Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2009, Blaðsíða 32
Miðvikudagur 18. nóvember 200932 suðurland
„Það eru tækifæri í kreppunni.
Ekki spurning. Fólk hættir ekki
að kaupa barnaföt eða gjafavöru í
kreppunni. Við finnum fyrir aukn-
ingu og það er mikill uppgang-
ur hér á Selfossi,“ segir Lovísa V.
Guðmundsdóttir, eigandi og fram-
kvæmdastýra Snúða & Snældna á
Selfossi.
Lovísa er uppalin á Selfossi en
maður hennar, Kári Jónsson, er
frá Akureyri og er búðin skemmti-
lega einnig komin þangað. Þau eru
því með búðir í sínum heimabæj-
um og stefna á að opna fleiri búðir
innan skamms.
Míní Kaupfélag
Snúðar & Snældur byrjaði fyrir
tveimur og hálfu ári. Búðin opn-
aði í litlu og krúttlegu iðnaðarhús-
næði. „Nú erum við flutt á aðalgöt-
una hér á Selfossi og erum kominn
í 200 fermetra húsnæði,“ segir
Lovísa afar stolt. „Þetta er svona
míní Kaupfélag. Hér eru pottar
og pönnur, te og kaffi, barnaföt og
gjafavörur,“ segir Lovísa. Inni í búð
þeirra hjóna geta konur jafnt sem
karlar algjörlega misst sig og keypt
fallegar og persónulegar gjafir og
slakað á í þægilegu umhverfi.
Vörur seM fást hVergi
annars staðar
Þau hjónin eru með kaffibar frá Te
og Kaffi í búðinni og þar er hægt
að fá gríðarlega gott kaffi, súkku-
laði eða latte. „Okkur hefur ver-
ið tekið mjög vel. Ekki bara hér á
Selfossi heldur um allt land. Við
fáum rosalega mikið af fólki frá
höfuðborgarsvæðinu sem keyrir
sérstaklega til okkar því við erum
að selja vörur sem fást hvergi ann-
ars staðar. Við erum alveg ein-
stök,“ segir Lovísa og hlær sínum
smitandi hlátri. Í búðinni er hægt
að kaupa dúkkulísur sem hafa ver-
ið ófáanlegar í langan tíma hér á
landi. „Við flytjum inn okkar vörur
að mestum hluta, ætli 90% af vör-
um sem við erum að selja séu vör-
ur sem við flytjum inn sjálf.“
gaMan að sKapa
eitthVað nýtt
Lovísa hætti sem geislafræðingur
á Domus Medica til að sinna búð-
inni og draumi þeirra hjóna. Kári
er að vinna á Skjá einum en hann
er einnig þekktur sem bassafantur
í 200.000 Naglbítum, einni fremstu
rokkhljómsveit landsins. Lovísa
tekur sér langan tíma að hugsa um
svar hvort starfið sé skemmtilegra.
„Við skulum segja að þetta sé
meira skapandi. Sköpuninn rekur
mig áfram að gera eitthvað nýtt.
Við erum ekki með mikið fötum
fyrir fullorðna. Þetta er aðallega
gjafavara og barnaföt sem hafa ver-
ið að seljast hjá okkur,“ segir Lov-
ísa. Hún vill ekkert gefa upp hvort
Snúðar og Snældur komi í fleiri
byggðarlög á næstunni. Þangað til
þarf að gera sér ferð annaðhvort á
Selfoss eða á Akureyri.
Lovísa V. Guðmundsdóttir er lærður geislafræðingur og vann í Domus Medica þegar henni datt í hug að
stofna búð ásamt manni sínum, rokkaranum úr Naglbítunum Kára Jónssyni á Selfossi. Búðin fékk nafnið
Snúðar og snældur og hefur slegið í gegn.
geislafræðingur
í búðarrekstri
„Við fáum rosalega mik-
ið af fólki frá höfuðborg-
arsvæðinu sem keyrir
sérstaklega til okkar.“
Sæt í búðinni Lovísa stolt í búðinni sinni
Snúðar og Snældur.