Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2009, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2009, Side 17
fréttir 9. nóvember 2009 mánudagur 17 Plataði unga drengi til að fróa sér Erik Andersen mætti fyrir Follo-þing- rétt í Noregi á mánudaginn. Hann er ákærður fyrir 66 kynferðisbrot gegn ungum, norskum piltum. Hann hef- ur játað á sig sök í sjö brotum. Auk þess játaði hann á sig sök að hluta til í níu brotum, þar á meðal broti gegn barni sem var yngra en fjórtán ára þegar brotið átti sér stað. Öll þessi brot fela í sér að Erik lokkaði piltana til að stinga hendinni ofan í buxna- vasa hans. Hann hafði þá klippt gat á vasann þannig að piltarnir kom- ust í beina snertingu við getnaðarlim hans og fróuðu honum. Erik neitar tveimur alvarlegustu brotunum sem eru nauðganir. Misnotaður í æsku Lögreglan hafði leitað að Erik, vasa- manninum svokallaða, síðan árið 2003. Hún handtók hann 11. janúar í fyrra á heimili sínu í Bergen. Mál- ið hefur vakið mikinn óhug í Noregi og er þetta stærsta mál sem tengist misnotkun á börnum þar í landi. Erik gengur undir nafninu vasamaðurinn í norskum fjölmiðlum en hefur einn- ig verið kallaður skrímsli. Erik tók sér sæti í vitnastúkunni í byrjun vikunnar og sagði frá barn- æsku sinni. „Síðan ég var lítill hefur mér fund- ist að kynhneigð sé eitthvað erfitt og flókið sem ég vissi ekki hvernig ég ætti að takast á við,“ sagði Erik. Í fram- haldinu sagði hann frá atviki þegar hann var fimm eða sex ára gamall. Þá dró einhver niður um hann bux- urnar og sýndi krökkunum í skólan- um það. „Ég varð mjög ringlaður og stress- aður. Strax þá tapaði ég miklu af sjálfstraustinu mínu. Þegar ég byrjaði í skólanum fannst mér eins og allir væru að hlæja að mér út af þessu.“ Þá sagði Erik frá því að hann hefði verið misnotaður í æsku þegar strák- ur lokkaði hann með sér bak við skól- ann og fékk hann til að framkvæma kynferðislegar athafnir. Hann sagð- ist hafa upplifað sömu spennu þá og hann upplifði þegar hann braut gegn ungu strákunum. „Ég vissi sem barn að þetta var rangt og ég myndi lenda í vandræð- um ef þetta myndi uppgötvast. Það var spenna í þessu, sama spenna og í brotunum sem ég hef framið.“ Seinna sama ár, þegar Erik var átta ára, var hann misnotaður af eldri konu sem hann þekkti að hans sögn. Sú misnotkun varði í tvö eða þrjú ár og segir Erik sektarkenndina fylgja sér enn. Fullur af viðbjóði Erik braut fyrst af sér þegar hann var aðeins ellefu ára gamall. Hann var í fríi þegar eldri maður beraði sig fyrir framan hann og í kjölfarið beraði Erik sig fyrir framan yngri strák. Strákur- inn er einn fjölmargra vitna sem taka sæti í vitnastúkunni seinna í réttar- höldunum. „Ég skammaðist mín og fylltist viðbjóði yfir því sem ég hafði gert,“ sagði Erik. Drengurinn hefur sagt í yf- irheyrslum lögreglunnar að Erik hafi líka reynt að lokka hann til að stinga höndinni í vasa sinn. Þessu neitar Erik. Lögreglan telur að Erik hafi fram- ið sitt fyrsta brot þegar hann var sex- tán ára á strönd fyrir utan Bergen árið 1967. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglu hefur Erik aldrei átt í venjulegu sambandi við konu en fengið útrás fyrir samlíf með konu sinni til margra ára, en þau skildu árið 2002. Streita og þunglyndi Sjálfur segir Erik fimm dómínókubba vera ástæðuna fyrir brotum sínum. Áður en hann útskýrði hverjir þessir fimm kubbar væru í Follo-þingrétti á mánudag fannst honum mikilvægt að gefa frekari skýringar. „Það sem ég mun segja er ekki af- sökun. Það er engin afsökun fyrir því sem ég hef gert. En ég ætla að segja frá nokkrum hlutum sem gætu verið útskýring fyrir þá sem vilja setja hlut- ina í samhengi.“ Fyrsti af fimm dómínókubbunum er krónísk streita og þunglyndi. Eft- ir að Erik opnaði bílalökkunarverk- stæðið sitt árið 1974 vann hann nán- ast allan sólarhringinn. Hann fékk mígreni, krónískan astma og háls- vandamál. „Í lokin varð þetta að því sem ég vissi ekki nafnið á fyrr en ég fór í fangelsi: krónískt þunglyndi. Mér var sama um allt, ekkert var nokkurs virði,“ sagði Erik í þingréttinum. Slappaði af við brotin Dómínókubbur númer tvö er leiði að sögn Eriks. Eftir að faðir hans lést og kona hans flutti út árið 2002 hrundi veröld hans. Honum fannst leiðin- legt að vera einn heima og sökkti sér frekar ofan í áhugamál sitt – bíla. Hann fór í langa bíltúra og í þessum túrum fékk hann löngun til að brjóta kynferðislega af sér. Í kjölfarið útskýrði hann dómínó- kubb númer þrjú: spennu og adren- alínkikk. „Spennan sem ég upplifði við að brjóta af mér gerði mig afslappaðan. Ég hef aldrei notað fíkniefni en ég get ímyndað mér að þetta sé sama til- finning,“ sagði þessi 57 ára barnaníð- ingur í vitnastúkunni. Fjórði og næstsíðasti dómínó- kubburinn er tengsl að sögn Eriks. Hann þurfti að tengjast fólki sem krafðist ekki neins af honum. „Ég þurfti einhvern sem var auð- veldur í umgengni, sem var góður og tillitssamur. En ég hef því miður leit- að í drengi sem var tiltölulega auðvelt að plata.“ Segja má að kynferðisleg örvilnan sé dómínókubbur númer fimm. Erik hefur verið óöruggur kynferðislega frá því hann var barn vegna kynferð- islegrar misnotkunar. Góður ásetningur Í réttarhöldunum í síðustu viku neitaði Erik því ítrekað að hann væri barna- níðingur þrátt fyrir að fjölmargir sál- fræðingar séu sammála um það. Erik segist hins vegar vera tvíkynhneigður. „Ég er tuttugu prósent tvíkyn- hneigður tilfinningalega séð. Þó að aðstæður hafi gert það erfitt fyrir mig þá væri ég til í að vera í sambandi með sætri og vinalegri konu á ný. Ég er sýndur sem skrímsli í fjölmiðl- um þannig að ég á erfitt uppdráttar,“ sagði Erik við dómarann. Hann við- urkennir að hafa brotið lög en neitar því að hafa nauðgað ungum drengj- um. „Ég hef ekki bara brotið norsk lög heldur líka brotið á því kærasta sem við eigum – börnunum okkar. Mér finnst særandi að ég sé sakaður um nauðgun. Ég vildi aldrei þvinga mér á þá. Minn ásetningur hefur alltaf ver- ið góður.“ Líður illa Erik þvertekur fyrir að hafa klippt holu á buxnavasa sinn. Hann segir vasann hafa verið slitinn og því hafi nokkur barnanna fundið holuna og sett fingurinn í gegnum hana. Hann játar samt sem áður að hafa notað vasabrelluna, eins og aðferð hans er kölluð í þingréttinum, í fyrsta sinn árið 2003. Hann segist hafa feng- ið hugmyndina frá drengjum á bað- strönd í Ósló. Erik hefur reynt að útskýra fyrir dómurum af hverju hann laðast sér- staklega að drengjum á milli sjö og ellefu ára. „Á þessum aldri eru þeir forvitnir og hjálpsamir. Þeir eru líka ekki eins efasemdafullir og eldri strákar.“ Erik virðist iðrast og segist hugsa oft um þau börn sem hann hefur brotið á. „Á þesum tíma sem ég hef ver- ið í fangelsi líður ekki sá dagur að ég hugsi ekki um það sem ég hef gert. Um börnin og fjölskyldur þeirra. Mér finnst þetta hræðilegt og mér líður illa yfir því sem ég hef gert þeim. Að ég hafi platað þá. Þeir treystu fullorð- inni manneskju sem plataði þá. Þetta er eingöngu mín sök en ekki barn- anna.“ Þvingaður til munnmaka Ein af alvarlegri ákærunum í mál- inu er vegna sautján ára gamals drengs sem heldur því fram að Erik hafi þvingað hann til að framkvæma munnmök í búningsherbergi í sund- laug þegar hann var aðeins sjö ára. Pilturinn segir að Erik hafi látið sápu í augu sín áður en hann neyddi hann til að framkvæma munnmök. „Hann spurði mig hvort hann ætti að hjálpa mér að þvo á mér hár- ið með sjampó. Hann setti sjampó í hárið á mér og nuddaði augu mín með þumlunum þannig að ég sá nánast ekkert,“ sagði drengurinn í vitnastúkunni á miðvikudag. Erik neitar þessum ásökunum alfarið. Hann segist eingöngu hafa hjálp- að drengnum að þvo sápu af andliti hans. „Það getur vel verið að drengur- inn hafi verið misnotaður, að annar maður hafi gert þessa ljótu hluti við hann, en það var ekki ég.“ Móðir drengsins steig einnig í vitnastúkuna og segir atvikið hafa gjörbreytt syni sínum. „Glaði strákurinn hvarf. Hann er lokaður og mikið heima. Honum finnst að allir geti séð á honum hvað hefur gerst. Ég held að hann sé sak- bitinn,“ sagði móðirin. Réttarhöldin yfir Erik fara fram nánast daglega á virkum dögum fram í lok mars á næsta ári. Um tut- tugu fórnarlömb Eriks munu bera vitni. Bíladellukarl Erik hefur alltaf haft mikinn áhuga á bílum. Hann keyrði langa túra sem kölluðu fram löngun til að leita kynferðislega á unga drengi. Staðreyndir um vasamannsmálið n Lögreglan hefur leitað að hinum svokallaða vasamanni síðan 2003. Hann var grunaður um að hafa kynferðislega brotið gegn fleiri hundruðum norskra smástráka síðustu fjörutíu árin. n Föstudaginn 11. janúar í fyrra handtók lögreglan 57 ára milljarðamæringinn Erik Andersen sem er sakaður um að vera vasamaðurinn. n Lögregluna grunar að Erik hafi bortið kynferðislega gegn að minnsta kosti tveimur sænskum börnum. n Erik er ákærður fyrir 66 kynferðisbrot gegn ungum drengjum á tímabilinu 1999 til 2006. Tvö alvarlegustu brotin eru nauðganir. n Réttarhöld yfir Erik hófust síðasta mánudag og þeim mun væntanlega ekki ljúka fyrr en 31. mars á næsta ári. n Norska ríkissjónvarpið NRK telur að rannsókn málsins hafi kostað 15 til 16 milljónir norskra króna. n Erik er fráskilinn, tveggja barna faðir. Réttað í Follo Dómsmálið yfir Erik Andersen hefur vakið gríðarlega athygli. Bein útsending Norska fréttasíðan VG er með beinar útsendingar frá réttarhöldunum. Missti augað í árás 38 ára gömul bresk móðir, Julie Hobson, missti augað eftir að tví- tugur karlmaður réðst á hana með fólskulegum hætti á Englandi í sumar. Konan hafði það eitt til saka unnið að biðja manninn um að gæta orðbragðs í návist þrettán ára gam- allar dóttur hennar. Konan þurfti að gangast undir aðgerð vegna mikilla áverka á höfði og neyddust lækn- ar til að fjarlægja annað augað úr konunni. Árásarmaðurinn Thomas Wilkinsson var fyrir helgi dæmdur í sex ára fangelsi fyrir árásina. Hinn 41 árs gamli Jason Rodriguez, sem skaut sex manns og drap einn á fyrrverandi vinnustað sínum í Orl- ando á föstudagskvöldið, var alvar- lega veikur á geði. Þetta segir lögmað- ur mannsins í samtali við bandaríska fjölmiðla. Rodriguez, sem er verk- fræðingur að mennt, var sagt upp störfum fyrir tveimur árum vegna niðurskurðar hjá fyrirtækinu Smith og Hall sem sérhæfði sig í verkefnum í byggingariðnaðinum. „Þetta lítur út fyrir að vera voðaverk sem orsakast af geðrænum óstöðugleika,“ segir lög- maðurinn. Svo virðist sem Rodriguez hafi tek- ið uppsögnina árið 2007 mjög inn á sig sem hafi svo endað með voðaverkinu á föstudagskvöldið. Árásin beindist ekki gegn einhverjum tilteknum að- ilum heldur skaut Rodriguez handa- hófskennt á alla sem urðu á vegi hans. Hann flúði svo skömmu síðar. Móðir hans segir í samtali við bandaríska fjölmiðla að hún sé mið- ur sín yfir atvikinu. Rodriguez fannst einmitt á heimili móður sinnar skömmu eftir árásina í úthverfi Orl- ando. „Mér þykir það svo leiðinlegt að svona hafi farið. Ég er mjög miður mín,“ segir hún. Við yfirheyrslur hjá lögreglu sagðist Rodriguez kenna for- svarsmönnum fyrirtækisins um bága fjárhagsstöðu sína. Rodriguez hefur nú verið úrskurðaður í gæsluvarð- hald þar til dómur fellur í máli hans en lögmaður hans segir að málsvörn- in muni byggjast á því að hann glímdi við geðræn vandamál. einar@dv.is Veikur á geði gerði skotárás á fyrrverandi vinnustað sinn: Móðir morðingja miður sín Handtekinn á heimili móður sinnar Rodriguez er sagður hafa glímt við geðræn vandamál að undanförnu. Mynd AFP

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.