Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2009, Page 6
6 miðvikudagur 18. nóvember 2009 fréttir
„Við tökum þetta að sjálfsögðu al-
varlega og bregðumst við þessu. Ef
uppi eru grunsemdir um aðila sem
ítrekað hefur reynt í sama hverfinu
þá viljum við finna viðkomandi.
Við biðjum foreldra endilega um
að gefa okkur nánari lýsingar eða
upplýsingar,“ segir Árni Þór Sig-
mundsson, stöðvarstjóri í Grafar-
vogi.
Tvívegis hefur lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu verið tilkynnt
um dularfullan mann í bláum bíl
í Grafarvogi, nánar tiltekið í húsa-
hverfinu, sem reynir að lokka ung-
ar stúlkur upp í bíl til sín með því að
bjóða þeim nammi. Það var síðast
á föstudag sem maðurinn reyndi
að tæla unga stúlku úr Húsaskóla
til sín þegar hún var á leið úr leik-
fimi. Áður hafði dularfullur mað-
ur, á bláum bíl, reynt að tæla ung-
ar stúlkur í bílinn við sundlaug
Grafarvogsbúa og það reyndi hann
einnig með nammipoka við hönd.
Í báðum tilvikum var lögreglu til-
kynnt um atburðina án þess að við-
komandi væri handsamaður.
Aðspurður segir Árni Þór mikil-
vægt að lögreglan fái sem gleggstar
lýsingar á atburðum. Hann bend-
ir á að lögreglan sé að skoða svip-
að mál í nágrenninu, þar er leitað
að dularfullum manni á hvítum
sendiferðabíl sem reynt hefur að
lokka börn inn í bílinn. „Venjulega
erum við mjög vakandi yfir svona
perratilkynningum. Við erum með
svipað mál til rannsóknar í Grafar-
holti og höfum áhyggjur af manni
þar sem reynir að bjóða börnum
upp í bíl. Lýsingarnar eru hins veg-
ar mjög óljósar,“ segir Árni Þór.
trausti@dv.is
Úr bílnum Í Grafarvogi og Grafarholti er leitað dularfullra manna sem reyna að lokka
börn í bíla.
Dularfullir menn í Grafarvogi og Grafarholti reyna að tæla börn inn í bíl:
Lögreglan leitar barnaperra
„Ég get ekki verið ánægð með fram-
komu hans, allra síst í ljósi þess að
hann er bróðir minn en hann virð-
ist hafa gleymt þeirri staðreynd ein-
hvers staðar á leiðinni,“ segir Ásta
Hrönn Björgvinsdóttir, fyrrverandi
framkvæmdastjóri World Class á Ak-
ureyri og hálfsystir Björns Leifssonar,
eiganda World Class á Íslandi.
Ásta Hrönn og Björn eru hálf-
systkini, sammæðra, og ólust upp á
sama heimilinu þar til þau fluttu að
heiman. Síðar stofnuðu þau sam-
an fyrirtækið Þrekhöllina ehf. sem
hélt utan um heilsuræktarstöðina
World Class á Akureyri. Ásta Hrönn
var framkvæmdastjóri fyrirtækisins
og sá alfarið um rekstur stöðvarinn-
ar sem hófst síðla árs 1997. Í ein sex
ár stýrði Ásta Hrönn fyrirtækinu og
er það leið undir lok vildi hún meina
að Björn, litli bróðir hennar, skuldaði
henni laun.
Fjölskyldan í málarekstri
Svo fór að Ásta Hrönn stefndi Birni
fyrir ógoldin laun og hið sama gerðu
börnin hennar sem störfuðu á lík-
amsræktarstöðinni. Í lok maí í fyrra
var fyrirtæki Björns dæmt til að
greiða systurbörnum hans launin.
Máli Ástu Hrannar var vísað frá og er
hún búin að gefast upp á samskipt-
um við litla bróður sinn. „Hann er
bróðir minn og var dæmdur til að
greiða systurbörnum sínum laun.
Við stofnuðum fyrirtæki saman. Ég
rak fyrirtækið og fékk aldrei greidd
laun fyrir mína vinnu. Það er ekk-
ert flóknara. Hann skuldar mér al-
veg fullt, laun sem samsvara nærri
sex ára vinnu. Upphæðin er ansi há,“
segir Ásta Hrönn.
Í janúar síðastliðnum féll svo
dómur í máli eiginmanns Ástu
Hrannar gegn fyrirtæki Björns en
hann krafðist launa fyrir vinnu við
stofnun líkamsræktarstöðvarinn-
ar World Class í Laugum. Fór eigin-
maðurinn fram á rúmar 20 milljónir
króna fyrir vinnuframlag sitt á árun-
um 2001 til 2004 við stofnun stöðv-
arinnar í Laugum. Björn vann mál-
ið fyrir dómstólum. „Hann
vann við að koma Laug-
um á koppinn og fékk
ekkert greitt. Okkar
deilur standa enn yfir
og hann vílar ekki fyr-
ir sér að láta fólk vinna
fyrir sig án þess að borga.
Ég, og við, erum því mið-
ur í þeirri stöðu að
geta ekkert gert
og hann kemst
bara upp með
það að borga
ekki,“ segir
Ásta Hrönn.
Dregur úr einkaneyslu?
Nú var svo komið að rekstrarfélag
World Class, Þrek ehf., var komið í
greiðsluþrot og gjaldþrot var skammt
undan. Til að bjarga rekstri líkams-
rækarstöðvarinnar var hann færður
undir aðra kennitölu, nánar tiltek-
ið yfir til móðurfélagsins, Lauga ehf.
Viðskiptamannahópurinn er kom-
inn yfir á þá kennitölu og World Class
heldur áfram.
Móðurfélagið tapaði reyndar tals-
verðum fjármunum á síðasta ári en
samkvæmt ársreikningi má sjá tap
upp á nærri 300 milljónir króna.
Engu að síður greiddi Björn sér út
sex milljóna arð það ár. Í ár gaf hann
dóttur sinni þriggja milljóna króna
bíl í afmælisgjöf, þakklætisvott fyrir
vel unnin störf hjá fyrirtækinu, og þá
reisir hann 150 fermetra glæsibú-
stað við Þingvallavatn. Bústaður-
inn er skráður á móðurfélagið en
Björn hefur opinberlega lýst því yfir
að ekki sé víst að hann komi sjálfur
til með að gista í bústaðnum. Í helg-
arviðtali við DV nýverið viðurkenndi
hann að eiga í fjárhagserfiðleikum,
að kennitölu fyrirtækisins hefði verið
breytt og fullyrti að þau hjónin hefðu
dregið úr einkaneyslu sinni. Viðtalið
las Björn yfir og samþykkti fyrir birt-
ingu.
Borgar ekki
„Björn er greinilega enginn fjöl-
skyldumaður, það er ljóst. Ég vildi
bara að hann gerði upp við mig. Það
þýðir ekkert að biðla til hans eða tala
við hann. Hann mætir ekki einu sinni
á sáttafundi sem hafa verið boðaðir.“
Ástu Hrönn finnst mjög sorglegt
að þurfa að standa í svona leiðinleg-
um deilum við litla bróður sinn og
segist ekkert skilja í honum að borga
ekki skuldir sínar við fjölskyldu-
meðlimi. Aðspurð segir hún fjár-
málavanda og nýlegt kennitöluflakk
World Class ekki hafa komið sér á
óvart. „Þetta kom mér ekkert á óvart,“
segir hún. „Ég er stóra systir hans og
því er þetta mjög leiðinlegt en hann
virðist voða ánægður með þetta. Fyr-
ir mér er Björn ekki til lengur,“ segir
Ásta Hrönn.
Þrátt fyrir tilraunir náðist ekki í
Björn við vinnslu fréttarinnar.
Sakaður um að
skulda Bjössi er
sakaður um að
skulda fjölskyldu-
meðlimum háar
fjárhæðir og
systir hans af-
neitar honum
sem bróður.
Ásta Hrönn Björgvinsdóttir, hálfsystir Björns Leifssonar eiganda World Class, afneit-
ar litla bróður sínum. Þau eru hálfsystkini en voru alin upp saman. Ásta hefur þurft
að ræða við bróður sinn í gegnum dómstóla þar sem hún, eiginmaður hennar og systk-
inabörn Björns hafa öll höfðað mál gegn honum vegna meintra skulda.
SYSTIR BJÖSSA
AFNEITAR HONUM
„Björn er greinilega
enginn fjölskyldumað-
ur, það er ljóst. Það
þýðir ekkert að biðla til
hans eða tala við hann.
Hann mætir ekki einu
sinni á sáttafundi sem
hafa verið boðaðir.“
TrauSTi haFSTeinSSon
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Sár systir Ásta Hrönn er leið
yfir framkomu litla bróður síns.
Greiðslustöðvun
deCODE
DeCODE, móðurfélag Íslenskr-
ar erfðagreiningar, hefur sótt
um greiðslustöðvun í Banda-
ríkjunum en Íslensk erfðagrein-
ing verður seld til bandaríska
félagsins Saga Investment. Kári
Stefánsson, forstjóri fyrirtækis-
ins, sagði í morgunvakt Rásar 2
í gær að lítið annað verði eftir í
deCODE Genetics en erlendar
skuldbindingar. Starfsemi fyr-
irtækisins hafi að mestu verið
bundin við Íslenska erfðagrein-
ingu að undanförnu og starf-
semin flust að mestu leyti frá
Bandaríkjunum til Íslands. Í lok
júní námu eignir fyrirtækisins
7,4 milljörðum króna en skuldir
á sama tíma 39 milljörðum.
Gísli skili vottorði
Ólafur F. Magnússon, borgarfull-
trúi Frjálslynda flokksins í borg-
arstjórn Reykjavíkur, hefur sett
fram beiðni um að borgarfull-
trúar skili inn heilbrigðisvottorði
sem sýni fram á að þeir séu hæf-
ir til starfa í borgarstjórn. Ólafur
F. þurfti sjálfur að skila inn slíku
vottorði eftir að hann sneri aft-
ur til starfa eftir veikindafrí en
hann hefur barist við þunglyndi.
Ólafur F. segist bera fram þessa
tillögu eftir að Gísli Marteinn
Baldursson, borgarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins, sagðist í frétt
í DV ekki hafa vitað af einnar
milljónar króna styrk frá Baugi.
Vill hann að Gísli skili inn vott-
orði vegna minnisleysis.
Féll fram
af svölum
Karlmaður var fluttur á gjör-
gæsludeild Landspítalans í nótt
eftir að hafa fallið fram af svöl-
um í Grafarholti í nótt. Varðstjóri
lögreglunnar á höfuðborgar-
svæðinu gat litlar upplýsingar
veitt um málið en staðfesti þó
að maðurinn hefði fallið fram
af svölum og málið væri komið
til rannsóknardeildar. Friðrik
Smári Björgvinsson, yfirlög-
regluþjónn í rannsóknardeild,
kannaðist ekki við að málið væri
komið inn á borð rannsóknar-
deildar.
Eignir Baldurs
kyrrsettar
Eignir Baldurs Guðlaugssonar,
fyrrverandi ráðuneytisstjóra í
fjármálaráðuneytinu, hafa verið
kyrrsettar að kröfu sérstaks sak-
sóknara í tengslum við rann-
sókn á meintum innherjavið-
skiptum Baldurs þegar hann
seldi hlutabréf sín í Landsbank-
anum skömmu fyrir hrun. Stöð
2 greindi frá því í kvöldfréttum
sínum í gær að embætti sérstaks
saksóknara hefði fengið kyrr-
setningu á eignum Baldurs Guð-
laugssonar vegna söluandvirðis
hlutabréfanna í Landsbankan-
um sem Baldur seldi 17. sept-
ember 2008. Þá seldi
hann hlutabréf í
bankanum fyrir á
annað hundrað
milljónir króna.
Um er að ræða
kyrrsetningu á
sömu fjárhæð
og Baldur
seldi fyrir.