Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2009, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2009, Blaðsíða 12
12 miðvikudagur 30. september 2009 fréttir Fréttamaður BBC hafði ekki erindi sem erfiði á blaðamannafundi: Þýska í Þýskalandi Fastlega er gert ráð fyrir því að Guido Westerwelle verði utanríkisráðherra næstu ríkisstjórnar Þýskalands. Eitt- hvað fór fyrir brjóstið á Westerwelle, þegar hann hélt sinn fyrsta blaða- mannafund í kjölfar kosninganna á sunnudaginn, að fréttamaður breska ríkisútvarpsins BBC bar fram spurn- ingu á ensku. Fréttamaður BBC fékk ofanígjöf frá Westerwelle sem benti blaðamannin- um á hvar þeir væru staddir. „Hérna erum við í Þýskalandi,“ sagði West- erwelle sem er leiðtogi FDP, flokks frjálsra demókrata, sem verður að öll- um líkindum hluti samsteypustjórnar Angelu Merkel, kanslara Þýskalands. Fréttamaður BBC spurði Wester- welle hvort hann væri tilleiðanlegur að svara fyrirspurn sem borin væri fram á ensku. Westerwelle svaraði að bragði, á þýsku: „Ef þú vildir vera svo vænn, þetta er blaðamannafundur í Þýskalandi.“ Hinn breski fréttamaður lét ekki slá sig út af laginu og spurði hvort Westerwelle gæti svarað á þýsku spurningu sem borin væri fram á ensku. En Westerwelle var greinilega ekki á því að sýna sveigjanleika: „Í Bretlandi er til þess ætlast að fólk tali ensku og í Þýskalandi er svipað uppi á teningnum, það er ætlast til þess að fólk tali þýsku.“ Fréttamaður BBC nýtti sér túlk til að bera fram spurningu um að hvaða leyti utanríkisstefna Þýskalands myndi breytast með Westerwelle sem utanríkisráðherra. Á fréttaveitu Reuters segir að Guido Westerwelle hafi forðast að svara spurningu fréttamannsins, en sagt: „Bara svo það sé ljóst, mér yrði ánægjuefni að fá mér te með þér fyr- ir utan blaðamannafundinn og þá getum við talað einungis ensku. En hérna erum við í Þýskalandi.“ Guido Westerwelle Hugnast ekki fyrirspurnir á ensku á þýskri grundu. Gloria Arroyo, forseti Filippseyja, opnaði dyr forsetahallarinnar til að leggja sitt af mörkum til aðstoð- ar fórnarlömbum hamfaranna sem riðið hafa yfir eyjarnar. Vitni segja að það hafi verið ótrúleg sjón að sjá íbúa eins fátækasta hluta höfuðborg- arinnar, Manila, streyma inn í Malac- anang-höllina í von um matvæli, lyf og skjól. Í yfirlýsingu sem Gloria Arroyo sendi frá sér sagði hún að þeir sem þyrftu skjól fengju það þar sem því yrði komið við, í byggingum hallar- innar og í tjöldum sem komið yrði upp á milli bygginganna. „Ef þörf krefur mun starfsfólk okk- ar gefa eftir vinnustaði sína til að út- vega meira pláss fyrir þá sem þess þurfa,“ sagði Arroyo. Tala látinna var í gær komin yfir 240, en að minnsta kosti tvær millj- ónir hafa orðið fyrir einhverjum skakkaföllum vegna flóðanna. Hátt í fjögur hundruð þúsund manns hafa neyðst til að leita skjóls í þar til gerð- um neyðarbúðum. Gefa laun sín En Gloria Arroyo lét ekki nægja að opna dyr forsetahallarinnar fyrir þurfandi því hún fyrirskipaði einnig ráðherrum landsins að gefa laun sín til fórnarlamba hamfaranna. Á ríkisstjórnarfundi í gær sagði Gloria Arroyo að ráðherrar skyldu „gefa tveggja mánaða laun sín til að- stoðar og uppbyggingar“ og bætti við að hún væri ekki undanþegin þeim fyrirmælum. Ráðherrar hreyfðu ekki neinum mótmælum vegna fyrirmælanna og fullvíst talið að enginn muni skorast undan. Þess ber þó að geta að ekki er um himinháar upphæðir að ræða því laun ráðamanna landsins virðast meira til málamynda. Forseti og varaforseti Filippseyja eru með 50.000 pesóa í mánaðar- laun, sem samsvara um 132.000 krónum, og ráðherrar eru með um 30.000 pesóa, eða um 80.000 krónur. Þess ber að geta að launin eru engu að síður góð með tilliti til launa á Fil- ippseyjum. Flestir ráðherranna eru vellauðugir vegna eigin viðskipta. Hafa rétt á að kvarta Að sögn fréttaritara BBC hefur fólk kvartað yfir því hve hægt gangi að koma aðstoð til fólks og að aðstoðin sé engan veginn næg. Arroyo forseti hef- ur ekki tekið illa í þessar umvandan- ir og sagði að fólk í neyð hefði fullan rétt á að kvarta. Hún bað fólk engu að síður að gera sér í hugarlund stærð- argráðu hamfaranna og sagði að allir legðust á eitt. Höllin sem nú hefur verið opnuð fyrir þeim sem eiga um sárt að binda er einna best þekkt fyrir skósafn sem Imelda Marcos, fyrrverandi forseta- frú, skildi eftir þegar bundinn var endi á 20 ára valdatíma eiginmanns henn- ar, Ferdinands Marcos. Í skósafni Im- eldu voru yfir 3.000 skópör. Allajafna býr Gloria Arroyo, forseti Filippseyja, í höllinni, og þar tekur hún á móti erlendum þjóðhöfðingjum. Götumynd frá Manila Forseti landsins leggur sitt af mörkum til aðstoðar fórnarlömbum. opnar höllina fyrir fátækum Í yfirlýsingu sem Gloria Arroyo sendi frá sér sagði hún að þeir sem þyrftu skjól fengju það þar sem því yrði komið við, í byggingum hallarinnar og í tjöldum sem komið yrði upp á milli bygginganna. Forseti Filippseyja opnar dyr sínar fyrir fórnarlömbum hamfaranna. Að auki hefur hún farið þess á leit við ríkisstjórn landsins að hún láti persónulega sitt af hendi rakna til aðstoðar og uppbyggingar. Forsetinn hyggst ganga á undan með góðu for- dæmi og gefa tveggja mánaða laun til hjálparstarfsins. Kolbeinn þorsteinsson blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is karzai skásti kosturinn Hvað sem öllu öðru líður verður al- þjóðasamfélagið sennilega að sætta sig við að Hamid Karzai verði forseti Afganistan til næstu fimm ára. Lítill vafi leikur á kosningasvindli og spill- ingu innan ríkisstjórnar landsins og jafnvel talið að fjölskylda forsetans sé viðriðin fíkniefnasmygl. Hvað sem því líður hafa Banda- ríkjamenn og bandamenn þeirra komist að þeirri niðurstöðu að hann sé skásti kosturinn og ekki líkur á annarri niðurstöðu þó kosið yrði að nýju. Þetta er ekki talinn ákjósanlegur jarðvegur fyrir fyrirhugaðan aukinn sóknarþunga Bandaríkjamanna í landinu og ekki talið líklegt til að hrífa evrópska bandamenn Banda- ríkjanna. kosið um morð á forseta Stjórnendur samskiptanetsins Face- book óvirkjuðu viðbót þriðja aðila sem gerir notendum kleift að stofna til kosninga. Ástæða aðgerða stjórn- enda samskiptasíðunnar var kosn- ing þar sem spurt var hvort drepa ætti Barack Obama Bandaríkjafor- seta. Leyniþjónusta Bandaríkjanna, sem hefur það hlutverk með hönd- um að gæta öryggis forsetans, setti málið umsvifalaust í rannsókn. Send var fyrirspurn til stjórnenda Face- book sem þá þegar hafði fjarlægt kosninguna. Svarmöguleikar við spurningu um hvort drepa ætti Barack Obama voru; „já“, „kannski“, „ef niðurskurð- ur hans í heilbrigðisgeiranum bitnar á mér“ og „nei“. keypti skartgripi og myndavélar Eyjarskeggjum venesúelsku eyj- unnar Margarita var komið í opna skjöldu þegar leiðtogi Líbíu, Moammar Gaddafi, birtist ásamt fylgdarliði sínu í verslunarleiðangri. Gaddafi ráfaði á milli verslana og keypti sér skartgripi og stafræn- ar myndavélar en gaf sér þó einnig tíma til myndatöku með uppveðr- uðu starfsfólki verslana. Ástæða veru Gaddafis í Venesú- ela er ráðstefna leiðtoga ríkja Suð- ur-Ameríku og ríkja Afríku og hefur hann notað tækifærið til að fordæma „heimsvaldastefnu“ auðugra ríkja.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.