Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2009, Side 24
24 mánudagur 9. nóvember 2009
brown fékk sér guinness Phil Brown, stjóri Hull City, mætti ekki í viðtöl við fjölmiðlamenn
eftir sigur liðsins gegn Stoke. Í hans stað fengu fjölmiðlar að ræða við aðstoðarstjórann Brian Hort-
on. Horton var spurður um fjarveru stjórans og svaraði af hreinskilni. „Hann er að fá sér Guinness,
hann verðskuldar einn.“ Brown hefur verið undir mikilli pressu að undanförnu og orðrómur var
um að hann yrði rekinn ef liðið næði ekki sigri gegn Stoke. Aðspurður hvort þessi úrslit hefðu
bjargað starfinu hjá Brown sagði Horton: „Ég neita að svara þessu. Ég held að það ætti ekki
að spyrja að þessu, við vonumst til að geta komist á skrið, enginn talar um svona heimsku-
lega hluti.“ Hull er þrátt fyrir sigurinn ennþá í fallsæti en liðið hefur einungis unnið fjóra af
síðustu 34 leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni.
2 sport
UmSjón: Benedikt BóAS HinrikSSon, benni@dv.is
enska úrvalsdeildin
aston villa - bolton 5–1
1-0 Ashley Young (‘5), 2-0 Gabriel Agbonlahor (‘43), 2-1 Johan
Elmander (‘45), 3-1 John Carew (‘53), 4-1 James Milner (‘72),
5-1 Carlos Cuellar (‘76).
blackburn - portsmouth 3-1
0-1 Jamie O’Hara (‘15), 1-1 Jason Roberts (‘53), 2-1 R. Nelsen
(‘73), 3-1 Jason Roberts (‘86).
manchester city - burnley 3-3
0-1 Graham Alexander (‘19, víti), 0-2 Steven Fletcher (‘32),
1-2 Shaun Wright Phillips (‘43), 2-2 Kolo Toure (‘55), 3-2 Craig
Bellamy (‘58), 3-3 Kevin McDonalds (‘87).
tottenham - sunderland 2–0
1-0 Robbie Keane (‘12), 2-0 Tom Huddlestone (‘68)
wolves - arsenal 1-4
0-1 Ronald Zubar (‘28, sjálfsmark), 0-2 Jody Craddock (‘35,
sjálfsmark), 0-3 Cesc Fabregas (‘45), 0-4 Andrey Arshavin (‘66),
1-4 Jody Craddock (‘89).
west ham - everton 1–2
0-1 Louis Saha (‘27), 0-2 Dan Gosling (‘64), 1-2 Tony Hibbert
(‘65, sjálfsmark).
wigan - fulham 1–1
1-0 Emerson Boyce (‘14), 1-1 Clint Dempsey (‘39, víti).
hull - stoke 2–1
0-1 Matthew Etherington (‘29), 1-1 Seyi Olofinjana (‘62), 2-1
Jan Vennegoor of Hesselink (‘90+1).
n Abdoulaye Faye (‘87)
chelsea - manchester united 1–0
1-0 John Terry (́ 76).
staðan
Lið L U J T M St
1. Chelsea 12 10 0 2 29:8 30
2. Arsenal 11 8 1 2 36:14 25
3. man.Utd. 12 8 1 3 23:12 25
4. tottenham 12 7 1 4 23:17 22
5. Aston Villa 12 6 3 3 20:12 21
6. man.City 11 5 5 1 21:14 20
7. Liverpool 11 6 0 5 25:16 18
8. Sunderland 12 5 2 5 20:19 17
9. Stoke 12 4 4 4 12:15 16
10. Burnley 12 5 1 6 15:25 16
11. Fulham 11 4 3 4 14:14 15
12. everton 11 4 3 4 15:17 15
13. Wigan 12 4 2 6 13:22 14
14. Blackburn 11 4 1 6 14:25 13
15. Birmingham 11 3 2 6 8:12 11
16. Bolton 11 3 2 6 15:24 11
17. Hull 12 3 2 7 10:25 11
18. West Ham 12 2 4 6 16:20 10
19. Wolves 12 2 4 6 12:22 10
20. Portsmouth 12 2 1 9 10:18 7
championship
bristol - sheff. wed. 1–1
newcastle-peterbro 3-1
nott.forest-bristol city 1-1
plymouth-doncaster 2-1
reading-ipswich 1-1
sheff.wed.-Q.p.r. 1-2
blackpool-scunthorpe 4-1
c. palace - middlesbro 1-0
leicester - wba 1-2
watford - preston 2-0
swansea -cardiff 3-2
derby -coventry 2-1
staðan
Lið L U J T M St
1. newcastle 16 10 3 3 25:10 33
2. WBA 16 9 4 3 31:14 31
3. Cardiff 16 8 3 5 33:19 27
4. QPr 16 7 6 3 29:17 27
5. Blackpool 16 7 6 3 26:17 27
6. Leicester 16 7 6 3 19:14 27
7. Bristol City 16 6 8 2 19:15 26
8. nott. Forest 16 6 7 3 18:15 25
9. Swansea 16 6 7 3 14:12 25
10. middlesbro 16 7 3 6 22:17 24
11. Preston 16 6 6 4 23:22 24
12. Watford 16 6 6 4 24:26 24
13. C. Palace 16 5 7 4 16:17 22
14. Sheff. Wed. 16 4 5 7 23:25 17
15. Sheff. Utd 15 4 5 6 23:26 17
16. Coventry 16 4 5 7 18:25 17
17. derby 16 5 2 9 19:27 17
18. Barnsley 15 5 2 8 18:26 17
19. Scunthorpe 16 5 2 9 20:32 17
20. doncaster 16 2 9 5 19:22 15
21. Plymouth 16 4 3 9 16:27 15
22. reading 16 3 5 8 15:25 14
23. ipswich 16 1 9 6 17:28 12
24. Peterborough 16 2 5 9 19:28 11
HERRA CHELSEA
Herra Chelsea, John Terry, skoraði
eina mark Chelsea í risaleik enska
boltans gegn Manchester United.
Terry skoraði markið með skalla á 76.
mínútu eftir sendingu góðvinar síns
Franks Lampard. Chelsea er þar með
komið með fimm stiga forskot í topp-
sætinu og hefur unnið tíu heimaleiki
í röð.
Manchester United réð ferðinni
framan af og slapp Wayne Rooney
einn í gegn en var ranglega dæmdur
rangstæður af aðstoðardómaranum.
Fyrri hálfleikur var markalaus og mik-
il stöðubarátta í gangi.
Didier Drogba hefur verið sjóð-
heitur að undanförnu en hann fékk
karatespark í sig frá Johnny Evans
sem var heppinn að sleppa við að fá
spjald. Miðað við viðbrögð Drogbas
benti margt til þess að hann væri rif-
beinsbrotinn en framherjinn öflugi
var ekki lengi að jafna sig á þessum
hræðilegu meiðslum frekar en vana-
lega og var hann kominn aftur inn á
skömmu síðar.
Skömmu síðar kom markið. Þá átti
Darren Fletcher að hafa brotið á As-
hley Cole og var Skotinn allt annað en
sáttur með að dómarinn skyldi dæma
aukaspyrnu. Leikmenn Manchest-
er United mótmæltu harðlega en
Lampard hitti beint á kollinn á Terry
sem skoraði. Chelsea tók stigin þrjú
og hefur sigrað alla heimaleiki sína í
deildinni í ár og 11 leiki í röð í öllum
keppnum. Jafna þeir þar með met sitt
frá árinu 2006.
Sjö titlar sem fyrirliði
Terry er fæddur sjöunda desember
1980 og hefur alltaf spilað með Chel-
sea. Kom til félagsins þegar hann var
14 ára gamall. Hann spilaði sinn fyrsta
leik með Chelsea 28. október 1998
þegar hann kom inn á gegn Aston
Villa. Fyrsti leikurinn hans í byrjunar-
liðinu var gegn Oldham í FA-bikarn-
um, sem Chelsea vann 2-0. Árið 2000
fór hann á lán til Notthingham Forest
en var kallaður til baka skömmu síð-
ar.
Tímabilið 2000-2001 var hann síð-
an búinn að brjóta sér leið í byrjunar-
liðið og var kosinn leikmaður ársins af
liðsfélögum sínum. Fimmta desem-
ber 2001 varð hann fyrirliði Chelsea
í fyrsta sinn gegn Charlton. 2003-
2004 tímabilið lét Claudio Ranieri,
sem þá var stjóri Chelsea, hann
verða fyrirliða í stað Marcels Des-
illy og hélt Jose Mourinho sig við
val Ranieris.
Sem fyrirliði hefur Terry
unnið sjö titla sem er einum
meira en Dennis Wise. Hann er
gríðarlega vinsæll meðal stuðn-
ingsmanna Chelsea og eru
margir söngvar sungnir honum
til heiðurs.
Terry er oft kallaður Herra
Chelsea. Manchester City reyndi
að fá hann til liðsins í sumar
með risalaunatékka en Terry ákvað
að vera áfram hjá Chelsea. Hann
þarf reyndar ekkert að kvarta und-
an laununum hjá Chelsea því
hann er með 130 þúsund pund
í vikulaun, rúmar 28 milljón-
ir króna.
Fréttir utan fótboltans
Terry hefur oft komist í fréttirnar fyrir
eitthvað allt annað en fótbolta. Hann
var ákærður ásamt liðsfélaga sínum
Jody Morris og vini Des Byrne fyrir
líkamsárás í næturklúbbi árið 2000 en
var síðar hreinsaður af öllum ákær-
um.
Terry komst síðan aftur í fréttirn-
ar skömmu eftir 11. september 2001
þegar hann ásamt nokkrum Chelsea-
mönnum gerðu grín að bandarísk-
um túristum. Grínið féll í afar grýttan
jarðveg.
Þá varð nánast allt vitlaust í Bret-
landi þegar The Sun birti myndir af
Bentley-glæsibifreið Terrys í stæði
fatlaðra. Terry var orðinn of seinn
að hitta konuna sína á pitsustað og
nennti ekki að leita að stæði. Borgaði
frekar bara sektina. Þetta voru Bretar
ekki sáttir við.
Terry býr í Oxshott sem
er í Surrey ásamt kon-
unni sinni Toni
Poole Terry og
tvíburun-
um þeirra
Georgie
John og
Sum-
mer
Rose sem komu í heiminn 18. maí
2006. Terry fagnaði fæðingu þeirra
með marki gegn Ungverjalandi með
klassísku fagni.
Parið giftist í júní 2007 og naut sín
í brúðkaupsferð á risasnekkju rúss-
neska eiganda Chelsea, Rom-
an Abramovich, Pelorus
í Miðjarðarhafi. Terry
hefur gríðarleg-
an áhuga á golfi,
sundi, skvassi og
pílukasti. Þá á
Terry eldri bróð-
ur sem er einn-
ig atvinnumað-
ur í fótbolta með
Rushden & Dia-
monds.
Fjölskylduve-
sen
Þrátt fyrir að sjá
vel fyrir fjölskyldu
sinni hafa foreldr-
ar Terrys kom-
ist í fréttirnar fyrir
miður góðar sak-
ir. Ted Terry, pabbi
hans, var staðinn að
því að selja kókaín á
klósetti veitingastaðar
í Essex í Englandi. Náði
blaðamaður að fanga
viðskiptin á falda mynd-
bandsvél. Er Ted Terry
afhenti honum
kókaínið
sagði
hann blaðamanninum að segja eng-
um að hann væri faðir Johns Terry en
Ted hafði ekki grun um að kaupand-
inn væri blaðamaður.Kemur þetta
hneyksli sjö mánuðum eftir að móðir
Johns Terry var staðin að
búðarhnupli.
BenedikT BóaS hinRikSSon
blaðamaður skrifar: benni@dv.is
John Terry tryggði Chelsea sigur á Manchester United í risaleik enska boltans. Terry
hefur átt viðburðaríka viku. Pabbi hans komst líka á forsíður ensku blaðanna fyrir
kókaínsölu á skemmtistöðum. Fyrir sjö mánuðum var móðir Terrys staðin að búðar-
hnupli. Terry er Chelsea-maður í gegn og neitaði í sumar risatilboði Manchester City.
Tveir nánir john terry ásamt góðvini
sínum Frank Lampard.
Flottur fyrirliði terry
skoraði sigurmarkið gegn
manchester United.