Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2009, Page 27
sviðsljós 9. nóvember 2009 mánudagur 27
Tekur upp myndband á ströndinni:
mariah
í malibú
Ein vinsælasta og söluhæsta söngkona heims fyrr og síð-ar, Mariah Carey, var stödd á
ströndinni í Malibu í síðustu viku að
taka upp myndband. Þó að söngkon-
an hafi bætt lítillega á sig undanfar-
ið var hún alveg óhrædd við að skella
sér í efnislítinn sundbol og hlaupa
eftir ströndinni.
Vinsældir söngkonunnar eru gíf-
urlegar um allan heim en þó sérstak-
lega í Bandaríkjunum. 12 af plötum
hennar hafa náð platínusölu. Hún var
fyrst allra í heiminum til að ná fyrstu
fimm smáskífum sínum eða lögum
á topp Billboard Hot 100-listans í
Bandaríkjunum. Þá á hún flest topp-
lög allra sólólistamanna í Bandaríkj-
unum og er í öðru sæti á eftir Bítlun-
um í heildina.
Mariah Carey Flott á ströndinni.
Ótrúlega vinsæl Það
eru fáir sem skáka Carey.
gaga
í gegnsæju
Á veitingastað í
Lundúnum:
Söngkonan Lady GaGa er löngu hætt að koma á óvart
með klæðavali sínu en
þrátt fyrir það tekst henni
ennþá að vekja á sér at-
hygli með því. Söngkon-
an var stödd í Lundún-
um aðfaranótt föstudags
og var þá klædd í gegn-
sæjan kjól sem skildi lít-
ið eftir handa ímyndun-
araflinu.
GaGa var að yfirgefa veit-
ingastaðinn Balans þeg-
ar myndirnar voru tekn-
ar en hún hafði snætt
síðbúinn kvöldverð þar.
GaGa sagði frá því nýlega
að hún hefði skemmt sér
konunglega við að vinna
með Idol-stjörnunni
Adam Lambert fyrir plöt-
una hans For Your Ent-
ertainment. GaGa sem-
ur eitt lag fyrir kappann
sem verður á plötunni.Lady GaGa Klæðavalið kemu
ekki á óvart þótt það veki athygli.
30 days
Apótekin & Heilsubúðirnar
www.leit.is · Smellið á ristilvandamál
Á gamla gamla verðinu.
Losnið við hættulega kviðfitu og komið
maganum í lag með því að nota
náttúrulyfin Oxytarm og 30 days saman.
Umboðs- og söluaðili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Birkilauf
Apótekin & Heilsubúðirnar
www.leit.is · Smellið á ristilvandamál
Á gamla gamla genginu.
Oxy tarm
Endurnærir og hreinsar ristilinn
Allir dásama Oxy tarmið