Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2009, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2009, Blaðsíða 26
Miðvikudagur 30. september 200926 suðurland Vatnsfimi - líkams- og heilsurækt í vatni • Morgun- og kvöldhópar • Meðgönguhópur • Gigtarhópur • Eldri borgarahópu Gönguhópur – Vatns og heilsu • Göngu- og styrktarþjálfun og fjallgöngur Kerrupúl • Nýtt á Selfossi. Elísabet Kristjánsdóttir – íþróttafræðingurSigrún Hreiðarsdóttir – íþróttafræðingur Ásdís Björg Ingvarsdóttir – íþróttafræðingur Sjá tímatöflu og nánari upplýsingar inná www.vatnogheilsa.is Vatn og heilsa býður uppá Elfar Guðni Þórðarson er einn þeirra listamanna sem hafa komið sér fyrir í gamla frystihúsinu á Stokkseyri. „Þetta er í senn vinnuaðstaðan mín og sýn- ingarsalurinn,“ segir Elfar, sem undan- farin ár hefur helgað sig myndlistinni einvörðungu. „Hérna áður kenndi ég hérna og var til sjós.“ Elfar segir myndlistaráhugann hafa kviknað á áttunda áratugnum. „Það var í rauninni með kynnum mínum af Steingrími St. Th. Sigurðssyni listmál- ara sem bjó hérna um skeið. Reyndar má segja að ég hafi kannski ekki skil- ið list Steingríms fyllilega í upphafi, en þegar fram liðu stundir fékk ég meiri innsýn í list hans. Við áttum svo eft- ir að vinna mjög mikið og náið saman við Steingrímur og fórum margar ævin- týraferðir saman.“ Þegar hann hafi svo byrjað sjálfur að mála hafi ekki verið aftur snúið. „Senni- lega ruglaðist ég bara gjörsamlega.“ Miðhæðin í frystihúsinu Elfar festi kaup á miðhæðinni í frysti- húsinu og hefur verið þar með sína aðstöðu ásamt dætrum sínum tveim- ur. „Það hefur orðið aukin áhersla á listir og menningu hérna á staðnum á síðustu árum. Það eru fleiri listamenn í húsinu auk þess sem Sjöfn Har er með sinn sýningarsal og vinnuaðstöðu hér í næsta húsi.“ Á Stokkseyri er einnig að finna orgelsmíðaverkstæði. „Áhersl- urnar hafa kannski breyst með minni sjósókn, en það er vert að halda því til haga að það er ennþá fiskvinnsla hér í hluta hússins. En hér er líka Drauga- safnið til húsa, fyrir handan eins og það er nefnt.“ Elfar er ánægður með aðsóknina í sumar. „Ég hef að jafnaði opið hérna um helgar og svo hef ég reynt að hafa opið alla daga yfir sumartímann og einnig þegar ég er með sýningar yfir vetrartímann.“ Hann segist hafa orðið var við aukna aðsókn. „Eins og reynd- ar flestir sem starfa í grennd við ferða- þjónustuna hafa fundið.“ illviðrið við höfnina Eitt af fyrstu málverkunum sem Elfar málaði blasir við þegar gengið er inn í salinn. Þetta er mynd af gríðarlegu illviðri í Stokkseyrarhöfn, bátar eru á víð og dreif og briminu skolar yfir. „Þetta veður gekk yfir árið 1977. Þá var ég með vinnuaðstöðu þar sem veit- ingastaðurinn Í fjöruborðinu er núna til húsa. Veðrið geisaði hér beint fyrir utan. Fjórir bátar slitnuðu frá bryggju, einn þeirra endaði hreinlega uppi á bryggju og þrír röðuðu sér hér niðri í fjöru.“ Elfar segist reyndar gjarnan mála hafið og hið ægifagra Þjórsár- hraun sem rann til sjávar á svæðinu. Mikill meirihluti verka Elfars er olíumálverk. „Ég hef þó notast við akrýlmálningu og vatnsliti þegar ég er að ferðast.“ aftur að steingríMi „En aftur að Steingrími St. Th. Sig- urðssyni í Roðgúl, hann kom eins og stormsveipur inn í frekar rólegt samfélag sem Stokkseyri var. Ég var á þessum tíma að vinna við smíðar í frystihúsinu og einn daginn sá ég þennan nýja mann í Roðgúl vera að mála úti og það gekk mikið á. Ég var nú frekar feiminn og heimóttarlegur en eitthvað gaf ég mig að honum því mig langaði að sjá hvað hann væri að gera og hvernig myndir hann mál- aði.“ „Það er skemmst frá því að segja að þetta fannst mér eitthvað skrítið, mikið af litum úti um allt og allt var þetta gert með tilþrifum. Kannski fannst mér þetta ekki nógu gott eða flott og akkúrat á þessum tímapunkti ákvað ég að prófa að mála mynd,“ segir Elfar. sigtryggur@dv.is Elfar Guðni Þórðarson myndlistarmað- ur hefur hreiðrað um sig á miðhæð gamla frystihússins á Stokkseyri með vinnuað- stöðu og sýningarsal. Húsið gengur undir nafninu Menningarverstöð. Enn er fisk- vinnsla í hluta hússins. steingríMur í roðgúl aðaláhrifavaldurinn Gamla stúdíóið Á vinnustofunni í frysti- húsinu hefur Elfar komið fyrir sinni fyrstu vinnustofu, smárri í sniðum. mynd SIGTRyGGUR Sýningarsalurinn Elfar við eitt verka sinna. Glerlist Dóttir Elfars, Valgerður Þóra, er einnig með vinnuað- stöðu og sýningarsal í húsinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.