ferðir og heimsóknir
innanlands sem utan sem geta tengst
setu á Alþingi en eru ekki að öllu leyti
greidd af ríkissjóði, flokki viðkomandi
þingmanns eða þingmanninum sjálf-
um. Meginástæða þess að þingmenn
kjósa að gefa ekki upp fjárhagslegan
stuðning gæti verið sú að nýju
reglurnar tóku ekki gildi fyrr
en 1. maí, fáeinum dögum
eftir kosningar.
Vilja hertar reglur
GRECO, nefnd á veg-
um Evrópuráðsins sem
rannsakar og fylgist með
spillingu í aðildarlönd-
um, birti í apríl í fyrra
skýrslu um Ísland þar sem
mælst er til þess að Ríkisendurskoð-
un verði fengnar viðeigandi heimild-
ir til þess að afla gagna á sjálfstæðan
hátt um fjármál einstakra frambjóð-
enda umfram það sem þeir eru skyld-
aðir til í lögunum frá 2006. Þó svo að
Ríkisendurskoðun hafi vald til þess
að tryggja endurskoðun og gegnsæi
allra upplýsinga frá stjórnmálaflokk-
um hefur hún ekki heimild til þess að
rannsaka á sjálfstæðan hátt fjárreið-
ur einstakra frambjóðenda. „Í slík-
um tilvikum hefur Ríkisendurskoð-
un engar lagaheimildir til þess að fara
fram á kvittanir eða reikninga til þess
að sannreyna þær upplýsingar sem
frambjóðendur birta. Þess vegna er
þess farið á leit að Ríkisendurskoðun
fái áðurgreindar heimildir,“ eins og
segir í skýrslunni.
Íslensk stjórnvöld hafa frest til loka
október til þess að bregðast við erindi
GRECO.
Þingmenn þurftu ekki að gefa upp fjárhagslegan stuðning við sig í prófkjörum fyrir síðustu kosningar. Dæmi eru þess að stuðningsmannafélög séu vistuð hjá fjárhalds-mönnum eða flokkssystkinum og séu ekki tilgreind á vef Alþingis um hagsmunatengsl þingmanna. Þetta á meðal annars við um stuðningsmannafélag Bjarna Benediktsson-ar sem er til heimilis hjá forstjóra Skeljungs á Einimel. Bjarni, sem nýlega lét af stjórn-arformennsku hjá N1, býr hins vegar í Garðabæ.
Jóhann hauksson
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
Einimelur 18. Félagið „Stuðningsmenn Bjarna Benediktssonar“ er skráð til húsa á Einimel 18. Þar býr Einar Örn Ólafsson, forstjóri Skeljungs, en Bjarni lét fyrir skemmstu af stjórnarformennsku í N1.
Forstjóri skeljungs. Einar Örn Ólafs-
son er flokksbróðir Bjarna og Sigurðar
Kára sem vistar stuðningsmannafélag
sitt í nálægu húsi á Einimel 13.
hrottalegt ofbeldi
Maðurinn beitti konuna ofbeldi linnulítið
í tvö ár. Myndin er sviðsett.
Mynd/Photos
Flokksformaðurinn
Stuðningsmannafélög
sjá um fjárhagslegan
stuðning í prófkjörum og
kosningabaráttu. Ekkert er
að finna um félag Bjarna á
vef Alþingis um hags-
munatengsl þingmanna.
konum bjargað
Björgunarsveitarmenn björg-
uðu í gær tveimur bandarískum
konum sem sátu fastar á eyri í
Köldukvísl. Stjórnstöð Land-
helgisgæslunnar barst upp-
hringing frá bandarískri neyðar-
þjónustu þar sem tilkynnt var að
borist hefðu neyðarboð úr sendi
viðskiptavinar sem staddur væri
á Íslandi. Þyrla Landhelgisgæsl-
unnar var kölluð út auk björg-
unarsveita Landsbjargar sem
voru með menn í 10 kílómetra
loftlínu frá svæðinu. Þyrlunni
var snúið við og voru konurnar
sóttar ómeiddar á eyrina.
drengurinn á
batavegi
Drengnum, sem varð fyrir bíl
á Reykjanesbraut við Ásvelli í
Hafnarfirði um klukkan þrjú í
fyrradag, er enn haldið sofandi í
öndunarvél að sögn vakthafandi
læknis á gjörgæsludeild Land-
spítalans. Vakthafandi læknir
segir þó að hann telji drenginn,
sem er átta ára gamall, vera á
batavegi.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni er talið að drengur-
inn hafi hlaupið út á Reykjanes-
brautina í veg fyrir bílinn.
10 húsleitir
„Við enduðum
á því að leita
á tíu stöðum,“
segir Ólafur
Þór Hauks-
son, sérstakur
saksóknari, en
eins og fram
hefur komið
framkvæmdi
embættið
húsleitir á fjölmörgum stöðum
í gær.
Aðspurður hvort fleiri hús-
leita megi vænta segir Ólafur Þór
að hann geti aldrei gefið slíkar
upplýsingar. Það geti skemmt
fyrir. Aðspurður segir hann dag-
inn í dag hafa verið gríðarlega
annasaman. „Það er gríðarlegt
átak að velta svona pródjekti og
krefst mikils undirbúnings.“