Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2009, Blaðsíða 46
46 föstudagur 10. júlí 2009 hin hliðin
Söngkonan Lára Rúnarsdóttir gaf nýlega út nýtt lag sem
heitir Surprise. Það verður á næstu plötu Láru sem kemur
út í haust. Lára missti fiskinn Fisher nýlega og hefur aldrei
farið í megrun. Hún er á leið í hringferð í kringum landið og
skammast sín ekki fyrir neitt.
MikilvægUst erU haMingjan og heilsan
nafn og aldUr?
„Lára Rúnarsdóttir, 26 ára.“
atvinna?
„Móðir og unnusta, rekstrar- og innkaupastjóri
og tónlistarmaður.“
hjúskaparstaða?
„Í sambúð.“
fjöldi barna?
„Eitt barn. Embla Guðríður,
tíu mánaða.“
hefUr þú átt gælUdýr?
„Já, fiskinn Fisher sem dó
nýlega.“
hvaða tónleika fórst þú á síðast?
„Ensími á NASA.“
hefUr þú koMist í kast við lögin?
„Já.“
hver er Uppáhaldsflíkin þín og af hverjU?
„Öll nýjustu fötin mín, elska þau í mánuð og þrái
svo ný.“
hefUr þú farið í MegrUn?
„Nei, megrun er orð á bann-
lista.“
hefUr þú tekið þátt í
skipUlögðUM MótMæl-
UM?
„Já.“
trúir þú á fraMhaldslíf?
„Já, ég trúi á ódauðleika sálarinnar. Þannig að
það er eins gott að fara vel með hana.“
hvaða lag skaMMast þú þín Mest fyrir að
hafa haldið Upp á?
„Skammast mín ekki fyrir neitt.“
hvaða lag kveikir í þér?
„50 ways to leave your lover, My baby just cares
for me og Such great hights.“
til hvers hlakkar þú núna?
„Hringferðar um landið með fólki sem ég elska.“
hvaða Mynd getUr þú horft á aftUr og aft-
Ur?
„Amilie.“
afrek vikUnnar?
„Nýja lagið mitt, Surprise.“
hefUr þú látið spá fyrir
þér?
„Já, í samkvæmi með gyðjum.“
spilar þú á hljóðfæri?
„Já, nokkur.“
viltU að ísland gangi
í evrópUsaMbandið?
„Nei.“
hvað er Mikilvægast í lífinU?
„Hamingjan og heilsan.“
hvaða íslenska ráðaMann
MUndir þú vilja hella fUllan
og fara á trúnó Með?
„Jóhönnu Sigurðardóttur, hún hefði
gott af því að fara á gott fyllirí og slaka aðeins á.“
hvaða fræga einstakling Myndir þú helst
vilja hitta og af hverjU?
„Tom Waits til þess að læra hvernig er hægt að
vera svona kúl.“
hefUr þú ort ljóð?
„Já.“
nýlegt prakkarastrik?
„Pass.“
hvaða fræga einstaklingi líkist þú Mest?
„Pabba mínum.“
ertU Með einhverja leynda hæfileika?
„Ég vona að ég komi sjálfri mér sífellt á óvart.“
á að leyfa önnUr víMUefni en áfengi?
„Nei.“
hver er UppáhaldsstaðUr-
inn þinn?
„Heimilið mitt.“
hvað er það síðasta seM
þú gerir áðUr en þú ferð
að sofa?
„Kyssi manninn minn.“
hver er leið íslands út úr kreppUnni?
,,Að sætta okkur við hvernig ástandið er orðið.“
30 days
Apótekin & Heilsubúðirnar
www.leit.is · Smellið á ristilvandamál
Á gamla gamla verðinu.
30 days
Losnið við hættulega kviðfitu og
komið maganum í lag með því
að nota náttúrulyfin Oxytarm og 30
days saman.
Umboðs- og söluaðili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Birkilauf
NICOLAI
Véla- og hjólastillingar
Tímareimar - Viðgerðir
BIFREIÐASTILLINGAR
Faxafeni 12 Sími 588-2455
Oxy tarm
Apótekin & Heilsubúðirnar
www.leit.is · Smellið á ristilvandamál
Á gamla gamla genginu.
Oxy tarm
Endurnærir og hreinsar ristilinn
Allir dásama oxy tarmið
... á Dalveg 16a
Sími: 554 3430
Erum fluttir...