Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2009, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2009, Blaðsíða 7
fréttir 18. nóvember 2009 miðvikudagur 7 Ein stærsta líkamsræktarkeðja ver- aldar hefur áhuga á að kaupa World Class á Íslandi. Þetta fullyrðir Jón- ína Benediktsdóttir, líkamsræktar- og viðskiptafrömuður, en hún hefur verið fengin til að undirbúa jarðveg- inn fyrir hugsanleg kaup keðjunnar. Rekstrarfélag World Class, Þrek ehf., var komið í greiðsluþrot og gjaldþrot þess var skammt undan. Til að bjarga rekstri líkamsrækar- stöðvarinnar ákváðu eigendurnir, Björn Leifsson og Hafdís Jónsdóttir, að færa hann undir aðra kennitölu, nánar tiltekið yfir til móðurfélags- ins, Lauga ehf. Móðurfélagið tapaði talsverðum fjármunum á síðasta ári en samkvæmt ársreikningi má sjá tap upp á nærri 300 milljónir króna. Þá er félagið nokkuð skuldsett vegna tækjakaupa stöðvarinnar. Ekki rétta leiðin Jónína telur eðlilegt, sökum erfiðrar fjárhagsstöðu fyrirtækisins, að nýj- um eigendum og nýju fjármagni sé hleypt að. Hún útilokar ekki að nú- verandi eigendum verði boðið að sjá um reksturinn. „Þeirra rekstur fór í þrot og því er eðlilegt að hleypa nýju fjármagni og nýjum eigendum að. Sjálf hef ég ekki beinan áhuga á því að reka World Class því ég er á fullu í öðrum góðum og skemmtilegri málum. Ég gæti hugsað mér að sitja í stjórninni en ekki meira. Núver- andi eigendur eru auðvitað að reyna að vernda sinn hag og bjarga sjálf- um sér en fyrirtækið stendur illa eft- ir slæmar ákvarðanir. Það segir mér það að þau vilja vera áfram í rekstri en það er eðlilegt að almenningur setji spurningamerki við þetta. Það getur síðan vel verið að þessi eig- endahópur vilji ráða núverandi eig- endur í vinnu. En kennitöluflakk er ekki rétta leiðin því þá hefði ég verið til í að kunna það trix á sínum tíma þegar ég fór á hausinn. Þá var ég með margar stöðvar í rekstri og það var bara ein þeirra sem dró mig í kaf. Það hvarflaði hins vegar aldrei að mér að setja hana undir aðra kenni- tölu. Kennitöluflakkið er ekki snið- ugt og nýir eigendur þurfa að koma að þessu,“ segir Jónína. Hefur milligöngu „Það er alls ekki ég sem vil kaupa stöðvarnar en ég hef verið beðin um að vera milligönguaðili fyrir al- þjóðlega risakeðju. Þetta er í gegn- um góðan sænskan vin minn frá því í gamla daga. Þessi keðja er mjög sterk. Eigandann þekki ég mjög vel og hann er mjög sterkur.“ Aðspurð segir Jónína það mjög mikilvægt að fá erlent fjármagn til landsins en vill ekki gefa upp hverj- ir kaupendurnir áhugasömu eru. Hún segist hafa fengið umboð hinn- ar fjársterku líkamsræktarkeðju til að koma viðræðum af stað og afla gagna um reksturinn. „Ég verð að hafa það sem leyndarmál hverjir þetta eru. Þennan bransa þekki ég vel og veit að þessir aðilar hafa ver- ið að gera það mjög gott. Ég hef í nokkra daga reynt að ná í einhvern hjá bönkunum en það virðist vita- vonlaust. Á svona tímum geta þeir ekkert leyft sér svona hægagang því tíminn er peningar. Staðreyndin er sú að það er hópur sem hefur áhuga á að kaupa World Class og ég er að reyna að undirbúa jarðveginn,“ seg- ir Jónína. Reynt var að ná í Björn Leifsson við vinnslu fréttarinnar en án árang- urs. Jónína Benediktsdóttir, líkamsræktar- og viðskiptafrömuður, leiðir hóp erlendra fjárfesta sem vilja kaupa líkamsræktarstöðvar World Class á Íslandi. Hennar hlutverk er að undirbúa jarðveginn en hún getur út frá reynslu sinni hugsað sér að sitja í stjórninni. JÓNÍNA BEN VILL WORLD CLASS TrausTi HafsTEinsson blaðamaður skrifar: trausti@dv.is „Ég hef í nokkra daga reynt að ná í einhvern hjá bönkunum en það virðist vitavonlaust. Á svona tímum geta þeir ekkert leyft sér svona hægagang því tíminn er peningar.“ Leiðir hóp Jónína reynir að undirbúa jarðveginn fyrir kaup erlendra fjárfesta á World Class. www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25 Nálastungudýnan gefur þér aukna orku og vellíðan Verslunin er opin virka daga frá kl. 9 -18 Opið laugardaga fram að jólum frá kl. 11-16 • Dregur úr vöðvaspennu • Höfuð- háls- og bakverkjum • Hefur góð áhrif gegn streitu • Er slakandi og bætir svefn Shakti Original 10.750 kr. Shakti Light 9.750 kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.