Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2009, Blaðsíða 24
Miðvikudagur 30. september 200924 suðurland
„Ég kom þarna oft sem barn og man
vel eftir honum afa mínum,“ seg-
ir Jónas Kristjánsson, fyrrverandi
ritstjóri. Það var afi Jónasar, Jónas
Kristjánsson, sem stofnaði Náttúru-
lækningafélag Íslands og veitti heilsu-
stofnuninni forstöðu. „Hann starfaði
þarna nánast fram í andlátið, til árs-
ins 1960, þá níræður,“ heldur Jónas
áfram.
Jónas dvaldi sjálfur á stofnuninni í
fyrrahaust, sér til hressingar og heilsu-
bótar. „Ég hef verið á miklu heilsu-
striki síðan, hef lést um 25 kíló og er
um það bil að verða gegnsær.“
Stofnunin, sem stundum hef-
ur verið kölluð Heilsuhælið í Hvera-
gerði, er í raun sjúkrastofnun sem er
í eigu Náttúrulækningafélags Íslands
á sama hátt og sjúkrahúsið Vogur er
í eigu SÁÁ. Ríkið greiðir fyrir sjötíu
prósent af rekstrinum en sjúklingur-
inn greiðir sjálfur þrjátíu prósent.
Fleiri í Fyrirbyggjandi
meðFerð
„Hér er alltaf troðfullt og aðsókn-
in er mikil og stöðug,“ segir Ól-
afur Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri stofnunarinnar. „Hér hefur fólk
aðgang að læknum og hjúkrunarfræð-
ingum auk þess sem hjá
okkur starfa
sjúkraþjálfar-
ar, sjúkra-
nuddarar,
nálastungu-
læknir, sál-
fræðingar,
næringarfræð-
ingar og íþrótta-
kennarar.“
Ólafur segir skjólstæðinga stofn-
unarinnar gjarnan koma í kjölfar sjúk-
dóma eða aðgerða á borð við krabba-
mein og hjartaaðgerðir, til þess að ná
tökum á offituvandamálum og jafnvel
eftir að hafa tekist á við lífskrísur af
ýmsum toga.
„Það verður samt æ algengara
að fólk leiti hingað til þess að fyrir-
byggja sjúkdóma. Sumir eru mjög
skynsamir og byrja að koma til okkar
strax upp úr þrítugu, einvörðungu til
þess að varðveita heilsuna. Í
dag er reyndar mun
meiri áhersla á
heilbrigðan lífs-
stíl en áður var
og líkamsrækt-
arstöðvar eru
vel sóttar.“
Sumir
borga
SjálFir
Stofnunin í
Hveragerði
rúmar 160
vistmenn
á hverjum
tíma. Ríkið tekur þátt í rekstri 120
rúma, en stofnunin heldur nokkrum
plássum til haga til þess að taka á móti
fólki í snatri, og einnig fyrir þá sem
kjósa að koma og borga alfarið sjálfir
fyrir sína vist.
„Það eru læknar sem vísa fólki
hingað til okkar. Við höfum ekkert
Engir hluthafar sem
heimta arð
Heilsustofnun Náttúrulækningafélags Íslands hefur verið starfrækt
í Hveragerði í bráðum 55 ár. Ólafur Sigurðsson framkvæmdastjóri
segir það sífellt algengara að fólk leiti til stofnunarinnar til þess
að fyrirbyggja sjúkdóma auk hefðbundinnar meðferðar í kjölfar
sjúkdóma og aðgerða sem margir þekkja.
Framkvæmdastjórinn Ólafur
Sigurðsson hrærir í leirnum.
myndir SiGTryGGUr
nálastungur Sérfræðingur í nála-
stungumeðferð starfar hjá NLFÍ.
Bráðum gegnsær
Jónas Kristjánsson dvaldi
í Hveragerði síðasta
haust og hefur grennst
feiknarlega. Afi Jónasar,
einnig Jónas Kristjánsson,
stofnaði Náttúrulækn-
ingafélag Íslands.