Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2009, Blaðsíða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2009, Blaðsíða 48
48 föstudagur 30. október 2009 lífsstíll Cindy Crawford gæti ekki verið módel í dag Cindy Crawford segist vera hætt að ganga eftir tískusýningarpall- inum. Hún segir jafnframt að hún yrði þunglynd ef hún miðaði sjálfa sig við tvítugar fyrirsætur dagsins í dag. Stór brjóst, venjuleg læri og tónaðir upphandleggir myndu aldrei gera hana að ofur- fyrirsætu í dag. Hún segist vera með of heilbrigt útlit til þess. Hún er sérlega sátt við sjálfa sig á fertugsaldri og þekkir styrkleika sína, fyrir utan útlitið. UmSjón: Helga kriStjánSdóttir Spaugileg undirföt í H&M Frumlegi fatahönnuðurinn Sonia Rykiel hannaði nýlega undirfatalínu fyrir H&M. Nærfatnaðurinn er gegnsær með útstæðum blómum á rassi og brjóstum. Meikar kannski sens þar sem undirfatnaður er sýnilega í tískunni í dag, en ætli nærbuxnalínur séu einnig að verða kúl? KiM KardaSHian dæMir Hjá tyru BanKS Kim Kardashian er nýjasta D- lista stjarnan til þess að setjast í dómarasæti í nýju America´s Next Top Model petit-seríunni. Þar sem Kim hefur álíka mikla fyrirsætureynslu og keppend- urnir er ólíklegt að hægt sé að taka mikið mark á ungfrú Tyru Banks og co. Stella Mccartney Hannar fyrir BaBy gap Stella McCartney hefur hannað barnafatnað fyrir Gap-verslana- keðjuna. Mjög svo tískulegan og smart barnafatnað, meira að segja, og án efa bíða margar mömmur spenntar eftir að komast í verslanir og sjoppa á krílin. Andlit þeirra höfum við flest séð í auglýsingum og á forsíðum stærstu tímaritanna í gegnum árin. Skoðum hvaða fyrirsætur náðu á toppinn og með einstakri fegurð heill- uðu heimsbyggðina. fyrirSætur aldarinnar Dorian Leigh Landaði fyrirsætusamningi hjá Ford-fyrirsætuskrifstofunni þar sem Eileen Ford stjórnaði með harðri hendi. Komst á forsíðu Bazaar 27 ára gömul en laug þó að ritstjóranum að hún væri einungis 19 ára. Þekkt fyrir einstaka kvenlega fegurð og gifti sig fimm sinnum. Lisa Fonssagrives Var andlit fimmta og sjötta áratugar- ins og gift einum stærsta ljósmynd- ara samtímans, Irving Penn. Hún kallaði sjálfa sig „ágætis herðatré“. Suzy Parker Var fyrsta fyrirsætan til þess að fá greitt meira en 100 dali á klukkutím- ann. Suzy var andlit glamúrímyndar Bandaríkjanna eftir stríð og talið er að hún hafi verið innblástur persónu Audrey Hepburn í myndinni Funny Face frá árinu 1957. Jean Shrimpton Var jafnan kölluð The Shrimp, eða rækjan, og var í miklu uppáhaldi hjá stjörnuljósmyndaranum Richard Av- edon. Twiggy Er ein frægasta fyrirsæta allra tíma. Stutt hárið, stór augu og grannir út- limir gerðu Twiggy að stjörnu sjö- unda áratugarins. Veruschka Þýska fyrirsætan Veruschka var yfir einn og áttatíu á hæð og naut kropp- urinn sín vel á myndum þar sem hún sat gjarna nakin fyrir á exótískum stöðum. Marisa Berenson Er barnabarn Elsu Schiaparelli og Yves Saint Laurent kallaði hana stelpu áttunda áratugarins. Lauren Hutton Var fyrsta fyrirsætan til að skrifa und- ir einkasamning við snyrtivörufyrir- tæki en hún var andlit snyrtivöruris- ans Revlon árið 1973. Jerry Hall Kemur frá Texas og var uppgötvuð á ströndinni í Saint-Tropez. Hún er móðir fjögurra barna Micks Jagger. Patti Hansen Patti var vinsæl fyrirsæta á áttunda og níunda áratugnum og með Keith Richards á hún þær Alexöndru og Theodoru Richards. Iman Er ein af fyrstu þeldökku ofurfyrir- sætunum og braut niður marga kyn- þáttamúra í bransanum. Gift Dav- id Bowie til margra ára og stofnaði Iman Cosmetics snyrtivörufyrirtæk- ið. Paulina Porizkova Kemur upprunalega frá Tékklandi og hefur oft verið lýst sem hinu full- komna andliti. Cindy Crawford, Tatjana Patitz, og Stephanie Seymour Voru fullkomnar í hlutverki stelp- unnar í næsta húsi og undirstrikuðu minimalisma tíunda áratugarins vel. Linda Evangelista Lét hafa það eftir sér að hún færi ekki fram úr rúminu fyrir minna en 10.000 dali á dag og er ein fyrirsætn- anna í svokölluðu þríeyki tíunda ára- tugarins, ásamt Naomi Campbell og Christy Turlington. Kate Moss Er eins konar anti-súpermódel og breytti ímynd fyrirsætunnar til fram- tíðar. Gisele Bündchen Hefur verið ein vinsælasta og launa- hæsta fyrirsætan frá aldamótum til dagsins í dag og nafn hennar þekkja allir. Útlit Gisele var ólíkt því sem var í tísku þegar hún kom fyrst fram á sjónarsviðið en nef hennar þótti of stórt og línur hennar of áberandi. Natalia Vodianova Rússnesk fyrirsæta sem kom úr fá- tækt og vann sig upp á toppinn. Nat- alia er þriggja barna móðir. Daria Werbowy Þessi kanadíska fegurðardís hefur unnið fyrir flestöll stærstu nöfnin í bransanum og hana þekkja margir af kattarlegu augnaráði hennar. Dorian Leigh laug til um aldur og komst á forsíðu Bazaar. Jean Schrimpton andlit fimmta áratugarins. Twiggy er þekkt fyrir stór bambaaugu og grannan vöxt. Lauren Hutton er þekkt fyrir skarðið á milli tannanna og var andlit revlon. Paulina Porizkova Hefur löngum þótt eitt fallegasta andlit fyrirsætubransans. Daria Werbowy Hefur verið fyrirsæta fyrir Chanel, Prada og gucci svo fátt eitt sé nefnt. Iman Braut niður marga kynþátta- múra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.