Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2009, Síða 17
fréttir 9. nóvember 2009 mánudagur 17
Plataði unga drengi til að fróa sér
Erik Andersen mætti fyrir Follo-þing-
rétt í Noregi á mánudaginn. Hann er
ákærður fyrir 66 kynferðisbrot gegn
ungum, norskum piltum. Hann hef-
ur játað á sig sök í sjö brotum. Auk
þess játaði hann á sig sök að hluta til
í níu brotum, þar á meðal broti gegn
barni sem var yngra en fjórtán ára
þegar brotið átti sér stað. Öll þessi
brot fela í sér að Erik lokkaði piltana
til að stinga hendinni ofan í buxna-
vasa hans. Hann hafði þá klippt gat
á vasann þannig að piltarnir kom-
ust í beina snertingu við getnaðarlim
hans og fróuðu honum.
Erik neitar tveimur alvarlegustu
brotunum sem eru nauðganir.
Misnotaður í æsku
Lögreglan hafði leitað að Erik, vasa-
manninum svokallaða, síðan árið
2003. Hún handtók hann 11. janúar
í fyrra á heimili sínu í Bergen. Mál-
ið hefur vakið mikinn óhug í Noregi
og er þetta stærsta mál sem tengist
misnotkun á börnum þar í landi. Erik
gengur undir nafninu vasamaðurinn
í norskum fjölmiðlum en hefur einn-
ig verið kallaður skrímsli.
Erik tók sér sæti í vitnastúkunni
í byrjun vikunnar og sagði frá barn-
æsku sinni.
„Síðan ég var lítill hefur mér fund-
ist að kynhneigð sé eitthvað erfitt og
flókið sem ég vissi ekki hvernig ég
ætti að takast á við,“ sagði Erik. Í fram-
haldinu sagði hann frá atviki þegar
hann var fimm eða sex ára gamall.
Þá dró einhver niður um hann bux-
urnar og sýndi krökkunum í skólan-
um það.
„Ég varð mjög ringlaður og stress-
aður. Strax þá tapaði ég miklu af
sjálfstraustinu mínu. Þegar ég byrjaði
í skólanum fannst mér eins og allir
væru að hlæja að mér út af þessu.“
Þá sagði Erik frá því að hann hefði
verið misnotaður í æsku þegar strák-
ur lokkaði hann með sér bak við skól-
ann og fékk hann til að framkvæma
kynferðislegar athafnir. Hann sagð-
ist hafa upplifað sömu spennu þá og
hann upplifði þegar hann braut gegn
ungu strákunum.
„Ég vissi sem barn að þetta var
rangt og ég myndi lenda í vandræð-
um ef þetta myndi uppgötvast. Það
var spenna í þessu, sama spenna og í
brotunum sem ég hef framið.“
Seinna sama ár, þegar Erik var
átta ára, var hann misnotaður af eldri
konu sem hann þekkti að hans sögn.
Sú misnotkun varði í tvö eða þrjú ár
og segir Erik sektarkenndina fylgja
sér enn.
Fullur af viðbjóði
Erik braut fyrst af sér þegar hann var
aðeins ellefu ára gamall. Hann var í
fríi þegar eldri maður beraði sig fyrir
framan hann og í kjölfarið beraði Erik
sig fyrir framan yngri strák. Strákur-
inn er einn fjölmargra vitna sem taka
sæti í vitnastúkunni seinna í réttar-
höldunum.
„Ég skammaðist mín og fylltist
viðbjóði yfir því sem ég hafði gert,“
sagði Erik. Drengurinn hefur sagt í yf-
irheyrslum lögreglunnar að Erik hafi
líka reynt að lokka hann til að stinga
höndinni í vasa sinn. Þessu neitar
Erik.
Lögreglan telur að Erik hafi fram-
ið sitt fyrsta brot þegar hann var sex-
tán ára á strönd fyrir utan Bergen
árið 1967.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglu hefur Erik aldrei átt í venjulegu
sambandi við konu en fengið útrás
fyrir samlíf með konu sinni til margra
ára, en þau skildu árið 2002.
Streita og þunglyndi
Sjálfur segir Erik fimm dómínókubba
vera ástæðuna fyrir brotum sínum.
Áður en hann útskýrði hverjir þessir
fimm kubbar væru í Follo-þingrétti
á mánudag fannst honum mikilvægt
að gefa frekari skýringar.
„Það sem ég mun segja er ekki af-
sökun. Það er engin afsökun fyrir því
sem ég hef gert. En ég ætla að segja
frá nokkrum hlutum sem gætu verið
útskýring fyrir þá sem vilja setja hlut-
ina í samhengi.“
Fyrsti af fimm dómínókubbunum
er krónísk streita og þunglyndi. Eft-
ir að Erik opnaði bílalökkunarverk-
stæðið sitt árið 1974 vann hann nán-
ast allan sólarhringinn. Hann fékk
mígreni, krónískan astma og háls-
vandamál.
„Í lokin varð þetta að því sem
ég vissi ekki nafnið á fyrr en ég fór í
fangelsi: krónískt þunglyndi. Mér
var sama um allt, ekkert var nokkurs
virði,“ sagði Erik í þingréttinum.
Slappaði af við brotin
Dómínókubbur númer tvö er leiði að
sögn Eriks. Eftir að faðir hans lést og
kona hans flutti út árið 2002 hrundi
veröld hans. Honum fannst leiðin-
legt að vera einn heima og sökkti
sér frekar ofan í áhugamál sitt – bíla.
Hann fór í langa bíltúra og í þessum
túrum fékk hann löngun til að brjóta
kynferðislega af sér.
Í kjölfarið útskýrði hann dómínó-
kubb númer þrjú: spennu og adren-
alínkikk.
„Spennan sem ég upplifði við að
brjóta af mér gerði mig afslappaðan.
Ég hef aldrei notað fíkniefni en ég get
ímyndað mér að þetta sé sama til-
finning,“ sagði þessi 57 ára barnaníð-
ingur í vitnastúkunni.
Fjórði og næstsíðasti dómínó-
kubburinn er tengsl að sögn Eriks.
Hann þurfti að tengjast fólki sem
krafðist ekki neins af honum.
„Ég þurfti einhvern sem var auð-
veldur í umgengni, sem var góður og
tillitssamur. En ég hef því miður leit-
að í drengi sem var tiltölulega auðvelt
að plata.“
Segja má að kynferðisleg örvilnan
sé dómínókubbur númer fimm. Erik
hefur verið óöruggur kynferðislega
frá því hann var barn vegna kynferð-
islegrar misnotkunar.
Góður ásetningur
Í réttarhöldunum í síðustu viku neitaði
Erik því ítrekað að hann væri barna-
níðingur þrátt fyrir að fjölmargir sál-
fræðingar séu sammála um það. Erik
segist hins vegar vera tvíkynhneigður.
„Ég er tuttugu prósent tvíkyn-
hneigður tilfinningalega séð. Þó að
aðstæður hafi gert það erfitt fyrir mig
þá væri ég til í að vera í sambandi
með sætri og vinalegri konu á ný.
Ég er sýndur sem skrímsli í fjölmiðl-
um þannig að ég á erfitt uppdráttar,“
sagði Erik við dómarann. Hann við-
urkennir að hafa brotið lög en neitar
því að hafa nauðgað ungum drengj-
um.
„Ég hef ekki bara brotið norsk lög
heldur líka brotið á því kærasta sem
við eigum – börnunum okkar. Mér
finnst særandi að ég sé sakaður um
nauðgun. Ég vildi aldrei þvinga mér á
þá. Minn ásetningur hefur alltaf ver-
ið góður.“
Líður illa
Erik þvertekur fyrir að hafa klippt
holu á buxnavasa sinn. Hann segir
vasann hafa verið slitinn og því hafi
nokkur barnanna fundið holuna og
sett fingurinn í gegnum hana. Hann
játar samt sem áður að hafa notað
vasabrelluna, eins og aðferð hans er
kölluð í þingréttinum, í fyrsta sinn
árið 2003. Hann segist hafa feng-
ið hugmyndina frá drengjum á bað-
strönd í Ósló.
Erik hefur reynt að útskýra fyrir
dómurum af hverju hann laðast sér-
staklega að drengjum á milli sjö og
ellefu ára.
„Á þessum aldri eru þeir forvitnir
og hjálpsamir. Þeir eru líka ekki eins
efasemdafullir og eldri strákar.“
Erik virðist iðrast og segist hugsa
oft um þau börn sem hann hefur
brotið á.
„Á þesum tíma sem ég hef ver-
ið í fangelsi líður ekki sá dagur að ég
hugsi ekki um það sem ég hef gert.
Um börnin og fjölskyldur þeirra. Mér
finnst þetta hræðilegt og mér líður
illa yfir því sem ég hef gert þeim. Að
ég hafi platað þá. Þeir treystu fullorð-
inni manneskju sem plataði þá. Þetta
er eingöngu mín sök en ekki barn-
anna.“
Þvingaður til munnmaka
Ein af alvarlegri ákærunum í mál-
inu er vegna sautján ára gamals
drengs sem heldur því fram að Erik
hafi þvingað hann til að framkvæma
munnmök í búningsherbergi í sund-
laug þegar hann var aðeins sjö ára.
Pilturinn segir að Erik hafi látið sápu
í augu sín áður en hann neyddi hann
til að framkvæma munnmök.
„Hann spurði mig hvort hann
ætti að hjálpa mér að þvo á mér hár-
ið með sjampó. Hann setti sjampó
í hárið á mér og nuddaði augu mín
með þumlunum þannig að ég sá
nánast ekkert,“ sagði drengurinn í
vitnastúkunni á miðvikudag. Erik
neitar þessum ásökunum alfarið.
Hann segist eingöngu hafa hjálp-
að drengnum að þvo sápu af andliti
hans.
„Það getur vel verið að drengur-
inn hafi verið misnotaður, að annar
maður hafi gert þessa ljótu hluti við
hann, en það var ekki ég.“
Móðir drengsins steig einnig í
vitnastúkuna og segir atvikið hafa
gjörbreytt syni sínum.
„Glaði strákurinn hvarf. Hann
er lokaður og mikið heima. Honum
finnst að allir geti séð á honum hvað
hefur gerst. Ég held að hann sé sak-
bitinn,“ sagði móðirin.
Réttarhöldin yfir Erik fara fram
nánast daglega á virkum dögum
fram í lok mars á næsta ári. Um tut-
tugu fórnarlömb Eriks munu bera
vitni.
Bíladellukarl Erik hefur alltaf haft
mikinn áhuga á bílum. Hann keyrði langa
túra sem kölluðu fram löngun til að leita
kynferðislega á unga drengi.
Staðreyndir um vasamannsmálið
n Lögreglan hefur leitað að hinum svokallaða vasamanni síðan 2003. Hann
var grunaður um að hafa kynferðislega brotið gegn fleiri hundruðum norskra
smástráka síðustu fjörutíu árin.
n Föstudaginn 11. janúar í fyrra handtók lögreglan 57 ára milljarðamæringinn Erik
Andersen sem er sakaður um að vera vasamaðurinn.
n Lögregluna grunar að Erik hafi bortið kynferðislega gegn að minnsta kosti
tveimur sænskum börnum.
n Erik er ákærður fyrir 66 kynferðisbrot gegn ungum drengjum á tímabilinu 1999
til 2006. Tvö alvarlegustu brotin eru nauðganir.
n Réttarhöld yfir Erik hófust síðasta mánudag og þeim mun væntanlega ekki ljúka
fyrr en 31. mars á næsta ári.
n Norska ríkissjónvarpið NRK telur að rannsókn málsins hafi kostað 15 til 16
milljónir norskra króna.
n Erik er fráskilinn, tveggja barna faðir.
Réttað í Follo Dómsmálið yfir Erik
Andersen hefur vakið gríðarlega athygli.
Bein útsending Norska
fréttasíðan VG er með beinar
útsendingar frá réttarhöldunum.
Missti augað í árás
38 ára gömul bresk móðir, Julie
Hobson, missti augað eftir að tví-
tugur karlmaður réðst á hana með
fólskulegum hætti á Englandi í
sumar. Konan hafði það eitt til saka
unnið að biðja manninn um að gæta
orðbragðs í návist þrettán ára gam-
allar dóttur hennar. Konan þurfti að
gangast undir aðgerð vegna mikilla
áverka á höfði og neyddust lækn-
ar til að fjarlægja annað augað úr
konunni. Árásarmaðurinn Thomas
Wilkinsson var fyrir helgi dæmdur í
sex ára fangelsi fyrir árásina.
Hinn 41 árs gamli Jason Rodriguez,
sem skaut sex manns og drap einn
á fyrrverandi vinnustað sínum í Orl-
ando á föstudagskvöldið, var alvar-
lega veikur á geði. Þetta segir lögmað-
ur mannsins í samtali við bandaríska
fjölmiðla. Rodriguez, sem er verk-
fræðingur að mennt, var sagt upp
störfum fyrir tveimur árum vegna
niðurskurðar hjá fyrirtækinu Smith
og Hall sem sérhæfði sig í verkefnum
í byggingariðnaðinum. „Þetta lítur út
fyrir að vera voðaverk sem orsakast af
geðrænum óstöðugleika,“ segir lög-
maðurinn.
Svo virðist sem Rodriguez hafi tek-
ið uppsögnina árið 2007 mjög inn á sig
sem hafi svo endað með voðaverkinu
á föstudagskvöldið. Árásin beindist
ekki gegn einhverjum tilteknum að-
ilum heldur skaut Rodriguez handa-
hófskennt á alla sem urðu á vegi hans.
Hann flúði svo skömmu síðar.
Móðir hans segir í samtali við
bandaríska fjölmiðla að hún sé mið-
ur sín yfir atvikinu. Rodriguez fannst
einmitt á heimili móður sinnar
skömmu eftir árásina í úthverfi Orl-
ando. „Mér þykir það svo leiðinlegt
að svona hafi farið. Ég er mjög miður
mín,“ segir hún. Við yfirheyrslur hjá
lögreglu sagðist Rodriguez kenna for-
svarsmönnum fyrirtækisins um bága
fjárhagsstöðu sína. Rodriguez hefur
nú verið úrskurðaður í gæsluvarð-
hald þar til dómur fellur í máli hans
en lögmaður hans segir að málsvörn-
in muni byggjast á því að hann glímdi
við geðræn vandamál.
einar@dv.is
Veikur á geði gerði skotárás á fyrrverandi vinnustað sinn:
Móðir morðingja miður sín
Handtekinn á heimili móður
sinnar Rodriguez er sagður hafa
glímt við geðræn vandamál að
undanförnu. Mynd AFP