Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2009, Síða 8
„Ég ræði þetta ekki við neinn. Þetta
er bara okkar mál,“ segir Flosi Val-
geir Jakobsson, stjórnarformaður og
annar stærsti eigandi útgerðarfélags-
ins Jakobs Valgeirs ehf. í Bolungar-
vík, þegar hann er spurður að því af
hverju félagið hafi skipt um kenni-
tölu í byrjun febrúar.
Flosi á félagið með syni sínum,
Jakobi Valgeiri Flosasyni, sem jafn-
framt var stjórnarformaður eignar-
haldsfélagsins Stíms sem mikið var í
umræðunni í árslok 2008 eftir að upp
komst að félagið hafði fengið tæplega
20 milljarða króna að láni frá Glitni
til að kaupa hlutabréf í Glitni og FL
Group í nóvember árið 2007. Veðin
fyrir láni Stíms voru í hlutabréfunum
í Glitni og FL Group. Um var að ræða
kúlulán til 12 mánaða með ríflega 20
prósenta vöxtum. Glitnir var sjálfur
seljandi bréfanna sem Stím keypti
og lögðu hluthafarnir fram tæplega
5 milljarða króna eiginfjárframlag
vegna kaupanna á bréfunum.
Verðmætum bjargað
af gjaldþrota kennitölu
Feðgarnir færa útgerðarfélagið yfir á
nýju kennitöluna til að bjarga verð-
mætum og til að losna undan áhvíl-
andi skuldum og ábyrgðum sem á
þeim hvíldu á gömlu kennitölu Jak-
obs Valgeirs ehf. sem líklega verður
gjaldþrota að sögn Jakobs Valgeirs.
Aðspurður hvort gamla kennital-
an sé að fara í þrot segir Jakob: „Ég
reikna nú með því að hún geri það.
Ég á ekki von á öðru.“
Jakob Valgeir segir aðspurður
að félagið hafi fengið samþykki við-
skiptabanka sinna, Landsbankans og
Íslandsbanka, til að skipta um kenni-
tölu á fyrirtækinu. „Já, já, við fengum
bara samþykki frá bönkunum til að
færa þetta yfir á aðra kennitölu. Þeir
voru bara með í þessu,“ segir Jakob og
bætir því við að með þessu hafi þeir
viljað tryggja áframhaldandi rekst-
ur útgerðarfyrirtækisins og aðgreina
hann frá fjárfestingahlutanum.
Tengist ekki Stími
Jakob Valgeir segir að kennitölubreyt-
ingarnar tengist ekki kaupum Stíms á
bréfunum í Glitni og FL Group. „Það
var eitthvað sem ég var í prívat og fé-
lag sem ég átti. Það tengist þessu ekki
neitt,“ segir Jakob Valgeir.
Hann segist eingöngu hafa tapað
um 150 milljónum króna sem hann
lagði fram sem hlutafé inn í Stím og
ekki vera skuldugur út af þátttöku
sinni í félaginu því hann hafi ekki
verið ábyrgur fyrir lántökunni per-
sónulega. „Enda voru engar ábyrgð-
ir, nema bara einhver peningur, sett-
ar inn í það. Þetta var bara alveg
sérdæmi sem Glitnir var bara með,“
segir Jakob Valgeir.
Viðskipti Stíms hafa verið til
rannsóknar hjá Fjármálaeftirlitinu
vegna gruns um að um markaðsmis-
notkun hafi verið að ræða. Mögulegt
er að markmið kaupanna hafi verið
að hafa óeðlileg áhrif á gengi hluta-
bréfa í Glitni og FL Group en lang-
stærsti hluthafinn í Stími var félag
sem Glitnir stofnaði sjálfur. Bréfin í
Glitni urðu verðlaus í bankahruninu
í haust og síðar bréfin í FL Group.
Milljarða fjárfesting Stíms varð því
að engu.
Morgunblaðið greindi frá því í
júní að Fjármálaeftirlitið hygðist
senda Stímmálið til ákæruvaldsins,
annaðhvort efnahagsbrotadeildar
ríkislögreglustjóra eða til sérstaks
saksóknara, Ólafs Haukssonar. Sam-
kvæmt heimildum DV hefur Stím-
málið hins vegar ekki enn verið sent
frá Fjármálaeftirlitinu.
Guðbjartur ehf. verður
Jakob Valgeir ehf.
Jakob Valgeir ehf. er nú með gömlu
kennitölu útgerðarfélagsins Guð-
bjarts ehf., sem var í eigu þeirra feðga
og Ásgeirs Guðbjartssonar skip-
stjóra, eða Geira á Guggunni eins og
hann er gjarnan kallaður með vísun
til frægs ísfirsks skips sem selt var til
Samherja fyrir nokkrum árum. Við
kennitöluskiptin færðist helsta eign
Jakobs Valgeirs, skipið Þorlák ÍS-15,
yfir á kennitölu Guðbjarts sem og 40
prósent af kvóta skipsins. 60 prósent
af kvóta skipsins voru hins vegar
alltaf skráð á kennitölu Guðbjarts,
að sögn Jakobs Valgeirs, og því áttu
þeir ekki á hættu að glata öllum
kvótanum ef félagið hefði farið í þrot
á gömlu kennitölunni. Skipið og 40
prósent kvótans voru hins vegar í
húfi, að sögn Jakobs.
Eignarhaldsfélagið Guðbjart-
ur ehf. er ekki lengur til samkvæmt
upplýsingum af vef Lánstrausts.
Skipin sem áður voru skráð á Guð-
bjart ehf. eru nú hins vegar skráð á
Jakob Valgeir ehf.
Kennitalan sem var á Jakob Val-
geiri ehf. hefur nú verið flutt til Reykja-
víkur á skrifstofu Jakobs Valgeirs, að
hans sögn. Félagið sem kennital-
an er á heitir JV ehf. og er til heimil-
is í Síðumúla 33, áður var kennitalan
hins vegar skráð á Jakob Valgeir ehf.,
á Grundarstíg 5 í Bolungarvík. Jakob
Valgeir og Flosi eru einnig meirihluta-
eigendur í JV ehf.
Jakob Valgeir og Flosi hafa því tek-
ið eignirnar af gömlu kennitölunni og
skráð þær á nýja kennitölu fyrir vest-
an og svo skráð gömlu kennitöluna í
Reykjavík.
Kvóti skipsins veðsettur
upp fyrir haus
Samkvæmt veðbókarvottorði skipsins
Þorláks var það sett yfir á nýja kenni-
tölu 9. febrúar. Áhvílandi á skipinu eru
tæpir þrír milljarðar króna, mikið í er-
lendri mynt, og má því reikna með að
upphæðin hafi hækkað töluvert eftir
efnahagshrunið. Gangverð kvótans á
Þorláki var ríflega 6 milljarðar króna
þegar kvótaverð var sem hæst en nú
má áætla að verð kvótans hafi lækkað
um helming. Veðsetningin sem hvílir
á skipinu er því nokkurn veginn álíka
há og verð kvótans sem fylgir honum.
Auk þessa gaf Jakob Valgeir Flosa-
son það út í yfirlýsingu sem hann
sendi frá sér í lok október í fyrra, eftir
að umræðan um Stím komst í hámæli,
að Jakob Valgeir ehf. og sex önnur fé-
lög sem hann var hluthafi í skuld-
aði Landsbankanum um 19 millj-
arða króna. Í yfirlýsingunni frá Jakobi
kom einnig fram að skuldir félagsins
hefðu verið 8,5 milljarðar ári áður. Því
er ljóst að hræringarnar í efnahagslíf-
inu á árinu 2008 hafa leikið Jakob og
föður hans grátt og að tilfærsla þeirra
á eignum sínum yfir á aðra kennitölu
er gerð til að bjarga því sem bjargað
verður. Jakob segir hins vegar að eft-
ir kennitölubreytinguna standi rekst-
ur félags þeirra feðga ágætlega þrátt
fyrir allt.
8 föstudagur 10. júlí 2009 fréttir
„Jakob Valgeir og Flosi
hafa því tekið eignirnar
af gömlu kennitölunni
og skráð þær á nýja
kennitölu fyrir vest-
an og svo skráð gömlu
kennitöluna í Reykja-
vík.“
Feðgarnir Jakob Valgeir Flosason og Flosi Valgeir Jakobsson, útgerðarmenn frá Bolungarvík, hafa skipt
um kennitölu á fyrirtæki sínu með samþykki viðskiptabanka þeirra, Íslandsbanka og Landsbankans. Feðg-
arnir tóku þátt í Stímævintýrinu. Jakob segir að með því að skipta um kennitölu ætli feðgarnir sér að flýja
skuldir og ábyrgðir sem hvíla á gömlu kennitölunni. Hann segir að með þessu bjargi þeir helstu eign fyrir-
tækisins, skipinu Þorláki, og 40 prósentum kvótans sem skráður er á hann. Tengist ekki Stím, segir Jakob.
InGI F. VIlhJálmSSon
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
STÍMFEÐGAR FLAKKA
Á MILLI KENNITALNA
Einn stærsti atvinnurekandinn Líklegt þykir að bág staða útgerðarfyrirtækisins
Jakobs Valgeirs komi sér illa fyrir atvinnulífið í Bolungarvík en félagið er einn stærsti
atvinnurekandinn í bæjarfélaginu.
Skuldaði 19 milljarða Jakob Valgeir
Flosason gaf það út í lok nóvember í
fyrra að útgerðarfélagið sem heitir í
höfuðið honum skuldaði 19 milljarða
króna. Helsta eign félagsins hefur nú
verið færð yfir á nýja kennitölu.
Kennitöluflakk frá Vestfjörðum til
Reykjavíkur Bolvíska skipið Þorlákur er nú
skráð á gömlu kennitölu eignarhaldsfélagsins
Guðbjarts en kennitalan sem skipið var skráð á
áður er skráð á félag í Reykjavík.
lJóSmyndaRI/GuðmunduR SIGuRðSSon