Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2009, Blaðsíða 53

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2009, Blaðsíða 53
á x x x x x d e g i Þýðingahlaðborð Bandalag þýðenda og túlka heldur sitt árlega Þýðingahlaðborð á morgun, fimmtudag. Tilgangurinn með því er að vekja athygli á áhugaverðum þýðingum í jólabókaflóðinu og kynna störf þýðenda. Á meðal þeirra þýðinga sem verða í sviðsljósinu eru Ummyndanir Óvíds sem Kristján Árnason þýddi, Leikur engilsins eftir Carlos Ruiz Zafón sem Sigrún Á. Eiríksdóttir þýddi og Chicago eftir Alaa al Aswany sem Jón Hallur Stefánsson þýddi. Hlaðborðið verður haldið á Háskólatorgi og hefst klukkan 16. Útgáfu- tónleikar feldbergs Feldberg fagnar útgáfu fyrstu breið- skífu sinnar, Don’t Be a Stranger, með útgáfutónleikum í Þjóðleik- húskjallaranum í kvöld, miðviku- dag. Feldberg er samstarfsverk- efni söngkonunnar Rósu Birgittu Ísfeld, sem einnig er í hljómsveitinni Sometime, og Einars Tönsberg sem hefur gefið út plötur undir nafninu Eberg. Fyrsta lagið sem Feldberg gaf út var titillag plötunnar. Lagið kom út á safnplötunni Pottþétt 49, varð gríðarvinsælt og var notað í auglýs- ingaherferð Nova. Annað lag með dúettinum, Dreamin‘, er nú farið að hljóma títt á útvarpsstöðvum lands- ins. Þættirnir um Atvinnumennina okkar sem Filmus framleiddi fyr- ir Stöð 2 Sport slógu heldur betur í gegn síðasta vetur. Biðin eftir DVD- diskinum hefur verið löng en nú er kominn út mynddiskur með öllum þáttunum sex og gífurlegu magni af aukaefni. Í þáttunum er fylgst með og skyggnst inn í líf sex af fremstu atvinnumanna Íslands, Loga Geirs- sonar, Hermanns Hreiðarssonar, Grétars Rafns Steinssonar, Guðjóns Vals Sigurðssonar, Ólafs Stefánsson- ar og Eiðs Smára Guðjohnsen. Þættirnir eru ómetanleg heimild um hvernig atvinnumenn á hæsta stigi æfa, borða, hvíla, lifa og hrær- ast í hörðum heimi atvinnumennsk- unnar. Hvergi annars staðar hefur maður fengið túr um glæsivillu Her- manns, komist inn í hús Eiðs Smára í Barcelona og hvað þá fengið loks að sjá kjallarann umtalaða sem Ól- afur Stefánsson hafði fyrir sig hjá Ciudad Real. En á diskinum eru ekki bara þættirnir sex ásamt grínþættinum með Pétri Jóhanni Sigfússyni. Mik- ið af afar skemmtilegu efni hafði verið klippt úr þættinum ef marka má það magn aukaefnis sem er á diskinum. Þar kemst maður enn nær atvinnumönnunum en fylgst er til dæmis með Loga Geirssyni á djamminu niðri í bæ og þá er allt at- riðið sýnt þegar Logi og félagar hans í handboltalandslið- inu, Ásgeir Örn Hall- grímsson og Vignir Svavarsson, ræða op- inskátt um landslið- ið á kaffihúsi í mið- bænum. Þá er einnig allt atriðið sýnt þeg- ar Eiður Smári er að keyra á leik Barce- lona og Real Madr- id sem er nú bara sérkapítuli út af fyrir sig. Þessi upptalning er þó ekki einu sinni dropi í hafið af því magni sem má finna á diskinum. Eftir að hafa horft á alla þættina aftur og rúlla í gegnum aukaefnið tvisvar fékk ég sömu tilfinningu og þegar ég sá þættina í fyrsta skipt- ið. Ég vildi meira. Fyrir utan sjálf efnistökin er öll vinnsla við þætt- ina frábær og sýnir leikstjórinn Hann- es Þór Halldórs- son svo sannarlega að hann er fram- tíðin. Það er ekki að ástæðulausu að Ragnar Bragason, leikstjóri vakta- seríunnar svo eitt- hvað sé nefnt, kalli þetta bestu heimildaþætti sem gerðir hafa verið. Þetta er jólapakki sem getur ekki klikkað fyrir hvaða íþróttahaus sem er. Tómas Þór Þórðarson Gott verður betra „Það er mjög gaman að fá þetta og rosa heiður. Það sem þessi kona gerði er líka ótrúlegt. Þriggja barna móð- ir sem rífur sig upp til að fara að læra leiklist í Kaupmannahöfn. Meira að segja í dag væri það ekkert sjálfsagt mál,“ segir Jón Atli Jónasson leikskáld sem í fyrrakvöld fékk afhenta viður- kenningu úr Minningarsjóði frú Stef- aníu Guðmundsdóttur. Auk Jóns Atla fengu Þröstur Leó Gunnarsson leikari og Ágústa Skúladóttir leikstjóri sams konar viðurkenningu við athöfn sem haldin var í Iðnó. Viðurkenningarnar eru annars vegar peningaupphæð, sem gert er ráð fyrir að nýtt sé sem ferða- eða menntunarstyrkur erlendis, og hins vegar Stefaníustjakinn svonefndi sem er sérsmíðaður kertastjaki. Þetta er í sautjánda sinn sem úthlutað er úr sjóðnum. Hann var formlega stofnað- ur árið 1965 og veitt úr honum í fyrsta skipti fimm árum síðar. Þrjátíu og fjór- ir einstaklingar hafa nú fengið viður- kenningar úr sjóðnum. Jón Atli er fyrsta leikskáldið sem fær þessa viðurkenningu en fyrri styrkþegar hafa langflestir verið leikar- ar. „Það er mjög gaman,“ segir Jón, að- spurður hvort sú staðreynd geri viður- kenninguna ekki enn meiri. „En þegar maður bara skoðar hverjir hafa feng- ið þetta sér maður að maður er í afar góðum hópi. Þetta er því bara einn af þessum hlutum sem eru skemmtileg- ir. Það var líka gaman að fá verðlaunin með þessu fólki í gær [fyrradag], Þresti og Ágústu. Mér finnst líka við útdeil- ingu á þessum verðlaunum að fólk sé ágætlega með puttann á púlsinum á því sem er að gerast,“ segir Jón Atli. Aðspurður hvort hann hafi hugs- að hvernig hann ætli að nota pening- inn segist Jón Atli ekki hafa gert það. „Í raun og veru ekki. Er ekki gáfuleg- ast að byrja á því að borga reikninga?“ spyr hann í léttum dúr. Stjórn sjóðsins er skipuð Kjartani Borg, sem er formaður, Hirti Torfa- syni, Þorsteini Gunnarssyni, Jóni Við- ari Jónssyni og Sunnu Borg. Stefanía Borg er framkvæmdastjóri sjóðsins. kristjanh@dv.is fókus 18. nóvember 2009 miðvikudagur 53 Atvinnumennirnir okkar Komnir á DVD. Atvinnumennirnir okkAr Útgefandi: Filmus DVD fyrsta leikskáldið sem fær styrkinn Veittar voru viðurkenningar úr Minning- arsjóði frú Stefaníu Guðmundsdóttur í Iðnó í fyrrakvöld. Skál! Hluti þeirra sem fylgdust með afhendingunni í Iðnó. Koss Jón Atli fær koss til viðbótar við féð, kertastjakann og heiðurinn sem viðurkenningunni fylgir. Glaðbeitt Styrkþegarnir þrír í Iðnó í fyrrakvöld. Frá vinstri: Þröstur Leó Gunnarsson leikari, Jón Atli Jónasson leikskáld og Ágústa Skúladóttir leikstjóri. MYNDIR RóbeRt ReYNISSoN 1. brauð- og kökubók Hagkaupa 2. Svörtuloft Arnaldur Indriðason Landsliðsréttir Hagkaupa Prjónadagar 2010 Kristín Harðardóttir 5. Söknuður - Ævisaga Vilhjálms Vilhjálmssonar Jón Ólafsson 6. Kökubók Hagkaupa 7. Sex grunaðir Vikas Swarup 8. Hyldýpi Stefán Máni 9. Karlsvagninn Kristín Marja Baldursdóttir 10. bóbó bangsi og jólin Susan Niessen 1. 2. 3. 4. . Metsölulisti Byggt á sölu í verslunum Hagkaupa vikuna 9.-16.. nóv.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.