Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2009, Blaðsíða 37
Hver er maðurinn? „Jóhann
Þorvaldur Bergþórsson, stærðfræð-
ingur, forritari og tónsmiður hjá
Dexoris.“
Hvað drífur þig áfram? „Mikil
sköpunargleði og ástríða fyrir
tölvuleikjum.“
Hvar ertu uppalinn? „Reykjavík.“
Hver eru helstu áhugamálin?
„Tónlist, kvikmyndir og stærðfræði-
jöfnur.“
Við hvað starfaðir þú hjá
Landsbankanum? „Ég var hjá
vefdeild Landsbankans.“
Var bankahrunið þá lán í óláni
fyrir þig? „Já, það má segja það.“
Hvaðan kemur nafnið Dexoris?
„Það kom bara upp úr engu
Út á hvað gengur leikurinn Peter
und Vlad? „Gengur út á það að
smala kindum.“
Eru aðrir leikir í bígerð? „Já. Við
erum að þreifa fyrir okkur núna og
sjá hvernig þetta gengur en erum
með nokkrar hugmyndir í gangi og
sumar þeirra komnar vel á veg.“
Er flókið að búa til tölvuleik?
„Það er merkilega flókið já. Það kom
mér á óvart hvað það er í mörg horn
að líta.“
Ætlar þú að leggja tölvuleikja-
gerð fyrir þig? „Það er spurning. Ef
þetta gengur vel gæti það verið.“
Hver er þinn uppáhaldstölvu-
leikur? „The Secret of Monkey
Island.“
Ertu sátt/-ur við að viljayfirlýsing um álvEr við Húsavík vErði Ekki framlEngd?
„Ég er ósáttur við það. Mér finnst að í
ljósi efnahagsástandsins eigum við að
halda þessum möguleika opnum.“
GuðstEinn inGimarsson
53 áRa SJáLfSTæðuR aTVInnuREkanDI
„Mjög sáttur. Það er komið mikið meira
en nóg af þessum álverum.“
HjaLti ELíasson
55 áRa RafVIRkI
„Ég er ekki sáttur við það. Mér finnst að
það eigi að kýla þetta í gegn.“
DaVíð axEL GunnLauGsson
35 áRa SEnDIBíLSTJóRI
„Ég hef enga skoðun á því. Ég hafði
ekki einu sinni heyrt af þessu.“
BErGLinD GoLDstEin
34 áRa húSMóðIR
dómstóll götunnar
jóHann Þ. BErGÞórsson
stofnaði tölvuleikjafyrirtækið Dexoris
eftir að hafa misst hlutastarf sitt hjá
Landsbankanum eftir hrun. Dexoris
sendi nýlega frá sér sinn fyrsta leik
fyrir iPhone og iPod Touch sem
seldur er í vefverslun apple
Bankahrunið
lán í óláni
„Ég er sátt við það. Ég vil ekki álver
þarna.“
siGrÚn m. siGurðarDóttir
52 áRa SöLukona
maður dagsins
Fyrir fáeinum árum lék allt í lyndi.
Best heppnaða frjálshyggjutilraun
veraldar hafði verið gerð á Íslandi.
Flest opinber fyrirtæki höfðu ver-
ið einkavædd, skattar fyrirtækja og
ríkra hafði verið lækkaður. Fjár-
magnstekjuskattur var lækkaður.
Fjármagnsflóðið út í atvinnulífið,
sem af þessu leiddi, lyfti öllum bát-
um, litlum sem stórum.
Nýfrjálsir bankar, sem fjármagn-
aðir höfðu verið með rússagulli
að hluta, var gefinn laus taumur-
inn og útrásin hófst. Þúsund nýir
bankamenn með 1 upp í 20 millj-
ónir króna á mánuði hækkuðu
neyslustigið svo um munaði. All-
ir nutu góðs af. Þaggað var niður í
efasemdamönnum með gríðarlegri
dúsu vaxandi skatttekna af banka-
starfseminni . Vandalaust varð fyr-
ir 300 þúsund manna þjóð að reka
6 háskóla. Nýtt tæknisjúkrahús var
smámunir. Tónlistarhöll var byggð
fyrir smáaurana sem Björgólfur
Guðmundsson var með í skyrtuvas-
anum í barnaafmælum.
Á þessum tíma hefði verið óhugs-
andi að ræða aukna misskiptingu
gæða. Framsóknarflokkurinn kall-
aði stjórnarstefnuna velferðarpól-
itík.
Gagnrýni óhugsandi
Sjálfstæðismenn hittu vini sína
auðkýfingana, ýmist í einkaþotum
eða um borð í snekkjum í Mónakó
og lögðu á ráðin um einkavæðingu
orkulindanna og orkufyrirtækjanna.
Hólmsteinn trúboði í HÍ skrifaði
greinar í virt erlend blöð og sagði
frá því að hinn vitri forsætisráð-
herra ætti aðeins eitt eftir á sjötta
degi sköpunarverks síns, að einka-
væða orkulindirnar. Tugmilljónirn-
ar streymdu nokkrum misserum
síðar í flokkssjóðina, 30 milljónir frá
FL Group og 25 milljónir frá Lands-
bankanum.
Á þessum tíma var gagnrýni
óhugsandi. Háskólar urðu þegj-
andalegir og skrifuðu pantaðar
skýrslur gegn hæfilegri þóknun.
Best væri að háskólar yrðu þjónar
atvinnulífsins og lögfræðingastétt-
in skrifaði lög fyrir stjórnarherrann
og sæi um túlkun þeirra. Dómstólar
voru mannaðir fólki með rétt flokks-
skírteini.
Þó má minnast Þjóðhagsstofn-
unar sem snemma á áratugnum
gerði athugasemdir við efnahags-
stefnu stjórnvalda.
Stofnunin var lögð niður.
Prófessor í HÍ lagði fram gögn
um að skattpíning alþýðu færi vax-
andi og ójöfnuður ykist hraðar en
annars staðar á byggðu bóli.
Hann var úthrópaður á Alþingi.
óþægindi sannleikans
En svo hrundi allt. Hólmsteinn
hringsnerist og fann sökudólga í
útlöndum. Allt fór úrskeiðis eftir
að Davíð Oddsson sleppti stjórnar-
taumunum árið 2004. Já, meira að
segja forsetinn var á bandi hinna
illu afla sögðu menn.
Frá þessu þarf að segja og þess
vegna hefur nú hinu virta Morg-
unblaði verið valinn nýr ritstjóri.
Skrifa þarf söguna rétt. Þarf Morg-
unblaðið til dæmis ekki að koma
í veg fyrir þjóðin festi sér í minni
ósannindi þau sem Jóhanna Sig-
urðardóttir var með á vörunum í
ræðu um síðustu helgi? Þar sagði
hún orðrétt:
„Árið 1993 voru ríkustu 1% fjöl-
skyldna landsins með um 4% hlut-
deild í ráðstöfunartekjum. Árið
2007 eru orðin alger umskipti því
þá eru 1% ríkustu fjölskyldnanna
með um 20% ráðstöfunartekna. Eitt
prósent með fimmtung ráðstöfun-
artekna.
Ekki nóg með það. Ríkustu 10
prósentin tvöfölduðu hlutdeild
sína í ráðstöfunartekjunum á sama
tíma og höfðu um 40% ráðstöfun-
artekna árið 2007. Aðrar íslenskar
fjölskyldur, 90% fjölskyldna í land-
inu, skiptu 60% teknanna á milli
sín árið 2007.
Þetta eru ótrúlegar breytingar á
skömmum tíma – og þær voru afleið-
ing markvissrar stefnu
Framsóknarflokks og Sjálfstæðis-
flokks – stefnu misskiptingar.“
Eiginlega er þetta meiri og erfið-
ari staðreyndir en venjulegur Íslend-
ingur, þjakaður af bankahruni, getur
kyngt í einu lagi.
Hugsanlega mun nýr ritstjóri
Morgunblaðs allra landsmanna leið-
rétta þessi ósköp með eftirminnileg-
um hætti.
Hann gerir það áreiðanlega ekki
í samræmi við viðhorf biskupsfrúar-
innar af Kantaraborg sem leidd var í
allan sannleika um þróunarkenningu
Darwins á nítjándu öld. Henni var
sagt maðurinn og aparnir ættu sér
sameiginlegan forföður. „Við skulum
biðja til guðs að þetta sé ekki satt,“
sagði biskupsfrúin. „En sé þetta satt
skulum við biðja þess heitt og inni-
lega að takast muni að þegja yfir því.“
Sannleikurinn um vaxandi ójöfnuð
kjallari
myndin
1 notaði peninginn til að borga
yfirdráttinn
neytendafrömuðurinn Dr. Gunni borgaði
yfirdrátt sinn með greiðslu fyrir auglýsingu
á vegum Iceland Express.
2 jóhannes í Bónus sendir
Hannesi kveðskap
Jóhannes Jónsson í Bónus sendi hannesi
hólmsteini Gissurarsyni prófessor skilaboð
í bundnu máli.
3 „Þjóðinni til skammar“
kvótalausi sjómaðurinn ásmundur
Jóhannsson hefur verið dreginn fyrir dóm
fyrir að róa til fiskjar.
4 óléttri konu nauðgað á heimili
sínu
Lögreglan í Lundúnum leitar nú að hópi
manna sem grunaðir eru um að hafa
nauðgað óléttri konu á heimili hennar.
5 Vefsafnið kemur upp um
útrásardekur Björgvins
færslur af heimasíðu Björgvins G.
Sigurðssonar, sem var viðskiptaráðherra í
hruninu, eru aftur aðgengilegar eftir að
Landsbókasafnið opnaði vef með öllum
færslum af þjóðarléninu .is frá 2004.
6 Love skotin í óvini
Bandaríkjanna
Courtney Love, ekkja rokkarans kurts
Cobain, segir að hugo Chavez, forseti
Venesúela, sé kynþokkafullur.
7 Hreinar kjaftasögur
Eigandi World Class segir að frétt á
Eyjunni.is um að vændiskona hafi starfað á
stöðinni sé byggð á uppspuna.
mEst lEsið á DV.is
jóHann
Hauksson
útvarpsmaður skrifar
„En sé þetta satt
skulum við biðja þess
heitt og innilega að
takast muni að þegja
yfir því.“
umræða 30. september 2009 miðvikudagur 37
Björgólfur takefusa, framherji kR, hlaut í gær viðurkenningu fyrir að skara fram úr á lokaþriðjungi Pepsi-deildarinnar í knatt-
spyrnu. Björgólfur skoraði fimm mörk í lokaumferðinni og varð þar með markahæstur á mótinu.
mynD BraGi Þór jósEfsson