Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2009, Page 12
12 föstudagur 10. júlí 2009 fréttir
20 STÆRSTU ÚTRÁSARVÍKINGARNIR
Sigurður Einarsson og
Hreiðar Már Sigurðsson:
KÚlUKóNGARNIR
Kaupþing var stofnað árið 1982 og
var Pétur Blöndal alþingismað-
ur einn af stofnendunum. Árið
1994 gengu Sigurður Einarsson
og Hreiðar Már Sigurðsson til liðs
við Kaupþing en þá var Bjarni Ár-
mannsson þar fyrir. Hreiðar byrj-
aði hjá Kaupþingi daginn eftir að
hann kláraði síðasta prófið í við-
skiptafræði, þá 23 ára gamall. Sig-
urður varð forstjóri árið 1996 en
Hreiðar Már tók við af honum
árið 2003. Þá gerðist Sigurð-
ur stjórnarformaður.
Árið 2000 var Kaup-
þing skráð í Kauphöll-
ina. Kaupþing var
fyrsta íslenska fjár-
málastofnunin til
að opna fjármála-
fyrirtæki erlendis og
var það í Lúxemborg
árið 1998 undir nafn-
inu Kaupþing Lux-
embourg S.A. Árið
2000 opnaði Kaup-
þing skrifstofu í New
York. Árið 2004 keypti
Kaupþing danska bank-
ann FIH á 84 milljarða
íslenskra króna. Árið
2005 yfirtók Kaupþing
breska bankann Singer &
Friedlander. Yfirtökutilboð-
ið var 53 milljarðar íslenskra
króna en fyrir átti bankinn 19
prósenta hlut sem metinn var
á 12 milljarða króna. Árið 2007
gerði Kaupþing 270 milljarða
króna kauptilboð í hollenska
bankann NIBC en ekkert
varð af kaupunum. Árið
2007 átti Kaupþing um 20
prósenta hlut í norska
tryggingafyrirtækinu
Storebrand sem þá
var metinn á um
40 milljarða ís-
lenskra króna.
Bjarni Ármannsson:
KAUpGlAðUR
Í ÚTlöNdUm
Bjarni Ármannsson var ráðinn
forstjóri Fjárfestingabanka at-
vinnulífsins (FBA) árið 1997 þá 29
ára gamall. Bjarni er menntaður
tölvunarfræðingur og með MBA-
próf. Áður en hann fór til FBA
hafði hann verið hjá Kaupþingi í
sex ár en Pétur Blöndal réð hann
þangað eftir að hafa hitt Bjarna í
útskriftarferð hans í Taílandi árið
1990. Árið 2000 sameinuðust FBA
og Íslandsbanki og varð Bjarni
annar forstjóranna. Hann tók
upp svokallað EVA árangurstengt
launakerfi hjá FBA árið 1999. Er
það talið upphafið að óhóflega
háum launum bankastjórnenda
á Íslandi.
Fyrsti þáttur í útrás Bjarna voru
kaup FBA á breska einkabankan-
um Raphael & Sons árið 2000 auk
kaupa á 25 prósenta hlut í danska
netbankanum Basisbank. Árið
2003 keypti Íslandsbanki Sjóvá og
seldi Wernersbræðrum síðan fyr-
irtækið árið 2005. Árið 2004 keypti
Íslandsbanki norska bankann
KredittBanken og 2005 keypti Ís-
landsbanki hinn norska BNbank
á 34 milljarða króna. 2005 keypti
Íslandsbanki líka norska verð-
bréfafyrirtækið Norse. 2005 keypti
norska fyrirtækið KredittBanken
FactoNor. Árið 2006 keypti Glitnir
helmingshlut í norska fyrirtækinu
Union Group. 2006 keypti BNbank
45 prósenta hlut í norska verðbréfa-
fyrirtækinu Norsk Privatökonomi.
Eitt af síðustu verkum Bjarna var
að kaupa finnska fyrirtækið FIM í
febrúar 2007 á 30 milljarða króna.
Þegar Bjarni lét af störfum sem
forstjóri Glitnis í maí árið 2007 seldi
hann hluti sína í bankanum fyrir
sjö milljarða króna. 2007 fékk hann
190 milljónir króna í laun og þar af
voru 100 milljónir króna bónus-
greiðsla. Bjarni hagnaðist um 381
milljón króna vegna kaupréttar-
samninga.
Þegar Bjarni lét af störfum sem
forstjóri Glitnis í maí árið 2007 seldi
hann hluti sína í bankanum fyrir
sjö milljarða króna. 2007 fékk hann
190 milljónir króna í laun og þar af
voru 100 milljónir króna bónus-
greiðsla. Bjarni hagnaðist um 381
milljón króna vegna kaupréttar-
samninga.
Þorsteinn Vilhelmsson:
óljóS STAðA Í dAG
Þorsteinn Vilhelmsson keypti
Samherja árið 1983 ásamt bróður
sínum Kristjáni Vilhelmssyni og
frænda þeirra Þorsteini Má Bald-
vinssyni. Þeir gerðu Samherja á
örfáum árum að stærsta sjávarút-
vegsfyrirtæki landsins. Árið 2000
seldi Þosteinn Vilhelmsson all-
an hlut sinn í Samherja fyrir þrjá
milljarða króna. Félag í hans eigu
byggði meðal annars glerhýsið að
Laugavegi 182 þar sem Kauphöll
Íslands er til húsa. Nokkrum árum
síðar stofnaði Þorsteinn Atorku
með Landsbankanum. Þorsteinn
var stærsti hluthafinn í Atorku í
gegnum félag sitt Skessu. Atorka
keypti Jarðboranir Íslands af ís-
lenskra ríkinu. Eins og kunnugt er
hefur Atorka fengið greiðslustöðv-
un en ein stærsta eign félagsins er
40 prósenta hlutur í Geysi Green
Energy. Atorka á líka 80 prósent
í Promens sem er ein stærsta
plastverksmiðja heims og á Sæp-
last á Dalvík. Ekki liggur ljóst fyr-
ir hvernig fjárhagsstaða Þorsteins
Vilhelmssonar er í dag.
Íslenska efnahagsundrið náði hámarki sumarið 2007 þegar úrvalsvísitalan náði 9.000 stigum. Í maí 2007 mat
blaðið Sirkus eignir 25 ríkustu Íslendinganna á 1.390 milljarða króna. Í dag er ólíklegt að sú tala nái 300 millj-
örðum króna sem er minna en 315 milljarðarnir sem Björgólfur Thor átti árið 2007. Líklegt er að Björgólfur
Thor sé ennþá ríkasti maður landsins þótt hann eigi allt sitt undir Deutsche Bank. Aðrir sem koma fast á
hæla honum eru menn eins og Jón Helgi Guðmundsson. Gísli Reynisson þótti líka standa vel áður en hann
lést. Bæði Jón Helgi og Gísli höfðu báðir einblínt á fjárfestingar í Eystrasaltslöndunum. DV valdi feðgana
Árna Odd Þórðarson og Þórð Magnússon, sem hafa fjárfest í Marel og Össuri, bestu útrásarvíkingana.
Magnús Þorsteinsson, sem flúði nýverið til Rússlands, var hins vegar valinn versti útrásarvíkingurinn.
Pálmi Haraldsson:
KeypTI STeRlING TVISVAR
Pálmi Haraldsson og Jóhannes
Kristinsson áttu félagið Fons sem
nýverið óskaði eftir gjaldþrota-
skiptum. Eitt helsta afrek Fons var
að kaupa danska flugfélagið Sterl-
ing á fjóra milljarða króna og selja
FL Group það sex mánuðum síðar
á 15 milljarða króna. Síðan keypti
Fons aftur Sterling af FL Group
ári síðar á 20 milljarða króna.
Skuldir Fons eru taldar nema 20
milljörðum króna en eignir voru
meðal annars fjórir milljarðar í
handbæru fé. Jóhannes hefur að
mestu haldið sig í Lúxemborg
undanfarin ár.
Árið 2007 áætlaði blaðið Sirkus
eignir Pálma á 40 milljarða króna.
Eignir Jóhannesar voru þá metn-
ar á 30 milljarða króna. Ekki liggur
fyrir hvernig staða þeirra er í dag.
Pálmi flutti til Íslands árið 1991
til að taka við Sölufélagi garð-
yrkjumanna sem þá stóð höll-
um fæti. Var hann á þeim tíma að
ljúka meistaranámi í rekstrarhag-
fræði frá Gautaborgarháskóla og
var sérsvið hans í náminu endur-
reisn gjaldþrota fyrirtækja. Eins
og frægt er orðið var félag Pálma
dæmt fyrir grænmetissamráð árið
2001.
Félag hans Fengur sem rekur
Iceland Express hefur ekki verið
úrskurðað gjaldþrota en það hef-
ur ekki skilað ársreikningi í fjög-
ur ár.
Í ágúst 2008 seldi Fons eignir
fyrir 100 milljarða króna. Inni í því
var sala á hlut félagsins í Iceland-
keðjunni í Bretlandi og var hagn-
aður félagsins vegna þeirrar sölu
sagður vera 77 milljarðar króna.
HREiðaR MÁR í ViðTali Við
MORGunBlaðið í aPRíl
2003:
„Ég kynntist Sigurjóni [Þ. Árna-
syni] og Bjarna [Ármannssyni]
fyrst þegar ég hóf nám í Háskól-
anum en þar voru þeir í forsvari
fyrir Vöku og Stúdentaráð. Við
unnum allir töluvert saman í
undirbúningi fyrir kosningar til
stúdentaráðs árið 1991. Ég held
að við höfum allir haft mjög gam-
an af starfinu í Vöku og lært margt
af því, árangur okkar varð þó ekki
betri en svo að Vaka tapaði kosn-
ingunum eftir margra ára sigur-
göngu.“