Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2009, Síða 42
42 föstudagur 30. október 2009 sport
Snorri Steinn Guðjónsson hefur stýrt
sóknarleik íslenska landsliðsins í
handbolta af miklum myndarskap
síðustu ár og er fyrir löngu orðinn
einn almikilvægasti leikmaður þessa
liðs sem öll þjóðin elskar. Hann hef-
ur undanfarin ár leikið með einu
stærsta liðinu í Danmörku, GOG frá
Svendborg, en rétt fyrir tímabilið var
hann kominn í gulan búning Rhein-
Neckar Löwen, stórliðsins sem Guð-
jón Valur Sigurðsson og Ólafur Stef-
ánsson leika með. Snorri er aðeins
með árs samning og viðurkennir að
hann hafi hugann við það, sérstak-
lega hafi það truflað hann fyrst. Hann
reynir þó núna bara að njóta þess að
vera kominn á toppinn á ferlinum.
Erfitt að yfirgefa Danmörku
„Ég er svona hægt og rólega að koma
mér fyrir og mér líður bara vel. Það er
engin spurning,” segir Snorri Steinn
spurður um veruna í Þýskalandi til
þessa. Bras var þó til að byrja með
eins og við mátti búast þegar menn
ætla að flytja búferlum einn, tveir og
þrír. ,,Eins og flestir vita bar þennan
flutning svolítið öðruvísi að heldur
en gengur og gerist þannig að ég fór
eiginlega bara í flýti frá Danmörku.
Þessi tími sem maður þarf að gefa sér
í að flytja á milli landa, hann hafði
ég einfaldlega ekki þannig að fyrsti
mánuðurinn var svolítið strembinn.
Maður var með hugann á mörgum
stöðum til að byrja með,“ segir Snorri
Steinn og viðurkennir að erfitt hafi
verið að yfirgefa Danmörku.
„Hjá GOG fannst mér spennandi
tímar fram undan þrátt fyrir erfiða
fjárhagsstöðu félagsins.Ef ég lít fram-
hjá því hafði ég mikla trú á liðinu og
það hefur sýnt sig núna. GOG er í
öðru eða þriðja sæti og gengur vel,“
segir Snorri en Guðmundur Guð-
mundsson landsliðsþjálfari tók við
þjálfarastöðunni hjá GOG fyrir tíma-
bilið.
Gisti hjá Guðjóni
Hjá Rhein-Neckar Löwen voru fyrir
tveir Íslendingar. Guðjón Valur Sig-
urðsson hefur leikið þar í tvö ár og
Ólafur Stefánsson gekk í raðir þess í
sumar. Snorri er hæstánægður með
að hafa þessa tvo vini sína með sér.
„Það er algjör lúxus að vera með
tvo Íslendinga með sér. Við þekkj-
umst náttúrlega vel úr landsliðinu
og erum góðir vinir,“ segir Snorri en
sérstaklega var Guðjón Valur honum
hjálplegur til að byrja með.
„Ég bjó hjá þeim hjónunum fyrstu
tvær vikurnar, var þar bara í góðu yf-
irlæti. Konurnar okkar allra þekkjast
líka vel og við eigum allir börn. Þetta
eru bara algjör forréttindi að vera í
svona góðu liði með Íslendinga með
sér.“
Ánægður með stórt hlutverk
Snorri hefur fengið mikinn spiltíma
með Löwen strax í byrjun móts þrátt
fyrir að annar leikstjórnandi hafi ver-
ið keyptur til liðsins á sama tíma.
Honum koma mínúturnar ekkert
á óvart. „Ég fór náttúrlega þarna til
að spila og auðvitað vill maður allt-
af spila sem mest. Þetta er samt vel
mannað lið með tvo menn í hverri
stöðu og jafnvel meira en það. Það er
því erfitt að ætlast til að maður spili
allan tímann í hverjum einasta leik.
Leikirnir eru samt mjög margir þegar
við erum að berjast í öllum keppnum.
Hingað til er ég samt mjög ánægður
með mitt hlutverk í liðinu og mun
halda áfram að gera mitt besta,“ segir
Snorri og heldur áfram:
,,Ég er náttúrlega bara hæst-
ánægður með að vera kominn í svona
stórt lið og það er um að gera að njóta
þess. Þetta er auðvitað draumurinn.
Þýska deildin er sú besta í heiminum
þannig að það að spila í góðu liði þar
verður ekkert toppað,“ segir hann.
Tapa ekki leik
„Við vorum kannski svolítið óheppn-
ir með leikjaprógramm til að byrja
með,“ segir Snorri um brösótta byrj-
un Rhein-Neckar á tímabilinu í
Þýskalandi. Löwen mætti þar tveim-
ur sterkustu liðum deildarinnar,
Kiel og Hamborg, alveg í blábyrjun
og tapaði mikilvægum stigum. Síð-
an þá hefur gangurinn verið góður.
Eiginlega mjög góður eins og Snorri
útskýrir.
„Í byrjun áttum við erfiða leiki
gegn Kiel og Hamborg. Þá vorum
við ekki komnir nægilega langt á
veg til að standa svoleiðis stórliðum
snúning. En eftir það höfum við ekki
tapað leik og erum á góðu róli. Við
spilum vel og vinnum leikina sann-
færandi. Í október til dæmis unnum
við alla leikina nema einn og gerð-
um eitt jafntefli. Við erum alltaf að
bæta okkur.“
Með hugann við samninginn
Snorri er aðeins með samning til
eins árs og veit því í dag ekki hvern-
ig staða hans verður þegar tímabil-
inu lýkur. „Handboltinn er nú bara
svona. Þetta er sígaunalíf,“ seg-
ir Snorri Steinn og hlær við. Hann
viðurkennir þó fúslega að þetta hafi
áhrif á hann og gerði töluvert til að
byrja með.
„Auðvitað er þetta einhvers stað-
ar aftarlega í hausnum á manni.
Maður er náttúrlega með fjölskyldu
og verður að hugsa um fleiri heldur
en sjálfan sig. Þetta truflaði mig til að
byrja með en nú er ég búinn að ýta
þessu til hliðar. Ég er bara staðráð-
inn í að standa mig og svo sé ég hvað
kemur út úr þessu öllu,“ segir hann.
Hvað sem verður er leikstjórnand-
inn brattur og hvergi banginn við
næsta skref, hvað svo sem það verð-
ur.
,,Ég er aldrei smeykur við að tak-
ast á við nýjar áskorarnir. Ég vonast
auðvitað til að vera lengur hjá Lö-
wen en ef það verður ekki bíður mín
bara nýtt ævintýri einhvers staðar
annars staðar,” segir Snorri Steinn
Guðjónsson.
Handboltinn
Landsliðsmaðurinn í handbolta, Snorri
Steinn Guðjónsson, skipti snögglega
um lið rétt fyrir tímablið. Hann yfir-
gaf þá danska liðið GOG fyrir þýska
stórliðið Rhein-Neckar Löwen sem
tveir félagar hans úr landsliðinu
leika með. Hann er aðeins með
samning til eins árs og veit að
nýtt ævintýri getur allt eins beð-
ið hans næsta sumar. DV hitti
Snorra í vikunni og ræddi
um veruna í Þýskalandi
er síga nalíf
TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
Á fullri ferð Snorri er einn af silfurdrengj-
unum en hann er fyrir löngu orðinn einn
mikilvægasti leikmaður íslenska landsliðs-
ins. Hann er ánægður í Þýskalandi.
Spilar stórt hlutverk Snorri
hefur stýrt leik Löwen af miklum
myndarskap og langt er síðan liðið
tapaði. MYND RhEiN-NEckAR-lOEwEN.DE
Fær orð í eyra Snorri fær hér
ráðleggingar frá aðstoðarþjálfara
Löwen. MYND RhEiN-NEckAR-lOEwEN.DE