Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2009, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2009, Blaðsíða 11
neytendur 30. september 2009 miðvikudagur 11 Lin Design • Laugavegi 176, gamla sjónvarpshúsið • sími 533 2220 • www.lindesign.is Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf Laugavegi 178, 105 Rvk sími 551-3366 www.misty.is opið mán-fös 10-18, lau 10-14 Teg. 86200 - létt fylltur og flottur BC skálum á kr. 3.950,- mjúkar buxur í stíl á kr. 1.950,- Teg. 81103 - létt fylltur í BC skálum á kr. 3.950,- buxur í stíl á kr. 1.950 Teg. 82115 - mjög flottur í CDE skálum á kr. 3.950,- buxur í stíl á kr. 1.950,-” Teg. 86200 Teg. 86200 Teg. 86200        Smáauglýsingasíminn er smaar@dv.is 515 55 50 sé almenn barátta gegn svartri at- vinnustarfsemi. Þeir sem eru félags- menn hjá okkur eru yfirleitt þeir sem eru með hlutina á hreinu,“ segir Jón Bjarni. Tekjur skerða barnabætur Þeir sem kaupa eða selja svarta vinnu eru dýrir fyrir samfélagið. Ekki er nóg með að skattarnir skili sér ekki til rík- isins heldur fá þeir sem ekki gefa upp vinnu sína hærri vaxta- og barna- bætur, eigi þeir á annað borð íbúðir og eða barn. Hjón sem eiga tvö börn; annað á leikskólaaldri, hitt á grunnskólaaldri, fá 395 þúsund krónur á ári í barna- bætur. Bæturnar eru greiddar út árs- fjórðungslega. Þetta er þó háð því að tekjur þeirra séu minni en 3,6 millj- ónir árið áður. Að öðrum kosti skerð- ast bæturnar. Til að forðast skerð- ingu barnabóta þurfa báðir foreldrar að vinna á lágmarkslaunum, en byrj- unarlaun afgreiðslufólks í verslunum eru 149.200 krónur samkvæmt kjara- samningi VR og Samtaka atvinnulífs- ins. Þau laun nema 1.790.400 krón- um á ári. Séu tekjurnar hærri en 1,8 milljónir á einstætt foreldri eða 3,6 milljónir á hjón skerðast bæturnar nokkuð. Meðallaun á Íslandi nema nálægt 300 þúsund krónum á mánuði. Vinni annað foreldrið fyrir 300 þúsund krónum á mánuði en hitt foreldrið á lágmarkslaunum vinna þau saman- lagt fyrir tæpum 5,4 milljónum króna á ári. Ef þau eiga tvö börn, annað á gunnskólaaldri, fá þau 305 þúsund krónur á ári í barnabætur. Vinni sá tekjuhærri einungis svarta vinnu verða uppgefnar tekj- ur þeirra hins vegar aðeins 1,8 millj- ónir. Þá fá þau 395 þúsund krónur á ári í barnabætur. Hjónin hafa því 90 þúsund krónur af ríkinu, að viðbætt- um þeim sköttum sem hefðu átt að renna í ríkissjóð. Fái hjónin atvinnu- leysis- eða vaxtabætur nema svikin enn hærri upphæðum, þar sem þær ráðast af fyrri tekjum. Fangelsisdómur og háar fjársekt- ir geta beðið þeirra sem svíkja und- an skatti. Báðir aðilar ábyrgir Gissur Pétursson hjá Vinnumála- stofnun segir að svört vinna sé landlægur ósiður. Hann bendir fólki á að láta vita ef það veit um að fólk kaupi eða selji svarta vinnu. „Við fáum nokkuð af ábendingum í gegnum heimasíðu stofnunarinnar en þar er hægt að koma með nafn- lausar ábendingar. Einnig fáum við mikið af símtölum um að fólk mis- noti kerfið. Það geta ýmist verið brot á atvinnuleysistryggingalögunum eða skattalögum,“ segir Gissur en Vinnumálastofnun er í góðu sam- starfi við ríkisskattstjóra sem felst í því að skiptast á upplýsingum um meint brot. Hann segir þó að stofn- unin myndi gjarnan vilja vinna að því að upplýsa skattsvikamál hrað- ar og betur, sérstaklega þegar nú reyni mjög á félagslegt framfærslu- tryggingakerfi landsmanna. Samfé- lagið þurfi svo sannarlega á pening- unum að halda um þessar mundir. Skattsvik þýði að auknar byrðar falli á þá sem heiðarlegir séu. Gissur bendir ennfremur á að bæði seljandinn og kaupandinn séu ábyrgir þegar um er að ræða svört viðskipti. „Það er samfélags- leg skylda allra að koma í veg fyr- ir misnotkun,“ segir hann og bæt- ir við að stofnunin vakti vel þær ábendingar sem berist. Mikilvægt sé að þær séu eins nákvæmar og frekast er kostur. Það auðveldi úr- vinnslu. Lífeyririnn verður minni „Það var mikill sigur unninn í vor þegar þær reglur voru tímabund- ið settar að menn fái hundrað pró- sent endurgreiðslu af vinnu iðnað- armanna. Stundarhagur neytandans í því að svíkja undan skatti, og þar með að borga ekki virðisaukaskatt- inn, var þar með felldur út. Þetta var bundið við íbúðarhúsnæði en nú gildir þetta líka um sumarhúsin og húsnæði í eigu sveitarfélaga,“ bend- ir Jón Bjarni á. Hann segist telja að þetta hafi skilað nokkru en tölur um það liggi því miður ekki fyrir. „Ég hef heyrt marga tala um að þetta sé þarft og gott framtak,“ segir hann. Hann segir að Samtök iðnaðarins hafi enn- fremur lagt það til við iðnaðarmenn að þeir hjálpi fólki við að fylla út þá reikninga sem þarf til að fá virðisauk- ann endurgreiddan. Það sé í raun sáraeinfalt. Jón Bjarni segir að svört atvinnu- starfsemi leiði til þess að meira þurfi að skera niður nú í kreppunni en annars hefði verið. Sjóðirnir séu veikari. Lífeyririnn sem menn eigi inni þegar þeir hætta að vinna verði vitanlega lægri en hjá þeim sem alltaf hafa gefið alla sína vinnu upp. Hann bendir ennfremur á að þeir sem kaupi svarta vinnu eigi engan rétt ef einhver galli komi upp. Á sama hátt eigi þeir sem meiðast við vinnu, sem ekki er gefin upp til skatts, engan rétt á sjúkra- eða slysabótum lífeyris- sjóðanna. Svört vinna geti því komið í bakið á fólki. Berjast gegn svartri vinnu Jón Bjarni Gunnarsson er aðstoðarframkvæmda- stjóri Samtaka iðnaðarins. Samtökin hafa staðið fyrir herferð gegn svartri vinnu. Komdu upp um skattsvikara n Á vinnumalastofnun.is má senda nafnlausar ábendingar ef grunur leikur á um brot í atvinnuleysistryggingakerfinu. n Nákvæmar upplýsingar auka líkurnar á því að upp um svikin komist. n Einnig má hringja í Vinnumálastofnun (s. 5154800) ef grunur leikur á um bótasvik. n Á skattrann.is, vef skattrannsóknarstjóra, má senda inn nafnlausar ábendingar ef grunur leikur á um skattsvik. Þetta er hægt að gera fyrir 40 milljarða n Minnka skattaálögur á einstaklinga um 36% n Afnema tryggingagjaldið n Fjármagna rekstur Landspítalans í eitt ár n Byggja hátæknisjúkrahús n Reka alla almenna heilsugæslu í landinu í tvö ár n Greiða laun allra grunnskólakennara í Reykjavík í 4 ár n Bjóða upp á ókeypis skólamáltíðir fyrir 40 þúsund grunnskólanemendur í 13 ár n Leggja hefðbundinn þjóðveg hringinn um landið n Tvöfalda allar einbreiðar brýr á landinu, tvöfalda Hvalfjarðargöng og byggja Sundabraut n Tvöfalda Suðurlandsveg, bora Vaðlaheiðargöng, byggja höfn í Bakkafjöru og kaupa nýjan Herjólf n Fjármagna rekstur Alþingis í 17 ár n Fjármagna rekstur Háskóla Íslands í 3 ár n Fjármagna rekstur Landhelgisgæslunnar í 14 ár n Standa straum af öllum vaxtagreiðslum hins opinbera vegna erlendra lána í kjölfar efnahagshrunsins * HVERT þESSARA dæMA koSTAR uNdiR 40 MiLLJARðA kRóNA. AF VEF SAMTAkA iðNAðARiNS.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.