Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2009, Qupperneq 48
48 föstudagur 10. júlí 2009 helgarblað
Talið er að 67 þúsund manns hafi heimsótt Hróars-
kelduhátíðina í ár. Þá eru ekki talin með þau mörg
þúsund manns sem keyptu sér dagspassa. Hitinn
var nánast óbærilegur og gerðu hátíðargestir hvað
sem er til að reyna að kæla sig niður.
Í ár voru fleiri hundruð þjófnaðir tilkynntir til
lögreglu og hafa þeir sjaldan eða aldrei verið fleiri.
Mikið var um að farið væri inn í tjöld hátíðargesta
og greipar látnar sópa á meðan fólk dillaði sér við
taktfasta tónlist og spjallaði við mann og annan.
Mikið var um hassneyslu á hátíðinni eins og svo
oft áður en sem betur fer mjög lítið af hörðum fíkni-
efnum.
Kynlíf með gosflösku
Skandallinn sem vakti hvað mesta athygli á Hróars-
keldu í ár var þegar fimm erótískum dönsurum var
vísað af svæðinu.
Á miðvikudagskvöldið skipulögðu dansararn-
ir djarfa danskeppni og var hugmyndin á bak við
hana að lokka gesti í eggjandi dansspor á meðan
þeir voru teknir upp á myndband af klámmynda-
framleiðandanum Zenana Entertainment. Skipu-
leggjendur hátíðarinnar voru ekki par ánægðir með
þetta framtak. Gamanið kárnaði allsvakalega þeg-
ar skipuleggjendur fengu fréttir þess efnis að einn
af dönsurunum hefði stungið gosflösku upp í sköp
sín og líkt eftir kynmökum. Þá var þeim nóg boðið
og dansararnir fengu reisupassann og voru send-
ir beinustu leið heim. Dansararnir neituðu því að
hafa notað gosflöskur í kynferðislegum tilgangi og
að sögn talsmanns þeirra var myndbandið sem tek-
ið var upp ætlað sem auglýsing fyrir dansarana.
Nakinn á barnum
Nakta hlaupið svokallaða var að sjálfsögðu hlaupið
eins og á hverju ári. Að þessu sinni var það mað-
urinn með kunnuglega nafnið, hinn 23 ára Hans
Christian Andersen frá Hellerup, sem bar sigur úr
býtum í karlaflokki. Kom þetta öllum í opna skjöldu
þar sem Hans Christian var vel við skál þegar hlaup-
ið hófst.
Hann vann miða á hátíðina á næsta ári og var
gífurlega hissa þar sem hann bjóst bara við að fá
vínflösku að launum. Erfitt var að fá Hans Christian
til að klæða sig eftir hlaupið. Þegar það tókst loks-
ins sagðist hann frekar vilja vera nakinn fyrir fram-
an þúsund manns en tvo, reif sig aftur úr fötunum
og fór beint á barinn.
Trú, von og Coldplay
Ekki var hægt að kvarta yfir tónlistinni þetta árið
þó dagskráin hafi oft verið betri. Hjaltalín hélt
heiðri Íslendinga á lofti með frábærum tónleikum á
fimmtudaginn og heillaði jafnt Íslendinga sem út-
lendinga.
Laugardagskvöldið var pakkað af frábærum tón-
listarmönnum eins og Oasis, Nick Cave and The
Bad Seeds og Kanye West og urðu hátíðargestir svo
sannarlega ekki fyrir vonbrigðum.
Coldplay lokaði hátíðinni á sunnudagskvöldið
og fékk einróma lof gagnrýnenda í dönskum blöð-
um. Einn gagnrýnandinn fann ekki einn galla á
frammistöðu bresku sveitarinnar og skrifaði dóm
undir fyrirsögninni: Trú, von og Coldplay.
Nú er bara að bíða og sjá hvernig hátíðin verður
að ári. Sjáumst þá! Lilja Katrín Gunnarsdóttir
strIPParar
seNdIr heIM
Lilja Katrín skrifar frá Hróarskeldu:
Hitnar í kolunum
Þungarokkssveitin
Slipknot náði upp
frábærri stemningu
á laugardagskvöld-
ið og sló á létta
strengi á milli laga.
Komu, sáu og sigruðu Talsvert af Skandinövum var á tónleikum Hjaltalín og voru
þeir gjörsamlega heillaðir af sveitinni.
Typpi Þessi ungi piltur drapst fyrir framan aðalsviðið og fékk verðskuldaða athygli.
Norsk pía ákvað að skrifa orðið „kuk“ á handlegg hans en það þýðir typpi.
Lokakossinn Þetta fallega fólk lét vel hvort að öðru á sunnudaginn og ákvað að
nýta tímann í kelerí áður en hátíðinni lauk.
Ógurlegar ofurhetjur Margir gestir Hróarskeldu leggja mikið upp úr því að vera í
skrautlegum búningum.
Allt fyrir miðann Verðlaunin í nakta hlaupinu eru miði
á Hróarskelduhátíðina á næsta ári og því hikar fólk ekki
við að fækka fötum og hlaupa eins og fætur toga.