Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2009, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2009, Qupperneq 8
Sandkorn n Framsóknarmenn í Suðvest- urkjördæmi komu saman til fundar á dögunum til þess að ræða framboðsmál og uppstill- ingu í stóru sveitarfélögunum innan kjördæmisins fyrir sveit- arstjórn- arkosn- ingarnar næsta vor. Þar ræddi Siv Frið- leifsdóttir stórnmála- ástandið og þingstörfin við nærstadda. Siv hefur setið á þingi síðan 1995 og er því með reyndari þingmönnum. Hún hafði á orði að þinghaldið væri mjög sérkennilegt um þessar mundir. Hún hefði ekki kynnst jafnmikilli reiði og rifrildi innan þingsins og á göngum Alþingis og nú. Það ætti ekki aðeins við um átök stjórnar- andstæðinga við stjórnarliða heldur einnig átök milli flokks- manna. Ekki er víst að áform um persónukjör muni bæta móralinn innan þingflokkanna. n Karl Sigurbjörnsson biskup er í erfiðri stöðu. Stutt er síðan hann gerði starfsloka- samning við séra Gunnar Björnsson, sem myndi jafnvel hæfa helstu læri- sveinum Mamm- ons. Nú hefur Héraðsdómur Reykjavíkur dæmt séra Sigríði Guðmarsdóttur rúmar 1,6 milljónir króna í bætur vegna brota á jafnréttislögum. Sigríð- ur sótti árið 2003 um embætti sendiráðsprests í Lundún- um en laut í lægra haldi fyrir Sigurði Arnarsyni, tengdasyni biskupsins, sem var skipaður. Dómurinn úrskurðaði að kirkj- an yrði að greiða séra Sigríði 1,5 milljón krónur í bætur. Nú velta menn fyrir sér ábyrgð bisk- ups í málinu, standi dómurinn óhaggaður, og hvernig hann muni axla hana. n Nokkur áhugi virðist vera meðal fjárfesta á verslanakeðj- unni Nóa- túni sem er í eigu Kaupáss. Þannig setti verð- bréfafyrir- tækið Arev sig í sam- band við Kaupás fyrir nokkru og lýsti yfir áhuga á að kaupa verslanakeðj- una út úr Kaupási, sem rekur meðal annars einnig Krónuna. Kaupás lét Arev fá gögn um verslanakeðjuna en ekkert varð af frekari viðræðum um kaup- in enda segja forsvarsmenn Kaupáss að verslanirnar séu ekki til sölu. Athygli vekur hins vegar að einn af starfsmönn- um Arev, Jón Scheving, er fyrrverandi starfsmaður Baugs og Hagkaupa og þótti sum- um það sérstakt að fyrirtæki, sem fyrrverandi starfsmaður helsta samkeppnisaðila Kaup- áss starfar hjá, lýsti yfir áhuga á Nóatúni. 8 föstudagur 30. október 2009 fréttir helgi á Korputorgi um helgina. Gildir ekki í Bónus. stofnfjáreigendur sKuLdsettu BÖrn sín Gylfi Magnússon, efnahags- og við- skiptaráðherra, undrast lánveitingar Glitnis til ófjárráða einstaklinga, en eins og fram kom í Viðskiptablaðinu á fimmtudag, lánaði Glitnir í einu til- felli 6 milljónir króna til 12 ára barns. Barnalán Glitnis voru ætluð til kaupa á stofnfjárbréfum í Byr sparisjóði þeg- ar hlutafjáraukning bankans fór fram árið 2007. „Það blasir við að þetta eru mjög sérkennilegar lánveitingar, svo ekki sé dýpra í árinni tekið. Það gefur augaleið að þetta vilja menn ekki sjá aftur,“ segir Gylfi. Aðspurð- ur hvort hann muni beita sér fyrir því að þessi barnalán Glitnis verði skoð- uð frekar, segir Gylfi: „Ef það kemur í ljós að það er brotalöm í kerfinu sem leyfir þetta þarf að loka henni. Þetta er mjög sérkennilegt og athygli okkar er vakin á þessu. Við munum athuga hvort þetta krefst nánari skoðunar.“ Foreldrar barnanna höfðu í öllum tilfellum frumkvæði að því að börn þeirra tækju milljóna króna lán. Leiksoppar í valdabaráttu Samkvæmt heimildum DV voru for- eldrar barnanna sem fengu lánin sjálfir stórir stofnfjáreigendur í Byr. Hver stofnfjáreigandi mátti hins veg- ar aðeins kaupa ákveðið mörg stofn- fjárbréf, en í kringum útboðið sem fram fór árið 2007 stóð valdabar- átta stofnfjáreigenda sem hæst. Lán Glitnis til barnanna voru því hluti af valdabaráttu foreldra þeirra sem skuldsettu börnin sín um milljón- ir til þess að komast yfir stærri hlut í sparisjóðnum og notuðu þeir kenni- tölur barnanna sinna til þess. Heimildir DV herma að einhver barnanna komi úr fjölskyldum sem tengjast eignarhaldsfélaginu Saxhóli. Saxhóll var fjárfestingaarmur Nóa- túnsfjölskyldunnar svokölluðu sem seldi Nóatúnsverslanirnar til Kaup- áss árið 2000. Félagið var í eigu barna Jóns Júlíussonar, fyrrverandi eiganda Nóatúns. Stærsta eign félagsins var 7,5 prósent hlutur í BYR og var eitt af börnum Jóns Júlíusar, Jón Þorsteinn Jónsson, stjórnarformaður í spari- sjóðnum þar til í mars á þessu ári. Saxhóll lagði fram beiðni um gjaldþrotaskipti fyrr í mánuðinum. Dætur Jóns Þorsteins stofnfjáreigendur Þrjár dætur Jóns Þorsteins eru skráð- ir stofnfjáreigendur í BYR. Eignar- hlutar þeirra voru keyptir fyrir upp- hæðir á bilinu 4 til 14 milljónir króna. Þær eru á aldrinum fjögurra og upp í sautján ára gamlar í dag. Ekki er hins vegar vitað hvort dæt- ur Jóns eru meðal þeirra sem tóku lán fyrir stofnfjárhlutunum hjá Glitni á sínum tíma en staðfest er að þær eru stofnfjáreigendur. Hvernig kaup þeirra á stofnfjárhlutunum voru fjármögnuð er því ekki vitað að svo stöddu. DV náði ekki í Jón Þorstein á fimmtudaginn til að spyrja hann út í málið en hann er búsettur í Bretlandi um þessar mundir. Heimildir DV herma jafnframt að þrjú af börnunum tíu sem voru ólög- ráða þegar lánin voru veitt séu orðin lögráða í dag. Einungis sjö af börn- unum tíu eru því enn ólögráða. Sýslumaður gerði athuga- semdir við lánveitingarnar Á sínum tíma, árið 2007, gerði sýslu- maðurinn í Reykjavík athugasemdir við það að foreldarnir skyldu skuld- setja börnin sín, án þess að hafa feng- ið samþykki fyrir því hjá yfirlögráð- anda, það er að segja sýslumani. En til þess að geta skuldsett börnin sín á þennan hátt þarf samþykki sýslu- manns að liggja fyrir. Foreldrarnir virtu athugasemdir sýslumanns hins vegar að vettugi og skuldsettu börnin sín samt, samkvæmt heimildum DV. Sýslumaðurinn í Hafnarfirði samþykkti hins vegar að skrá mætti stofnfjárbréfin á börn, en að skýrt var tekið fram að ekki mætti lána börnunum til kaupa á bréfunum. Ragnar Z. Guðjónsson, spari- sjóðsstjóri Byrs, segir að Byr hafi ekki komið að lánveitingunum að öðru leyti en því að samið hafi verið við Glitni um að veita lánafyrirgreiðsl- una fyrir stofnfjáraukningunni á ákveðnum forsendum en stofnfjár- eigendurnir hafi svo getað ákveðið hvort þeir tækju lán frá Glitni eða ekki. Hann segir því að það sé Byrs að svara fyrir lánveitingarnar til barnanna. Lánin í krónum og erlendri mynt Í svari Íslandsbanka við fyrirspurn DV, kemur fram að í heildina hafi tíu ólögráða einstaklingar fengið slík lán og að flest þeirra hafi verið í íslensk- um krónum. Kjörin á lánunum mið- uðust við hefðbundna REIBOR-vexti að viðbættu 3 prósenta vaxtaálagi bankans. Í þeim tilfellum sem lánin voru að hluta til eða að fullu í erlendri mynt miðuðust kjörin við LIBOR-vexti nema lánshluti væri í evrum en þá miðuðust kjörin við EURIBOR-vexti. Vaxtaálag bankans var í báðum til- fellum 3 prósent þar ofan á. Ákvörð- un um myntsamsetningu var tekin af foreldrum eða forráðamönnum barnanna. Síðan Íslandsbanki tók lánin yfir vegna neyðarlaganna hefur ekkert þeirra verið sent til innheimtu þar sem bankinn hefur haft þau til skoð- unar. Samkvæmt svari Íslandsbanka liggur heildarupphæð barnalánanna ekki fyrir. Kaupþing lánaði ekki DV leitaði upplýsinga hjá hinum stóru bönkunum, Kaupþingi og Lands- banka, um hvort þeir hafi veitt slíkt lán. Í svari Kaupþings kemur fram að engin slík lán hafi verið veitt, en ekki hefur borist svar frá Landsbankan- um. Í tilkynningu frá Íslandsbanka kemur fram að þar sem samþykki yfir- lögráðanda fyrir lánveitingunum hafi skort teljist umræddir lánasamningar ógildir og mun Íslandsbanki því ekki innheimta skuldina hjá viðkomandi lántökum, það er að segja börnunum tíu. Málinu telst því væntanlega lokið af hálfu Íslandsbanka. Glitnir lánaði 10 börnum milljónir króna árið 2007 fyrir kaupum á stofnfjárbréfum í Byr. Foreldrar barnanna voru sjálfir stórir stofnfjáreigendur og skuldsettu börnin sín til þess að komast yfir stærri hlut í sparisjóðnum. Leyfi lá fyrir hjá sýslumanni að skrá bréfin á börnin en ekki mátti lána þeim fyrir kaupum á þeim. Gylfi Magnússon segir lánveitingarnar mjög sérkennilegar. „Það blasir við að þetta eru mjög sérkennilegar lánveitingar, svo ekki sé dýpra í árinni tekið. Það gefur augaleið að þetta vilja menn ekki sjá aftur.“ Dæturnar stofnfjáreigendur Þrjár af dætrum Jóns Þorsteins Jónssonar, fyrrverandi stjórnarformanns í Byr, eru skráðir stofnfjáreigendur í Byr fyrir upphæðir á bilinu 4 til 14 milljónir króna. Heimildir DV herma að foreldrar skuldsettu barnanna séu stofnfjáreig- endur í Byr. Gylfi Magnússon „Ef það kemur í ljós að það er brotalöm í kerfinu sem leyfir þetta þarf að loka henni.“ Íslandsbanki Lánin verða ekki innheimt, en Glitnir lánaði börnum stofnfjáreigenda fyrir kaupum á bréfunum. Kaupin voru hluti af valdabaráttu foreldra þeirra um Byr. InGI F. VILhJáLMSSon oG VaLGEIR ÖRn RaGnaRSSon blaðamenn skrifa: ingi@dv.is og valgeir@dv.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.