Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2009, Blaðsíða 45

Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2009, Blaðsíða 45
Smáauglýsingar fókus 30. september 2009 miðvikudagur 45 Kennsla ÖKuKennsla » Húsnæði Húsnæði í boði Gisting í boði Bjóðum upp á gistingu á besta stað í bænum og 2ja og 3ja herbergja íbúðir, fullbúnar húsgögnum og uppábúnum rúmum. Internet-tenging er til staðar. S. 694 4314. www.gista.is » á m i ðv i k u d e g i hvað heitir lagið? „Má ég aka um með þér í BMW-inum þínum? Þú mátt sigla með mér í gula kafbátnum mínum.“ svar: supersonic með oasis ljóðorkuþörf sigurðar Páls Jólabókaflóðið í ár er byrjað að bæra á sér. Síðustu daga hafa nokkrar bæk- ur seytlað úr ranni bókaforlaganna og er ný ljóðabók eftir Sigurð Pálsson þar á meðal. Bókin nefnist Ljóðorku- þörf og er hans fjórtánda ljóðabók. Eitt af helstu umhugsunarefnum bókarinnar er tengsl einstaklings og samfélags. Nauðsyn þess að hver ein- stakur sé í heilbrigðu sambandi við sjálfan sig. Einkum þegar samfélagið hrynur. Sigurður er í fremstu röð sem ljóðskáld, prósahöfundur og leik- skáld en hann hlaut meðal annars Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir Minnisbók árið 2007 og Grímuverð- launin sem leikskáld ársins fyrir Utan gátta árið 2009. Forlagið gefur út. ljóðveldið Ísland Bókaútgáfan Svarta forlag gaf ný- lega út nýjustu bók Sindra Freys- sonar, Ljóðveldið Ísland, þar sem höfundurinn kryfur sögu íslenska lýðveldisins frá upphafi til okkar tíma, það er 1944 til 2009. Sindri yrkir sögu lýðveldisins ár frá ári og sækir sér inn- blástur í kviku atburða hvers tíma þangað til komið er að kveikju bókarinn- ar, hruninu, aðdraganda þess og eftirleik. Sindri hlaut Bók- menntaverðlaun Halldórs Laxness árið 1998 fyrir skáldsöguna Augun í bænum og var tilnefndur til Ís- lensku bókmenntaverðlaunanna árið 2000 fyrir ljóðabókina Harði kjarninn (njósnir um eigið líf). Heimildamyndin spannar þrjátíu ára uppgang ægivalds Silvios Berlusc- oni á hinu forna menningarríki Ít- alíu. Sænski Ítalinn Eric Gandini sýnir hvernig algjör lágkúra er sjálf- ur kjarninn í valdapýramída Berlusc- onis. Hvernig hann tengir raun- veruleikasnauðan afþreyingariðnað gervibrosa og rassaskora við ímynd- ina af Ítalíu undir sinni stjórn. Ráð- herra jafnréttismála í ríkisstjórn Berlusconi er „Veline“ eða skutla úr einum af þáttunum af sjónvarps- stöðvunum hans sem dillar sér við hlið gráhærðs þáttastjórnanda. Sjón- varpsstöðvarnar eru nær allar í eigu Silvios sem höndlar opinbera gagn- rýni á þann hátt að „það sem er ekki í sjónvarpi er ekki til“. Ekki að hin fjöl- mörgu hneyksli hafi alvarleg áhrif á forsætisráðherrann sem hefur veitt sjálfum sér ósakhæfi. Gandini kemst mjög nálægt við- fangsefninu, þar á meðal valdamesta manninum í sjónvarpsveldinu, Lele Mora, yfirlýstum aðdáanda Muss- olinis. Leiðtogadýrkunin á Silvio er gríðarleg og meðal annars bökkuð upp með hópsöng sem hyllir leiðtogann í karíókímyndbandi. Myndefni er náið og gott, ekki síst þegar fylgst er með Corona, siðlausum en gríðarlega stíl- iseruðum papparazza sem hefur náð stjörnustatus með því að hata sjálfur stjörnurnar. Áferð, texti og mynd vinna vel saman rétt eins og í öðrum heim- ildamyndum Gandinis (meðal ann- ars Sacrificio: Who betrayed Che Gue- vara? og mynd hans um Guantanamo, Gitmo). Tónlistin er óhugguleg, frábær og undirstrikar alvarleikann bak við dans fáráðlinganna. Hreimur sögu- mannsins er þykkur en eftir á að hyggja passar það vel inn í „töffið“ sem mynd- in ber með sér. Þegar maður er orðinn vel heitur endar myndin og maður er skilinn eft- ir með hungur í meira... Með sterka til- finningu um að ekki sé búið að hamra nógu hart eins og norrænar heimilda- myndir eru annálaðar fyrir. Miðað við allt er ef til vill farið of mjúkum hönd- um um efnið. Sem dæmi velur Gand- ini að ræða ekki beint við andstæðinga Silvios sem er nóg af á Ítalíu. Þeir eru reyndar ósjáanlegir innan hins einok- andi fjölmiðlaveldis forsætisráðherr- ans sem kýs að kalla sig „forseta“. Gandini hefur miklar áhyggjur af ástandinu sem er farið að minna um margt á Ítalíu Mussolinis. En fasisminn hefur verið endurhljóðblandaður sem öfgasinnaður plebbismi. Velkominn í valdaeinokun framtíðarinnar þar sem flatneskjan er stjórnmálastefna. Erpur Eyvindarson lágkúra sem valdatæki Videocracy „Áferð, texti og mynd vinna vel saman rétt eins og í öðrum heimilda- myndum Gandinis.“ Videocracy Leikstjóri: Erik Gandini kvikmyndir Sýnd á Nordisk Panorama ALLT FYRIR NEYTANDANN Smáauglýsingasíminn er smaar@dv.is 515 55 50 KOMDU Í ÁSKRIFT Hringdu í síma 515 5555 eða sendu tölvupóst á askrift@birtingur.is eða farðu inn á www.birtingur.is HEITUSTU MÁLEFNIN Í BRENNIDEPLI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.