Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2009, Side 18
Ein er sú kona á landi hér sem gáfuðust er. Hún er forstjóri Gunnars Majoness. Fylgis-menn Kleopötru segja að fólk
bukti sig og beygi í djúpri lotningu og
virðingu fyrir henni. Karlmenn missa
ráð og rænu og svitna, við það eitt að
sjá móta fyrir henni.
Svarthöfði hefur aðeins séð við-líka lýsingar á tveimur mann-eskjum, eða hálfmennskum goðum; Jesú Kristi og Davíð
Oddssyni. Svo segir í lýsingum fylg-
ismanna Kleopötru: „Hún er svo
ótrúlega vakandi og lifandi, ótrúlega
vel gefin, hress, skemmtileg, hlý og
góð... Allir vilja tala við Kleopötru,
dansa við hana, þó ekki væri nema
aðeins að snerta hana.“ Sjálf segir
Kleopatra að allir vilji faðma hana.
Þetta er ekki ólíkt lýsingum Davíðs
Oddssonar á þeirri gríðarlegu velvild
meðal almennings sem hann varð
var við eftir hrunið, og sem hann
lýsti í Kastljóssviðtali við Sigmar
Guðmundsson 24. febrúar síð-
astliðinn.
Davíð hefur oft bent á djúp-stæð vandamál þeirra sem gagnrýna hann. Ef fólk er ósammála honum er það
ýmist á valdi Baugsveldisins, eða jafn-
vel lesblint eða heyrnarlaust, eins og
hann lýsti í viðtali við Sölva Tryggva-
son fyrir nokkrum vikum. Kleopatra
bendir á aðra fötlun gagnrýnenda
hennar. „Óvildarmenn mínir vilja
greinilega hefna sín á mér og það fólk
er andlega veikt.“
Kleopatra þykir fremri rithöf-undur en allir aðrir. Hún skrifaði „bestu bók sem til er“, samkvæmt eiganda
Gunnars Majoness. Davíð þótti svo
fær höfundur að ekki varð umflúið
að gera kvikmynd eftir handriti hans
um Opinberun Hannesar. Þó var ekki
um að ræða opinberun Hannesar
Hólmsteins
um ágæti
frjáls-
hyggjunnar og atgervi Davíðs sjálfs,
sem hefði orðið biblíuleg epík.
Svo segir um Davíð í guðspjalli Hannesar Hólmsteins 28: 06: 08: „Davíð Oddsson er svo öflugur maður, að hann hef-
ur ekki glatað áhrifum sínum, þótt
hann sé ekki lengur í fylkingarbrjósti
í stjórnmálum. Rætur áhrifa hans
eru tvíþættar. Í fyrsta lagi nýtur hann
mikillar virðingar og trausts þorra
þjóðarinnar, þótt orðastrákar á kaupi
hjá óvinum hans reyni að gera lítið
úr því. Menn vita, hversu heill Davíð
er og heiðarlegur, hreinn og beinn og
hræsnislaus. Í öðru lagi gegnir Davíð
auðvitað enn lykilstöðu sem banka-
stjóri Seðlabankans. Hann hefur átt
drjúgan þátt í því, að bankarnir virðast
vera að komast út úr þeirri kreppu,
sem þeir voru í. Vandlega er hlustað á
Davíð í hinum alþjóðlega peninga- og
bankaheimi.“
Davíð nýtur sum sé virðingar jafnt almúgans sem alþjóð-legra aðalsmanna. Áhrifa hans gætir jafnvel þótt hann
sé ekki á staðnum, kannski ekki svo
ólíkt Drottni almáttugum. Og Jesús
Kristur sjálfur sló fyrst almennilega
í gegn eftir að hann var krossfestur.
Davíð leiðir þjóðina út úr kreppu, líkt
og Móses sem klauf Rauðahafið. Þessi
orð Hannesar voru reyndar skrifuð
þremur mánuðum áður en Davíð
leiddi Seðlabankann í 300 milljarða
króna gjaldþrot og þjóðin sökk til
botns.
Svarthöfði fyllist alltaf tortryggni þegar annað fólk fyllist lotn-ingu gagnvart öðrum. Var ein-hver dáðari af fylgismönnum
sínum en David Koresh, sem leiddi þá
til guðs með dýrðlegum hætti í Waco
í Texas 19. apríl 1993? Þótti einhver
vera öflugri og gáfaðri af fylgismönn-
um sínum en Adolf Hitler? Það allra
versta í mannkynssögunni hefur gerst
undir traustri handleiðslu sterks leið-
toga. En kannski er Svarthöfði bara
lesblint, heyrnarlaust og andlega veikt
handbendi Baugs.
Nú er það ekki þannig að Svarthöfði óttist að majon-esið fari úr böndunum. En miðað við lýsingar læri-
sveina Kleopötru er nánast óumflýj-
anlegt að hún fylli það skarð í hjarta
þjóðarinnar sem Davíð skildi eftir
sig. Kleopatra fagnar skynseminni
og hafnar nautnalífinu. Hún er 2009.
Bara að hugsjónir Kleopötru endi ekki
í kokteilsósu eins og Borgarahreyfing-
in og frjálshyggjan.
Davíð og Kleopatra
Spurningin
„Ég hef engan
áhuga á að tala
við þig,“ segir
Björn Leifsson,
kenndur við
World Class. Í
fréttum Stöðvar 2
í gær reyndi Björn
að bera blak af
því sem haldið
hefur verið fram í
fjölimiðlum, að hann sé á leið í þrot og
byggi sér lúxusbústað á Þingvöllum
þrátt fyrir það. Björn réttlætti
byggingu sumarbústaðarins meðal
annars með því að hann hefði ekki
tekið ákvörðun um að „vera sjálfur í
bústaðnum“ og liti frekar á hann sem
fjárfestingu.
Hver fær þá að vera
í bústaðnum, björn?
„Ætli maður
hafi ekki orðið
svolítið „street-
smart“ þá.“
n Tryggvi Þór Herbertsson alþingismaður um
pönktímabilið sem hann tók virkan þátt í. Tók upp
tónlist margra af helstu pönk- og nýbylgjusveit-
um landsins í Stúdíó Mjöt. – DV
„Hann var svo
lítill þegar hann
kom.“
n Lilja Sif Þorsteinsdóttir hjá
Dýrahjálp Íslands um köttinn Daníel
Ágúst og af hverju hann hlaut það nafn. – DV
„Hún er bara mjög góð
kona.“
n Jón Viðarsson, kallaður Marteinn, úr
aðdáendahópi Kleopötru Kristbjargar
Stefánsdóttur. Hún er með stóran hóp af fólki í
kringum sig sem hún kallar bræður og systur sem
öll virðast lofsyngja hana út í eitt. – DV
„Hann mun hanga á
þessu eins og hundur á
roði.“
n Sigurður Gylfi Magnússon sagnfræðingur
um að Ólafur Ragnar Grímsson muni ríghalda í
forsetaembættið en Sigurði finnst að hann eigi að
segja af sér. – DV
„...honum var þá bent
vinsamlega á það að í
liðinu hans væru hrein-
lega feitir menn.“
n Blaðamaður Fréttablaðsins, Henry Birgir
Gunnarsson, skrifar um viðtal við Halldór
Ingólfsson, þjálfara Gróttu, í N1-deild karla. –
Fréttablaðið
Klúðurhænsni Íslands
Leiðari
Almenningur á Íslandi býr við stöðug-an kvíða vegna heimsku manna sem gera sér enga grein fyrir raunveru-legri stöðu. Þeir sem stærsta ábyrgð
bera á hruninu koma nú fram sem hvítþvegn-
ir englar og spá dauða og djöfli. Stjórnmála-
menn tala út og suður og auka á örvilnan
almennings sem ekki veit sitt rjúkandi ráð.
Fíflin sem gerðu Icesave að möguleika tala nú
um klúður við samninga og yfirvofandi ham-
farir. Þau iðrast einskis en reyna með öllum
ráðum að halda þjóðinni í vonleysi. Draug-
ar ríða þar húsum og kveða dómsdagsrímur.
Hagfræðingar virðast ekki vera á einu máli
um raunstöðu Íslands. Sumir eru með heims-
endaspár og tala um gjaldþrot Íslands með
tilheyrandi þjáningum á meðan aðrir lýsa
ástandinu sem bærilegu. Engin leið er fyrir
venjulegt fólk að gera sér grein fyrir því hvað
er rétt í mismunandi mati þeirra sem eiga að
hafa sömu menntun. Þetta eru sumpart sömu
fræðingarnir og sáu engar blikur á lofti þegar
útrásargeðveikin var sem mest. Þá lágu þeir á
meltunni og töldu allt vera í himnalagi.
Raunveruleikinn er líklega sá að það er
engin ástæða til að örvænta. Ísland er skuld-
sett en þar er ekkert óviðráðanlegt á ferð.
Guðmundur Ólafsson hagfræðingur sagði
í Silfri Egils í gær að ástandið yrði strembið
um tíma en síðan næði þjóðarbúið jafnvægi.
Hann benti á að þeir sem halda því fram að
þjóðin skuldi 330 prósent af landsframleiðslu
séu á villigötum. Þar væri búið að reikna inn
skuldir einkafyrirtækja í útlöndum sem aldrei
kæmu til kasta ríkisins. Rétta skuldahlutfallið
miðað við landsframleiðslu væri 57 prósent
af landsframleiðslu. Guðmundur benti á að
yfirvofandi þjóðargjaldþrot væri fjarri öllum
raunverleika. En hann varaði þjóðina þó við
að kalla til valda sömu öflin og komu þjóð-
inni í þann vanda sem við er að glíma. Klúð-
urhænsnin kallar hann þá einstaklinga sem
halda þarf valdalausum. Þetta hljómar skyn-
samlega hjá hagfræðingnum. Þjóðin þarf á
því að halda að bjartsýnin hefji innreið sína
og daglegt líf komist í skorður eftir botnlausa
örvæntingu kreppunnar. Til þess að svo verði
verður að þagga niður í klúðurhænsnum og
galinu í hana þeirra, honum Hádegismóra.
reynir traustason ritstjóri sKrifar. Þjóðin þarf á því að halda að bjartsýnin hefji innreið sína og daglegt líf komist í skorður eftir botnlausa örvæntingu kreppunnar.
bókStafLega
18 mánudagur 9. nóvember 2009 umræða
Sandkorn
n Það er sterk taug á milli Björg-
ólfs Guðmundssonar athafna-
manns og Davíðs Oddssonar,
ritstjóra Moggans, sem á sín-
um tíma kom Landsbankan-
um í eigu
Björgólfs og
félaga. Kær-
leikurinn
kom í ljós
þegar allir
fjölmiðlar
fluttu fréttir
af því að
rannsókn
væri hafin á því að Björgólfur
fékk 600 milljónir króna að láni
frá dótturfélagi Landsbankans
til að stofna minningarsjóð um
dóttur sína. Morgunblaðið sagði
frá málinu í eindálki lengst inni í
blaðinu. Forsíða blaðsins fjallaði
um jarðakaup Kaupþingsmanna.
n Björgólfur Guðmundsson
á ekki sjö dagana sæla nú um
stundir. Um árabli hefur hann
ekki þurft
að lyfti litla
fingri sér
til varn-
ar. Dyggur
einkaþjónn
hans, Ásgeir
Friðgeirs-
son, hefur
ævinlega
verið mættur sem sverð hans
og skjöldur. Nú er Björgólfur í
vanda vegna þess að hann fékk
sambærilega upphæð, ólöglega
að talið er, að láni óbeint frá eig-
in banka til að stofna minningar-
sjóð um dóttur sína. Aðspurður
neitar Ásgeir að tjá sig um málið
af því Björgólfur á ekki peninga.
Hann hefur sem sagt snúið baki
við fóstra sínum.
n Eitt af kostulegri tríóum ís-
lenskrar umræðu samanstendur
af Ástþóri Magnússyni fram-
bjóðanda, Davíð Oddssyni,
ritstjóra og hrunamanni, og
Hannesi Hólmsteini Gissurar-
syni prófessor. Málflutningur
þremenninganna er algjörlega
samræmdur og þá sérstaklega
þar sem kemur að DV. Keppast
þeir, hver um annan þveran, um
að ota spjótum sínum að blað-
inu. Ekki er ljóst hve djúpstæð
vinátta þeirra þriggja er. Þó er
talið að það sé aðeins tímaspurs-
mál hvenær Ástþór, utangarðs-
maðurinn í íslenskri pólitík, fær
inni í spilaklúbbi Davíðs.
n Talsverð umræða var um
væntanlegt tilboð Guðmundar
Franklíns Jónssonar, hóteleig-
anda og verðbréfasala, um tilboð
í Haga, eignarhaldsfélag Bónuss,
Hagkaupa og 10-11. Boðað var
að málið yrði auglýst nánar um
liðna helgi. Ekkert bólar á aug-
lýsingunni
og þögn er
um málið.
Giskað var á
að Jón Ger-
ald Sullen-
berger, eig-
andi Kosts,
og jafnvel
Jón Helgi
Guðmundsson stæðu að baki
þessu en ekkert er enn upplýst.
Huldumennirnir sem vilja Haga
eru horfnir.
LyngháLS 5, 110 ReykjavÍk
Útgáfufélag: Útgáfufélagið Birtíngur ehf.
Stjórnarformaður: hreinn Loftsson
framkvæmdaStjóri: Sverrir arngrímsson
ritStjórar:
jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is
og Reynir Traustason, rt@dv.is
fréttaStjórar:
Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is
og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is
auglýSingaStjóri:
elísabet austmann, elisabet@birtingur.is
dv á netinu: dv.iS
aðalnÚmer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010,
áSkriftarSími: 512 7080, auglýSingar: 512 7050.
SmáauglýSingar: 515 5550.
umbrot: dv. Prentvinnsla: Landsprent. dreifing: árvakur.
dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.