Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2009, Blaðsíða 45
fréttir 18. nóvember 2009 miðvikudagur 45
Að sögn bandarískra rannsóknar-
manna valda efni sem finnast í plasti
breytingum á heila drengja á ung-
barnaaldri og geta gætt þá kveneðli.
Samkvæmt niðurstöðum rannsókn-
armannanna verða strákar sem orð-
ið hafa fyrir miklum áhrifum af þess-
um efnum í móðurkviði ólíklegri til að
leika sér með strákaleikföng á borð við
bíla eða taka þátt í ærslafullum leikj-
um.
Niðurstöður rannsóknarteymis
Rochester-háskólans í Bandaríkjun-
um hafa aukið enn frekar áhyggjur
af notkun þalata (e. phthalates) í, til
dæmis, vínilgólfefnum og PVC-plasti
í sturtuhengjum.
Bönnuð að hluta til
Þrátt fyrir að notkun þalata í leik-
föngum hafi verið bönnuð innan Evr-
ópusambandsins síðan 1999 er enn
töluvert um að þau séu notuð í ýmis-
legt sem snýr að heimilishaldi, til að
mynda húsgögn og umbúðir.
Þalöt geta haft truflandi áhrif á
hormóna, og um er að ræða margar
ólíkar gerðir sem sumar hverjar líkja
eftir kvenhormóninu estrógen og að
sögn Elizabeth Salter-Green, forstjóra
CHEM Trust-stofnunarinnar, geta slík
þalöt svo sannarlega breytt kynhegð-
un drengja og verið það sem kallað er
„gender bender“ á ensku. Markmið
CHEM Trust er að takmarka notk-
un efna sem valdið geta langtíma-
skaða hjá mönnum og í náttúrunni al-
mennt.
Óhætt er að segja að áhyggjur Salt-
er-Green eru ekki ástæðulausar því
fyrir hefur teymið frá Rochester-há-
skólanum sýnt fram á að áhrif þalata
á sveinfóstur geta lýst sér á þann veg
að drengirnir fæðist með óeðlileg kyn-
færi.
Karlhormón lúta í lægra haldi
Nú taka vísindamennirnir dýpra í ár-
inni því að þeirra sögn hafa ákveðin
þalöt áhrif á heilann með því að lama
virkni karlhormónsins testósteróns.
Í grein á vefsíðu BBC kemur fram að
doktor Shanna Shaw og teymi henn-
ar rannsökuðu þvagsýni úr mæðrum
sem rúmlega hálfnaðar voru í með-
göngu, með það fyrir augum að finna
þalöt.
Fylgst var með umræddum mæðr-
um, sem eignuðust 74 drengi og 71
stúlku, þar til börn þeirra náðu fjög-
urra til sjö ára aldri. Mæðurnar voru
þá spurðar um þau leikföng sem börn-
in léku sér með og höfðu gaman af.
Niðurstöðurnar voru þær að tvær
tegundir þalata, DEHP og DBP, geta
haft áhrif á leikhegðun barna. Dreng-
ir sem urðu fyrir miklum áhrifum af
þessum þalötum í móðurkviði voru
ólíklegri til að leika sér með bíla, lestir,
byssur eða taka þátt í „grófari“ leikjum
þar sem ryskingar koma við sögu.
Snemma beygist krókurinn
Sem fyrr segir eru niðurstöður rann-
sóknarinnar Elizabeth Salter-Green
áhyggjuefni. „Við vitum nú að þalöt,
sem við öll erum sífellt í snertingu við,
eru mikið áhyggjuefni frá heilbrigðis-
sjónarmiði, leiða til truflunar á frjó-
semi karla og, að því er virðist, einn-
ig hegðun karla,“ sagði Salter-Green í
viðtali við vefsíðu BBC.
Hún viðurkenndi þó að þeir dreng-
ir sem koma við sögu í rannsókninni
væru enn ungir að aldri, en sagði að
minnkun á strákslegum leik á þeirra
aldri kynni að leiða til kvenlægrar þró-
unar seinna á lífsleiðinni.
Frekari rannsókna þörf
Á vefsíðu BBC er haft eftir Tim Edgar
hjá Evrópunefnd um plastefni að frek-
ari rannsókna sé þörf, og að ekki sé
hægt að fella dóm fyrr en vísindaleg-
ir sérfræðingar hafi litið nánar á rann-
sóknina. Að sögn Edgars eru margar
tegundir þalata í notkun og rannsókn-
in lýtur einungis að tveimur af þeim
tegundum sem minnst eru notaðar, og
lenda hugsanlega á lista Evrópusam-
bandsins yfir mögulega skaðleg þalöt
sem jafnvel lytu notkunarheimild.
Notkun áðurnefnds DBP hefur ver-
ið bönnuð, innan Evrópusambands-
ins, í snyrtivörum, síðan 2005. Fjöldi
ólíkra þalata fyrirfinnst og þau sem al-
gengust eru hafa verið úrskurðuð með
öllu skaðlaus.
DEHP er notað til að gera PVC
mýkra og meðfærilegra og gjarna not-
að í gólfdúka, DBP er meðal annars
notað í lím, liti og í textíliðnaði.
Ákveðin efni sem notuð eru í plastiðnaði geta, í stórum skömmtum, verið skaðleg
sveinfóstrum, samkvæmt bandarískri rannsókn. Áhrifin, sem kunna að vera bæði
líkamleg og andleg, geta valdið því að hegðun drengja líkist hegðun stúlkna meira en
eðlilegt getur talist.
Plastefni gæða
drengi kveneðli
Drengir sem urðu fyrir miklum áhrifum þessara
þalata í móðurkviði voru ólíklegri til að leika sér
með bíla, lestir, byssur eða taka þátt í „grófari“
leikjum þar sem ryskingar koma við sögu.
KolBeinn þorSteinSSon
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
leikið með plast Efni sem not-
að er í plast getur verið skaðlegt
sveinfóstrum. Mynd PhotoS.coM
Leiðtogi Líbíu, Muammar Gaddafi
sem sótti ráðstefnu Matvælastofn-
unar Sameinuðu þjóðanna í Róm,
eyddi nokkrum klukkustundum í
félagsskap um tvö hundruð ítalskra
kvenna. Konurnar voru ráðnar af
Hostessweb-stofnuninni að ósk
Líbíuleiðtogans. Í ítalska dagblað-
inu Corriere dell Sera segir að aug-
lýsingin hafi verið svohljóðandi:
„Leitum að 500 aðlaðandi konum
á aldrinum 18 til 35, minnsta kosti
1,70 metrar á hæð, vel klæddum en
ekki í pínupilsum eða flegnum kjól-
um.“
Fimm hundruð kvenna takmark-
ið náiðst ekki, eða í það minnsta
birtust aðeins um tvö hundruð kon-
ur við villu í Róm eftir að hafa verið
sagt að þær fengju 60 evrur, um ell-
efu þúsund krónur, og „einhverjar
líbískar gjafir“. Á meðal þeirra sem
mættu var fréttakona ítölsku frétta-
stofunnar ANSA sem tók myndir og
lýsti atburðarás kvöldsins.
Samkvæmt umfjöllum ANSA
héldu flestar kvennanna að þær
væru að fara í teiti , en þess í stað
var þeim gert að bíða í stórum sal
eftir Líbíuleiðtoganum Muamm-
ar Gaddafi sem uppfræddi þær
um Líbíu og hlutverk kvenna sam-
kvæmt íslömskum kenningum.
Eftir tvær klukkustundir endaði
uppfræðslan, sem innihélt spurn-
ingar og svör með aðstoð túlks,
með því að Gaddafi hvatti við-
staddar konur til að „snúast til ís-
lamstrúar“ og gjafirnar voru eintak
af Kóraninum og kveri sem Gaddafi
skrifaði.
Eins og við var að búast þótti
sumum konum sem þær hefðu
verið blekktar og sagði ein þeirra í
viðtali við ANSA að þetta hefði ekki
verið það „forréttindapartí“ sem
þær áttu von á: „Þeir gáfu okkur
ekki einu sinni vatnsglas“.
Aðrar konur höfðu á orði að
þeim hefði misboðið það and-
kristna viðhorf sem kom fram
í kennslu Gaddafis, sem meðal
annars kom fram í þeirri fullyrð-
ingu hans að Jesús hefði ekki ver-
ið krossfestur, heldur var „einhver
sem líktist honum“ líflátinn í hans
stað.
Ljóst er að líbískir embættis-
menn deila ekki skoðunum með
þeim konum sem finnst þær hafa
verið blekktar því að sögn líb-
íska sendiherrans á Ítalíu hyggur
Gaddafi á fleiri slíkar uppákomur.
Ítalskar konur bjuggust við partíi í félagsskap Gaddafis:
Útdeildi Kóraninum og eigin kveri
líbíuleiðtoginn með forsætisráð-
herranum. Áhugi þeirra á konum á sér
hugsanlega ólíkar rætur. Mynd AFP
alþýðuhetja
gefur sig fram
Toni Musulin, sem hvarf fyrr
í mánuðinum með meira en
ellefu milljónir evra í fartesk-
inu, gaf sig fram við lögregluna í
Mónakó á mánudaginn.
Musulin hlaut skyndilega og
óvænta frægð þegar hann hvarf
ásamt öryggisbifreið sinni þegar
hann var á sinni hefðbundnu
ferð í Lyon í Frakklandi 5. nóv-
ember þar sem hann starfaði
sem öryggisvörður við peninga-
flutninga fyrir Frakklandsbanka.
Toni Musulin varð eins konar
alþýðuhetja á augabragði, tal-
inn hafa framið hinn fullkomna
glæp og varð þess heiðurs að-
njótandi að skyrtubolir voru
framleiddir honum til heiðurs.
krishna
og trishna
Ástralskir læknar aðskildu sam-
vaxna tvíbura, sem voru tengdir
ofarlega á höfði og deildu æða-
kerfi og heilavefjum. Aðgerðin
tók tuttugu og sjö klukkustund-
ir og lauk rétt fyrir miðnætti á
mánudaginn.
Að sögn Loe Donna, yfir-
manns skurðdeildar Konunglega
barnaspítalans í Melbourne,
var um stórkostlegt andartak að
ræða þegar tvíburarnir, Krishna
og Trishna, urðu endanlega tvær
manneskjur. Tvíburarnir, sem
eru munaðarlausir, verða þriggja
mánaða í næsta mánuði.
atvinnuleysi ýtir
undir vopnakaup
Eftirspurn eftir skotvopnum hef-
ur stóraukist í Bandaríkjunum
vegna ótta um að aukið atvinnu-
leysi í landinu leiði til fjölgunar
glæpa, en atvinnuleysi fór yfir
tíu prósent í þessum mánuði.
Einnig hefur ótti við möguleg
hryðjuverk haft sitt að segja, sem
og áhyggjur á meðal skotvopna-
eigenda af því að ríkisstjórn
Baracks Obama hyggist setja
takmarkanir á byssueign lands-
manna.
Byssuframleiðandinn Smith
& Wesson reiknar með að tvö-
falda sölu sína á næstu þrem
til fimm árum og mikil sölu-
aukning hefur orðið hjá öðrum
vopnaframleiðendum.