Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2009, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2009, Blaðsíða 33
helgarblað 30. október 2009 föstudagur 33 „Ef maður hefði vitað að óskin myndi rætast á endanum hefði ferl- ið ekki verið svona erfitt. Óvissan er svo hrikaleg,“ segir Katrín Björk Baldvinsdóttir en hún og Eyþór Már Bjarnason, eiginmaður henn- ar, fengu loksins gullmolana sína í fangið eftir langa og erfiða baráttu við ófrjósemi. Eftir að hafa reynt að eignast barn í meira en ár fóru þau árið 2003 í hefðbundnar skoðan- ir þar sem í ljós kom að engar sáð- frumur voru í sæðinu. „Þetta var mikið áfall, þar sem allt benti til þess að við þyrftum að notast við gjafasæði. Við þurftum að kveðja möguleikann á að eignast barn sem væri líffræðilega Eyþórs en reynd- um að horfa á jákvæðu hliðarnar því gjafasæði þýddi að við gátum farið í tæknisæðingu sem er miklu minna mál en glasafrjóvgun,“ segir Katrín en Eyþór var sendur í aðgerð til frekari skoðunar þar sem sæðis- frumur fundust sem gaf þeim aftur von um að gjafasæði yrði óþarft. „Þá vorum við orðin sátt við að þurfa gjafasæði en urðum að venda okk- ar kvæði í kross og setja stefnuna á smásjárfrjóvgun. ART Medica var að hefja rekstur á þessum tíma og vegna flutninga frestaðist allt ferl- ið um nokkra mánuði en svo hefj- um við okkar fyrstu meðferð í jan- úar 2005.“ Fósturmissir mikið áfall Smásjárfrjóvgunin gekk vel en í miðri meðferð fengu þau þær slæmu fréttir að krabbamein móður Eyþórs hefði tekið sig upp að nýju. „Mamma hans hafði verið laus við krabbann í fimm ár og átti að fara að útskrifast, þetta var því mikið sjokk fyrir alla fjölskylduna, en tengda- pabbi hafði orðið bráðkvaddur á jólunum nokkrum árum fyrr . Við héldum samt ótrauð áfram og þeg- ar við fengum jákvætt þungunarpróf áttum við bágt með að trúa heppni okkar og vorum í sjöunda himni þegar við sáum hjartslátt tveim vik- um síðar. Í skoðun á níundu viku fannst mér fóstrið lítið miðað við það sem ég hafði lesið mér til, en vegna misskilnings var mér sagt að stærðin væri í lagi. Í næstu skoðun, fannst enginn hjartsláttur og ég fór í útsköfun. Það hefur líklega dáið þarna um níundu viku,“ segir Katr- ín og bætir við að fósturmissirinn hafi reynst henni afar erfiður. „Þetta var mikið áfall því þetta hafði verið heilmikið kraftaverk og ég var lengi að jafna mig enda hafði ég reist miklar skýjaborgir í huganum sem hrundu og ég var farin að efast um að geta aftur litið glaðan dag.“ Með átaki tókst Katrínu og Eyþóri að byggja sig upp og byrja að nýju en sú meðferð tókst ekki. Við þá með- ferð kláruðust sáðfrumurnar sem höfðu verið teknar í aðgerðinni og því voru næstu skref að nálgast fleiri. Á sama tíma var baráttan að tapast hjá móður Eyþórs svo þau ákváðu að bíða ekki boðanna heldur ganga í það heilaga á gamlársdag 2005 en dagurinn var einnig brúðkaups- dagur foreldra hans. „Við ákváðum að enda þetta erfiða ár með stæl og höfðum mánuð til að undirbúa athöfnina og veisluna,” segir hún brosandi. Nýgift og hamingjusöm stefndu þau á þriðju meðferðina en stuttu eftir að þau byrjuðu dó móð- ir Eyþórs. „Engar sáðfrumur náðust í ástungu svo hann þurfti aftur und- ir hnífinn þar sem aðeins þrjár sáð- frumur fundust og því urðum við að snúa okkur að gjafasæði í miðri meðferð. Þrátt fyrir allt gekk með- ferðin ekki og ég brotnaði algjör- lega niður. Þarna voru væntingarnar orðnar meiri enda fannst mér for- sendurnar breyttar með gjafasæð- inu,“ segir Katrín og bætir við að það hafi verið stórt skref að samþykkja gjafasæði að nýju. Það sé skrítin til- hugsun að eignast einstakling sem hafi erfðaefni frá einhverjum sem foreldrarnir hafi aldrei séð og þeim fannst mikilvægt að velta fyrir sér og svara nokkrum spurningum strax. „Þetta voru spurningar eins og hvort við ætluðum að segja þeim börnum sem við mögulega gætum eignast, frá því að þau væru getin með gjafa- sæði. Og ef við myndum segja þeim það, hvenær væri best að gera það,“ útskýrir Katrín. Niðurstaðan varð sú að þau ætluðu ekki að gera þetta að leyndarmáli, þar sem leyndarmál ættu oftar en ekki til að koma fram og þá kannski á viðkvæmum tíma í lífi barnanna. „Við ákváðum að segja þeim að við hefðum þurft að fara þessa leið til að fá einmitt þau en þetta spjall verður líklegast þeg- ar þau verða farin að velta fyrir sér spurningunni um það hvaðan börn- in koma.“ Vonaðist eftir neikvæðri útkomu Þegar þarna var komið ákváðu Katr- ín og Eyþór að taka sér góða pásu og skelltu sér í síðbúna brúðkaupsferð til að jafna sig á vonbrigðunum og átta sig á móðurmissinum. „Við ein- beittum okkur að því að njóta lífsins barnlaus og fórum í uppsetningu á frystum fósturvísum strax og við komum heim. Ég hafði alltaf verið lítið gefin fyrir sprautur en þarna var ég orðin svo vön og fannst jafnauð- velt að sprauta mig með hormónun- um og bursta tennurnar á morgn- anna,“ segir hún brosandi en bætir við að hún hafi gert sér grein fyrir að hún væri ófrísk áður en hún tók þungunarpróf. „Í biðtímanum eft- ir uppsetningu verður maður rosa- lega meðvitaður um líkamann og les í hvert einasta atriði, en þar sem ég hafði orðið ólétt áður var ég orð- in nokkuð viss, einkennin voru mun skýrari en þau sem ég hafði haldið mig finna í þeim meðferðum sem voru neikvæðar. Við höfum alltaf verið mjög opin með okkar ferli en ákváðum að eiga einn dag fyrir okk- ur þar sem við tvö vissum þetta bara. Daginn eftir jákvæðu heimaprufuna fórum við svo í blóðprufu og feng- um það staðfest. Ég var ófrísk. Ég var mjög stressuð eftir að hafa feng- ið já-ið og það furðulega var að ég hafði næstum vonast eftir neikvæðri útkomu því þá gæti ég strax byrjað að syrgja í stað þess að halda áfram í þessum tilfinningalega rússibana. Þungunarhormónin voru hins veg- ar fín og allt leit vel út.“ Katrín segir það aldrei hafa hvarflað að henni að þau myndu eignast tvíbura. Kannski þar sem það séu tvíburar í fjölskyldum þeirra beggja og hún vissi því hversu mik- il vinna fylgdi því að eiga tvö börn á sama aldri. Það hafi því verið afar utan við sig verðandi foreldrar sem gengu út frá lækninum eftir fyrsta sónarinn. „Í þetta skiptið höfðu tveir fósturvísar verið settir upp en samkvæmt læknum var annar heldur bágborinn en fékk samt að fljóta með. Báðir höfðu hins vegar fest sig. Við vorum enn þá að melta þær upplýsingar þegar við fengum að heyra að annar væri búinn að skipta sér, en þar sást þó einungis einn hjartsláttur. Við biðum spennt í tvær vikur eftir næstu talningu og þá var ekki um að villast. Ég, sem hafði óskað þess að eignast ekki tví- bura, fékk þá ósk uppfyllta en á ann- an hátt en ég hafði búist við. Við átt- um von á þríburum.“ Missti á 24. viku Meðgangan gekk ágætlega til að byrja með þótt einhver brúnleit útferð hafi valdið Katrínu áhyggj- um á fyrstu vikunum. Þegar leið að tólf vikna sónar voru áhyggjurn- ar virkilega farnar að segja til sín enda hafði hún þá fengið slæm- ar fréttir síðast. „Ég lagðist titr- andi upp á bekkinn en þessi sónar var mun skemmtilegri en sá síðasti því öll fóstrin voru á mikilli hreyf- ingu og allt leit vel út. Hins vegar, á Þorláksmessu, kom í ljós stækk- uð þvagblaðra hjá öðrum eineggja þríburanum sem gat þýtt TTTS (tví- bura-tvíbura blóðrennslissjúkdóm- ur), en óeðlilegar æðatengingar í fylgjunni valda því að annað barnið fær nánast allt blóðflæðið sem veld- ur miklu álagi á hjartað en hitt fær litla sem enga næringu. Þetta er eitt af því sem læknar hafa áhyggjur af þegar gengið er með eineggja fjöl- bura. Eftir að kúlan hafði harðnað mikið um jólin fór ég í skoðun og þá var ekkert um að villast,“ segir hún og bætir við að TTTS sé alvarlegt svona snemma á meðgöngu. Katrín var send til Belgíu þar sem leiserað- gerð var framkvæmd á þeim æðum í fylgjunni sem tengdu blóðrásir barnanna. „Ég vissi að ef aðgerðin gengi ekki vel yrði þrautalending- in sú að brenna fyrir naflastrenginn hjá öðru barninu í von um að bjarga hinu. Allt virtist þó hafa gengið vel,“ segir Katrín sem var vakandi á með- an á aðgerðinni stóð. Þegar heim var komið mátti hún sem minnst gera í von um að geta gengið með sem lengst. „Ég vissi að meðalmeðganga þríbura væri 33 vikur en var staðráðin í að ná mun lengra. Vaxtarskerðing kom í ljós hjá báðum eineggja fljótlega eftir að heim var komið og nokkrum vikum seinna kom í ljós vökvi í kringum hjarta þess sem hafði fengið of litla næringu. Hjartalæknir sagði að það gæti farið til beggja átta og við biðum og vonuðum það besta. Viku seinna var allt við það sama en næstu viku á eftir, á viku 24, var enginn hjart- sláttur,“ segir Katrín sem hefði ver- ið látin fæða látna barnið hefði hún ekki verið ófrísk að tveimur öðrum. „Tæpum fjórum vikum seinna, þeg- ar ég var gengin rúmlega 27 vikur, var leghálsinn farinn að opnast. Ég var lögð inn og missti vatnið morg- uninn eftir. Ég fékk sterasprautu og dripp í tvo sólarhringa til að halda samdráttunum í skefjum en svo kom í ljós naflastrengsframfall sem er stórhættulegt hjá lifandi barni og læknarnir þorðu ekki að taka áhætt- una og ég var skorin upp í flýti.“ Tveir þríburar Þríburi A, sá látni, var aðeins 212 grömm, þríburi B 800 gr og 34 cm en þríburi C 1100 gr og 38 cm. Katrín og Eyþór vildu fá að sjá látna barnið en ákváðu að taka ekki mynd af honum þar sem hann hafði verið látinn í nokkrar vikur og leit því ekki út eins og nýfætt barn. „Hann var ponsu lít- ið kríli með sínar hendur og tær og við gáfum honum nafnið Bjarni í höfuðið á afa sínum. Hann var svo jarðsettur á milli afa síns og ömmu,“ segir Katrín og bætir við að aðstæð- urnar hafi verið skrítnar. Á sömu stundu hafi þau eignast tvö börn en um leið misst barn. „Þegar hann dó einbeitti ég mér að því að halda mér rólegri fyrir hin tvö sem voru enn á lífi og þegar þau komu í heiminn fór öll mín orka í þau enda miklir fyrir- burar,“ segir hún en öll börnin fengu nöfn frá öfum og ömmum, Bjarni, Baldvin Ásgeir og Elísabet Heiða. „Baldvini Ásgeiri og Elísabetu Heiðu gekk ótrúlega vel þótt það hafi geng- ið ýmislegt á en Baldvin Ásgeir reif úr sér barkaþræðinguna og sýndi að hann þyrfti ekki að fara í öndunar- vél og fór því beint í minni öndunar- aðstoð, en hann losnaði hins vegar mjög seint við þá aðstoð. Elísabetu Heiðu gekk strax vel og við fengum hana í fangið eftir tvo daga og hún kom fyrr heim en hann. Í eftirliti kom svo í ljós leki á milli hjartaloka og fór hún því á hjartalyf. Það gekk hins vegar allt til baka og hún löngu laus við lyfin. Baldvini Ásgeiri gekk illa að drekka vegna mæði en fékk að lokum að koma heim með sondu. Hann er hress í dag en notar púst þegar hann kvefast.“ Katrín segist oft lenda í þeim aðstæðum að vera spurð úti á götu hvort börnin hennar séu tvíburar. „Þau eru í rauninni þríburar þótt þau séu bara tvö. Ef ég er spurð á förnum vegi kinka ég bara kolli enda hefur maður hvorki tíma né löngun í að fara yfir alla söguna. Mér finnst samt alltaf eins og ég sé að gleyma bróður þeirra ef ég tala um þau sem tvíbura. Sjálf tala ég um fjölbura eða systkin nema þeg- ar ég ræði um þau öll þrjú eða með- gönguna sjálfa,“ segir hún en bætir við að þau hafi mætt miklum skiln- ingi og samúð. „Fólk áttaði sig á því að missirinn var mikill þótt við vær- um ofsalega rík líka. Við syrgðum Bjarna daginn sem við fengum að sjá hann og daginn sem við jörðuð- um hann, en svo fór öll orkan í hin börnin og sorgin kom ekki almenni- lega fyrr en það fór að hægjast um. Fósturlátið var mér samt mun erfið- ara en þessi reynsla því þá hafði ég engu til að loka, ekkert kyn og miss- irinn óraunverulegri. Það skipt- ir náttúrlega líka máli að þrátt fyrir andvana fætt barn, stóðum við ekki uppi með tómt fang eins og eftir fósturlátið. Þessu tvennu er að sjálf- sögðu ekki saman að líkja og þegar þú færð barnið í hendurnar og jarð- ar það verður þetta allt miklu raun- verulegra fyrir okkur sem og aðra í kringum okkur. Ég stend mig oft að því að hugsa hvernig þau væru þrjú saman, það hjálpar til að við vitum nokkurn veginn hvernig Bjarni hefði litið út þar sem hann og Baldvin Ás- geir voru eineggja og því ímyndar maður sér hvernig það væri að hafa tvö eins eintök hjá sér. Einnig veltir maður fyrir sér hvernig persónu- leiki hann hefði verið, því systkini hans eru mjög ólíkir persónuleikar. Ég sé þau þjú saman í huganum en það besta hefði verið að hafa hann hér hjá okkur.“ Aftur komin af stað Katrín og Eyþór fengu nýlega nei- kvætt úr uppsetningu á frystum fóst- urvísi. Þau áttu tvo í frysti en annar reyndist ekki lífvænlegur. „Í þetta skiptið var uppsetningin í náttúru- legum tíðarhring svo ég þurfti bara að sprauta mig með egglossprautu. Ég hafði látið mig dreyma um að nú myndi ferlið verða mun auðveld- ara þar sem við eigum nú börn en tilfinningarússibaninn er alveg sá sami og vonbrigðin jafnsár.“ Að- spurð segir hún erfiðleikana vissu- lega hafa þroskað þau og að þau hafi oft upplifað reiði. „Ég er mjög þakklát fyrir börnin mín en skil ekki af hverju við gátum ekki bara feng- ið þau öll þrjú, fyrst ég varð ólétt að þríburum. Eins fannst mér erf- itt að horfa upp á manninn minn þegar við jörðuðum Bjarna. Þarna stóð hann við leiði foreldra sinna og barnsins síns. Við höfum alltaf verið opin með ófrjósemiserfiðleika okk- ar og ekkert verið í felum með neitt þótt við höfum ekki verið að útvarpa þeim, fyrr en núna. Auðvitað hefur þetta verið erfitt en okkur tókst að halda í jákvæðnina og ég var alltaf harðákveðin í að verða mamma. Ég vissi bara ekki hvaða leið ég þyrfti að fara til að láta drauminn rætast. Það skipti líka miklu máli að Eyþór hefur ekki viljað fela þetta, en það er karl- mönnum yfirleitt mikið áfall þegar í ljós kemur að þeir eigi við ófrjósemi að stríða og mörgum finnst vegið að karlmennsku sinni. Hann hafði svo- litlar áhyggjur af því á meðan ég var ólétt, hvaða tilfinningar hann myndi bera til barnanna, en þær áhyggjur hurfu eins og dögg fyrir sólu um leið og þau fæddust. Enda er það að vera pabbi svo miklu, miklu meira en að leggja til sáðfrumu.“ indiana@dv.is „Hann hafði svolitlar áhyggjur af því á með- an ég var ólétt, hvaða tilfinningar hann myndi bera til barnanna, en þær áhyggjur hurfu eins og dögg fyrir sólu um leið og þau fædd- ust.“ Einn þríburinn lést „Þegar hann dó einbeitti ég mér að því að halda mér rólegri fyrir hin tvö sem voru enn á lífi og þeg- ar þau komu í heiminn fór öll mín orka í þau enda miklir fyrirburar.“ Fjölskylda Katrín og Eyþór ásamt Baldvini Ásgeiri og Elísabetu Heiðu. DV MYND RAkel Ósk siguRðARDÓTTiR Fyrirburar Myndirnar eru teknar fyrsta daginn en Baldvin Ásgeir er þarna með CPAP-húfuna og Elísabet Heiða í öndunarvél.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.