Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2009, Qupperneq 11
fréttir föstudagur 30. október 2009 11
holabok.is
Frábærar bækur!
Óborganlegar sögur af
Eyjaskeggjum - hvað
annað?
Skrautlegt og
skemmtilegt jólaföndur.
Hvaða synd drýgði
væntanlegur ökukennari?
Bráðskemmtileg ævisaga.
Hér fara margir á kostum,
t.d. Púlli, Jens Guð og
Gurrí Haralds.
Mögnuð bók; greinir
frá þróun kafbáta,
hernaðarlegri snilld,
mistökum og mannfórnum.
Einstakar lífsreynslusögur;
sorglegar, fræðandi,
fyndnar og allt þar á milli.
Íslenskar draugasögur,
alls ekki ætlaðar
viðkvæmum sálum.
Gamansögur af Árnesingum
og hér slapp enginn sem
hafði eitthvað til málanna að
leggja.
Eitt af snilldarverkum
Antony Beevor og
tvímælalaust besta bókin
um Spænska borgarastríðið.
Sögur af sviðinu og baksviðs
og jafnframt að stórum
hluta saga djass- og
dægurlagatónlistar á Íslandi.
„Mér finnst þetta mjög athyglisverð
túlkun og lögfræðilega gengur hún
upp. Ef menn vilja meina að þetta sé
erlent lán á annað borð er það alltaf
að jafnvirði tiltekinnar fjárhæðar í ís-
lenskum krónum og með breyting-
um á gengi krónunnar breytist bara
fjöldi hinna erlendu mynteininga
sem þarf til að uppfylla tilgreint nafn-
virði. Það er hans túlkun,“ segir Björn
Þorri Viktorsson lögmaður.
Gæti haldið fyrir dómi
„Það er skýringarregla í lögfræði þeg-
ar verið er að túlka samninga sem
fjallar um að það beri að túlka samn-
inga almennt neytendum í hag og
þeim sem er minnimáttar í samn-
ingssambandinu. Sérstaklega á þetta
við í þessu tilfelli. Það er bankinn
sjálfur sem semur samningsskilmál-
ana og það ber almennt að túlka slíka
samninga, eða óljós samningsatriði
sem geta valdið einhverjum vafa,
þeim í óhag sem semur,“ segir Björn.
Hann segir að túlkun Guðmundar
gæti staðist dómstólaleiðina ef hún
verður farin.
„Mér finnst það ekki fráleitt. Í
hans tilfelli snýst þetta um Frjálsa
fjárfestingarbankann. Ef þeir halda
fast við það að þarna sé í raun um er-
lent lán að ræða er merkilegt að þeir
skuli endalaust vera að tala um þessa
jafnvirðisfjárhæð. Þá má rökstyðja
þá niðurstöðu að það hafi ekki verið
reiknað með því að höfuðstóllinn í ís-
lenkum krónum breyttist neitt enda
er það líka í samræmi við greiðslu-
áætlanirnar sem fólk undirgekkst
þegar það tók þessi lán. Þá er alltaf
miðað við að höfuðstólsfjárhæðin í
krónum talið breytist ekki þrátt fyrir
breytingu á gengisþróun. Ég hlakka
bara til ef Guðmundur lætur reyna
á þetta fyrir dómi eða Frjálsi fjárfest-
ingarbankinn, að sjá hver niðurstað-
an verður.“
Skýrt bann
Björn hefur talað um það í fjöl-
miðlum undanfarið að hann telji
að myntkörfulán Kaupþings ásamt
fleiri lánum standist ekki lög. Al-
mennir lántakendur hjá Kaupþingi
ætla að stefna Sigurði Einarssyni og
Hreiðari Má Sigurðssyni, fyrrver-
andi stjórnendum Kaupþings, til að
fá viðurkennda persónulega skaða-
bótaskyldu þeirra og fer Björn fyrir
fólkinu. Það er ekki eina málið sem
Björn hefur á sinni könnu sem tengt
er lánasamningum.
„Það er ekki enn búið að birta
fyrstu stefnurnar því það er ýmislegt
óvænt sem hefur komið upp í þeim
efnum. Ég fékk hins vegar mál inn á
borð til mín í apríl sem varðaði bíla-
samning. Það er aðalmeðferð í því
máli núna föstudaginn 13. nóvem-
ber. Þar reynir á þá túlkun sem ég hef
aðallega verið að halda fram að þetta
séu í rauninni íslensk krónulán í eðli
sínu og þess vegna sé óheimilt að
verðbreyta þeim í tengslum við erlent
myntviðmið. Það er mjög skýrt bann
við því í íslenskum lögum frá 2001.
Það er fyrsta málið sem mér er kunn-
ugt um sem reynir á þessi álitaefni.“
Stenst enga skoðun
Björn vonast til þess að fá lögfræði-
lega skorið úr um ýmis ágreinings-
atriði varðandi lánasamninga sem
fyrst.
„Það er lykilatriði fyrir lántakend-
ur og auðvitað lánveitendur líka. Það
er tekið fram í þessum lögum um
vexti og verðtryggingu frá 2001 að ef
lánveitandi hefur ranglega einhverja
fjárhæð af lántakanda ber honum
að endurgreiða það sem hann hefur
ranglega af honum haft með vöxtum.
Það eru gríðarlega miklir hagsmunir
sem hanga á þessari spýtu. Stærstur
hluti lántakenda lætur sér ekki detta
í hug að bankinn sé að brjóta á þeim
lög. Því miður er margt sem bendir til
þess að svo sé. Fólk er að vakna við
að það er fjölmargt í þessum samn-
ingum sem stenst enga skoðun.“
Lögmaðurinn Björn Þorri Viktorsson segir túlkun Guðmundar lögfræðilega ganga upp og hún gæti haldið
fyrir dómi. Hann segir margt benda til þess að bankarnir hafi brotið lög með lánasamningum enda sé fjöl-
margt í þeim sem stenst enga skoðun.
lilja Katrín GunnarSdóttir
blaðamaður skrifar liljakatrin@dv.is
BANKARNIR BRUTU
Á LÁNTAKENDUM
„Það eru gríðarlega
miklir hagsmunir sem
hanga á þessari spýtu.“
Fagnar túlkun
Guðmundar Björn
segir að þessi túlkun á
erlendum lánum gæti
staðist dómstólaleið-
ina og hlakkar til að
sjá niðurstöðuna ef
svo fer.