Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2009, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2009, Blaðsíða 9
fréttir 9. nóvember 2009 mánudagur 9 Betulic birkilaufstöflurnar innihalda 98% birkilaufsduft og eru framleiddar af natni með aðferð sem varðveitir upprunalega eiginleika birkilaufs sem allra best. Það er mikil og gömul hefð fyrir því að nota birkilauf sem fæðubótarefni til að hraða efnaskiptum og losa vatn úr líkamanum, draga úr bólgum og afeitra líkamann (detox). Birkilauf hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi líkamans og húð, auk þess sem það örvar starfsemi nýrna og þvagfæra. Ráðlagður dagskammtur 2 til 4 töflur er samsvarar 980 - 1960 mg. af birkilaufi. Betulic inniheldur hvorki laktósa, glúten, sætuefni né ger. BETULIC - BIRKILAUF www.birkiaska.is Lin Design • Laugavegi 176, gamla sjónvarpshúsið • sími 533 2220 • www.lindesign.is Stöð 2 lét kanna fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar: Forsetinn umdeildur Samkvæmt skoðanakönnun sem Rannsóknarmiðstöð Háskólans á Bifröst gerði fyrir fréttastofu Stöðvar 2 lýstu 29 prósent að- spurðra sig sammála því að Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, eigi að segja af sér embætti. Tæp 62 prósent voru hins veg- ar ósammála því að forsetinn segði af sér. Tíu prósent aðspurðra sögðust hvorki vera sammála né ósammála því að forsetinn færi frá. Meirihluti þeirra sem sögð- ust vilja að forsetinn segði af sér embætti er búsettur á höfuðborg- arsvæðinu en Stöð 2 greindi frá því í gær að rúmur þriðjungur höfuðborgarbúa vilji að forsetinn segi af sér. Þegar svörin eru greind eft- ir kyni og aldri kemur í ljós að þrjátíu prósent karlmanna vilja að forsetinn hætti en 27 prósent kvenna. Flestir sem vilja að Ólaf- ur Ragnar segi af sér embætti eru á aldursbilinu 45 til 54 ára en 38 prósent svarenda úr þeim hópi segjast sammála því að forsetinn segi af sér. Eldri borgarar virðast þó öllu hliðhollari forsetanum en aðeins 12 prósent fólks á aldrin- um 65 til 75 ára sögðust vilja að hann segði af sér. Úrtakið í könnunninni taldi 1.350 manns úr þjóðskrá á aldr- inum 18 til 75 ára af landinu öllu. 859 svörðuðu í könnuninni sem gerð var dagana 26. október til 3. nóvember. Umdeildur Samkvæmt skoðana- könnun sem gerð var fyrir Stöð 2 vill tæpur þriðjungur þjóðarinnar að Ólafur Ragnar Grímsson segi af sér embætti forseta Íslands. MAJONESDROTTNING GEGN NEYSLUHYGGJU BÆKUR KLEOPÖTRU2005 Daggardropar2006 Hermikrákuheimur2008 Það var gott að deyja 2008 Vetrarnótt ÚR BLAÐAAUGLÝSINGUM KLEOPÖTRU: „Allir vilja tala við Kleopötru, dansa við hana, þó ekki væri nema aðeins að snerta hana. Fólk buktar sig og beygir í djúpri lotningu og virðingu fyrir henni, ekki bara karlmenn heldur konur líka.“ „Dómgreindarleysi er algengt einkenni alkóhólista enda innifalið í orðinu all- ur mesti viðbjóður veraldar, það þýðir geðveiki, ógeðslegt, sóðalegt og sjúkt líferni. Ef þú ert alkóhólisti þá ertu sjálfselskur og óheiðarlegur, siðblindur og alveg rosalega mikill vargur eins og óargadýr. Þá ertu nautnasjúkur, hömlulaus og skítug hóra.“ „Hún er þessi dularfulla kona, dulúðug og fjarræn. Hún vekur alls staðar gífurlega mikla athygli og aðdáun, fólk fellur að fótum hennar og allir vilja þekkja hana. Karlmenn missa ráð og rænu, svitna og horfa á hana fullir löngunar en þora ekki að tala við hana.“ „Fólk sem nennir að velta sér upp úr efnahagsmálum og pólitík finnst mér alveg ferlega leiðinlegt og andlega fatlað fólk.“ „Mín kynni af Kleopötru eru stórkostleg, hún er svo ótrúlega vakandi og lifandi, ótrúlega vel gefin, hress, skemmtileg, hlý og góð. Að vera í návist hennar er engu lagi líkt.“ „En það eru til klikkaðar konur sem er alveg sama, bara ef hann á peninga. Það eru kerlingavargar, sjálfselskar og kaldar sem svífast einskis til að ná í peninga. Þeir karlmenn sem hafa lyst á að umgangast slíkar konur eru þá svo heimskir að þeir sjá ekki í gegnum þær eða þá þeir eru svo sjúkir að þeim er alveg sama og moka peningum í þessar ógeðslegu kerlingar, sem sagt verð- launa þær fyrir að vera viðbjóður. Karlar sem ala slíkar nöðrur við brjóst sér eru mjög heimskir og hallærislegir, líka hlægilegir.“ „Kleopatra er ímynd kvenlegrar fegurðar og yndisþokka, geislar af kynþokka. Hún er mjög andleg og er gædd dulrænum hæfileikum þó hún sjálf hafi aldrei viljað opinbera það.“ „Ofvirkni fylgir allur mesti viðbjóður heims, það er algjört hömluleysi, allt í botni. Þessi manneskja er eins og skepna, vitskert eða alveg vitfirrt með snarbrenglað raunveruleikaskyn og enga dómgreind. Ofvirkt fólk er siðblint eins og alkóhólistar. Greyin, þau eru svo sjúk, vantar svo sárlega hjálp.“ heimili hans í fylgd með vinkonum sínum. „Ég þekki hana og hún er alveg frábær. Kleopatra er afskap- lega mennsk og er með þægileg- asta fólki í viðmóti. Mér finnst hún ein yndislegasta manneskja sem ég hef séð. Hún er mjög sérkennileg og þorir að skera sig út úr hópnum. Hún er svo langt frá því að herma eftir öðrum og hún er mjög sjálf- stæð persóna. Fyrir mér sker hún sig úr að því leyti að hún fagnar skynseminni og hafnar nautnalíf- inu. Þannig berst hún gegn því að fólk sé að njóta meira en það ræður við,“ segir Gunnar. „Kleopatra virðist vera með tals- verðan hóp fylgismanna enda hef- ur hún verið mjög dugleg og ákveð- in. Það má segja að hún sé komin með söfnuð í kringum sig sem fylg- ir þessari hugmynd skynseminnar. Hennar sérstaða er að þora að vera hún sjálf og þannig stendur hún eins og klettur í hafinu. Fyrir utan hvað hún er falleg og indæl kona er það einkum þessi staðreynd sem vakti aðdáun mína.“ Enginn trúarleiðtogi Kleopatra leggur áherslu á að þótt boðskapur hennar hafi feng- ið hljómgrunn víða sé hún alls enginn trúarleiðtogi eða miðill. Hún blæs á gamlar kjaftasögur frá heimabæ sínum, Vopnafirði, og segist hreinlega enga samleið hafa átt með bæjarbúum. „Ég átti bara enga samleið með fólkinu í bænum og þess vegna flutti ég þaðan á sín- um tíma. Allt tal um mig í einhverj- um kirkjugörðum er algjört bull, ég er hreinlega hrædd við kirkjugarða og þangað fer ég ekki inn, hvort sem er að degi til eða nóttu,“ segir Kleopatra. „Ég er trúuð en ég stýri engum sértrúarsöfnuði, það eru ekki einu sinni allir trúaðir í hópnum. Það getur vel verið að fólk líti á mig sem leiðtoga en ég get ekkert gert að því. Það hefur síðan rignt yfir mig símtölum frá fólki sem biður mig um að sjá inn í framtíðina en ég er enginn miðill. Ég hef vissulega ákveðna andlega hæfileika en sjá- andi er ég ekki.“ Fimm kíló af majonesi Sigtryggur Baldursson tónlistar- maður, einnig þekktur undir nafn- inu Bogomil Font, gaf út jóladisk í samstarfi við Stórsveit Reykjavíkur sem hlaut nafnið Majonesjól. Það lá beint við að leita eftir styrkjum hjá Gunnars Majonesi og segir Sig- tryggur það hafa verið lærdómsríkt ferli. „Þetta var skemmtilega spaugi- legt allt saman. Í einhverju gálga- gríni leituðum við til fyrirtækisins og fengum þau svör að forstjóri fyr- irtækisins ætlaði að mæta með her ljósmyndara. Á útgáfutónleikun- um mætti forstjórinn, þessi góða kona, og gaf okkur risastóra maj- onesdollu. Þarna fengum við einhver 5 kíló af majonesi afhent,“ segir Sigtrygg- ur. „Þessi upplifun var mjög skrít- in og sérstök. Ég hef síðan heyrt að hún sé einhvers konar andlegur leiðtogi og þessar auglýsingar frá henni hafa verið sérstakar, ég fatta þær ekki alveg. Ég hef hins vegar bara gott af henni að segja.“ Smáauglýsingasíminn er smaar@dv.is 515 55 50SmáauglýSingaSíminn er515 55 50 smaar@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.