Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2009, Blaðsíða 3
fréttir 30. september 2009 miðvikudagur 3
Árið 2007 borgaði Milestone 8,5 milljóna uppgjör vegna skattamála Werners Rasm-
ussonar. Synir Werners, Karl og Steingrímur, voru eigendur Milestones. Greiðsl-
an var vegna kaupa Lyfja og heilsu á Ingólfsapóteki. Werner segist ekkert kannast
við greiðsluna.
Bræðurnir Karl og Steingrímur
Wernerssynir létu eignarhaldsfé-
lagið Milestone borga uppgjör upp
á 8,5 milljónir króna vegna skatta-
mála föður síns, Werners Rasm-
ussonar, árið 2007. Karl og Stein-
grímur voru eigendur Milestones.
Greiðslan er tilkomin vegna sölu
Werners á Ingólfsapóteki til Lyfja
og heilsu árið 2007. Lyf og heilsa var
svo aftur í eigu Milestones þar til í
fyrra þegar eignarhaldsfélag í eigu
þeirra bræðra keypti lyfjabúðirnar.
Þetta kemur fram í endurskoð-
endaskýrslu Ernsts og Youngs
sem unnin var að beiðni umsjón-
armanns með nauðasamningum
Milestones, Jóhannesi Albert Sæv-
arssyni. Skýrslan var kynnt fyr-
ir kröfuhöfum Milestones í byrjun
mánaðarins. Þeir höfnuðu nauða-
samningum Milestones og verð-
ur bú félagsins tekið til gjaldþrota-
skipta.
Orðrétt segir í skýrslunni um
greiðsluna til Werners á árinu 2007:
„Gjaldalykill 5651 „Annar kostnað-
ur á vsk.“ Gjaldfærðar eru 8.500.000
kr. vegna uppgjörs við Werner
Rasmusson vegna skattamála hans.
Er vegna sölu Werners á Ingólfsap-
óteki til Lyfja og heilsu.“
Skrítið að Milestone hafi
borgað þetta
Endurskoðendur Ernsts og Youngs
vöktu athygli á greiðslu Milestones
til Werners með öðrum atriðum
sem þeim þóttu athugaverð í bók-
haldi Milestones á árunum 2007 til
2009. Tilgangurinn var að benda
Jóhannesi og mögulega væntanleg-
um skiptastjóra þrotabúsins á atriði
sem gætu þarfnast frekari skoðun-
ar. Óeðlilegt þótti að Milestone væri
að greiða skatta föður eigendanna
því undir eðlilegum kringumstæð-
um ætti slíkt að vera eignarhaldsfé-
laginu óviðkomandi. „Það er sann-
arlega ekki hlutverk Milestones að
ganga í þessi mál fyrir Werner,“ seg-
ir heimildarmaður DV sem þekkir
vel til starfsemi félagsins.
Af einhverjum ástæðum var það
hins vegar Milestone sem greiddi
skattauppgjör Werners. Spurningin
er hvort þessi gerningur sé riftanleg-
ur samkvæmt gjaldþrotalögum en
Werner telst nákominn þeim Karli
og Steingrími samkvæmt skilningi
gjaldþrotalaga og því er mögulegt
að hægt sé að rifta honum.
Riftanlegir gerningar
Gerningurinn er einn af fjölmörg-
um í viðskiptasögu Milestones
sem Jóhannes Albert telur vera
riftanlega í skýrslu um starfsemi
Milestones sem hann kynnti fyr-
ir kröfuhöfum félagsins í byrjun
mánaðarins. Í skýrslu Jóhannesar
er mestu púðri eytt í að ræða um
tilfærslu eigna Milestones yfir til
Moderna Finance árið 2008, meðal
annars á Sjóvá og Askar Capital.
Eins og hann rekur í skýrslunni
áttu viðskiptin með eignir Mile-
stones sér stað á milli félaga sem
voru í eigu Milestones og því hafi
eigendur Milestones verið að koma
eignum frá félögum sem þeir áttu
og yfir í önnur félög sem einnig voru
í þeirra eigu. „Það er því mat um-
sjónarmanns að eignir Milestones
hafi verið færðar undan félaginu án
raunverulegs endurgjalds og að um
gjafagerning í skilningi 131 gr. hafi
verið að ræða milli nákominna að-
ila. Slík ráðstöfun er riftanleg nema
leitt sé í ljós að skuldari hafi verið
gjaldfær og það þrátt fyrir afhend-
ingu gjafarinnar,“ segir Jóhannes í
skýrslunni.
Werner kannast
ekki við málið
Werner Rasmusson segist að-
spurður ekki kannast við greiðsl-
una frá Milestone og að hann hafi
ekki heyrt af því að gerð hafi verið
athugasemd við færsluna í skýrslu
Ernsts og Youngs. „Ég get ekki svar-
að þessu. Ef þig vantar einhverj-
ar svona upplýsingar er það helst
endurskoðandinn minn því ég færi
ekki mína reikninga sjálfur. Ég hef
ekki verið í neinum viðskiptum við
Milestone eða verið tengdur Mile-
stone sem slíku og veit þar af leið-
andi ekki hvað er um að ræða,“ seg-
ir Werner.
Skiptastjóri þrotabús Mile-
stones, Grímur Sigurðsson, mun
á næstunni þurfa að taka afstöðu
til þess hvort hann muni rifta ein-
hverjum af þeim gerningum sem
rætt er um í skýrslum Ernsts og
Youngs og Jóhannesar Alberts.
Eins mun hann þurfa að taka af-
stöðu til þess hvort forsendur séu
fyrir málshöfðunum á hendur eig-
enda Milestones vegna þess hvern-
ig þeir stýrðu félaginu. En reiknað
er með því að kröfuhafarnir fái ein-
ungis sex prósent upp í kröfur sínar
því eignirnar eru einungis 5 millj-
arðar á móti 80 milljarða skuldum.
Samkvæmt heimildum DV munu
kröfuhafarnir alfarið láta skipta-
stjórann meta hvort höfða eigi mál
gegn Karli og Steingrími vegna við-
skipta Milestones og þeirra fjár-
muna sem þeir munu þurfa að af-
skrifa hjá sér út af stöðu félagsins.
MILESTONE BORGAÐI
SKATTA FYRIR WERNER
„Það er sannarlega
ekki hlutverk Mile-
stones að ganga í þessi
mál fyrir Werner.“
IngI F. VIlhjálMSSon
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
8,5 milljónir vegna skattauppgjörs
Werner Rasmusson segist ekki kannast
við greiðslu Milestones á 8,5 milljóna
skattauppgjöri fyrir hann árið 2007.
Steingrímur Wernersson Í skýrslu Ernsts og Youngs um
viðskipti eignarhaldsfélags Steingríms og Karls bróður
hans er bent á fjölmörg atriði sem þykja athugaverð.
Milestone til ítarlegrar rannsóknar Eignarhaldsfélagið
Milestone er nú til ítarlegrar rannsóknar hjá sérstökum
saksóknara efnahagshrunsins, Ólafi Haukssyni, auk þess sem
skiptastjóri þrotabús félagsins þarf að taka afstöðu til þess
hvort viðskiptagerningum þess verði rift.
„BEINAR hóTANIR uM OFBELdI“
vélar auk þess sem Ragn-
ar hefði fengið upptökutæki
svo hann gæti tekið upp sam-
töl og símtöl. Undir þetta tók
Ingi Ragnar Ingason, þáver-
andi framleiðandi þáttanna, í
vitnisburði sínum. Vilhjálm-
ur tók þá fram gögn um vitn-
isburð hans í sakamáli sem
höfðað var gegn Benjamín þar
sem hann hefði sagt að Ragn-
ar hefði verið sjö sinnum með
falda myndavél, sagði Ingi þá
að hann teldi 2 til 3 skipti vera
nær lagi.
Félagi hjá löggunni
Fram kom að Ingi hafði daginn
fyrir myndatökurnar við hafn-
arvigtina reifað það óformlega
við „gamlan félaga sem vinnur
hjá lögreglunni“ hvort lögregl-
an gæti átt einhverja aðkomu
að þessu máli en ekkert orðið
af því. Þegar Vilhjálmur spurði
hver þessi gamli félagi væri og
hvað hann gerði kom svarið:
„Hann heitir Stefán Eiríksson
og starfar sem lögreglustjóri
höfuðborgarsvæðisins.“
Ragnar og Annþór
Síðasta vitnaheyrslan var sú
sem vitnað var til hér í upphafi,
vitnaheyrsla gegnum síma yfir
Ragnari Magnússyni. Sá vitn-
isburður var að mestu í sam-
ræmi við vitnisburð annarra í
málinu en undir lokin fékk Vil-
hjálmur svör við spurningum
sem hann virtist hafa leitað
eftir um nokkurt skeið.
Vilhjálmur: Þekkirðu Ann-
þór Kristin Karlsson? Eruð þið
vinir?
Ragnar: Já, við erum kunn-
ingjar.
Vilhjálmur: Hefur Annþór
handrukkað fyrir þig?
Ragnar: Aldrei nokkurn
tíma.