Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2009, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2009, Blaðsíða 10
ERLEND LÁN HAFA EKKI HÆKKAÐ 10 föstudagur 30. október 2009 fréttir Guðmundur Andri Skúlason, for- maður Hagsmunasamtaka lánþega Frjálsa fjárfestingarbankans, HLF, keypti íbúð í Kópavogi ásamt konu sinni haustið 2007. Þau tóku um tut- tugu milljóna króna lán í jenum og frönkum hjá Frjálsa fjárfestingabank- anum en skulda nú samkvæmt kröfu frá bankanum um fimmtíu milljónir. Guðmundur hefur farið banka á milli og skoðað veðskuldabréf fyrir lán í erlendri mynt. Hann telur að hægt sé að túlka þau þannig að lántakend- ur skuldi höfuðstólinn í íslenskum krónum en ekki margfalt meira í er- lendri mynt eins og raunin er í dag. Höfuðstóllinn ætti því ekki að breyt- ast eftir gengissveiflum. Skuldar 20 - ekki 50 „Á veðskuldabréfinu viðurkenni ég að ég skulda Frjálsa fjárfestingar- bankanum jafnvirði tuttugu milljóna króna í íslenskum krónum í eftirtöld- um myntum og hlutföllum. Þannig að ég skulda þeim samkvæmt þessu bara mismunandi mikið af jenum og frönkum sem eru alltaf jafnvirði tut- tugu milljóna. Ég er búinn að lesa smáa letrið og láta lögfræðinga kíkja á þetta sem taka undir þessa túlkun mína. Það er nákvæmlega eins hjá Kaupþingi, Landsbankanum, Byr og í einhverjum tilfellum hjá Spron og Íslandsbanka. Stærsti hluti þessara lána er svona,“ segir Guðmundur. Skuldarar í góðum málum Fjölmörg heimili, fyrirtæki og sveit- arfélög í landinu tóku lán í erlendri mynt. Með þessari túlkun á veð- skuldabréfum þarf ekki að afskrifa lánin að sögn Guðmundar. Þau veita fjölmörgum Íslendingum líka von á þessum erfiðu tímum. „Þeir sem tóku erlend lán með þessum skilmálum eru í góðum mál- um. Ef þetta fer í gegn get ég lofað þér því að bankarnir fara á hausinn. Mér er alveg sama því bankarnir eru búnir að níðast á okkur, brjóta okkur niður og rukka okkur langt umfram það sem þeir hafa heimild til. Þetta eru kennitöluflakkarar aldarinnar um heim allan og síðan er sagt að við séum þeir sem eiga ekki að bruðla og kaupa flatskjá. Við verðum bara að borga. En skuldarar erlendra lána skulda ekki meira en þeir tóku að láni. Það er klippt og klárt nákvæm- lega þannig.“ Íslenska upphæðin stendur í stað „Það er tilgreint á veðskuldabréfinu að höfuðstóllinn taki breytingum eftir gengi. Þeir reyna alltaf að segja að upphaflega lánið sé erlent og því hljóti höfuðstóllinn að vera erlendur. Þannig að erlenda upphæðin hlýtur að taka breytingum miðað við gengi sem segir enn fremur að íslenska upphæðin stendur í stað,“ segir Guð- mundur. Hann segir úrræði frá rík- isstjórninni fyrir lántakendur ekki hjálpa til. „Það sem mér finnst sorglegt í þessu er að núna er sagt við neyt- endur að þeir þurfi að skrifa undir greiðsluúrræði. Lánin þeirra lengjast um þrjú ár í mesta lagi og afborganir erlendra lána miðast við maí 2008, en gert er ráð fyrir að höfuðstóll standi óbreyttur. Ég stend ekkert undir því. Þá get ég ekki selt, ég get ekki skilið, ekki dáið, ég get ekkert. Ég er bara í vistarböndum.“ Kerfið þarf að hrynja Guðmundur hefur sent bréf á alla ráðherra og þingmenn með þess- ari túlkun sinni. Einnig hefur hann pantað fund með öllum bankastjór- um. Hann fékk svar frá þremur þing- mönnum, Ragnheiði Ríkharðsdótt- ur, Margréti Tryggvadóttur og Eygló Harðardóttur. Enginn bankastjóri hefur svarað. „Mér finnst þetta dæmigert og lýsandi fyrir stjórnsýsluna á Íslandi. Það áhuga- og metnaðarleysi sem þessir ráðamenn hafa gagnvart al- menningi í landinu. Þau þurfa ekki að hugsa um okkur nema á fjögurra ára fresti. Þess á milli þurfa þau að standa sig stanslaust í vinnunni fyr- ir peningum sem fjármagna aug- lýsingarnar á fjögurra ára fresti. Til að endurnýja Ísland þarf kerfið að hrynja. Þetta er fyrsta skrefið. Niður með þessa banka. Viðurkennið að við höfum ekki efni á að borga þessar erlendu skuldir.“ Guðmundur hvetur enn fremur viðskiptavini Lýsingar, Avant og SP- fjármögnunar til að kynna sér skil- mála lána. Hann hafði samband við fulltrúa á lögfræðisviði Lýsingar sem gaf honum þau svör að fyrirtækið hefði ekki áhyggjur því almenningur hefði ekki samtakamátt til að standa á móti þeirra túlkun. „En skuldarar erlendra lána skulda ekki meira en þeir tóku að láni. Það er klippt og klárt nákvæmlega þannig.“ lilja KatrÍn gunnarSdóttir blaðamaður skrifar liljakatrin@dv.is lánunum fylgir sálarangist Í hvert skipti sem guðmundur tjáir sig í fjölmiðlum hringir í hann fjöldi fólks sem er í sömu stöðu. n „Fólk hefur hringt í mig og viðurkennt fyrir mér að það skuldi líka, svona eins og það sé eitt í heiminum um að skulda. Þetta er tabúið. Það þorir enginn að stíga fram og segja: „Ég skulda sextíu milljónir. Ég er gjaldþrota. Ég get ekkert gert en bankinn er að svína á mér.“ Og ríkisstjórnin stendur á bak við þessa aðila og er að hjálpa þeim að kroppa af mér allar mínar framtíðartekjur,“ segir Guðmundur. Hann er sjálfur hamingjusamlega kvæntur en þekkir mörg dæmi þess að erlendu lánin neyði fólk, sem búið er að skilja, til að búa saman. n „Ég veit um nokkur dæmi þar sem hjón, sem eru skilin, neyðast til að búa í litlu þriggja herbergja íbúðinni sinni. Með tilheyrandi afleiðingum fyrir börnin. Ef þetta fólk sæi fram á það að það skuldaði ekki fjörutíu milljónir í tuttugu milljóna króna íbúðinni sinni heldur bara fimmtán þá opnast allt í einu raunhæfur möguleiki fyrir það að selja hana. Eða fyrir annan aðilann að yfirtaka lánið og hinn að flytja út. Þar af leiðandi er búið að bjarga einni fjölskyldu og börnunum frá tilheyrandi sálarangist.“ Skuldaþjóðin n 70% útlána til fyrirtækja og eignarhaldsfélaga eru gengisbundin lán. n 44% fyrirtækja eru með gengisbundin lán n 11,5% heildarútlána til fyrirtækja voru tekin af sjávarútvegsfyrirtækjum og eru 95% þeirra lána gengisbundin n 40.414 manns eru með bílalán í erlendri mynt að öllu leyti eða að hluta n Bílalán í erlendri mynt nema samtals 115 milljörðum n Gengisbundin skuldabréf til heimila voru 315 milljarðar í lok september. 107 milljarðar af því voru skilgreindir sem erlend húsnæðislán. n 20% húsnæðislána hjá viðskiptabönkunum þremur voru í vanskilum eða ekkert greitt af þeim í lok ágúst. Skuldar bara tuttugu milljónir Samkvæmt túlkun Guðmundar skulda þau hjónin bara tuttugu milljónir, ekki fimmtíu. Höfuðstóllinn er íslenskur og ekki háður gengissveiflum. Skuld lántakenda er- lendra lána hefur ekki margfaldast síðustu mánuði heldur skulda þeir bankanum ís- lenskar krónur - sömu upphæð og árið 2007. Þetta segir guðmund- ur andri Skúlason, formaður HLF. Sam- kvæmt túlkun hans er höfuðstóll erlendra lána íslenskur og ætti því ekki að breytast eftir gengissveiflum. Von fyrir lántakendur Samkvæmt túlkun Guðmundar er hægt að bjarga fjölmörgum einstaklingum, fyrirtækjum og sveitarfélögum í landinu. Mynd: Heiða Helgadóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.