Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2009, Blaðsíða 36
Miðvikudagur 18. nóvember 200936 suðurland
Menningarlíf í sveitarfélaginu Árborg
hefur löngum verið í miklum blóma
og er skemmst að minnast þátttöku
sveitarfélagsins á Menningarnótt
2009 í Reykjavík þar sem kynntir voru
allir stærstu byggðakjarnar Árborgar,
safnastarfsemi, starfsemi listamanna
og annað sem þeir standa fyrir.
Fjölbreytt dagskrá var á nýlið-
inni Safnahelgi Suðurlands, s.s. kvik-
myndahátíð í Pakkhúsi ungmenna,
Menningarkvöld á Hótel Selfossi,
sýningar í Húsinu Eyrarbakka og
fleira og fleira.
Að sögn Andrésar Sigurvinssonar,
verkefnisstjóra íþrótta-, forvarna- og
menningarmála í Árborg, er af nógu
að taka næstu dagana hjá þeim.
Sem dæmi má nefna að Bókasafn
Árborgar og fleiri stofnanir taka þátt í
Alþjóðlegu athafnavikunni sem hófst
16. nóvember og stendur til 22. nóv-
ember. Fimmtudaginn 19. nóvem-
ber verður boðið upp á bókakynn-
ingu í Bókasafni Árborgar, Selfossi og
þar mun rithöfundurinn Steinunn
Sigurðardóttir kynna og lesa upp úr
nýrri bók sinni, Góða elskhugan-
um. Ýmislegt annað er á döfinni, til
dæmis bókakynningar í Sunnlenska
bókakaffinu hjá Bjarna Harðar og co,
Gömludansaball á Selfossi, tónleika-
hald á vegum Tónlistarskólans.
Senn líður að jólum og það mun
ekki fara framhjá Selfyssingum og
nærsveitarmönnum. Ljóst er af orð-
um Andrésar að Bókasafnið á stóran
sess í mannlífi sveitarfélagsins, því
þrátt fyrir að enn sé einhver bið þang-
að til jólasveinar einn og átta laumast
til byggða verða jólaljósin tendruð
við hátíðlega athöfn á fimmtudaginn
fyrir framan bókasafnið á Selfossi, og
mun Júlía Sól Sigurfinnsdóttir, yngsti
borgari sveitarfélagsins, sem fæddur
er á þeim degi, sjá um það. Við það
tækifæri mun Skátafélagið Fossbúar
gefa gestum og gangandi forsmekk
að jólakakóinu, sem eflaust mun ylja
mörgum og ekki spillir að njóta þess
undir söng barnakóra Selfosskirkju
undir stjórn Edit Molnár. Tónlist
verður síðan leikin af ungmennum
frá Zelsiuz. Verslanir verða opnar
fram eftir kvöldi og er þetta hluti af
samstarfsverkefni SVOÞÁ (Samtaka
verslunar og þjónustu í Árborg og
sveitarfélagsins).
Mörgum þykir skorta á jákvæðar
fréttir hin síðari misseri og má það ef-
laust til sanns vegar færa. Til að bæta
úr því býður Bókasafn Árborgar gest-
um að rita jákvæðar fréttir á frétta-
spjald og ef að líkum lætur verða þeir
ófáir sem nýta sér það góða boð.
Á Eyrarbakka stendur yfir mikil
byggingarvinna því á Gallerí Gónhól
er í smíðum stærsta piparkökuhús
landsins. Margar hendur vinna létt
verk og eins eðlilegt verður að teljast
kemur smiður af Eyrarbakka, Gísli
Kristjánsson, að verkinu ásamt fleir-
um, en aðstandendur vona að sem
flestir sjái sér fært að taka þátt í æv-
intýrinu. Einnig er vert að geta þess
að piparkökukeppni stendur yfir og
er keppt í bæði barna- og fullorð-
insflokki. Þetta er samstarfsverkefni
Gónhóls og leik- og grunnskólanna.
Sömuleiðis er ýmislegt í undirbún-
ingi og bígerð á Stokkseyri.
„Við bjóðum alla velkomna hing-
að til okkar á þessa viðburði og þá
sem verða í gangi á aðventunni og
þeir verða ófáir. Jólasveinarnir koma
til byggða úr Ingólfsfjalli 11. desem-
ber, hangandi utan á grænu rútunni
ásamt Grýlu og Leppalúða og þeirra
hyski og er ungviðið farið að telja
dagana,“ sagði Andrés að lokum.
Senn líður að því að jólaljósin verði tendruð á Selfossi. Leikstjórinn Andrés Sigurvinsson, menningarmálafull-
trúi Árborgar með meiru, segir af nógu að taka af áhugaverðum viðburðum í sveitarfélaginu og að sjálfsögðu
séu allir velkomnir.
Árborg í
aðdraganda
aðventu
Andrés Sigurvinsson Segir
börnin telja dagana þar til
jólasveinarnir koma til byggða.
Magnús Hlynur Hreiðarsson,
ritstjóri Fréttablaðs Suður-
lands Í faðmi fjölskyldunnar á
aðventu í Árborg 2008.
Kakóið getur ekki
brugðist Skátafélagið
Fossbúar býður upp á
heitt kakó þegar jólaljósin
verða tendruð í Árborg.