Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2009, Blaðsíða 11
neytendur 18. nóvember 2009 miðvikudagur 11
greiðsluverkfall hafið Annað greiðslu-
verkfall Hagsmunasamtaka heimilanna hófst á mánudaginn og stendur til 10.
desember. Samtökin hvetja fólk til að greiða ekki af íbúðar- og bílalánum
sínum á meðan á verkfallinu stendur. Kröfur samtakanna eru: Leiðrétting
höfuðstóls lána, afnám verðtryggingar, að veð takmarkist við veðandlag og að
skuldir fyrnist á 5 árum.
frádráttur vegna sumar-
dvalar barna
fyrir: Dagmömmur ofl.
unglingur í 3 mánuði: 54.000 kr.
Greiðslur vegna dagvistunar barna og
sumardvalar, á að gera upp sem rekstrartekjur.
Þetta gildir um þá sem hafa tekjur af vistun
barna. Til frádráttar má færa rekstrarkostnað
eftir almennum reglum þar um. Þó má í stað
frádráttar sem byggist á sannanlegum kostnaði
færa til frádráttar 135 kr. fyrir hvern veittan morg-
unverð eða síðdegishressingu og 270 kr. fyrir hvern
veittan hádegis- eða kvöldverð. Vegna 12 ára barna og eldri
er þó heimilt að færa til frádráttar 200 kr. fyrir hvern veittan
morgunverð eða síðdegishressingu og 400 kr. fyrir hvern hádegisverð eða
kvöldverð. Slíkur frádráttur má þó aldrei vera hærri en innheimt var fyrir fæði
samkvæmt gjaldskrá. Sá sem vistar 12 ára barn í þrjá mánuði getur fengið 54
þúsund krónur í frádrátt.
vaxtatekjur og vaxtagjöld
fyrir: Kröfuhafa
Vaxtagjöld er heimilt að færa til lækkunar á vaxtatekjum sem maður
hefur haft af sömu kröfunni. Ekki er nóg að um sams konar
bréf eða kröfu sé að ræða, heldur á þetta aðeins við um sömu
eign. Til dæmis ef krafa gefur af sér vaxtatekjur á
árinu en er síðan seld með afföllum
má færa afföllin sem frádrátt á móti
fengnum vaxtatekjum.
öku-
tækja-
styrkur
fyrir: Þá sem
ferðast á eigin bíl í
vinnunni
frádráttur mv. 2.500 km:
230.000 kr.
Semdu við þann sem greiðir þér
laun um ökutækjastyrk, ef vinnan
krefst ferðalaga. Frá ökutækjastyrk,
sem þú skalt færa til tekna í
skattframtali, heimilast frádáttur
vegna kostnaðar við rekstur
bílsins sem þú hefur nýtt í þágu
vinnuveitendans og þú hefur
borið kostnað af. Árleg afskrift af
bílnum, vegna notkunar, getur
einnig orðið til frádráttar. Skilyrði
fyrir ökutækjastyrk er að færð hafi
verið akstursdagbók þar sem hver
einasta ferð er skráð; dagsetning,
vegalengd, erindi, kílómetragjald,
nafn og kennitala launamanns. Ef
þú ekur minna en 2.500 kílómetra
er ekki krafist sundurliðunar á
rekstrarkostnaði. Kílómetragjaldið
er 92 krónur á þessu ári.
eingreiðsla örorkubóta
fyrir: Öryrkja
Hafi einstaklingur fengið greiddar bætur fyrir
varanlega örorku á árunum 1993-1996 og þær verið
ákveðnar í einu lagi til greiðslu er honum heimilt að
færa frádrátt á móti fjármagnstekjum sínum fjárhæð
sem svarar til lækkunar útborgaðra bóta vegna
eingreiðsluhagræðis. Frádrátturinn getur
numið 5 prósent af fjárhæð bótanna á hverju
ári þó ekki lengur en í fimm ár frá því að bæturnar
voru greiddar.
sjómannaafsláttur
fyrir: Sjómenn
afsláttur: 237.000 kr.
Þeir sem fá greidd laun fyrir sjómannsstörf á íslensku
skipi eða skipi sem gert er út af íslensku skipafélagi,
eiga rétt á sjómannaafslætti. Sjómannaafsláttur á
þessu ári er 987 krónur á dag. Sá sem er úti á sjó að
jafnaði alla virka daga ársins getur því fengið 237.000
krónur í skattaafslátt á ári.
frádráttur vegna vistunar aldr-
aðra og öryrkja
fyrir: Þá sem fá greitt fyrir vistun aldraðra og öryrkja
upphæð: 3.700.000 kr.
Greiðslur vegna vistunar aldraðra eða öryrkja í heima-
húsum teljast að fullu til skattskyldra tekna en á móti
má færa beinan kostnað sem af vistuninni leiðir. Í stað
sannanlegs kostnaðar er heimilt að færa til frádráttar
fjárhæð sem svarar til tvöfalds ellilífeyris (grunnlífeyris),
en þó aldrei hærri fjárhæð en nemur greiðslunum.
Ellilífeyrir er á mánuði 155 þúsund krónur, eftir skatt. Tvöfaldur
ellilífeyrir nemur því 310 þúsund á mánuði eða 3,7 milljónir á ári.
framfærsla foreldra
fyrir: Fátæka foreldra
hámarksívilnun: 260.000 kr
Skilyrði fyrir lækkun tekjuskattsstofns eru sannan-
leg útgjöld vegna framfærslu foreldra eða annarra
vandamanna. Gera þarf grein fyrir í hverju útgjöldin
eru fólgin og jafnframt að sýna fram á að framfærslu-
fé foreldris eða vandamanns, það er tekjur, bætur
og styrkir standi ekki undir nauðsynlegum útgjöldum.
Skilyrði fyrir lækkun vegna barna eldri en 16 ára sem maður
hefur á framfæri sínu eru að barnið sé það tekjulágt vegna atvinnuleysis eða
af öðrum ástæðum að því sé ókleift að standa undir eigin framfærslu. Miðað
er við fjárhæð barnalífeyris sem hámarksívilnun og hafi barnið tekjur skerðist
ívilnunin sem nemur þriðjungi af tekjum þess.
dæmd laun
fyrir: Þann sem sækir laun fyrir dómstólum
Þurfi launamaður að höfða mál vegna ógreiddra
launa sem hann gerir kröfu um og fái hann dæmd
laun, er heimilt að draga útlagðan málskostnað frá
þannig fengnum launum.
menntunarkostnaður
barna
fyrir: Foreldra
unglinga
hámarks-
ívilnun:
188.000
kr.
Skilyrði
fyrir
lækkun
tekju-
skatt-
stofns er
að barnið
sé orðið 16
ára og stundi
nám að minnsta
kosti þrjá mánuði á árinu. Hér
er fyrst og fremst átt við börn á
aldrinum 16 til 21 árs sem stunda
nám að loknu grunnskólanámi.
Veiti námið rétt til námslána kemur
ívilnun ekki til álita. Hámarksíviln-
un er 188.000 krónur vegna náms
sem stundað er hér á landi. Ef sótt
er um hærri ívilnun vegna náms
sem stundað er erlendis þarf að
sýna fram á verulegan kostnað
vegna námsins sem telja verður
umfram venjulegan námskostnað,
svo sem há skólagjöld og fargjöld.
Ívilnun getur þó aldrei orðið hærri
en tvöföld sú ívilnun sem veitt
er vegna náms hér á landi. Hafi
námsmaðurinn tekjur skerðist
ívilnunin sem nemur þriðjungi af
tekjum hans.
verulegt eignatjón
fyrir: Tjónþola
Einstaklingur getur sótt um lækkun tekjuskatt-
stofns ef um er að ræða verulegt eignatjón sem
ekki hafi fengist bætt úr hendi annars aðila. Með
verulegu eignatjóni er hér átt við að fjárhagslegar
afleiðingar tjóns sem verður á eignum manns
skerði gjaldþol hans. Ívilnun kemur ekki til álita ef
mögulegt er að fá tjónið bætt úr hendi annars aðila.
við-
hald
og
endurbætur
fyrir: Húsnæðiseigendur
endurgreiðsla: 75.000 kr.
Þeir sem leggja í endurbætur
á húsnæði sínu skulu fá allan
virðisaukaskatt af vinnu manna við
tiltekið húsnæði endurgreiddan.
Þetta tók gildi 1. mars 2009 og nær
til 1. janúar 2011. Samkvæmt lög-
unum nær þessi heimild jafnframt
til vinnu við frístundahúsnæði
og húsnæði í eigu sveitarfélaga.
Sá sem kaupir 100 klukkustunda
vinnu iðnarðarmanns, sem tekur
3.000 krónur á tímann, að viðbætt-
um 24,5 prósent virðisaukaskatti,
greiðir 375.000 krónur. Af þeirri
vinnu getur hann því fengið
75.000 krónur endurgreiddar.
Betulic birkilaufstöflurnar innihalda 98% birkilaufsduft
og eru framleiddar af natni með aðferð sem varðveitir
upprunalega eiginleika birkilaufs sem allra best.
Það er mikil og gömul hefð fyrir því að nota birkilauf sem
fæðubótarefni til að hraða efnaskiptum og losa vatn úr
líkamanum, draga úr bólgum og afeitra líkamann (detox).
Birkilauf hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi líkamans og húð,
auk þess sem það örvar starfsemi nýrna og þvagfæra.
Ráðlagður dagskammtur 2 til 4 töflur er samsvarar 980 - 1960 mg. af
birkilaufi. Betulic inniheldur hvorki laktósa, glúten, sætuefni né ger.
BETULIC - BIRKILAUF
www.birkiaska.is
Við opnum nýja Ísbúð og veitum 30% kynningarafslátt
af öllum ísréttum, samlokum, salötum og gosi
17-26 okt.
Nýbýlavegi 32 Nýbýlavegi 32
Opið til 22:00 alla daga
Smakkaðu 200 kr ís í brauði, miðstærð
Lin Design • Laugavegi 176, gamla sjónvarpshúsið • sími 533 2220 • www.lindesign.is