Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2009, Page 46
46 föstudagur 30. október 2009
NafN og aldur?
„Ragnhildur Magnúsdóttir Thordarson, 35 ára.“
atviNNa?
„Dagskrárgerðar- og kvikmyndargerðarmaður.
Blogga líka á www.icelandicamericangirl.blogspot.
com.“
Hjúskaparstaða?
„Í sambúð.“
fjöldi barNa?
„Ekki byrjuð.“
Hefur þú átt gæludýr?
„Nei, pabbi sagði alltaf: „Animals belong on
farms.“
Hvaða tóNleika fórst þú á síðast?
„Hafdísi Huld og Bubba saman, skemmtilegt bland
í poka ævintýri. Þau tóku lög hvort annars.“
Hefur þú komist í kast við lögiN?
„Nei. “
Hver er uppáHaldsflíkiN þíN og af Hverju?
„Ég bara elska gallabuxur og kuldaskó og hef gert í
mörg ár.“
Hefur þú farið í megruN?
„Fyndin spurning. Er nefnilega í fitun, allt of grönn
núna.“
Hefur þú tekið þátt í skipulögðum mótmæl-
um?
„Nei, en var í friðargöngu 17 ára heima í Los Angel-
es þar sem ég ólst upp.“
trúir þú á framHaldslíf?
„Ég trúi mjög sterkt á að það sem þú setur út færðu
til baka hér og nú í þessu lífi.“
Hvaða lag skammast þú þíN mest fyrir að
Hafa Haldið upp á?
„Ég hef húmor fyrir hinu „hallærislega“ og skamm-
ast mín ekki fyrir að hlusta á allt.“
Hvaða lag kveikir í þér?
„Ghetto Bird með Ice Cube. Dagsatt.“
til Hvers Hlakkar þú NúNa?
„Ég hlakka bara til að vakna á morgun. Er óþolandi
Pollýanna.“
Hvaða myNd getur þú Horft á aftur og aft-
ur? (af Hverju?)
„Flashdance, því hún er uppáhaldsmyndin mín.“
afrek vikuNNar?
„Að þora að fara í útvarpsviðtal til að kynna bók
annars manns og tjá mig um ástina við djúpradd-
aðan spyril.“
Hefur þú látið spá fyrir þér?
„Ekki mikið. Einn götuspámaður í Hong Kong sagði
að ég yrði rík seinna í lífinu.“
spilar þú á Hljóðfæri?
„Já, píanó. Lærði í 5 ár og jú, blokkflautu.“
viltu að íslaNd gaNgi í evrópusambaNdið?
„Já, en þetta eru stór mál og flókin. “
Hvað er mikilvægast í lífiNu?
„Heilsan og fjölskyldan og að vera samkvæmur
sjálfum sér.“
Hvaða ísleNska ráðamaNN myNdir þú vilja
Hella fullaN og fara á trúNó með?
„Ég veit ekki, myndi alveg vilja drekka kaffi
með einhverjum sem stuðar. “
Hvaða fræga eiNstakliNg myNdir þú Helst
vilja Hitta og af Hverju?
„Undantekningalaust Tinu Turner.“
Hefur þú ort ljóð?
„Las einu sinni upp ljóð eftir mig á listasamkomu á
kaffihúsi í LA þegar ég var 16 ára spekúlant.“.
Nýlegt prakkarastrik?
„Pass.“
Hvaða fræga eiNstakliNgi líkist þú mest?
„Mary Poppins, óþolandi vinnualki með betrunar-
áráttu.“
ertu með eiNHverja leyNda Hæfileika?
„Ekki leyndan kannski en ég hljóp 5 kílómetra á
18.24 mínútum í víðavangshlaupi í háskólanum í
Ameríku.“
á að leyfa öNNur vímuefNi eN áfeNgi?
„Nei, held ekki.“
Hver er uppáHaldsstaðuriNN þiNN?
„Kalífornía eða „heima“ og Grafarvogur.
Hvað er það síðasta sem þú gerir áður eN þú
ferð að sofa?
„Kyssi kærastann minn.“
Hver er leið íslaNds út úr kreppuNNi?
„Lærdómur og gamla góða þrjóskan.“
Ragnhildur Magnúsdóttir er dagskrárgerðar- og kvikmynda-
gerðarkona sem er öllum vel kunnug. Hún kann á píanó og
blokkflautu.
ekki í megruN
Heldur fituN
Betulic birkilaufstöflurnar innihalda 98% birkilaufsduft
og eru framleiddar af natni með aðferð sem varðveitir
upprunalega eiginleika birkilaufs sem allra best.
Það er mikil og gömul hefð fyrir því að nota birkilauf sem
fæðubótarefni til að hraða efnaskiptum og losa vatn úr
líkamanum, draga úr bólgum og afeitra líkamann (detox).
Birkilauf hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi líkamans og húð,
auk þess sem það örvar starfsemi nýrna og þvagfæra.
Ráðlagður dagskammtur 2 til 4 töflur er samsvarar 980 - 1960 mg. af
birkilaufi. Betulic inniheldur hvorki laktósa, glúten, sætuefni né ger.
BETULIC - BIRKILAUF
www.birkiaska.is
Dalvegi 2, Kóp. | Dalshrauni 13 Hfj. | S: 577 3333 | www.castello.is
Höfum opnað nýjan stað á Dalshrauni 13, Hfj.
20 % afsláttur af sóttum pizzum
H
u
g
sa
s
é
r!
S. 562 2104
Varahlutaverslunin
Varahlutaverslunin Kistufell | Brautarholti 16 | Sími: 562 2104 | www.kistufell.is | kistufell@kistufell.is
Legur
Örugg og góð þjónusta í 25 ár.
MYND
Bæjarhrauni 26, Hafnarfirði
S: 565 4207 - Gsm: 893 5950
www.ljosmynd.is
Pantaðu
jólamyndatökuna
tímalega
NICOLAI
Véla- og hjólastillingar
Tímareimar - Viðgerðir
BIFREIÐASTILLINGAR
Faxafeni 12 Sími 588-2455