Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2009, Blaðsíða 13
Félag í eigu Þórðar Más Jóhannes-
sonar, fjárfestis og fyrrverandi for-
stjóra fjárfestingafélagsins Gnúps,
greiddi 300 milljónir króna í arð til
Þórðar fyrir rekstrarárið 2008 þrátt
fyrir að félagið hefði skilað tæplega
62 milljóna króna tapi. Þetta kemur
fram í ársreikningi félagsins fyrir árið
2008.
Eignarhaldsfélagið, sem heit-
ir Brekka, er helsta eignarhaldsfélag
Þórðar og hélt meðal annars utan
um rúmlega 7 prósenta eignarhluta
hans í fjárfestingafélaginu Gnúpi í
gegnum dótturfélagið Brekka II.
Eigendur Gnúps, Þórður, Kristinn
Björnsson, Magnús Kristinsson og
Birkir Kristinsson töpuðu miklum
fjármunum á félaginu sem var fyrsta
stóra eignarhaldsfélagið til að fara á
hliðina fyrir íslenska efnahagshrun-
ið í fyrra. Félagið átti meðal annars
rúmlega 20 prósenta hlut í FL Group
þegar mest var og rúmlega 5 prósenta
hlut í Kaupþingi. Félagið var orðið
óstarfhæft í janúar í fyrra þegar það
samdi við lánardrottna sína vegna
rekstrarörðugleika og seldi eignir
sínar. Fall félagsins markar upphaf-
ið að íslenska efnahagshruninu, að
mati Jóns Fjörnis Thoroddsen hag-
fræðings sem ræðir um fall félagsins
í bók sinni íslenska efnahagsundrið.
Úr 2 milljarða tapi
í arðgreiðslur
Vegna eignarhluta síns í Gnúpi, sem
hríðfell í verði á árinu 2007, tapaði
Þórður Már rúmum tveimur millj-
örðum króna á Brekku á því ári. Árið
áður, 2006, hafði félagið skilað rúm-
lega tveggja milljarða króna hagnaði
og Þórður Már greiddi sér 100 millj-
ónir í arðgreiðslur. Hagnaður félags-
ins árið 2006 hvarf því árið 2007 eft-
ir því sem fór að síga á ógæfuhliðina
hjá Gnúpi.
Þórður Már er tengdur fleiri
eignarhaldsfélögum, meðal annars
fjárfestingafélaginu Kríu sem hann
á með vini sínum Bjarna Ármanns-
syni, fyrrverandi forstjóra Glitnis.
Félagið var stofnað sumarið 2007
en Bjarni var rekinn úr forstjórastóli
Glitnis í lok apríl það ár eftir mikla
valdabaráttu í Glitni. Valdabarátt-
an endaði með því að hluthafar FL
Group, með Jón Ásgeir Jóhannes-
son og Þorstein M. Jónsson í broddi
fylkingar, sem voru stærstu hluthaf-
ar bankans ásamt eigendum Miles-
tone, náðu algerum undirtökum í
bankanum.
Veðjuðu á FL Group?
Í ársreikningi Kríu fyrir árið 2007
kemur fram að félagið hafi gert
framvirka verðbréfasamninga á ár-
inu og að sölutap þeirra hafi ver-
ið rúmar 94 milljónir króna. Með
slíkum framvirkum samningum er
hægt að veðja á að hlutabréf í fé-
lögum hækki á einhverju tilteknu
tímabili og getur samningsaðilinn
grætt ef hann hefur rétt fyrir sér en
tapað ef hann hefur rangt fyrir sér.
Þórður Már neitar að tjá sig um
málefni Gnúps eða Kríu við DV.
Hann segir að málefni félaganna
komi fjölmiðlum ekki við. Að-
spurður vill hann því heldur ekki
tjá sig um hvort framvirku samn-
ingarnir í ársreikningi Kríu hafi
verið í FL Group og hvort félagið
hafi verið að veðja á að hlutabréf í
FL Group hækkuðu á árinu 2007.
Hann segir ekkert óeðlilegt við
það að hann og Bjarni Ármanns-
son eigi eignarhaldsfélag saman
enda hafi þeir þekkst lengi – báð-
ir eru þeir ættaðir frá Akranesi og
eru vinir, samkvæmt því sem Jón
Fjörnir segir í bók sinni.
Aðspurður gat Bjarna Ármanns-
son hvorki játað því né neitað að
Kría hefði fjárfest í FL Group.
Ingibjörg einnig með
framvirka samninga
Annar aðili tengdur FL Group
var með framvirka samninga í FL
Group í eignarhaldsfélagi sínu, ISP,
árið 2007, líkt og DV.is hefur greint
frá. Þetta er Ingibjörg Pálmadótt-
ir, þáverandi hluthafi í FL Group
og eiginkona helsta hluthafa og
stjórnarformanns félagsins, Jóns
Ásgeirs Jóhannessonar. ISP tap-
aði rúmum 315 milljónum króna
á árinu með því að veðja á hækk-
un hlutabréfa í FL Group á árinu
2007.
Í ársreikningi félagsins fyrir
árið 2007 kemur fram að skuldir
ISP í hlutabréfaafleiðum hafi verið
nærri 1.230 milljónir króna í árslok
2007 en að eignir félagsins í afleið-
unum hafi verið rúmar 911 millj-
ónir króna.
Ingbjörg hafði því mikilla hags-
muna að gæta þegar kom að hluta-
bréfaverði í FL Group: bæði sem
hluthafi og eins sem aðili sem veðj-
að hafði fjármunum á hækkandi
hlutabréfaverð í félaginu. Ef gengi
bréfanna í FL Group hefði hækkað
hefði Ingibjörg bæði getað grætt á
því sem hluthafi og eins í gegnum
þessa framvirku samninga í eign-
arhaldsfélaginu.
fréttir 30. október 2009 föstudagur 13
Þórður Már Jóhannesson greiddi sér 300 milljónir í arð á síðasta
ári og hafði tapað rúmum tveimur milljörðum í eignarhaldsfé-
lagi sínu árið á undan. Bjarni Ármannsson og Þórður Már eiga
saman eignarhaldsfélagið Kríu sem líklega gerði framvirka
samninga um hækkandi hlutabréfaverð í FL Group árið 2007.
300 MILLJÓNIr
í ArÐ Á TAPÁrI
Hver er Þórður Már Jóhannesson?
Þórður Már Jóhannesson er fjárfestir sem fyrst varð þekktur sem forstjóri
fjárfestingasjóðsins Straums sem síðar sameinaðist fjárfestingaarmi Eimskipa-
félagsins, Burðarási, í ágúst árið 2005. Björgólfur Thor Björgólfsson var á þeim
tíma ráðandi í Burðarási. Til varð fjárfestingabankinn Straumur-Burðarás og varð
Þórður forstjóri hans en hann hafði verið kallaður „gulldrengurinn“ á meðan hann
var forstjóri Straums því sjóðurinn gekk svo vel. Í júní 2006 var Þórður rekinn
frá Straumi-Burðarási í kjölfar valdabaráttu við Björgólf Thor. Hann fékk um 1,4
milljarða króna þegar hann lét af störfum í bankanum og var með árslaun frá
bankanum upp á 88 milljónir króna árið 2006.
Þórður varð forstjóri nýja fjárfestingafélagsins Gnúps sem tók til starfa í nóvem-
ber árið 2006. Félagið var í eigu Þórðar Más, Kristins Björnssonar, Magnúsar Krist-
inssonar og síðar bróður hans Birkis. Félagið fjárfesti í hlutabréfum í FL Group og
Kaupþingi og varð stærsti hluthafi FL sumarið 2007. Gnúpur varð fyrsta íslenska
fjárfestingafélagið sem fór á hliðina fyrir efnahagshrunið árið 2008, í janúar 2008,
og má segja að aðdragandinn að íslenska efnahagshruninu hafi þar með hafist.
InGI F. VILHJÁLMsson
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
Fjárfesti í FL Group Þórður Már
fjárfesti í hlutabréfum í gegnum FL
Group sem hluthafi og forstjóri Gnúps,
sem og líklega í gegnum eignarhaldsfé-
lag sitt Kríu sem hann átti ásamt Bjarna
Ármannssyni, fyrrverandi forstjóra
Glitnis. Þórður sést hér ásamt Magnúsi
Kristinssyni, öðrum eigenda Gnúps.
30 days
Apótekin & Heilsubúðirnar
www.leit.is · Smellið á ristilvandamál
Á gamla gamla verðinu.
Losnið við hættulega kviðfitu og komið
maganum í lag með því að nota
náttúrulyfin Oxytarm og 30 days saman.
Umboðs- og söluaðili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Birkilauf
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf
Laugavegi 178, 105 Rvk
sími 551-3366 www.misty.is
opið mán-fös 10-18, lau 10-14
Teg. 42228 - mjög fallegur og
léttfylltur í BC skálum á kr. 3.950,-
boxer buxur í stíl á kr. 1.950
Teg. 16944 - létt fylltur og
saumlaus í BC skálum á kr. 3.950,-
boxer buxur í stíl á kr. 1.950
Teg. 11003 - flottur og
haldgóður í CDE skálum á kr.
3.950,- buxur í stíl á kr. 1.950,-
Teg. 42228
Teg.16944
Teg. 11003
Apótekin & Heilsubúðirnar
www.leit.is · Smellið á ristilvandamál
Á gamla gamla genginu.
Oxy tarm
Endurnærir og hreinsar ristilinn
Allir dásama Oxy tarmið