Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2009, Síða 49

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2009, Síða 49
lífsstíll 30. október 2009 föstudagur 49 Ný tískubúð á akureyri Ný tískuvöruverslun mun opna á Akureyri um helgina. Verslunin er í Hafnarstræti 100 og ber nafnið Indy. Eigendur eru kærustuparið Árni Freyr Árnason og Hildur Friðriksóttir. Árni Freyr er hvergi banginn að opna nýja verslun í kreppunni. „Þetta er bara eitthvað sem mig hefur lengi langað að gera. Ætli það sé nokkurn tímann rétti tíminn? Við ákváðum bara að drífa í þessu núna,“ segir Árni. Í Indy verða m.a. merkin Nikita, DC og skólína frá Nike. Tími villibráðarinnar er í algleym- ingi og villibráðarblað Gestgjafans er komið í verslanir. Villti kokkur- inn Úlfar stóð í ströngu við að útbúa bragðmikla rétti úr íslenskri villibráð fyrir blaðið og býður hér upp á létt- steikta rjúpu í tilefni af því að rjúpna- veiðitímabilið er í þann mund að hefjast. Fyrir 4 16 rjúpubringur salt og nýmalaður pipar 4 msk. olía Kryddið rjúpubringur með salti og pipar og steikið upp úr olíu á pönnu í 1 mín. á hvorri hlið eða þangað til kjötið verður fallega brúnt. Færið bringurnar í eldfast mót og steikið í 180°C heitum ofni í 3 mín. Takið þá kjötið úr ofninum og látið hvílast í 3 mín. Endurtakið þannig að bringurnar verði samtals 9 mínút- ur í ofninum. Berið fram með kirsu- berjasósunni og til dæmis berja- soðnum perum, blönduðu grænmeti og steiktum kartöflum. Kirsuberjasósa 1 laukur, smátt saxaður 2 msk. olía 1 ½ dl portvín 1 msk. balsamedik 2 dl kirsuberjasósa frá Den Gamle Fabrik 1 tsk. tímían 1 msk. brómberjasulta 4 dl sterkt rjúpusoð sósujafnari 40 g kalt smjör í teningum salt og nýmalaður pipar Látið lauk krauma í olíu í potti í 2 mín. Bætið þá portvíni, balsamed- iki, kirsuberjasósu og tímíani í pott- inn og sjóðið niður um ¾. Setjið þá brómberjasultu og rjúpusoð sam- an við og þykkið með sósujafnara. Takið pottinn af hellunni og bætið smjöri saman við. Hrærið stöðugt í þar til smjörið hefur bráðnað, eftir þetta má sósan ekki sjóða. Smakkið til með salti og pipar. Dominique og Eymar mæla með þéttu Côtes du Rhône eins og J. Perr- in Côtes du Rhône village eða Guigal Côtes du Rhône. Château de Mont- faucon eða Chapoutier Belleruche verða einnig mjög fín með. Uppskrift: Úlfar Finnbjörnsson Í boði Gestgjafans: léttsteikt rjúpa með kirsuberjasósu UmsjóN: INDÍANA ÁsA HrEINsDóttIr, indiana@dv.is xxx Íslensk barnaföt Í Danmörku „Ég hef þegar fengið margar fyrir- spurnir um húfurnar því þær eru sniðugar undir hjólahjálminn og Danir ferðast jú flestir um allt á hjóli,“ segir Marín Manda Magn- úsdóttir sem á verslunina Baby- Kompagniet.dk í Danmörku en íslensku Ígló-vörurnar eru komnar í verslunina. Marín Manda er hæst- ánægð með sendinguna sem hún hefur ekki enn sett fram í búðina. „Helga fatahönnuður er ofboðslega fær og dugleg og ég hef mikla trú á að hún muni hanna skemmti- lega hluti í nánustu framtíð. Ég er nokkuð viss um að Ígló-vörurnar séu komnar til að vera, þrátt fyrir krepputíma,“ segir Marín Manda. Sjöfn Þórðardóttir, formaður Heimilis og skóla, segir algengt að þolendur eineltis séu með brotna sjálfsmynd þegar þeir vaxa úr grasi og að þeim vegni ekki alltaf vel í lífinu. Sjöfn segir fátt erfiðara fyrir foreldra en að þurfa að senda barn sitt af stað í skóla vit- andi hvað bíði þess þar. Samtökin heimili og skóli hafa hrint átaki gegn einelti úr vör. stjörnurnar halDa sér Í formi Eva Longoria drekkur þrjá lítra af vatni á dag til að losa líkamann við eitur- efni. Ef hún verður leið á bragðlausu vatninu bætir hún bara sítr- ónum, appelsínum eða jarðar- berjum út í til að fá örlítið bragð. Idol-kynnirinn Ryan Seacrest sem var þybbinn sem ungling- ur segist halda sér í formi með því að borða hollan fisk sem sé ríkur af omega-3 fitusýrum. Ryan mælir með sushi, laxi, sardínum og makríl. Söngkonan Fergie viðheld- ur magavöðv- um sínum með magaæfingum og eplaediki. „Ég fæ mér tvær skeið- ar af edikinu tvisvar á dag,“ segir söngkonan sem telur edikið minnka matarlistina. Leikkonan Katherine Heigl seg- ist halda sér í formi með því að borða litlar máltíðir á tveggja tíma fresti. Hollywood-stjarnan Gwyneth Paltrow mælir með grænu tei sem hún segir bjarga sinni heilsu. „Grænt te heldur mér frá súkkulaðiáti en veitir mér næg andoxunarefni og vökva og flýt- ir fyrir efnaskipt- unum,” segir leikkonan. „Ég vona að átakið skili öflugu for- varnastarfi og verði til þess að fólk horfi í kringum sig og verði vakandi gagnvart einelti,“ segir Sjöfn Þórðar- dóttir, formaður Heimilis og skóla, en átaki gegn einelti var ýtt úr vör í vik- unni af samtökunum. „Það er okkar von að foreldrar verði betur upplýst- ir um einkenni eineltis, hvernig þeir eiga að bregðast við og hvar sé best að leita lausna. Afleiðingar einelt- is geta verið skelfilegar og barn sem hefur orðið fyrir langvarandi einelti getur misst sjálfstraustið og sjálfs- mynd þess brenglast.“ Sjöfn segir það áberandi í um- ræðunni um einelti að margir sem lagðir voru í einelti í æsku og á ungl- ingsárunum hafi ekki gert sér grein fyrir hvað væri í gangi fyrr en á full- orðinsárum þegar eineltisumræð- an varð opnari og fólk tilbúnara að tjá sig um einelti og afleiðingar þess. „Þolendur héldu jafnvel að þeir sjálf- ir hefðu átt sökina á því að þeir hefðu verið lagðir í einelti og eru fyrir vikið með brotna sjálfsmynd svo mörgum þeirra vegnar ekki alltaf vel í lífinu,“ segir Sjöfn og bætir við að það sé sammerkt með þeim sem verða fyrir einelti að þeir beri þess merki á full- orðinsárum og eigi erfiðara með að fóta sig á atvinnumarkaði og í einka- lífinu. Spurð um úrræði handa fólki með brotna sjálfsmynd vegna ein- eltis segir hún mikilvægt að fólk leiti sér aðstoðar hjá sérfræðingum og sálfræðingum. Eineltisáætlun nauðsynleg „Flestir foreldrar sem leita til okk- ar hjá Heimili og skóla koma vegna þess að börn þeirra eru lögð í einelti. Margir foreldrarnir eru ráðalausir gagnvart vandanum og vita ekki hvert þeir eiga að snúa sér. Margir skólar vinna mjög gott starf í eineltismálum og gefa foreldrum og forráðamönn- um upplýsingar um eineltisáætlan- ir en það eru ekki allir skólar með virka eineltisáætlun og sums staðar er upplýsingaflæði ekki nógu öflugt. Mjög mikilvægt er að allir skólar hafi eineltisáætlun sína sýnilega á heima- síðu skólans og kynni áætlunina og verkferlana fyrir foreldrum, forráða- mönnum, nemendum og starfsliði. Það er mikilvægt að sofna ekki á verðinum,“ segir hún og bætir við að jafnframt sé mikilvægt fyrir vinnu- staði og íþróttafélög að koma sér upp áætlun varðandi einelti. „Öflugt for- varnastarf og fræðsla eru mikilvæg- ust, við verðum að gera okkur grein fyrir hvað einelti er og hvernig við bregðumst við þegar það kemur upp. Með þessu átaki viljum við fá samfé- lagið með okkur í lið til að koma í veg fyrir þær skelfilegu afleiðingar sem einelti getur haft. Fræðslan verður að byrja í frumbernsku, í leikskólum og halda áfram í gegnum grunnskóla og framhaldsskóla því það er ekki síður erfitt að byrja í framhaldsskóla,“ seg- ir Sjöfn sem vill sjá busavígslur sem jákvæðan og uppbyggilegan þátt í upphafi skólastarfs. Einelti eykst í kreppu Sjöfn segir líklega fátt jafnerfitt fyrir foreldra og að þurfa að senda barn sitt af stað í skólann vitandi hvað bíði þess þar. „Eins verða foreldrar að vera vakandi yfir breyttri hegð- un barnsins því stundum þora þau ekki að segja frá ofbeldinu. Ef barn- ið vill ekki fara í skólann, kvartar yfir magaverk, tekur ekki þátt í starfi á vegum skólans eða íþróttafélags- ins eða er ekki boðið í afmæli sem allir aðrir mæta í verða foreldrar að kanna málið,“ segir Sjöfn og bætir við að einelti aukist á erfiðum tím- um. „Rannsóknir sýna að líkur á að börn lendi í einelti aukast í kjölfar kreppu og bágs efnahagsástands. Miðað við ástandið sem nú ríkir í þjóðfélaginu eru allar líkur til þess að aukning geti orðið á einelti verði ekkert að gert og því er enn mikil- vægara en nokkru sinni að vera vel á verði,“ segir hún en bætir við að samfélagið hafi tekið einstaklega vel í átakið. „Það hefur orðið mikil breyting og vitundarvakning í þess- um málum. Einelti er ekki lengur feimnismál, fólk vill bregðast við þessu og ræða málin og við viljum endilega fá stjórnvöld og sveitarfé- lög í samvinnu með okkur því ein- elti er hlutur sem við líðum ekki. Við höfum hrint átaki gegn einelti úr vör, við erum rétt að byrja og munum aldrei láta staðar numið í baráttunni gegn einelti. Það eigið þið eftir að verða vör við á næstu vikum og mánuðum.“ indiana@dv.is ekki lengur feimnismál einelti Öflugt forvarnastarf mikilvægast „með þessu átaki viljum við fá samfélagið með okkur í lið til að koma í veg fyrir þær skelfilegu afleiðingar sem einelti getur haft,“ segir sjöfn. Léttsteikt rjúpa Er herramannsmatur. Mynd: KarL PEtErSSon

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.