Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2009, Page 14
Björgólfur Guðmundsson:
Dapur
greifi í kreppu
14 föstudagur 10. júlí 2009 fréttir
Björgólfur Thor Björgólfsson:
Á toppnum með
315 milljarða
Árið 2007 var Björgólfur Thor á há-
tindinum en þá voru eigur hans
metnar á 315 milljarða króna af
blaðinu Forbes. Ári seinna voru þær
komnar í 230 milljarða króna. Ís-
lenska bankahrunið var mikið högg
fyrir Björgólf Thor en hann á enn-
þá félagið Novator en stærsta eign
þess er Actavis. Talið er að Björgólf-
ur Thor eigi allt sitt undir Deutsche
Bank en hann fjármagnaði meðal
annars yfirtökuna á Actavis.
Björgólfur Thor lauk stúdents-
prófi frá Verzlunarskóla Íslands árið
1987 og fór eftir það til New York og
lauk prófi í viðskiptafræði frá New
York University árið 1991. Eftir það
starfaði hann í nokkra mánuði hjá
verðbréfafyrirtækinu Oppenheim-
er á Wall Street en hjá fyrirtækinu
starfaði þá Guðmundur Franklín
Jónsson. Hann gafst fljótlega upp á
því og sneri þá heim til Íslands. Árið
1993 fluttu Björgólfur Thor, faðir
hans Björgólfur Guðmundsson og
Magnús Þorsteinsson Gosan-verk-
smiðjuna frá Akureyri til Péturs-
borgar í Rússlandi. Þar stofnuðu
þeir fyrirtækið Baltic Bottling Plant.
Það varð síðar að Bravo. Bravo fram-
leiddi Botchkarov-bjór sem varð
vinsæll í Rússlandi. Árið 2002 seldu
þeir Bravo til Heineken fyrir 40 millj-
arða íslenskra króna.
Árið 1999 bauð Deutsche Bank
Björgólfi Thor að kaupa Balkan-
pharma í Búlgaríu við einkavæðingu
þess og var kaupverðið 350 milljón-
ir króna. Árið 2000 keyptu Björgólfs-
feðgar 15 prósenta hlut í Pharmaco
á Íslandi og borguðu 800 milljónir
króna fyrir það. Síðan var Balkan-
pharma sameinað Pharmaco og áttu
þeir þá 30 prósent í Pharmaco. Árið
2002 keypti Pharmaco helmings-
hlut í Delta og árið 2004 varð Actavis
til. Árið 2005 átti Björgólfur Thor 36
prósent í Actavis. Árið 2007 yfirtók
Novator félagið og borgaði fyrir það
190 milljarða íslenskra króna.
Árið 2002 eignuðust Björgólfs-
feðgar ásamt Magnúsi Þorsteinssyni
45 prósent í Landsbankanum í gegn-
um félag sitt Samson og borguðu 11
milljarða króna fyrir. 2003 náðu þeir
undirtökunum í Eimskipi eftir „nótt
hinna löngu bréfahnífa“ og þar með
Burðarási sem síðar sameinaðist
Straumi.
Árið 2003 eignaðist Björgólfur
Thor stóran hlut í tékkneska síma-
fyrirtækinu Ceske Radiokomuni-
cace (CRa) og yfirtók það árið 2004.
Hann seldi CRa árið 2006 með 50
milljarða hagnaði. Árið 2004 stofn-
aði Björgólfur Novator. Það sama
ár keypti hann símafyrirtækið BTC í
Búlgaríu og hlut í Saunalahti í Finn-
landi. Saunalahti sameinaðist síðar
Elisu. Árið 2007 seldi hann BTC með
60 milljarða króna hagnaði.
Einn af þeim auðmönnum sem
hvað verst hafa orðið fyrir íslenska
efnahagshruninu er Björgólfur Guð-
mundsson, fyrrverandi stjórnarfor-
maður Landsbankans. Björgólfur
var táknmynd íslenska góðærisins.
Segja má að hann og sonur hans
Björgólfur Thor hafi ýtt efnahag-
sundrinu úr vör þegar þeir keyptu
Landsbankann af íslenska ríkinu
árið 2003 eftir að hafa auðgast vel í
Rússlandi. Björgólfur var stjórnar-
formaður bankans fram að hruninu
og var hann ein af ástæðunum fyrir
því af hverju mesti glamúrinn hvíldi
alltaf yfir Landsbankanum. Hann
var duglegur við að styðja við bakið
á menningu og listum og segir sag-
an að allir þeir sem vildu hafi getað
snapað pening af Björgólfi á meðan
góðærið var í gangi.
Björgólfur fjárfesti að mestu á
Íslandi, öfugt við son sinn, þrátt
fyrir að hafa fengið sér knatt-
spyrnuliðið West Ham í London á
Englandi sem eins konar rós í tein-
ótt hnappagat sitt. Nafn hans var
að mestu tengt við Landsbankann
en hann fjárfesti einnig í Eimskipa-
félaginu og Icelandic Group.
Fjárhagsleg staða Björgólfs eft-
ir efnahagshrunið er vægast sagt
slæm en hann sendi frá sér yfir-
lýsingu í byrjun maí þar sem hann
greindi frá því að hann væri í per-
sónulegri ábyrgð fyrir 58 milljörð-
um króna í Landsbankanum út af
fjárfestingafélaginu Gretti. Í sömu
yfirlýsingu sagði hann að eignir
sínar næmu á bilinu18 til 24 millj-
arða króna. Svo á eftir að taka inn
í aðrar skuldir Björgólfs, meðal
annars um 3 milljarða skuld hans
við Nýja Kaupþing sem hann get-
ur ekki borgað. Líklega er gamli og
vel klæddi greifinn, sem svo marg-
ir dáðu, á barmi gjaldþrots.
Björgólfur hefur að sögn tekið
íslenska efnahagshrunið og skuld-
setningu þjóðarinnar í gegnum Ice-
save afar nærri sér enda hefur ást
manna á honum snúist upp í and-
hverfu sína. En Björgólfur hefur hins
vegar marga fjöruna sopið í gegnum
tíðina, meðal annars þegar hann var
dæmdur í Hafskipsmálinu, og því er
hann ýmsu vanur. Sennilega má þó
fullyrða að Björgólfur muni ekki geta
reist sig við fjárhagslega eftir atburði
liðinna mánaða, líkt og hann gerði
svo eftirminnilega eftir skipbrotið og
ærumissinn í Hafskipsmálinu. Afar
líklegt er að einhver af kröfuhöfum
hans muni á endanum ganga að
honum og reka hann í þrot.
Jón Ásgeir Jóhannesson:
Á fullu í
BretlanDi
Eignir Jóns Ásgeirs og eiginkonu
hans, Ingibjargar Pálmadóttur, voru
metnar á 130 milljarða króna árið
2007. Ári seinna voru þær komn-
ar í 75 milljarða meðal annars þar
sem Baugur hafði tapað 30 millj-
örðum á því að reyna að bjarga FL
Group. Jón Ásgeir var í 32. sæti á
lista breska dagblaðsins The Telegr-
aph yfir valdamesta fólkið í mat-
væla- og smásölugeiranum þar í
landi árið 2008. Fréttir hafa borist af
því að undanförnu að Jón Ásgeir og
Gunnar Sigurðsson séu enn á fullu í
Bretlandi í fyrirtækjarekstri.
Í mars sagði breska blaðið Ind-
ependent frá því að Jón Ásgeir og
Gunnar hafi stofnað félagið Carpe
Diem í Bretlandi. Nú nýverið var
áætlað að hægt væri að fá 25 millj-
arða króna fyrir eignir Baugs í Bret-
landi. Var þá sagt frá því að Baugur
skuldaði íslenskum bönkum 180
milljarða króna.
Jón Ásgeir útskrifaðist úr Verzl-
unarskólanum árið 1989 og stofn-
aði sama ár lágvöruverðsverslunina
Bónus með Jóhannesi föður sínum.
Rekstur Bónuss gekk vel og fór Jón
Ásgeir snemma í útrásarhugleið-
ingar. Árið 1992 keypti Hagkaup
helmingshlut í Bónus. Árið 1993 var
fyrirtækið Baugur síðan stofnað.
Árið 1994 stofnaði Bónus verslun
í Færeyjum. Árið 1998 sameinuð-
ust Hagkaup og Bónus inn í Baug.
Baugur var skráð í Kauphöllina frá
árinu 1999 og afskráð árið 2003 en
2002 var nafninu breytt í Baugur
Group. Baugur festi kaup á lágvöru-
verðskeðjunni Bill’s Dollar Stores
og Bonus Dollar Stores árið 2001.
Baugur dró sig hins vegar fljótlega
út úr rekstri í Bandaríkjunum. Síð-
ar sagði Jón Ásgeir að Bill´s Dollar
Stores hefði verið versta fjárfesting
sín.
Árið 2001 keypti Baugur 20 pró-
sent í bresku verslunarkeðjunni
Arcadia á 10,5 milljarða íslenskra
króna. Það var gert í gegnum félagið
A Holding S.A. sem skráð var í Lúx-
emborg. Þeir sem áttu A Holding
voru auk Baugs Kaupþing, Gaum-
ur Holding S.A., Íslandsbanki-FBA
og Gilding. Fljótlega keypti Baugur
hina hluthafana út.
Eftir þetta var Hamleys keypt á
7,7 milljarða króna 2003, heilsu-
vörukeðjan Julian Graves og 60 pró-
sent í Oasis sama ár fyrir 20 millj-
arða króna. 2004 var Magasin du
Nord keypt á 4,8 milljarða króna
og Karen Millen. Danska vöru-
húsið Illum var keypt árið 2005 og
30 prósent hlutur í Keops, stærsta
fasteignafélagi Norðurlandanna, á
sex milljarða króna. 2005 var Mos-
aic Fashion líka stofnað og sett á
markað á Íslandi. Árið 2006 yfirtók
Baugur House of Fraser og borg-
aði fyrir það 50 milljarða íslenskra
króna. Árið 2007 keypti Baugur
um átta prósenta hlut í bandarísku
keðjunni Saks á um 15 milljarða ís-
lenskra króna.
Ólafur Ólafsson:
Berst til síðasta
BlóðDropa
Ólafur Ólafsson keypti Samskip
árið 1993. Árið 1999 sameinuð-
ust SÍF og ÍS. Ólafur var þá stjórn-
arfomaður ÍS. Árið 2003 keyptu fé-
lög tengd Ólafi meirihlutann í SÍF
og eitt þeirra var Ker sem Ólafur á .
Árið 2003 stofnaði S-hópurinn Eglu
sem keypti 45,8 prósent hlut ríkisins
í Búnaðarbankanum árið 2003. Fé-
lögin sem stóðu á bak við Eglu voru
Ker og Vátryggingafélag Íslands.
Egla fékk þriggja milljarða lán hjá
Landsbankanum til að fjármagna
kaupin á Búnaðarbankanum. Þýski
bankinn Hauck & Aufhauser átti 50
prósent hlut í Eglu.
Ólafur hefur að mestu verið í út-
rás í gegnum Samskip og Alfesca
auk þess að vera einn stærsti hlut-
hafinn í Kaupþingi í gegnum Eglu
sem átti tíu prósent í bankanum.
Árið 2005 keyptu Samskip hollenska
flutningafyrirtækið Geest North Sea
Line, breska fyrirtækið Seawheel og
frystigeymslur hollenska fyrirtækis-
ins Kloosterboer. Áður höfðu Sam-
skip eignast hollenska félagið Van
Dieren Maritime og 40 prósenta
hlut í Silver Sea í Noregi.
Nafni SÍF var breytt í Alfesca
árið 2006. Alfesca hefur fjárfest í
mörgum fyrirtækjum. Má þar nefna
breska fyrirtækið Lyons Seafood, hið
franska Labeyrie og frönsku rækju-
verksmiðjuna Adrimex. Stuttu fyr-
ir bankahrunið hafði Alfesca náð
samkomulagi við fjárfestingafé-
lag Al Thanis um að kaupa um 13
prósent í Alfesca en úr því varð
ekki. Franska fyrirtækið Lur Berri
hefur gert yfirtökutilboð í Alfesca.
Þeir viðmælendur sem DV ræddi
við töldu að Ólafur myndi ná sér á
strik aftur. Bæði Egla og Kjalar eru
á barmi gjaldþrots en Ólafur á enn-
þá Samskip og hlut í Alfesca. „Hann
berst til síðasta blóðdropa,“ sagði
viðmælandi við DV fyrir stuttu.
Jón Helgi Guðmundsson:
umsvifamikill
í lettlanDi
Jón Helgi Guðmundsson, eigandi
Byko og Norvik-samsteypunn-
ar, hefur verið í útrás allt frá árinu
1993. Umsvif hans hafa að mestu
verið í Lettlandi og Rússlandi.
Hannes Smárason er fyrrverandi
tengdasonur Jóns Helga og fjárfestu
þeir saman í 38 prósenta hlut í Flug-
leiðum árið 2004 í gegnum félagið
Oddaflug. Jón Helgi seldi Hannesi
síðan hlutinn þegar leiðir Hannesar
og dóttur Jóns Helga skildu.
Á tímabili áttu félög í eigu Jóns
Helga stóran hlut í Kaupþingi. Sá
hlutur var seldur fyrir bankahrunið.
Árið 2007 mat blaðið Sirkus eign-
ir Jóns Helga á 45 milljarða króna.
Talið er að hann standi einna best
fjárhagslega af íslenskum milljarða-
mæringum sem nú fer ört fækk-
andi.
Straumborg, sem er félag í eigu
Jóns Helga, keypti 51 prósents hlut
í lettneska bankanum Lateko árið
2006. Sama ár keypti hann líka rúss-
neska bankann Fineko. Árið 2007
var nöfnum bankanna breytt í Nor-
vik bank.
2003 keypti Norvik lettneska
timburframleiðandann Sia Ced.
2004 keypti Norvik bresku timb-
urvinnsluna Wayland. 2005 keypti
Norvik breska fyrirtækið Conti-
nental Wood Products. Árið 2006
keypti Norvik stærstu sögunarmyllu
Lettlands sem heitir VIKA Wood.
Árið 2007 keypti Norvik sænska fyr-
irtækið Jarl Timber sem rekur sög-
unarmyllu.
Jón Helgi á tólf prósent í Sag-
ex sem var annað af tveimur fyr-
irtækjum sem sóttu um sérleyfi til
rannsóknar og vinnslu kolvetn-
is á Drekasvæðinu. Hlutinn í Sag-
ex á Jón í gegnum félagið Lindir
Resources. Straumborg á 8,6 pró-
sent í Eyri Invest.