Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2009, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2009, Blaðsíða 31
helgarblað 30. október 2009 föstudagur 31 Illdeilur séra Gunnars KLOFIN KIRKJA Deilan innan Fríkirkjunnar í Reykjavík á 9. áratug síðustu aldar er eitt stærsta deilumál kirkjusafnaða hér á landi. Lengi vel var kirkjan algjörlega klofin milli tveggja andstæðra fylkinga. Þá gegndi Gunnar Björnsson embætti sóknarprests Fríkirkjunnar og þegar á leið fékk meirihluti sóknarnefndarinnar sig fullsaddan af séra Gunnari og eiginkonu hans Ágústu. Heimildir DV herma að hún hafi orðið nokkuð ágeng í kórstarfi kirkjunnar og hafi viljað ein komast að öllum söng sem þar færi fram. Þannig tók hún fram fyrir hendurnar á organista kirkjunnar og öllum kirkjuhöldurum. Á endanum leysti safnaðarstjórnin Gunnar frá störfum vegna samstarfsörðugleika. Reyndar var honum tvívegis sagt upp. Fyrst í september 1985 en mánuði síðar var hann endurráðinn eftir að hafa gert samkomu- lag um að bæta ráð sitt. Rúmu hálfu ári síðar taldi safnaðarstjórnin séra Gunnar hafa brotið gegn samkomulaginu og að samstarfsörðugleikarnir hefðu verið orðnir það miklir að stjórnin ætti ekki annarra kosta völ en að víkja honum aftur úr starfi. Stjórnin samþykkti brottvikninguna með fimm atkvæðum gegn tveimur. Upp frá þessu klofnaði kirkjan í tvær fylkingar, stuðningsmenn stjórnarinnar og stuðningsmenn séra Gunnars. Á tímabili var rætt um að skipta söfnuðinum upp í tvo söfnuði. Kvenfélag Fríkirkjunnar studdi stjórnina heilshugar og ályktaði gegn stuðningsmönnum prestsins sem konurnar sögðu ósmekklega aðför að stjórninni. Blásið var til safnaðarfundar þar sem meirihluti, 376 atkvæði gegn 313, lýsti yfir vantrausti á safnaðarstjórnina og séra Gunnar fagnaði. Síðar boðaði safnaðarstjórnin til annars fundar þar sem fram fór atkvæðagreiðsla um brottvikninguna. 967 fundarmenn studdu hana, 26 voru á móti og 29 skiluðu auðum seðli. Á kjörskrá voru liðlega 4 þúsund manns og séra Gunnar lýsti yfir vonbrigð- um með að svo margir hefðu kosið gegn presti sínum. Gunnar kom nokkru síðar að læstum dyrum í Fríkirkjunni. Safnaðarstjórnin fagnaði sigri og leit svo á að deilunni væri lokið. Svo var nú aldeilis ekki. Séra Gunnar réð sér lögmann sem leitaði til fógeta í þeirri von að ógilda brottvikninguna. Sú varð ekki raunin og fógeti heimilaði útburð prestsins úr prestsbústað Fríkirkjusafnaðarins við Garðastræti. Eftir hatramm- ar deilur, sem meðal annars fóru fram á síðum dagblaða, yfirgaf Gunnar Fríkirkjuna í Reykjavík. BAÐST AFSÖKUNAR 17. ágúst 1989, rúmu ári eftir deiluna í Fríkirkjunni, var séra Gunnar Björnsson ráðinn sem prestur í Holti í Önundarfirði. Lengi vel var hann vel liðinn í starfi en áratug síðar komu upp deilur milli hans og sóknarbarna sem enduðu á því að nokkur þeirra kærðu hann fyrir erfiðleika í samskiptum og brot í embætti. Á almennum safnaðarfundi var samþykkt að veita Gunnari tímabundið leyfi frá störfum og deilunni var vísað til áfrýjunarnefndar Þjóðkirkjunn- ar. Gunnar sagði misklíðina við sóknarbörnin hafa komið sér fullkomlega í opna skjöldu og benti á að um fáa óánægða einstaklinga væri að ræða. Um þessa óánægðu einstaklinga ritaði séra Gunnar bréf og sendi til prófastsins. Þetta bréf kom fyrir sjónir almennings og var meðal annars birt á netinu nokkru síðar. Það er einkum þetta bréf sem varð til þess að Gunnar hlaut skammir fyrir. Sjálfur hefur hann lýst yfir eftirsjá vegna bréfaskrifanna og sagði bréfið ekki hafa verið ætlað til birtingar. Fyrir utan hin særandi bréfaskrif, þar sem hann líkti sóknarbörnum sínum við Amish-fólk, var prestinum gert að sök að hafa greint óviðkomandi frá trúnaðarsamtali við sóknarbarn og að hafa farið út fyrir velsæmismörk í ræðu sinni í kirkjunni. Deilan endaði með því að Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, áminnti Gunnar, í mars árið 2000, fyrir framkomu sem honum þótti ósamrýmanleg því embætti sem presturinn gegndi. Í sérstöku bréfi biskups til Gunnars mælti biskup fyrir um ákveðna háttsemi og framgöngu og kvaðst gera það vegna þjáninga og sorgar sem hann hefði valdið sóknarbörnum sínum í Holti. Karl gaf Gunnari kost á því að bæta ráð sitt en færði hann úr starfi sem prestur í Holtskirkju og yfir í sérverkefni á vegum Þjóðkirkjunnar. Það gerði Karl biskup eftir úrskurð þess efnis frá áfrýjunarnefnd kirkjunnar. Biskupi barst síðar afsökunarbeiðni frá séra Gunnari: „Ég undirritaður, Gunnar Björnsson, sérþjónustuprest- ur, bið fyrrverandi sóknarbörn mín í Holtspresta- kalli, sem og aðra þá sem ég kann að hafa brotið gegn, afsökunar. Sóknarbörnum í Holtsprestakalli bið ég blessunar Guðs.“ SÝKNAÐUR AF ÁKÆRUM Þrjár ungar stúlkur, allar undir 18 ára aldri, kærðu séra Gunnar, sóknarprest í Selfosskirkju, fyrir kyn- ferðisbrot gegn þeim. Þegar ákærur voru gefnar út gegn prestinum bað hann um leyfi frá störfum og í því leyfi var hann í tvö ár á meðan málið var afgreitt, fyrst í héraðsdómi og síðar Hæstarétti. Hann var sýknaður á báðum dómstigum. Engu að síður var það viðurkennt fyrir dómi að séra Gunnar hefði strokið, kysst og leitað sér huggunar hjá ungum sóknarbörnum sínum. Af ákærum um kyn- ferðisbrot var hann sýknaður en síðar úrskurðaði úrskurðarnefnd kirkjunnar gegn Gunnari; þar var skýrt kveðið upp að presturinn hefði brotið gegn siðareglum presta með hegðun sinni. Málið hefur valdið deilum meðal safnaðarins og er talið að hann sé klofinn í tvær fylkingar. Sóknar- nefndin sjálf, með Eystein Jónasson formann í broddi fylkingar, krafðist þess að Gunnar fengi ekki að snúa til baka, það var gert bréfleiðis til biskups, og fékk vilja sínum framgengt. Biskup Íslands gaf út skýr fyrirmæli, meðal annars til sóknarprestsins sem leysti séra Gunnar af hólmi, um að Gunnar fengi ekki að sinna embættisverkum við Selfosskirkju á meðan málarekstur gegn honum stæði yfir. Engu að síður varð presturinn uppvís að því að sinna útför í óþökk biskups áður en lyktir málsins voru ljósar. Þá sóttist hann síðar eftir því að fá að jarðsyngja gamlan vin sinn í Selfosskirkju en fékk neitun frá sóknarprestinum og biskupi. Leyfi séra Gunnars frá störfum sóknarprests í Selfosskirkju lauk á 65 ára afmælisdegi hans en þá tilkynnti biskup að hann yrði færður til í starfi. Bréf þess efnis endursendi Gunnar til biskups og hefur fram til þessa neitað að hlýða fyrirmælum yfirboðara síns. Hann hefur boðað málshöfðun gegn Biskupsstofu vegna málsins en mögulegt er að málinu ljúki áður með því að séra Gunnar taki tilboði um myndarlegan starfslokasamning. Rekinn tvisvar Séra Gunnar var tvívegis rek- inn úr Fríkirkjunni í Reykjavík, fyrst í september 1987 og síðan í júní 1988. Bréfið lak út Bréf séra Gunnars til prófastsins lak í fjölmiðla. Í bréfinu líkti presturinn sóknarbörnum sínum við Amish-fólk. Snýr ekki aftur Biskup harðneitar séra Gunnari um að snúa aftur til starfa í Selfosskirkju.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.