Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2009, Side 44
Brytinn sem myrti Archbald Hall var breskur raðmorðingi
og þjófur. Hall fæddist í Glasgow árið 1924 og lést á Englandi 2002. Hann
framdi sína glæpi á meðan hann var í þjónustu bresks aðalsfólks og fékk
viðurnefnin Drápsbrytinn eða Skepnubrytinn.
Hann hóf feril sinn sem þjófur en stækkaði síðar verksvið sitt og bætti
morðum á ferilskrána.
Lesið um brytann sem myrti í næsta helgarblaði DV.
Á sjöunda áratug síðustu aldar herjaði morðingi á kvenkyns gesti vinsæls dansstaðar í Glasgow. Eftir að
hafa myrt þrjár konur gufaði morðinginn upp. Síðan þá er lögreglan engu nær um hver morðinginn var.
Hann kallaði sig John en fékk viðurnefnið Biblíu-John.
Hann var hávaxinn, vel klæddur
og maður fárra orða. En það sem
hann sagði varð grundvöllurinn að
einu mest ógnvekjandi viðurnefni í
skoskri glæpasögu. Fjörutíu árum
eftir að hann olli ógn og skelfingu
á götum Glasgow fær fólk kulda-
hroll ef minnst er á Biblíu-John. Á
sjöunda áratugnum birtist teikn-
ing af honum í öllum dagblöðum
og hann olli ótta sem jaðraði við
móðursýki.
„Ég drekk ekki á Hogmanay
(eins og Skotar kalla síðasta dag
ársins), ég biðst fyrir (e. I pray/
prey),“ heyrðist hann segja við sitt
þriðja fórnarlamb, Helenu Putt-
ock. „Pray“ er að biðja, en „prey“ er
að leita bráðar. Ekki er laust við að
orðin skírskoti til hryllingsmyndar.
Biblíu-John átti til að vitna í Móse
sem vitnaði um strangt trúarlegt
uppeldi auk þess sem hann vitn-
aði oft í orð föður síns sem sagði að
dansstaðir væru „spillingarhreið-
ur“ og fjölmiðlar gáfu honum við-
urnefnið Biblíu-John.
Bara John
Hann kallaði sig John, svo mikið er
vitað um hann. Þess utan var ekk-
ert vitað um hann og enn þann dag í
dag er hann sveipaður leyndarhjúpi.
Lögreglan í Glasgow, andspænis al-
mennum ótta borgarbúa, setti í gang
allsherjarleit, en var engu nær þrátt
fyrir að þrjár konur lægju í valnum,
enda var engu líkara en Biblíu-John
hyrfi þá af yfirborði jarðar.
Ýmsar kenningar voru viðrað-
ar, þeirra á meðal að hann hefðu
mun fleiri mannslíf á samviskunni
og hefði einungis breytt um morð-
aðferð, eða að hann hefði flutt sig
um set. Sannleikurinn er sá að eng-
inn veit um afdrif hans og hann gæti
þess vegna búið hvar sem er í Bret-
landi, nú á sextugsaldri.
Kyrkt með sokkabuxum
Vettvangur ódæða Biblíu-Johns var í
grennd við Barrowland-danssalinn í
Glasgow, sem var gríðarlega vinsæll
á sjöunda áratugnum. Að kvöldi 22.
febrúar, 1968 fór Patricia Docker út
á lífið.
Patricia lifði góðu lífi, en eigin-
maður hennar var í breska flughern-
um og staðsettur í Lundúnum. Því
var það svo að Patricia og sonur
þeirra bjuggu hjá foreldrum hennar
og fékk hún þá til að gæta drengsins
á meðan hún fór út að skemmta sér.
Patricia hafði farið á annan
dansstað, Majestic, en vinir hennar
mundu að hún hafði yfirgefið Barr-
owland í fylgd karlmanns.
Daginn eftir fannst nakið lík
hennar á stíg nærri heimili henn-
ar. Hún hafði verið kyrkt með eigin
sokkabuxum.
Dansaði við hávaxinn mann
Átján mánuðum síðar, í ágúst 1969,
hafði lögreglu ekki tekist að varpa
nokkru ljósi á morðið á Patriciu
Docker og verulega hafði fennt yfir
það. En Biblíu-John var ekki hættur
að messa.
Jemima McDonald, 32 ára, bar
engan ugg í brjósti þegar hún skildi
börn sín þrjú eftir í umsjá systur
sinnar og skellti sér með vinum á
Barrowland.
Seinna minntust vinir hennar
þess að hún hafði mestallt kvöld-
ið dansað við hávaxinn, vel klædd-
an karlmann, með ljóst hár í bláum
fötum. Skömmu síðar yfirgáfu þau
dansstaðinn saman.
Daginn eftir fannst Jemima dáin
í yfirgefinni byggingu skammt frá
heimili hennar og, líkt og Patric-
ia, hafði hún verið kyrkt með eigin
sokkabuxum. En fleira var líkt með
morðunum því hvorug kvennanna
hafði verið beitt kynferðislegu ofbeldi
og báðar voru á blæðingum þegar
þær mættu örlögum sínum. Veski
þeirra var hvergi að finna og báðar
höfðu fundist nærri heimili sínu.
Taugaveiklun breytist
í móðursýki
Það sem hófst sem taugaveiklun á
meðal íbúa Glasgow breyttist tveim-
ur mánuðum síðar í móðursýki
þegar lík hinnar tuttugu og níu ára
Helenu Puttock fannst við svipað-
ar kringumstæður og lík Jemimu og
Patriciu.
Helena hafði verið á Barrowland,
hafði sést yfirgefa staðinn í fylgd
manns sem líktist þeim sem hafði
síðast sést með Jemimu og Patriciu
og hafði verið kyrkt með sama hætti
og þær. Veski hennar var horfið og
hún hafði einnig verið á blæðing-
um.
En í hennar tilfelli hafði morð-
inginn einnig skilið eftir bitfar á lík-
ama hennar og sæði fannst á fatnaði
hennar; vísbending sem lögreglan
hafði lengi vonast eftir.
Jean, systir Helenu, hafði verið
samferða henni og John í leigubíl
en áður en hún yfirgaf bílinn heyrði
hún John segja: „Ég drekk ekki á
Hogmanay, ég biðst fyrir.“
„Ég er ekki Biblíu-John“
Viðskipti á Barrowland minnkuðu
snarlega og margir þeirra sem
komu þar til að dansa voru lögg-
ur í dulargervi. Fjöldi karlmanna
sem líktust Biblíu-John en voru
saklausir fengu bréfmiða frá lög-
reglunni sem á stóð „Ég er ekki
Biblíu-John“. Hundruð voru yf-
irheyrð en eftir morðið á Helenu
Puttock gerðist ekkert. Engu lík-
ara var en morðinginn hyrfi af yf-
irborði jarðar.
Árið 1996 var lík John McInnes,
húsgagnasölumanns frá Suður-
Lanarkskíri, grafið upp af lögreglu
í von um að hægt væri að tengja
hann morðinu á Helenu Puttock.
Það gekk ekki eftir og hann var
grafinn á ný.
Peter Tobin
Í maí 2007 var Peter Tobin sakfelld-
ur fyrir morðið á Angeliku Kluk og
vangaveltur vöknuðu um hvort þar
væri kominn Biblíu-John. Ákveðin
líkindi voru á útliti Tobins og lög-
regluteikningarinnar af Biblíu-John,
og Tobin hafði flutt frá Glasgow árið
1969, á sama tíma og morðin hættu.
Lögreglan hefur ekki viljað gefa
yfirlýsingar þar að lútandi en sagði
að farið yrði yfir öll fyrirliggjandi
sönnunargögn á ný.
UmSjón: koLbEinn þorStEinSSon, kolbeinn@dv.is
Jean, systir Helenu,
hafði verið samferða
henni og John í leigu-
bíl en áður en hún
yfirgaf bílinn heyrði
hún John segja: „Ég
drekk ekki á Hog-
manay, ég biðst fyrir.“
KOMDU Í ÁSKRIFT
:: hringdu í síma 515 5555 eða
:: sendu tölvupóst á askrift@birtingur.is eða
:: farðu inn á www.birtingur.is og komdu í áskrift
44 föstudagur 10. júlí 2009 sakamál
Biblíu-John
Biblíu-John teikning af manninum
sem vitnaði í biblíuna.
Fórnarlömbin Frá vinstri: Patricia, jemima og Helena.