Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2009, Page 18
18 föstudagur 10. júlí 2009 fréttir
Vísindamenn við stofnfrumurann-
sóknarstofuna Northeast England
Stem Cell Institute fullyrða að þeir
hafi náð merkum áfanga með því
að nota stofnfrumur úr fósturvís-
um. Að sögn vísindamannanna
hefur þeim tekist að framleiða
sæðisfrumu á rannsóknarstofu og
með smávægilegum breytingum
væri fræðilega hægt að frjóvga með
henni egg þannig að úr yrði barn.
Innan tíu ára, segja vísinda-
mennirnir, verður hægt að nota
tæknina til að hjálpa ófrjóum pör-
um að eignast barn sem væri erfða-
fræðilega þeirra eigið, og jafnvel
yrði mögulegt að rækta sæðisfrum-
ur úr stofnfrumum kvenna sem
myndi að lokum leiða til þess að
konur gætu eignast barn án nokk-
urrar þátttöku karlmanns.
Mikilvægt en umdeilt
Þetta mun vera í fyrsta skipti sem
sæðisfruma manna er framleidd á
rannsóknarstofu og því viðbúið að
tilraunin verði umdeild. Vísinda-
samfélagið er klofið hvað varð-
ar ágæti tilraunarinnar því sumir
bera brigður á siðfræðina að baki
henni, aðrir viðra efasemdir um
réttmæti tilraunarinnar en eru þó
sammála um „mikið mikilvægi“
hennar.
Heilinn að baki tilrauninni er
Karim Nayernia, prófessor við há-
skólana í Newcastle og Durham.
Að hans sögn er sæðisfruman sem
framleidd var ekki fullkomin en
byggist eigi að síður á þeim eigin-
leikum sem nauðsynlegir séu til að
skapa líf: „Þetta er undravert og afar
spennandi. Þær hafa höfuð, þær
hafa hala og þær hreyfa sig. Lögun-
in er ekki alveg eðlileg né hreyfing
þeirra, en þær innihalda þau prótín
sem þarf til að virkja eggin.“
Notkun bönnuð með lögum
Að sögn Nayernia prófessors er
rannsóknin á frumstigi og frekari
rannsókna sé þörf til að ákvarða
hvort notkun þessara sæðisfrumna
við frjóvgunarmeðferðir væri örugg,
en þess ber að geta að samkvæmt
breskum frjóvgunar- og fósturvísis-
lögum frá 2008 er bannað að nota
gervisæði og –egg í frjóvgunarmeð-
ferðum þar í landi.
Það er leyfilegt að framleiða
sæðisfrumur á rannsóknarstofum
en að sameina sæðisfrumuna eggi
þarfnast sérstaks leyfis og að því
fengnu verður að eyðileggja fóstur-
vísinn innan fjórtán daga.
Siðfræðilegar spurningar að
þessu lútandi hafa ekki verið til
lykta leiddar.
Ekki vísindamanna að ákveða
Í viðtali við breska blaðið Telegraph
sagði Nayernia að öll tækni væri
þess eðlis að hægt væri að nota
hana til góðs eða ills. „Þetta varðar
alla nýja tækni. Kjarnorku er hægt
að nýta til að framleiða rafmagn eða
sprengju, til dæmis,“ sagði Nayern-
ia. Hann sagði einnig að það væri
ekki í verkahring vísindamanna
að ákveða hvernig þessi tækni yrði
notuð, það væri hlutverk löggjafar-
valdsins.
„Það er á okkar [vísindamann-
anna] ábyrgð að útvega meðferðar-
úrræði fyrir ófrjótt fólk. Glasabörn-
in eru ekki ný af nálinni, en þau
voru umdeild á sínum tíma,“ sagði
Karim Nayernia prófessor.
Verðum að hætta að fikta
Sem fyrr segir er tilraunin afar um-
deild og að sögn Josephine Quint-
avalle, forstjóra Comment on Re-
productive Ethics sem fjallar um
siðfræði með tilliti til málefna sem
varða æxlun, er tilraunin „fullkom-
lega óréttmæt“.
„Brjálaðra verður mannkynið
ekki. Ég tel að á stundum verðum
við að hætta þessu fikti og með-
taka ófrjósemi. Vísindi verða að
vera fullkomlega siðferðilega rétt
og fullkomlega örugg – þetta er
hvorugt,“ sagði Josephine Quinta-
valle.
Karlmenn að verða úreltir?
Emily Cook, hjá breska blaðinu
Daily Mirror, virðist ekki velkjast
í vafa um afleiðingar afreks Ka-
rims Nayernia og stallbræðra
hans.
Upphafsorð greinar hennar um
málið eru: „Konur hafa ávallt vitað
að karlmenn eru smá eyðsla á rými.
Nú hafa breskir vísindamenn sann-
að hve ónauðsynlegir karlmenn
eru í raun með því að framleiða
mennskt sæði úr stofnfrumum.“
Cook bætir síðan við að til að
bæta gráu ofan á svart standi karl-
menn að baki þessari „byltingar-
kenndu“ þróun.
Einn sá möguleika sem Karim
Nayernia sér fyrir sér til framtíðar
litið er að tæknin verði nýtt til að
hjálpa fólki sem hefur orðið ófrjótt
til dæmis vegna geislameðferðar að
eignast eigið barn.
„Þótt við getum skilið að einhverj-
ir verði áhyggjufullir, þetta þýðir ekki
að hægt sé að framleiða manneskjur
á fati og það er engan veginn ætlun
okkar. Verkefnið er þáttur í að rann-
saka hví sumt fólk er ófrjótt og hvað
valdi því,“ sagði Karim.
Dómsdagur karlkyns
Slúðurblaðið The Sun fetar kunn-
uglega slóð í sinni umfjöllun og
þar segir í fyrirsögn, lauslega þýtt:
„Rannsóknarstofa ræktar sæði og
markar skapadægur karla.“
Vissulega býður vísindaafrek
Karims Nayernia upp á vangavelt-
ur af þessu tagi og hver veit nema
dómsdagsspá The Sun og vanga-
veltur Emily Cook, hjá Daily Mir-
ror verði að raunveruleika innan
einhverra áratuga.
John Harris, prófessor í sið-
fræði við Manchester-háskóla,
tjáir sig um málið á vefsíðu Ind-
ependent. Að hans sögn er veröld
án karlmanna ekki hin raunveru-
lega siðfræðilega spurning í þessu
máli.
„Endalok karlmanna hafa
ávallt verið möguleiki. Konur
hafa fjölda leiða til að komast af
án karlmanna. Þær þarfnast ekki
karlmanna – þær þarfnast einung-
is sæðis þeirra,“ segir John Harris.
Ekki láta fordóma
eða ótta ráða för
Að mati Harris hefur frjóvgunar-
tækni það fram yfir eðlilegt ferli
að hægt er að tryggja betri og
fullkomnari árangur og fækka til-
fellum þar sem vansköpun á sér
stað. Hægt er að kanna sæðis-
frumuna, eggið, og fósturvísinn
áður en honum er komið fyrir
sem ekki væri kostur ella.
Að sögn Johns Harris snúa
siðfræðilegar spurningar að því
hvort eigi að hafna jákvæðum
möguleikum uppgötvana vegna
ótta eða fordóma, en hann var-
ar eindregið við því. „Við verð-
um að tryggja að vísindin þróist
og að við verðum móttækileg en
gagnrýnin gagnvart þeim tæki-
færum sem af þeim leiða,“ sagði
John Harris.
KolbEiNN þorstEiNssoN
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
Breskir vísindamenn fullyrða að þeim hafi tekist að rækta sæðisfrumu manna á rannsóknarstofu og mun
það vera einsdæmi í heiminum. Skiptar skoðanir eru á meðal vísindamanna um tilraunina með tilliti til
siðfræðilegra álitamála og réttmætis hennar.
SæðiSfruma ræktuð
á rannSóknarStofu
„Brjálaðra verður
mannkynið ekki. Ég tel
að á stundum verðum
við að hætta þessu fikti
og meðtaka ófrjósemi.
Vísindi verða að vera
fullkomlega siðferði-
lega rétt og fullkom-
lega örugg – þetta er
hvorugt,“ sagði Joseph-
ine Quintavalle.
sæðisfruma Karims „Þær hafa
höfuð, þær hafa hala og þær hreyfa
sig,“ segir Karim. MyND NEwcastlE UNiVErsity
Karim Nayernia
prófessor Segist hafa
ræktað sæðisfrumu á
rannsóknarstofu.
MyND NEwcastlE UNiVErsity