Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2009, Blaðsíða 29
„Það verður allsherjar rockabilly-
dansleikur á Q-Bar á laugardaginn,“
segir Rósa Birgitta Ísfeld, söngkona
hljómsveitarinnar Sometime og
einn af skipuleggjendum kvöldsins.
„Þetta verður fáránlega hressandi
og skemmtilegt kvöld. Það er nauð-
synlegt að breyta aðeins til. Það er
þreytt að hlusta alltaf á sömu tón-
listina og upplifa sömu stemning-
una á öllum stöðum.“
Rósa hvetur fólk til þess að
klæða sig upp til þess að komast
enn betur í gírinn en rockabilly-
tímabilið var á sjötta áratugn-
um og klæðnaður ekki ósvipaður
því sem sást í hinni frægu mynd
Grease. „Fólk hefur alltaf gaman
af svona þemakvöldum eins og
80´s og 90´s. Þetta er ekki ósvip-
að því.“
Það er hljómsveitin Langi Seli
og Skuggarnir sem leikur fyrir dansi
en hún stígur á svið klukkan 22.00.
Sveitin vaknaði til lífs á ný fyr-
ir skömmu og var að senda frá sér
plötuna Drullukalt. „Curver tekur
svo við af þeim og spilar rockabilly-
lög, Surf og annað frá þessum tíma
fram eftir nóttu.“
Rósa segir rockabilly-kvöldin
vera gríðarlega vinsæl í London um
þessar mundir og að þar megi finna
eitt slíkt í hverri viku. „Það er aldrei
að vita nema þau nái svipuðum vin-
sældum hér heima.“ Miðaverð er
1.000 krónur.
asgeir@dv.is
Langi Seli og Skuggarnir á Q-Bar á laugardaginn ásamt Curver:
Rockabilly-dansleikur
m
æ
li
r
m
eð
...
Hvíta bókin
„Einar Már hittir oft naglann á
höfuðið með
greiningu
sinni í
bókinni,“ segir
gagnrýnandi.
bomberman
blast
Bomberman
Blast er fínasta
skemmtun og allt
þetta Wii-shop-
dæmi er snilld.
GHostbusters
Kemur
skemmtilega
á óvart og
grafíkin er
það sem gerir
leikinn góðan.
transformers
„Of mikið
af öllu,“
segir
gagnrýn-
andi.
lesbian vampire killers
Fínasta mynd en
engin tímamót.
Unnendur Gavin
og Stacey-þáttanna
gætu þó verið
hrifnari en aðrir.
terminator salvation
„Christian Bale
er fínn í hlutverki
Johns Connor
en myndin ekki
jafngóð,“ segir
gagnrýnandi.
m
æ
li
r
eK
Ki
m
eð
...
föstudagur
n eistnaflug af stað
Tónlistarhátíðin Eistnaflug fer af stað
um helgina í Neskaupstað en hún
hefst á föstudaginn. Meðal þeirra
helstu sem koma fram eru HAM,
Sólstafir, Brain Police og Mammút.
Nóg verður að gera alla helgina og
því um að gera að skella sér austur
á land.
n bloodgroup á sódómu
Tuborg í nánu samstarfi við Sódómu
Reykjavík kynnir viðburð fyrir þá
sem vilja ekki út á land. Á Sódómu á
föstudagskvöldið stíga Bloodgroup,
Sykur og Fiction á svíð. Frítt er inn
fyrir fyrstu 100 sem mæta og fá þeir
frían Tuborg. Húsið er opnað kl.
22.00 og þessu má enginn missa af.
n silfur á Hressó
Það er ekki oft sem hljómsveitin
Silfur spilar í höfuðborginni en
sú verður raunin á föstudaginn.
Silfur mun spila á Hressó og því
um að gera fyrir þá sem vilja kíkja á
hljómsveitina að mæta. Silfur mætir
á sviðið klukkan 22.00 og spilar til
eitt eftir miðnætti.
n skímó á spot
Hin goðsagnakennda hljómsveit
Skítamórall mun taka allt með trukki
og dýfu eins og henni einni er lagið á
föstudaginn. Skímó mætir þá á Spot
í Kópavogi og spilar allt sitt besta.
Það vantar aldrei stemningu þegar
Skítamórall mætir á sviðið og það
verður engin vöntun þar á núna.
laugardagur
n Jackson-veisla á nasa
Nasa í samstarfi við Pál Óskar hefur
ákveðið að blása til heljarinnar veislu
til þess að heiðra minningu Michaels
Jackson. Á laugardagskvöldið koma
fram Jagúar, Alan og Seth ásamt
Yesmine og dönsurum. Allir sem
starfa við kvöldið gefa sína vinnu
og ágóðinn rennur til Barnaspítala
Hringsins.
n egó og papar
Stórhljómsveitirnar Egó og Paparnir
halda áfram að leiða saman hesta
sína eins og fyrr í sumar. Þær spila
saman á Sjallanum á Akureyri
á laugardagskvöldið og hefjast
tónleikarnir klukkan eina mínútu í
miðnætti. Stundvíslega.
n upphitun á 800
Það verður sannkölluð upphitun
fyrir Þjóðhátíð á 800 bar á Selfossi
á laugardaginn. Hreimur og Árni
trúbadorar sjá um stuðið fram á nótt
en húsið er opnað klukkan 23.00 og
frítt er inn til miðnættis.
n ‘80 á spot
Á laugardaginn verður slegið upp
eitís-balli á Spot í Bæjarlindinni.
Hljómsveitin Spútnik tryllir lýðinn
ásamt Telmu sem söng fyrir Íslands
hönd í Eurovision í Svíþjóð ásamt
Einari Ágústi úr Skítamóral. Það er
alltaf stuð í kringum ‘80 og á Spot
verður engin undantekning.
Hvað er að
GERAST?
fóKus 10. júlí 2009 föstudagur 29
langi seli og skuggarnir Stíga á svið klukkan 22.00 og miðaverð er 1.000
krónur.
ur aldrei aftur snúið. „Hann hefur svo
sannarlega haft áhrif á þróun mína
sem söngvari og ég er þakklátur fyrir
þann ómetanlega vinskap sem við eig-
um í dag.“
óhræddur við gagnrýni
Gagnrýnendur hafa ekki alltaf far-
ið mjúkum höndum um Geir en þeir
raska ekki ró hans frekar en aðrir. „Fyrir
mér eru gagnrýnendur menn sem hafa
sína skoðun. Mér ber að virða skoðun
hvers og eins og kvíði ekki gagnrýni.
Hún er að mínu mati góð og ég tek
þeirri gagnrýni sem ég fæ og einbeiti
mér þá fyrst og fremst að því að skoða
hvað í henni á við rök að styðjast og
bæti mig ef ég get. Maður sér líka fljótt
hvort gagnrýnin er persónubundin
eða hvort viðkomandi er að leggja sig
fram sem gagnrýnanda. Ég verð því
aldrei gramur og verð bara að treysta
því að þeir sem sinna gagnrýni hjá fjöl-
miðlum séu starfi sínu vaxnir.
Ég get alveg gengið hreint til verks
vegna þess að ég syng með hjartanu
og hef unun af því sem ég er að gera
og stend mig alltaf hundrað prósent.
Þegar maður kemur fram sem söngv-
ari er númer eitt, tvö og þrjú að vera
auðmjúkur. Þetta er grundvallaratriði
í öllum verkefnum sem maður tekur
að sér. Maður á að vera heiðarlegur og
koma fram við náungann eins og þú
vilt að hann komi fram við þig. Kannski
hefur það komið mér lengst.“
einn í lífsins ólgusjó
Nýlega slitnaði upp úr áralöngu sam-
bandi Geirs og Ásdísar Sigurðardóttur
eins og glöggir lesendur Séð og Heyrt
hafa orðið varir við. „Það er allt satt
og rétt sem stendur í Séð og Heyrt og
í dag er þetta hlutur sem er í ákveðinni
meðferð. Ég þarf, eins og aðrir, að huga
að einkalífi mínu og geri það eins vel
og ég tel henta mér og fólkinu mínu í
kringum mig. Við erum miklir vinir
og það er ekkert klárt í þessu og óvíst
hvað framtíðin ber í skauti sér. Auð-
vitað myndast tómarúm í lífi manns
þegar maður finnur að maður er ekki
lengur í öruggu skjóli einhvers sem
manni þykir vænt um. Þar af leiðandi
koma upp alls konar tilfinningar sem
eru ekki þægilegar en maður verð-
ur að gefa þeim gaum, skoða þær og
vinna úr þeim. Þegar fólk er að vinna
í þessum málum er mikilvægt að vera
vinir, vera ekki gramur og líta í eigin
barm. Í samböndum þarf alltaf tvo til
og í þessu tilfelli er ég að skoða hlutina
út frá sjálfum mér. Skoða hvað ég hef
gert rangt í þessu sambandi og vega og
meta hvernig ég vinn úr því. Það er allt-
af erfitt að standa í svona málum, sér-
staklega þegar ástandið í þjóðfélaginu
er bæði skrýtið og erfitt. Þá er sérstak-
lega óþægilegt við þetta að eiga,“ segir
Geir og vill vekja athygli á að fólk sem
stendur í skilnaði geti leitað til sam-
taka og annars fólks sem er tilbúið að
hjálpa og leiða það inn á réttar brautir.
Þótt söngvarinn sé laus og liðugur
segir hann ekkert fjær huga sér en að
leita ástarinnar á nýjum miðum. „Ég er
bara að hugsa um líf mitt í dag og hvað
ég geti gert betur. Ég reyni að rækta
sjálfan mig enda er það forsenda þess
að maður geti ræktað fólkið í kringum
sig. Ég er nú blessunarlega laus við
áfengi og á góða vini að sem hafa stutt
mig með ráðum og dáð. Ég á líka góða
fjölskyldu og svo fylli ég tómarúmið að
sjálfsögðu með söng.“
tekur öllum opnum örmum
Geir Ólafsson er því hvergi nærri af
baki dottinn. Hann sér gleðina í öllu
og heldur ótrauður áfram og sér því
fulla ástæðu til þess að blása til veislu
á föstudagskvöld. „Ég ætla að slá upp
útgáfupartíi á Vínbarnum á föstudag-
inn klukkan 18. Hljómsveit verður á
staðnum og ég mun taka eitt eða tvö
lög. Annars er bara aðalatriðið að vera
á staðnum og taka vel á móti fólki sem
er til í gott teiti. Það er öllum boðið,“
segir Geir og leggur áherslu á að hann
vonist til þess að sjá sem flesta.
Hann segist svo ætla að fylgja nýju
plötunni eftir á næstu mánuðum og
vonast til þess að geta haldið röð tón-
leika. „Ég starfa einungis með Íslend-
ingum þegar ég er á Íslandi. Við eigum
hljóðfæraleikara á heimsmælikvarða
og það er engum blöðum um það að
fletta að Stórsveit Reykjavíkur hefur
stimplað sig inn, að mínu mati, sem
eitt besta bigband í Evrópu. Mér er það
mikil ánægja að hafa fengið tækifæri til
að vinna með þeim og vonandi get ég
gert það áfram um komandi framtíð.
En eins og ástandið er í þjóðfélaginu
í dag verður maður að taka einn dag í
einu. Allt er þetta háð sölu og útkom-
an þar ræður því hvort maður geti sett
upp tónleika með slíkum fjölda hljóð-
færaleikara.“
toti@dv.is
Syngur af hamingju í ástarsorg