Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.2009, Side 8
8 mánudagur 2. nóvember 2009 fréttir
Kanadíska rannsóknarblaðamanninum Julian Sher finnst það ógnvænleg þróun ef MC Iceland fær fulla
aðild að Hells Angels innan árs. Hann segir það þýða meiri fíkniefni, ofbeldi og morð á götum Íslands. Hann
líkir samtökunum við talíbana og Ku Klux Klan og brýnir fyrir foreldrum að fræða börnin sín um hætturnar
sem fylgja Vítisenglum. Hann mælir með því að lögreglan komi útsendara sínum inn í Hells Angels.
„BLÓÐ FYLGIR ALLTAF
HELLS ANGELS“
„Það sem fólk á Íslandi verður að
gera sér grein fyrir er að Hells Ang-
els er alþjóðlegt veldi skipulagðra
glæpa,“ segir kanadíski rannsókn-
arblaðamaðurinn Julian Sher í
samtali við DV. Hann hefur skrif-
að tvær bækur og fjöldann allan
af blaðagreinum um Hells Angels.
Honum finnst mjög athyglisvert að
MC Iceland, bifhjólaklúbburinn
sem áður var þekktur sem Fáfnir,
sé með stöðu prospect, eða vænt-
anlegra félaga, í Hells Angels-sam-
tökunum. Honum þykir það ógn-
vænleg þróun að innan árs verði
Hells Angels-útibú á Íslandi. „Þeir
teygja anga sína í 25 lönd, eru allt-
af að stækka og sífellt í leit að nýj-
um svæðum. Fólk verður að hætta
að lifa í blekkingu. Þetta eru bara
glæpamenn á mótorhjólum,“ út-
skýrir hann.
Blóðslóð Hells Angels
„Núna er þeim ógnað. Þeir eru að
berjast um heimsyfirráð við stór
gengi eins og Bandidos í gengja-
stríðum í Evrópu. Þeim er ógnað og
því er það skiljanlegt að þeir reyni
að opna nýja vígstöð á Íslandi.
Þeir sjá Íslandi sem frjósamt, nýtt
svæði,“ segir Julian. Hann segir erf-
itt að spá hvort aðrar stórar klíkur,
eins og Bandidos og Outlaws, verði
stofnaðar á Íslandi í kjölfar komu
Hells Angels. Hann segir komu
englanna þýða að aukið ofbeldi á
götum Reykjavíkur sé óumflýjan-
leg staðreynd.
„Þegar Hells Angels var ógnað
af Bandidos í Kanada var stríð sem
kostaði meira en 150 manns lífið. Í
Evrópu seint á tíunda áratugnum
átti sér stað það sem kallað er stóra
norræna stríðið. Þá var mikið of-
beldi í Amsterdam og Kaupmanna-
höfn og í kjölfarið fylgdu skotárásir
og sprengjur á flugvöllum. En það
er möguleiki að Bandidos og aðr-
ir andstæðingar Hells Angels leyfi
þeim að eiga Ísland í bili. Það að
Hells Angels séu komnir til Íslands
þýðir ekki að andstæðingar þeirra
komi líka strax. Það þýðir samt að
fyrr en síðar verður mikið ofbeldi
á götum Íslands. Blóð fylgir alltaf
Hells Angels.“
Lögreglan sofnaði
á verðinum
Julian segir meðlimi Hells Ang-
els oft myrða sína eigin meðlimi,
fíkniefnasala eða smærri gengi
sem þeir heyja stríð við. Hann seg-
ir Íslendinga þurfa að vera á varð-
bergi og láta ekki blekkjast af róm-
antísku ímyndinni sem Vítisenglar
hafa náð að skapa sér.
„Hells Angels er eina gengið
sem hefur mjög góða fjölmiðla-
fulltrúa og hefur náð að skapa sér
ímynd þar sem allir meðlimirnir
eru elskulegir áhugamenn um mót-
orhjól. Í Evrópu nota þeir ímynd-
ina um bandaríska kúrekann. Fólk
í Evrópu hefur mjög goðsagna-
kennda ímynd um Hollywood og
Bandaríkin. Hvað þýða Bandarík-
in fyrir Evrópubúa? Jú, þau þýða
Bruce Springsteen, Obama og
Hells Angels. Allt mjög amerískt,“
segir Julian. Hann segir lögregluna
hafa sofnað á verðinum þegar Hells
Angels byrjuðu að breiða anga sína
út um heiminn.
„Lögreglan, sérstaklega í Evr-
ópu, hefur hunsað þá ógn sem staf-
ar af Hells Angels og bara séð þá
sem aumingja og smákrimma. Það
gaf þeim greiða leið til að byggja
upp glæpaveldi sitt. Þetta gerðist
líka í Norður-Ameríku en það hef-
ur breyst.“
Hægt að stoppa þá
Julian hefur fylgst mikið með og
skrifað um þróun Hells Angels í
Kanada og Bandaríkjunum. Lög-
reglan í þeim löndum hefur síð-
ustu ár náð góðum árangri í að
berjast gegn útbreiðslu englanna.
Þó að langt sé í land er samt sem
áður von til að hægt verði að stöðva
samtökin fyrr en síðar.
„Í Bandaríkjunum og Kanada
eru starfrækt sérstök lögreglulið
sem rannsaka aðeins mótorhjóla-
gengi. Þeir hafa þróað með sér skiln-
ing og þekkingu á þessum gengjum
og náð að planta njósnurum með-
al þeirra. Venjulegir lögreglumenn
hafa ekki skilninginn og þekking-
una sem þarf til að berjast við jafn-
fáguð og háþróuð samtök og Hells
Angels eru. Lögreglan byrjaði smátt
og smátt að gera sér grein fyrir að
það er bara ein leið til að berjast við
englana. Það eru njósnir og ná að
dulbúa lögreglumenn og gera þá að
meðlimum samtakanna. Englarnir
eru mjög leynilegir og vinna sam-
kvæmt ströngum aga. Þetta er eina
leiðin til að stoppa þá.“
Aðspurður hvort íslenska lög-
reglan geti gert eitthvað á einu ári
svo MC Iceland fái ekki fulla aðild
að Hells Angels segir Julian það vel
hægt.
„Sérstaklega ef það er bara eitt
útibú. Flestar rannsóknir taka mán-
uði eða ár en ef einn eða tveir lög-
reglumenn eru fengnir til að rann-
saka aðeins Hells Angels og ekkert
annað geta þeir komist í samband
við kollega sína í útlöndum og skil-
að góðum árangri. Hells Angels eru
alþjóðleg samtök og þau deila upp-
lýsingum um lögregluna og fíkni-
efnaleiðir. Því ætti lögreglan ekki að
deila upplýsingum um samtökin?
Ef hún gerir það ekki verða meiri
fíkniefni og meira ofbeldi á götum
Íslands innan skamms.“
Bara glæpamenn
DV sagði frá því á miðvikudaginn
að MC Iceland væri nú þegar byrj-
ið að leita að íslenskum ungmenn-
um til að mynda stuðningsgrúppu
við gengið eins og tíðkast í öðrum
löndum. Þessi ungmenni eru síðan
notuð til að vinna skítverkin, jafn-
vel til að myrða andstæðinga sam-
takanna. Julian segir þetta mikið
áhættuefni og brýnir fyrir foreldr-
um að upplýsa börnin sín um hvað
Hells Angels-samtökin séu í raun.
„Ef unglingurinn þinn laðast að
Hells Angels áttu við stærri vanda-
mál að stríða en bara Hells Angels.
Foreldrar verða að fræða börnin
sín. Ef unglingurinn þinn vill nota
fíkniefni, slást og vera í gengi þá
geturðu ekki mikið gert. Ef þig lang-
ar til að vera glæpamaður gakktu
þá í Hells Angels en þá verður þú
að taka afleiðingunum. Hættan er
að unglingar haldi að Hells Angels
séu rómantísk samtök sem snúast
bara um að keyra á mótorhjólum.
Ef þig langar að skrá þig í herinn og
fara til Afganistan þá er það í lagi ef
þú gerir þér grein fyrir hættunum.
Sama gildir um Hells Angels. Þetta
eru bara glæpamenn.“
Julian hefur ekki aðeins skrif-
að mikið um Hells Angels heldur
einnig talíbana og Ku Klux Klan.
Hann segir Vítisenglana ekki ósvip-
aða þessum hópum.
„Ég tek viðtal við meðlimi Hells
Angels á faglegum grundvelli.
Sumir vilja tala við mig en flestir
ekki. Þeir hata blaðamenn og þeir
hata mig en það er allt í lagi. Ég er
stór strákur. Að taka viðtal við með-
lim Hells Angels er eins og að taka
viðtal við talíbana. Ég er ekki að
reyna að styðja starfsemi talíbana
heldur vinn ég mína vinnu faglega,
spyr erfiðra spurninga og vona
að ég sleppi lifandi,“ segir Julian.
Hann hefur rökrætt við meðlimi
samtakanna um starfsemi þeirra
í útvarpsþáttum. Honum hefur
sjálfum aldrei verið persónulega
hótað en var næstum því búinn að
missa góðan vin sinn eftir árás Vít-
isengla.
„Náinn vinur minn, þekktur
glæpablaðamaður í Kanada, varð
fyrir árás Hells Angels og var skotinn
sex sinnum. Þeir reyndu að drepa
hann en hann lifði af. Aðrir blaða-
menn sem ég þekki hafa verið lamd-
ir. Auðvitað reyna englarnir að ógna
því þeir lifa á ógnun. Þess vegna þarf
að standa uppi í hárinu á þeim. En
ef þeir eru hræddir við lágvaxinn
blaðamann með penna eins og mig
eru þeir ekki ógnvænlegu ruddarnir
sem þeir segjast vera.“
LiLJA KAtrín gunnArSdóttir
blaðamaður skrifar liljakatrin@dv.is
Við komuna Meðlimir í Fáfni MC taka á móti félögum sínum úr samtökum
Vítisengla í Leifsstöð.
Skotinn sex sinnum Hells Angels
reyndu að myrða vin Julians en hann
lifði af.
„Náinn vinur minn, þekktur glæpa-
blaðamaður í Kanada, varð fyrir
árás Hells Angels og var skotinn
sex sinnum. Þeir reyndu að drepa
hann en hann lifði af.“
Skólastjórinn daniel Egmose missti næstum son sinn í gengjastríði Hells Angels og innflytjenda:
Spiluðu rúllettu með líf sonarins
„Ég valdi að stíga fram sem að-
standandi eins af þeirra fjölmörgu
fórnarlömbum þessa brjálaða
gengjastríðs á götum Danmerkur.
Ég vil hvetja aðra í sömu aðstöðu að
stíga fram og mótmæla gengjaof-
beldi í staðinn fyrir að fela sig vegna
ótta við afleiðingarnar,“ segir skóla-
stjórinn Daniel Egmose í samtali
við Ekstrabladet. Sonur hans var
skotinn fyrir utan kaffihúsið Våren
í Amager-hverfinu í Kaupmanna-
höfn 1. mars í ár. Sonur hans tengist
hvorki Hells Angels né stuðnings-
grúppu þeirra AK81 en var samt
sem áður fórnarlamb í stríði gengj-
anna gegn innflytjendum.
Saklaust fórnarlamb
„Sunnudaginn 1. mars var ráð-
ist á son minn af tveimur glæpa-
mönnum með grímur og hann
skotinn tvisvar í lærið fyrir utan
Våren. Glæpamennirnir spurðu
hann hvort hann væri í AK81.
Hann svaraði að hann væri bara
aðdáandi Manchester United og
væri að fagna sigri.
Mennirnir töluðu um hvort
þeir ættu að drepa hann en hann
var heppinn miðað við hitt sak-
lausa fórnarlambið þetta kvöld
sem dó þegar annar maðurinn
skaut villt og galið inn í kaffi-
húsinu. Þetta kvöld endaði með
því að sonur minn var á röngum
stað á röngum tíma og varð enn
eitt saklaust fórnarlamb í gengja-
stríðinu,“ segir Daniel.
Engin áfallahjálp
Daniel er ekki ánægður með úr-
vinnslu lögreglunnar á málinu.
„Sonur minn var sendur á spít-
ala og fór í aðgerð. Á mánudags-
morgun var honum lofað áfalla-
hjálp en fékk hana ekki fyrr en á
laugardag. Það er ekki lögð áhersla
á hvort þessi fórnarlömb fá hjálp-
ina sem þau þurfa. Það vantar alla
áfallahjálp,“ segir Daniel.
„Það er ótrúlegt að saklaus maður
var næstum því drepinn eða skadd-
aður fyrir lífstíð vegna stríðs sem
hann hefur ekkert að gera með. Ef
ég get hindrað að aðrir liggi á mag-
anum á meðan tveir geðsjúklingar
spila rúllettu með líf þeirra hef ég
náð miklum árangri.“
liljakatrin@dv.is
Lætur í sér heyra
Daniel lætur Hells Angels
og AK81 ekki ógna sér
heldur mótmælir gengja-
stríðinu og ofbeldinu
sem því fylgir.