Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2009, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2009, Blaðsíða 29
suðurland Miðvikudagur 30. september 2009 29 Heilsubænum verður ekki fórnað gegn nýtingu á jarðvarmaorku. Ekki megi taka óþarfa áhættu í þessum efnum. „Það er mikill munur á yf- irborðsvatni úr hverunum hérna í bænum sem hefur síast í gegnum jarðlög á löngum tíma og svo því vatni sem sótt er djúpt í jörðu og inniheldur mikið af mengandi efn- um.“ lifa á Heilsutengdri þjónustu „Það er áherslan á heilsutengda þjónustu sem við einfaldlega get- um ekki fórnað. Hér hafa Hver- gerðingar um árabil byggt samfé- lag þar sem rík áhersla er á heilsu, umhverfi og menningu. Allt okkar starf til fjölda ára hefur byggt und- ir þessa ímynd bæjarins og því get- um við ekki fórnað,“ heldur Aldís áfram. Þessa ímynd eigi bærinn reynd- ar að mörgu leyti undir nýtingu jarðvarma. Snemma á síðustu öld hafi fólk tekið að baða sig í hvera- leirnum sér til heilsubótar. „Fyrst um sinn kom fólk hingað, dvaldi í tjöldum og stundaði leirböð. Þegar fram í sótti kom svo Náttúrulækn- ingafélag Íslands og setti á laggirn- ar heilsustofnun sem var grund- völlurinn að stofnun sem á engan sinn líka og er með stærstu vinnu- stöðum á Suðurlandi.“ Annar stór heilbrigðistengdur vinnustaður í Hveragerði er dvalar- heimilið Ás. Þar fer nú fram tilraun með nýja hugmyndafræði í rekstri dvalarheimila sem Hveragerðisbær aðstoðar við að koma á laggirn- ar. „Stefnan gengur undir nafninu Eden og gengur út á að halda lífs- gæðum í hámarki. Þarna getur fólk ræktað sitt grænmeti í beðum sem eru aðgengileg úr hjólastól. Þar heldur heimilisfólk hænur og hug- myndir eru uppi um að bæta fleiri húsdýrum við.“ grænn bær Þessu til viðbótar segir Aldís sveit- arfélagið hafa lagt mikið upp því að halda umhverfi bæjarins eins snotru og mögulegt er. „Þetta er náttúrlega grænn bær og verður alltaf fallegri eftir því sem gróður- inn sækir í sig veðrið. Við viljum líka að bærinn sé þekktur fyrir gott og fallegt umhverfi, bæði náttúru- legt og manngert.“ Aldís segist finna fyrir því í ríkum mæli hve bæjarbúar séu ánægð- ir með hvernig haldið hefur verið á þessum málum. „Hvergerðingar eru stoltir af bænum sínum og þykir hann fallegur, vænn og grænn. Eina aðkastið sem umhverfisstjóri bæj- arins verður fyrir liggur í kossum, faðmlögum og þökkum. Það held ég að hljóti að vera einsdæmi.“ Það er vegna þessara hluta sem það hefur orðið stefna bæjarstjórn- arinnar að leggjast gegn áformum um Bitruvirkjun. „Það blasir við að slíkri virkjun myndi fylgja gríðarleg mengun, í það minnsta á vinnslu- tíma. Við getum ekki útsett okkur fyrir tilraunastarfsemi með líf og heilsu fólks í heilu bæjarfélagi.“ sigtryggur@dv.is Hveragerði Bærinn er á há- hitasvæði og jarðvarmavirkjanir eru í grenndinni. mynd SIGTRyGGUR Tilraunaborhola Ríkjandi vindátt sér til þess að gufa frá Hellisheiði og Nesjavöllum berst sjaldan yfir bæinn. mynd SIGTRyGGUR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.