Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2009, Side 6
Sandkorn
n Leikstjórinn Gunnar Sigurðs-
son sem getið hefur sér gott orð
fyrir harðsnúna stjórn á borg-
arafundum
eftir hrunið
situr ekki auð-
um höndum.
Hann vinnur
nú að heim-
ildarmynd um
hrunið. Margir
eru fúsir til að
ræða málin við
hann. Þeirra
á meðal er einn helsti ábyrgðar-
maður Icesave, Björgólfur Thor
Björgólfsson, sem ræddi við
Gunnar í London á dögunum.
Víst er að margir bíða spenntir
eftir heimildarmyndinni.
n Nú er tíminn til að ganga á
fjöll. Taki menn bakpokann og
stæli líkamann í nokkra daga er
ágætt að ganga í góðra vina hópi.
Ólygnir eru þess fullvissir að þeir
hafi séð einn slíkan hóp álengdar
í grennd við
Sveinstind
og Langasjó
og greint þar
nokkra menn.
Þeirra á með-
al Bjarna
Benediktsson,
formann Sjálf-
stæðisflokks-
ins, og Þórð Má Jóhannesson,
sem eitt sinn var framkvæmda-
stjóri hjá Straumi. Þriðji maður-
inn sem kennsl voru borin á er
Bjarni Ármannsson, fyrrverandi
bankastjóri, útrásarvíkingur og
súkkulaðikóngur. Bjarni Ben og
Bjarni Ármanns eiga það sam-
eiginlegt umfram nafnið að báðir
eru þeir að endurbæta einbýlis-
hús sín.
n Gestir í sundlauginni í Norður-
firði á Ströndum urðu hneyksl-
aðir fyrir skömmu þegar þeir
urðu vitni að því þegar Halldór J.
Kristjánsson, fyrrverandi banka-
stjóri Landsbankans, sleppti því
að borga í laugina fyrir sig og
son sinn. Halldór á sumarhús
á Ströndum og kom í laugina
ásamt syni sínum og konu, sem
beið í bílnum á meðan feðgarnir
böðuðu sig. Enginn starfsmaður
er í lauginni
en ætlast er
til að gestirnir
greiði fyrir
aðganginn
með því að
láta peninga í
þar til gerðan
kassa. Halldór
gerði þetta
hins vegar ekki og þegar einn
sundlaugargestur sá það sagði
hann við Halldór að allir ættu
að borga í laugina. Halldór lét
tilmælin hins vegar sem vind um
eyru þjóta og baðaði sig án þess
að borga, þvert gegn tilmælum
þeirra sem sjá um laugina.
6 föstudagur 10. júlí 2009 fréttir
Steinteppi Teppi
Stigahús Mottur
Ólafur Þór Hauksson, sérstakur sak-
sóknari, hefur greint frá því að for-
svarsmenn Milestone- og Sjóvár séu
grunaðir um meint brot á lögum um
vátryggingastarfsemi, brot á lögum
um hlutafélög og eftir atvikum brot
á auðgungarbrotakafla almennra
hegningarlaga. Málið varðar ævin-
týralegar fjárfestingar úr bótasjóði
Sjóvár í fasteignum í Hong Kong í
miðju góðærinu.
Það er álit lögmanns sem DV
ræddi við að líklegast leiki grun-
ur á umboðssvikum og fjársvikum.
Þyngsta mögulega refsing við slíkum
brotum er sex ára fangelsi. Íslenskir
dómarar hafa hins vegar verið afar
mildir hingað til í garð þeirra sem
hafa hlotið dóm fyrir slík brot og ekki
nýtt refsirammann til fulls. Hins veg-
ar geti það komið til refsiþyngingar ef
dæmt er fyrir margvísleg brot á sama
tíma. Bræðurnir Karl og Steingrímur
Wernerssynir voru aðalmennirnir á
bak við Milestone og Þór Sigfússon
var forstjóri Sjóvár.
Hallar undan fæti hjá risaveldi
Karl var jafnan talinn eiga tvo þriðju
hluta í fjárfestingafélaginu Miles-
tone, sem var miðpunktur fjölskyldu-
veldisins. Steingrímur átti hins vegar
einn þriðja. Áður hafði Ingunn syst-
ir þeirra gengið út úr Milestone og
haslað sér völl sem sjálfstæður fjár-
festir. Grunninn að fjölskylduveldinu
reisti apótekarinn Werner Rasmuss-
en, faðir systkinanna. Hann fjárfesti í
Pharmaco og Delta undir lok síðustu
aldar, ásamt því að reka Ingólfsapót-
ek. Karl tók svo að mestu við kyndlin-
um og fjárfesti grimmt með miklum
árangri.
Um mitt ár 2008, skömmu fyr-
ir hrunið, átti Milestone gríðarleg-
ar eignir. Fjárfestingar Wernerssona
höfðu um nokkurra ára skeið verið
nærri samfleytt sigurganga. Undir
Milestone heyrði Moderna Finance
A.B, inni í því var Moderna trygg-
ingafélagið í Svíþjóð og Sjóvá. Aðr-
ar eignir má nefna Askar Capital,
Invik, Moderna Fonder og hlutdeild
í Carnegie. Þá heyrðu Avant og In-
vik Banque undir Milestone. Eignir
bræðranna voru metnar á um og yfir
100 milljarða króna í Fréttablaðinu í
júlí í fyrra.
Eftir að Svíþjóðar-ævintýri Mile-
stone-manna varð að engu hef-
ur hallað gríðarlega undan fæti hjá
bræðrunum. Steingrímur, sem er bú-
settur í Bretlandi, á óuppgerðar sakir
við málaraverktaka sem hefur stefnt
honum vegna tveggja milljóna króna
greiðslu sem hann telur Steingrím
skulda honum vegna vinnu við ein-
býlishús hans. Þá sagði DV frá því á
dögunum að Steingrímur hefði flutt
snekkju sína, sem hefur verið geymd
í Snarfarahöfn undanfarin ár, úr landi
með gámaflutningaskipi Eimskips.
Þá keypti lögmaður hans lúxusjeppa
Steingríms og nágrannar lögmanns-
ins keyptu hjólhýsi af Steingrími.
Hremmingar Örtölvutækni
Karl Wernersson útskrifaðist sem
viðskiptafræðingur frá Háskóla Ís-
lands árið 1986. Hann var ráðinn til
Örtölvutækni-Tölvukaupa hf. í lok
ársins 1989, fyrst sem fjármálastjóri,
síðan sem sölustjóri, þá aðstoðar-
framkvæmdastjóri og loks sem fram-
kvæmdastjóri árið 1994. Fyrirtækið
glímdi við mjög þungan rekstur og
varð niðurstaðan sú að því var skipt
upp í tvö rekstrarfélög. Digital-tölvu-
umboðið var skilið fá öðrum rekstri
félagsins og var stofnað nýtt fyrirtæki
í kringum umboðið, Aðalmennirn-
ir á bak við Örtölvutækni ehf. voru
Werner, faðir Karls, og Árni Fann-
berg. Félagið réð til sín starfsmenn
frá gamla hlutafélaginu og keypti
eignir út úr því, en gamla fyrirtæk-
ið þurfti að leita nauðasamninga
við lánardrottna sína. Á mannamáli
mætti kalla slíkan gjörning kenni-
töluflakk.
Digital á Íslandi ehf., eins og fyr-
irtækið hét síðar undir stjórn Karls
og í eigu Werners, sameinaðist svo
Tæknivali árið 1999 og vék Karl þá úr
stóli framkvæmdastjóra.
Karl, sem hefur ekki látið fjöl-
miðla ná í sig að undanförnu, ræddi
hins vegar um vandræðin í kringum
Örtölvutækni í viðtali við DV árið
2006. „Það var á þeim tíma sem við
áttum Örtölvutækni að við lentum í
miklum en lærdómsríkum hremm-
ingum. Það var þó fyrir öllu að við
náðum að koma fótunum undir fyr-
irtækið aftur og seldum það svo,”
segir Karl um tímabilið sem reyndist
honum mikil reynsla.
Forstjórinn kennir
bræðrum um
Þór Sigfússon, fyrrverandi forstjóri
Sjóvár, hefur firrt sig ábyrgð á fast-
eignafjárfestingaverkefnum Sjóvár á
Macau-skaganum í Hong Kong árið
2006 og sagt Wernerssynina Karl og
Steingrím hafa séð um þær. Á
Vísi var haft eftir Þór í vikunni
að hann hefði staðið heiðarlega
að öllu sem hann tók sér fyrir
hendur hjá Sjóvá. Hann sagði
jafnframt að fjárfestingahluti
Sjóvár hefði verið í höndum Mile-
stone-manna. „Þeir sem áttu
félagið sáu um fjárfesting-
ar þess,“ sagði Þór. Enn
fremur sagði hann:
„Fjárfestingar fé-
lagsins voru
fyrst og
fremst á
ábyrgð eigenda félagsins en mitt
verkefni var fyrst og fremst vátrygg-
ingastarfsemin.“
Í viðtali við Viðskiptablaðið árið
2006 talaði Þór þó með þeim hætti að
fjárfestingarævintýri Sjóvár í Hong
Kong væri á hans forræði. Spurð-
ur um fjárfestingarnarnar þá, sagði
Þór: „Félagið er fyrst og fremst að
nýta styrka eiginfjárstöðu sína í verk-
efnin. Sjóvá er að nýta sér þennan
möguleika með það fyrir augum að
auka enn á áhættudreifingu fjárfest-
ingasafns síns. Útrás í fjárfestingum á
sviði fasteigna er leið sem við teljum
að treysta muni fjárhag félagsins til
lengri tíma litið,“ var haft eftir Þór.
„Eðli máls samkvæmt er það
góð regla að ná
fram sem
mestri
áhættudreifingu og í því augnamiði
hefur félagið leitast við að dreifa fjár-
festingum þess á milli Evrópu, Asíu
og Bandaríkjanna. Það liggur í aug-
um uppi að SJ fasteignir hefðu ekki
ráðist í þessar fjárfestingar nema
vegna þess að félagið
teldi þær arð-
bærar,“
sagði
Þór.
Þyngsta mögulega refsing við brotunum sem forsvarsmenn Sjóvár eru grunaðir um
er sex ára fangelsi. „Útrás í fjárfestingum á sviði fasteigna er leið sem við teljum að
treysta muni fjárhag félagsins,“ sagði forstjórinn árið 2006. Eignir Karls og Steingríms
Wernerssona voru metnar á 100 milljarða þegar best lét en nú þurfa þeir að verjast
ásökunum um alvarleg auðgunarbrot. Á 10. áratugnum lenti fjölskyldan í hremming-
um vegna fyrirtækisins Örtölvutækni sem Karl stýrði.
„Útrás í fjárfesting-
um á sviði fasteigna er
leið sem við teljum að
treysta muni fjárhag fé-
lagsins til til lengri tíma
litið.“
GÆTU FENGIÐ
SEX ÁRA FANGELSI
valgeir Örn ragnarSSon
blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is
Þór Sigfússson Mærði fasteignaútrás Sjóvár árið 2006 en segir nú að það hafi verið
eigendur félagsins sem sáu um þær.
Karl Wernersson „Það var á þeim
tíma sem við áttum Örtölvutækni
að við lentum í miklum en
lærdómsríkum hremmingum.“
Steingrímur Wernersson
Eignir bræðranna voru metnar
á um 100 milljarða þegar best
lét. Nú eru þeir grunaðir um
margvísleg auðgunarbrot.